Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
41
Hvaða bækur eigum við að lesa
á haustnóttum?
JÓHANNA KRlSrJÓNSDÓTTIR
Eva Ramm: Skynd deg, min
elskede.
Útg. Aschehoug 1986.
Þessi saga var meðal þeirra sem
norska forlagið Aschehoug keypti
til útgáfu, eftir að hafa efnt til sam-
keppni um beztu glæpa- og spennu-
söguna. „Hafðu hraðan á, ástin
mín“ er um margt óvenjuleg að
gerð. Efnið er nokkuð snjallt: blaða-
maðurinn Angelique Durant fær af
fáránlegum orsökum áhuga á því
hvemig gömul gleðikona, Cecile
Jonsen, hefur látið lífið. Málið kem-
ur henni í reynd ekkert við, en það
er eitthvað þama sem vekur áhuga
hennar. Hún kynnist Karli
Weinstock, frægum og glæsilegum
fræðimanni, og um hríð víkur áhug-
inn á láti Ceeile fyrir ástinni á
þessum bráðvæna manni. Eða er
hann kannski ekki jafn vænn og
hann lítur út fyrir? Getur verið að
það sé eitthvað bogið við geðheilsu
hans? Og að hann sé kannski morð-
ingi Cecile þegar allt kemur til alls?
Og þá hvers vegna í ósköpunum?
Eva Ramm fléttar þessa þræði
saman af kfmni og lipurð og þrátt
fyrir fáránleg endalok er lesandi
sáttur við þau einmitt vegna þess
hvemig höfundur greiðir þetta
sundur.
Vel skrifuð bók, en umfram allt
er ráðandi undirfurðulegur og
skemmtilegur húmor. Efnistök og
frásagnarmáti höfundar veita hon-
um tök á að standa í dálftillí fjar-
lægð frá persónunum, án þess þó
að hann verði ópersónulegur.
Eva Ramm fæddist í Björgvin
árið 1925. Fyrsta bók hennar var
„Med stöv pá hjemen" og kom hún
út 1958. Hún vakti mikla athygli,
var þýdd á fjölda tungumála og
gerð eftir henni kvikmynd. Síðan
hefur Eva Ramm sent frá sér fjölda
bóka, næsta bók á undan „Hafðu
hraðan á, ástin mín“ var „Elsk-
huginn Jósúa" sem kom út í fyrra.
Apartheid in Crisis — Voices in
South Africa Today.
Útg. Penguin 1986.
Bók af þessu tagi er tímabær og
vel það; hér er safnað saman í dá-
litla bók greinum eftir bæði fylgis-
menn og andstæðinga hinnar
illræmdu apartheid-stefnu stjómar-
Eva Ramm
innar í Suður-Afríku. Þar á meðal
er skáldkonan Nadine Gordimer og
rithöfundurinn J.M. Coetzee, P.W.
Botha, Desmond Tutu, Nelson
Mandela og fleiri. Margar þessara
gi'eina eru verðar allrar athygli, en
ekki verður þó sagt að þar komi
fram margt nýtt, hafi lesendur á
annað borð fylgzt með þróun mála
í landinu síðustu árin eða svo. Grein
Tutu biskups er í hans stíl, aftur á
móti er verulega mikið á því að
græða að lesa grein Nadine Gord-
imer. Það sem sagt er vera grein
eftir Nelson Mandela er reyndar
svar sem hann gaf þegar hann hafn-
aði „boði“ Botha um að verða látinn
laus úr fangelsi. Sett voru þau skil-
yrði að hann gæfi yfirlýsingu um
að hann hafnaði ofbeldi. Yfírlýsing-
in ber vott um mikinn skaphita og
trú á það sem okkur finnst svo sjálf-
sagt og eðlilegt en vefst fyrir
stjómendum Suður-Afríku: að
svertingjar fái jöfn réttindi á við
hvíta í landi sínu.
Af því sem er í þessari bók fannst
mér ítarleg formálsgrein Mark A.
Uhlig, ritstjóra NYT magazine vera
sú sem langsamlega mestur akkur
er í. Þar em settar fram sögulegar
staðreyndir og reynt að vega og
meta fyrri tíð og þá ekki sízt at-
burði síðustu áratuga. Uhlig fjallar
um, hvað mæli með og hvað mæli
gegn því að apartheid-stefnan verði
látin lönd og leið. Hann gerir það
á mjög yfírvegaðan og skilmerkileg-
an hátt og helzti kosturinn er
auðvitað hvað greinin er málefnaleg
og laus við tilfinningaflóð, sem vill
gera vart við sig í ýmsum grein-
anna hinna. Samt fer ekkert
framhjá lesanda hvomm megin
málsins Uhlig stendur. Þessi bók
er ekki líkleg til að valda neinum
þáttaskilum í Suður-Afríku. En hún
er gagnleg þeim sem hafa áhuga á
að reyna að setja sig inn í það sem
er að gerast. Og ætti að auka skiln-
ing á því til stórra muna. Og það
er ekki svo lítið.
Jane Airken Hodge: Secret Is-
land.
Útg. Coronet Books, Hodder &
Stoughton 1985.
Höfundurinn hefur skrifað all-
Þessar vinstúlkur eiga heima f Víðigerði. Þær efndu tíl hlutaveltu
til ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Þar komu inn í
peningum um 1760 kr. Þær heita Helga Zoega, Hrund Finnbogadótt-
ir og Linda Jónsdóttir.
margar bækur, sem eftir titlunum
að dæma telja til skyldleika við
þessa. í „Secret Island" er sögusvið-
ið gríska eyjan Temi. Það er leyni-
eyja, sem er svona allt að því
ósýnileg og leiðin þangað er svo
flókin að það er ekki nema á ör-
fárra færi að fínna hana. Á þessum
stað hefur Kyria Sophia, brezk
gæða- og merkisdama hreiðrað um
sig. Hún stundar líklega eins konar
lækningar, annars er hin mesta
dulúð yfír þessu. En Kyria Sophia
boðar Daphne frænku sína á sinn
fund og Daphne verður að sjálf-
sögðu að sýna hina mestu varkámi,
því að enginn má frétta hvert hún
er að fara. Daphne hefur nýlega
slitið samvistir við Mark eiginmann
sinn; hann fór að halda við beztu
vinkonu hennar. Þegar Daphne
kemur til eyjarinnar Kos, en þar á
hún að bíða nánari fyrirmæla, fara
undarlegir atburðir að gerast og
ýmsir aðilar, misjafnlega glæsilegir
og grunsamlegir sýna henni áhuga.
Og enn magnast spennan þegar hún
er loks komin yfír á Temi og Kyria
Sophia hefur hreinlega engan tíma
til að sinna frænku sinni, því að
nú rekur hvert dauðsfallið annað
og Sophia hefur nóg að gera að
reyna að upplýsa þennan hrylling.
Inn á milli getur hún þó gefið
Daphne leiðbeiningar sem virðast
miða að því að hún „taki við“ af
Sophiu og sýnist Daphne hafa
ágæta hæfileika. Spumingin er
bara hvort morðinginn fínnst áður
en hann hefur náð að drepa Daphne
líka, því að það eru fleiri en einn-
og fleiri en tveir, sem vilja sölsa
Temi undir sig.
Skrítin bók og dálítil della, en
skikkanleg afþreying þegar ekki
kallar að neitt tiltakanlega áríðandi.
Þær söfnuðu 1560 kr. til Rauða kross íslands er þær efndu til hluta-
veltu. Þær heita Guðrún Helgadóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og
Svava B. Þórðardóttir.
FIMM FYRIR PIG
VIÐ BJÓÐUM NÚ FIMM
VANDAÐAR SKÓTEGUNDIR
FRÁ HUMMEL.
/ Erobikk-skór.
Stærðir: 36-41. Verð: 2.473.
Litir: Svart/hvítt
/ Handboltaskórinn i ár.
i Stærðir: 36-47. Verð: 2.390.
Litur: Hvitt
/ Skokk- og gönguskór.
Stærðir: 36-46. Verð: 2.499.-
Litir: svart/dökkgrár/beige.
/ Alhliða iþróttaskór.
ÍStærðir: 34-47. Verð: 1.330.
Litur: Hvitt
I Leikfimisskor.
/ Stærðir: 30-39. Verð: 845.
Stærðir: 40-46. Verð: 945.
Litur: Hvitt
V
BJARNIO.SiA