Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
55
Marilyn með mörg' mál á
bakinu og ekki par fin, enda
ekki gjaldgengur í
piparsveinapartí.
Bob Geldof mætir til
piparsveinaboðsins, sem sumir
fengu bara að vera með í. Vel
getur þó verið að hinn nýslegni
riddari hafi haft fleiri en eina
ástæðu til þess að láta meina
gömlum vinum aðgang. T.d.
munu þeir vera undir stöðugu
eftirliti lögreglunnar og ekki er
víst að hinir gestirnir í
samkvæminu hafi kært sig um
að deila borði með
eftirlitsmönnunum.
Bob vilí ekki bjóða Boy
í piparsveinapartí
Marc Almond — á miðri
mynd — mætti með
skrautlegu fylgdarliði, en
allt kom fyrir ekki. Dyrnar
lukust ekki upp.
— Þetta er sérréttur kokksins, „Sprengd
Hin gömlu kynni gleymast
r ei“, er lag, sem væntanlega
nefur ekki verið tekið í veisiu mik-
illi, sem Bob Geldof hélt kvöldið
áður en hann gekk í hjónaband með
Pálu sinni Yates í annað sinn í
London á dögunum.
Það kom nefnilega á daginn að
það voru ýmis gömul kynni, sem
Geldof var ekkert of áfláður í að
halda á lofti og eru menn nú ekki
á eitt sáttir um réttmæti aðferða
Bobs við að losa sig við gömlu vin-
ina.
Piparsveinahóf Geldofs var hald-
ið með mikilli viðhöfn í næturidúbb-
num „Groucho’s" og meðal hinna
fögru „ungu“ og ríku gesta mátti
sjá Simon Le Bon úr Duran Duran,
George Michael, Eric Ciapton og
David Bowie.
Meðal þeirra, sem mættu til leiks,
en var meinað um aðgang að dýrð-
inni, voru Boy George, ásamt
bræðrum og vinum, þ.á m. Marilyn
hinum hárprúða og Marc Almond.
Eins og kunnugt er, er drengur-
inn George nýstaðinn upp úr slæmu
eiturlyfjamáli, sem hann slapp að
vísu úr með skrekkinn, en var þó
hið óskemmtilegasta á alla lund.
Boy George fór í meðferð og tókst
að sögn að losna við fíknina og
Þessi fékk að vera með, enda
ungur, fagur og rikur, heitir
Simon Le Bon og hefur aldrei
verið dæmdur fyrir dópneyslu
svo vitað sé. Öðru máli gegnir
um gömlu brýnin, Clapton og
Bowie, sem báðir voru i
veislunni. Þeir þóttu ekki vandir
að virðingu sinni hvað ýmsa
ólyfjan varðaði hér áður fyrr,
en af einhveijum ástæðum hefur
Geldof fyrirgefið þeim það sem
hann setur Boy George út i
kuldann fyrir. Annars er
auðvitað ógetið einnar
hugsanlegrar ástæðu, sumsé
þeirrar, að Boy George og vinir
hans séu einfaJdlega svo miklir
leiðindagaurar, að þeir séu ekki
samkvæmishæfir.
hefur nú heitið bót og betrun. Þar
sem um fyrsta brot var að ræða
og ekki þótti sannað að hann hefði
gert annað en að neyta eitursins
sjálfur, ákvað dómarinn að vera
mildur í þetta sinn og sektaði dreng-
inn aðeins um nokkur hundruð
pund.
Sjálfur Boy
George, lengst t.h.
á myndinni, ásamt
fylgisveinum,
greip í tómt er
hann hugðist
endurnýja kynnin
við næturlíf
Lundúnarborgar
eftir
hreinsunareld á
hælinu. Kunnugir
segja reyndar að
það hafi verið Boy
George, sem átti
hugmyndinaað gerðfyrstu
„ Af ríkuplötunnar", „Do they
knowit’s Christmas?", sem
varð upphafíð að þjálparstarfí þvf
við hungraða sem Geldof hefur nú
verið heiðraður fyriraf
Bretadrottningu.
En þar með er ekki sagt að allar
syndir séu fyrirgefnar, þó ekki liggi
fyrir neinar sannanir fyrir því hvort
þar var daður drengsins við ólyfjan-
ina, eða léleg sala á hljómplötum
hans upp á síðkastið, sem gerði það
að verkum að Bob Geldof vildi ekki
sjá hann I boðinu flna.
1/2 SVÍNSr
Napoleon
Minni fita
Betra eldi
Lægra verð
KJOTMIÐSTÖPINSimí 686511
gæði 235 kr. kg.
Tilbúið í kistuna.
Ving" — BinS"
Nú mæta allir í bingó í Glæsibæ
í kvöld kl. 19.30
Hæsti vinmngur að verðmæti
kr. 80.000,-
Vinningar og verð á spjöldum í
öðrum umferðum óbreytt.
Mætum stundvíslega.
Birgðir í lágmarki
sölugreining - arðsemiseftirlit
ALVIS
VÖRUKERR
Afkoma verslunar- og
iðnfyrirtækja er að miklu leyti
undir því komin hvernig til tekst
með stjórnun vörubirgða. í
ALVlS vörukerfinu er að finna
margar einingar sem hjálpa
fyrirtækjum að halda birgðum í
lágmarki án þess að til
vöruskorts komi. Auk þess eru
einingar til að annast daglega
vinnslu svo sem
birgðabókhald, afgreiðslu og
vörumóttöku.
Markmið: Tilgangur námskeiðs-
ins er að kenna á allar einingar
ALVÍS vörukerfisins þannig að
starfsmenn geti nýtt sér kosti þess
til fulls.
Efni: Kennd er notkun eftirfarandi
eininga:
- Birgðabókhald
- Sölukerfi
- Sölugreining
- Arðsemiseftirlit
- Pantanatillögur
- Tollskýrslugerð
- Verðlagning
Þátttakendur: Starfsmenn
fyrirtækja, sem hafa tekið ALVÍS
vörukeiíið í notkun eða hyggjast
gera það.
Leiðbeinandi: Sigrtöur
Olgeirsdóttir. Lauk prófi frá EDB
skólanum I Odense, Danmörku.
Starfar nú sem kerfisfræðingur
hjá Skrifstofuvélum hf.
Tími: 29. sept.—2. okt.,
kl. 13.30—17.30.
A
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 621066
\