Morgunblaðið - 23.09.1986, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Umbrotsmenn
Okkur vantar vana menn til starfa í umbrots-
deild. Mikil vinna og fjölbreytt verkefni.
Vinsamlega hafið samband við verkstjóra kl.
Íddi
16-18 næstu daga.
Prentsmiöjan Oddihf.
Höföabakka 7,110 Reykjavík.
- Fataiðnaður -
Starfsfólk óskast
Við vorum að flytja í ný og stórglæsileg húsa-
kynni í Skeifunni 15 (einn besti staður í
bænum).
Og þar sem stöðugt fleiri vita að við framleið-
um einn besta hlífðarfatnað í heimi (og þótt
víðar væri leitað), þá vantar okkur nú fleira
GOTT starfsfólk til framleiðslunnar.
Hjá okkur er bæði unnið á dagvakt (kl. 8.00-
16.00) og kvöldvakt (kl. 17.00-22.00).
Ef þú hefur áhuga á að vinna við fjölbreytt
saumastörf hjá ört vaxandi fyrirtæki þar sem
góður starfsandi ríkir, þá skaltu hafa sam-
band við okkur.
Skeifunni 15.
Simi 685222.
Ólafsfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Ólafsfirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 62437
og hjá afgreiðslu Mbl. í Reykjavík í síma
91-83033.
IHrtgniiMflitoife
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Seyðisfirði.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 2129 og hjá
afgreiðslunni í Reykjavík í síma 91-83033.
ST. JÓSEFSSPÍT ALI
LANDAKOTI
Ræstingar
Starfsfólk óskast til ræstinga, 100% vinna.
Vinnutími frá kl. 7.30- 15.30 (hlaupandi
frídagar).
Einnig óskast starfsfólk til ræstinga á skurð-
stofu. Vinnutími frá kl. 9.00-17.00 og
10.00-18.00.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma
19600-259 milli kl. 10.00 og 14.00 daglega.
Reykjavík, 19.sept. 1986.
Endurskoðunar-
fyrirtæki
Við auglýsum eftir starfsmönnum til eftirtal-
inna starfa:
Vélritun og ritvinnsla. Haldgóð reynsla í
vélritun og/eða ritvinnslu nauðsynleg. Góð
íslenskukunnátta áskilin.
Endurskoðun og reikningsskil. Leitað er
eftir nokkrum viðskiptafræðingum og/eða
mönnum með verslunar- eða samvinnuskóla-
próf eða hliðstæða menntun með haldgóða
starfsreynslu. Nemar í viðskiptafræðum
koma einnig til greina.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og starfsreynslu sendist undirrituð-
um fyrir 27. september nk.
endurshoóun hf
löggiltir endurskoðendur,
Suðurlandsbraut 18.
Sími 68-65-33.
Bílaviðgerðir
Viljum ráða nú þegar vana menn á rétting-
ar- og málningaverkstæði. Einnig kæmi til
greina lausráðnir menn sem réðu sínum
vinnutíma sjálfir v/vaktavinnu.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu.
Kyndillhf.
Stórhöfða 18.
Auglýsingateiknarar
og sendill
Viljum ráða auglýsingateiknara í fullt starf.
Hlutastarf gæti verið um að ræða til að byrja
með.
Einnig sendil 4-6 tíma á dag eftir samkomu-
lagi.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: A-500“.
Verksmiðjustörf
Viljum ráða fólk til verksmiðjustarfa nú þeg-
ar. Vinnutími frá 8.00-16.15. Breytt launa-
fyrirkomulag.
Umsóknareyðublöð hjá verkstjóra á staðnum
á Barónsstíg 2-4.
MðsSMirSiifls
Starfskraft
vantar í uppvask á daginn.
Upplýsingar á staðnum.
^ASKXIK
Suðurlandsbraut 14.
REYKJALUNDUR
Hjúkrunarfræðingar
óskast
Viljum ráða hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og
aðstoðarfólk til starfa sem fyrst. Um er að
ræða heilsdagsstörf og hlutastörf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
666200.
Reykjalundur,
endurhæfingarmiðstöð.
Fiskvinna
Okkur vantar fólk í fiskvinnu nú þegar.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 98-1101,
<*%rlSFELAG
^frm Véstmannaeyja hf.
Vestmannaeyjum
Fóstrur
Starfsfólk
Fóstrur og aðrir með þekkingu og reynslu
af uppeldi forskólabarna óskast til starfa á
eftirtalin dagvistarheimili Reykjavíkurborgar:
Valhöll
Dyngjuborg
Garðaborg
Brákarborg
Ráðningartími er strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Til greina koma heilsdagsstörf eða hluta-
störf aðallega eftir hádegi.
Hugsanlega fyrirgreiðsla varðandi dagvistun.
Við hvetjum alla þá er áhuga hafa á þessum
störfum að hafa samband við skrifstofu
okkar og leita nánari upplýsinga.
GudntIónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Bifvélavirki
— vélvirki
Afgreiðslustörf - sölumennska
Innflutningsfyrirtæki, sem sérhæfir sig í
rekstrarvörum fyrir iðnaðinn, ásamt verk-
færum, óskar að ráða afgreiðslu- og sölu-
mann sem fyrst. Æskilegt að viðkomandi sé
lærður bifvélavirki, vélvirki eða svipað mennt-
aður.
Eiginhandarumsóknir óskast sendar augl-
deild Mbl., merktar: „B — 1836“.
Ræstingakonur
óskast
Óskum eftir að ráða ræstingakonur til starfa
strax.
Uppl. gefur Sigrún á staðnum í dag, þriðju-
dag, og á morgun, miðvikudag, milli kl. 2 og 4.
Brautarholti 20.
Framtíðarvinna
Vantar röskar og samviskusamar stúlkur í
eftirtalin störf:
1. Afgreiðsla, innpökkun.
2. Vinna við sloppapressur (bónusvinna).
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
Fönn hf. Skeifan 11.
Sími82220.
Skrifstofustarf
— ritarastarf
23ja ára gömul stúlka útskrifuð úr ritara-
skóla óskar eftir vinnu við skrifstofu- eða
ritarastarf. Upplýsingar í síma 75377.
Skrifstofustúlka
óskast
Skrifstofustúlka óskast í hálfsdagsstarf frá
kl. 14.00-18.00 alla virka daga.
Umsóknir með uppl. um aldur og reynslu
leggist inn á augldeild Mbl. merktar: „V —
530“.