Morgunblaðið - 23.09.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
37
AKUREYRI
Almannavarnaæfing á Pollinum
Árni Gunnarsson:
Fer í
framboð
í Norður
landi
eystra
ÁRNI Gunnarsson, fyrrver-
andi alþingismaður, til-
kynnti á kjördæmisráðs-
fundi Alþýflokksins i
Norðurlandskjördæmi
eystra um helgina að hann
ætlaði i framboð fyrir flokk-
inn i þvi kjördæmi. Sögu-
sagnir hafa verið á kreiki
um að Arni hygðist fara i
framboð i Reykjavik en svo
verður ekki.
Það var ákveðið á kjördæmis-
þinginu, sem haldið var á Stóru
Tjömum í Ljósavatnsskarði, að
prófkjör Alþýðuflokksins í kjör-
dæminu yrði haldið eigi siðar en
í janúar á næsta ári.
Um 30 manns sóttu kjördæm-
isþingið um helgina.
Ámi var lqörinn á þing í kjör-
dæminu 1978 og 1979 en féll í
kosningunum 1983.
ALMANNAVARNANEFND
Akureyrar gekkst um helgina
fyrir æfingu á Pollinum fyrir
norðan flugvöllinn. Þetta var
æfing vegna almannavarna-
áætlunar ef flugslys yrði á
Akureyrarflugvelli. Hafnsögu-
bátinn Mjölni, gúmmíbát og
„uppáklædda" menn gat að líta
úti á Polli.
Fólk sem átti leið um gat sér
þess til að leit stæði yfír af ein-
hvetjum sem lent hefði í hrakning-
um en sem betur fór reyndist svo
ekki vera. Þama voru sem sé
slökkviliðsmenn, félagar í Flug-
björgunarsveitinni og Hjálparsveit
skáta, hafnarverðir og félagar í
Sjóbjörgunarsveitinni Súlum á
æfíngu. 40-50 manns tóku þátt í
henni. „Við settum upp æfíngu
með það að bjarga fólki úr sjó og
það kynnt fyrir björgunarsveita-
mönnum og slökkviliðsmönnum,"
sagði Gísli Kristinn Lórenzson,
varaslökkviliðsstjóri, í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta gekk ágæt-
lega en það komu þó upp atriði
sem verður að endurskoða. Það
er unnið samkvæmt gömlu plani
en almannavamanefnd ætlar að
fara að endurskoða hana.“
Sjálfstæðisflokkurinn í Norðurlandskjördæmi eystra:
Atta frambjóðendur
taka þátt í prófkjörinu
ÁTTA manns ákváðu að bjóða
sig fram í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra vegna væntanlegra
alþingiskosninga. Próflgörið fer
fram 18. október næstkomandi.
Frestur til að tilkynna þátttöku
í prófkjörinu rann út um helgina
og það voru eftirtaldir sem taka
þátt: Halldór Blöndal, alþingismað-
ur, Bjöm Dagbjartsson, alþingis-
maður, Vigfús Jónsson bóndi,
Margrét Kristinsdóttir, kennari,
Bima Sigurbjömsdóttir, hjúkruna-
rfræðingur, Tryggvi Helgason,
flugmaður, Stefán Sigtryggsson,
viðskiptafræðingur og Tómas Ingi
Olrich, menntaskólakennari.
Flokksbundnir Sjálfstæðismenn
geta greitt atvkæði í prófkjörinu.
Þar skulu menn kjósa 3 menn fæst
og 5 mest. Kjömefnd hefur heimild
til að bæta fólki á listann sem verð-
ur lagður fram í prófkjörinu en að
sögn Sigurðar Hannessonar, form-
anns kjördæmisráðs, verður það
ekki gert.
„Verið að hengja
bakara fyrir smið“
-segir lögmaður skemmtistaðarins H-100
“ÞAÐ hefur ekkert komið fram
sem hrekur það að Magnús Þórð-
arson hafði umboð til að taka við
greiðslunum til skjólstæðings
sins á sinu nafni“ sagði Gunnar
SÓlnes, lögfræðingur H-100, þeg-
ar blaðamaður bað hann um að
skýra sína hlið í máli Rúnars
Þórs Bjömssónar. “Þama var
verið að ganga frá skuld i fullu
samræmi við dómsorðið i Bæjar-
þingi Akureyrar með eðlilegiun
vöxtum á þessu timabili. Magnús
bauð þennan kost, og Rúnar
hafði samband við mig til að
knýja á um að þessi leið yrði
farin.“
Gunnar sagði að umboð lög-
manns til þess að taka á móti
greiðslum á þennan hátt væri ótví-
rætt. “Hér kemur fólk á skrifstof-
una á hverjum degi og lýkur
skuldum við skjólstæðinga okkar
með ávísunum sem gefnar eru út á
okkur." Benti hann á 4. grein laga
nr. 61/1942 og 10. grein laga nr.
7/1936 máli sínu til stuðnings.
Sagðist Gunnar ætla að fara þess
á leit við fógeta að formaður og
framkvæmdastjóri Lögmannafé-
lags íslands yrðu látnir bera vitni
í málinu þegar það verður tekið
fyrir nú í haust.
Spumingu blaðamanns um það
afhveiju hann hefði ákveðið að
semja við Magnús, þótt hann hefði
áfrýjað málinu til Hæstaréttar svar-
aði Gunnar: „Magnús bauð upp á
þennan kost. Eg taldi það vænlegra
að semja svona en að láta málið
halda áfram fyrir Hæstarétti. Búið
var að gera íjámám i fasteign dóm-
þola (þ.e. H-100, innsk. blaða-
manns) og biðja um uppboð. Hefði
það farið fram var ekki um annað
að ræða en að greiða skuldina út
til forðast uppboð." Gunnar bætti
þvi við að ef málið væri skoðað þá
hefði alltaf verið ágreiningur um
það hvort Rúnar væri ekki að hluta
til ábyrgur fyrir slysinu. Raunar
kæmi það glögglega fram i dóms-
orði bæjarþingsins að Rúnar hafi
borið verulega ábyrgð.
Gunnar sagðist að lokum telja
að krafan a hendur skjólstæðinga
sinna væri algjörlega órökstudd.
“Hér er verið að hengja bakara
fyrir smið“ sagði Gunnar Sólnes.
Morgunblaðið/Skapti.
Fimmti Kanadatogarinn kominn á athafnasvæði Slippstöðvarinnar.
Cape Hunter heitir hann og verður m.a. lengdur eins og hinir fjór-
ir togaramir.
Fimmti Kanada-
togarinn kominn
1 Slippstöðina
Akureyrí
FIMMTI Kanadatogarinn er nú
kominn til Slippstöðvarinnar hf.
á Akureyri - kom i fyrrakvöld -
og verður i stöðinni fram að jól-
um.
Þessum togara, Cape Hunter,
verður breytt eins og hinum fjórum
sem á undan hafa komið. Hann
verður lengdur talsvert og einnig
gerðar á honum aðrar breytingar.
Eins og áður hefur komið fram
i Morgunblaðinu ætlar Kanadíska
fyrirtækið sem á umrædda togara
að láta breyta fleiri skipum; öðru-
visi togurum, og er ekki loku fyrir
það skotið að Slippstöðin nái í a.m.
k. einhvem þeirra hluta verkefna.
Húsmæður
á Akureyri
Hafið þið áhuga á að fá ykkur morgungöngu
sem borgar sig? Hafið þá samband við af-
greiðslu Morgunblaðsins á Akureyri. Sími
23905.
Morgunblaðið á Akureyri
Hafnarstræti 85,
sími23905.
4