Morgunblaðið - 23.09.1986, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
63
Viðeyjarstofa og kirkjan verða nú flóðlýst á sama tíma og kveikt er á götuljósum í höfuðborginni.
Rafmagn í Viðey:
Viðeyjarstofa flóðlýst
Innan dyra í Viðeyjarstofu. Eftir að kveikt hafði verið að rafmagnsljósuin í byggmgtmm gengu
gestir um hana og kynntu sér ástand hennar.
DAVÍÐ ODDSSON, borgar-
stjóri, embættismenn
Reykjavíkur og starfsmenn
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
ásamt Þór Magnússyni og fá-
einum fleiri gestum fóru út í
Viðey í ljósaskiptum á sunnu-
dagskvöld. TUefnið var, að
lagður hefur verið rafstrengur
í sjó út í eyjuna. Hefur eyjan
ekki áður verið tengd landi með
þessum hætti og við Viðeyjar-
stofu tendraði borgarstjóri á
flóðljósum og minntist þessara
tímaóta með ávarpi.
í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar afhenti Sverr-
ir Hermannsson, menntamálaráð-
herra, fyrir hönd ríkis og kirkju
Reykvíkingum Viðeyjarstofu og
kirlq'una í Viðey til eignar með
því skilyrði, að húsunum yrði kom-
ið f viðunandi horf og vel við
haldið. Um nokkurt árabil hafa
menn á vegum Þjóðminjasafns
unnið að endurbótum á húsunum
í eyjunni. Þeir hafa ekki haft raf-
magn til að létta sér störfím. Það
er ætlun borgarstjóra, að mark-
visst verði gengið til verks við að
endursmíða húsin og hefur hann
sagt, að það ætti ekki að taka
lengur að gera það en Skúla
Magnússon, landfógeta, að reisa
stofuna fyrir 200 árum; þá tók
smíði hennar tvö ár.
Til að unnt sé að vinna að við-
gerðum í Viðey með skipulegum
hætti er nú verið að búa þannig
um hnúta af hálfu Reykjavíkur-
borgar, að öll aðstaða til verksins
sé sem best. Þess vegna var lagð-
ur rafstrengur í sjó út í eyjuna. Á
tímum Milljónafélagsins var raf-
magn í eyjunni frá mótórum þess,
þannig að nú hefur eyjan í fyrsta
sinn fengið þessa orku úr landi.
Samhliða því sem rafmagnið var
lagt var ákveðið að flóðlýsa Við-
eyjarstofu og kirkjuna, að
minnsta kosti nú á afmælisári
borgarinnar.
Eftir að kveikt hafði verið á
ljósunum var boðið til kaffi-
drykkju við kertaljós í skála
Hafsteins Sveinssonar, sem ann-
ast bátsferðir milli lands og eyja.
Þar kvaddi Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður, sér hljóðs og fagnaði
því, að framtíðarljós hefðu verið
kveikt í Viðey. Hann sagðist hafa
verið andvígur því, að ríkið gæfi
eignir sínar í eyjunni en á hinn
bóginn væri hann þess fullviss,
að vel yrði staðið að endurreisn
húsanna undir forystu borgaryfir-
valda
Leifur Blumsenstein stjómar
framkvæmdum á vegum borgar-
innar í Viðey. Verður hafist handa
við að múra Viðeyjarstofu að inn-
an þegar aðstseður leyfa. Með
rafmagninu verður unnt að hafa
hita í húsinu og þurrka við í því,
sem er forsenda þess, að unnt sé
að ráðast í viðgerðir á honum.
Davíð Oddsson, borgarstjón, kveikir á flóðljósunum við Viðeyjar-
stofu. (Morgunblaðið/Ami Sæberg)
Byggingariðjan h.f.:
Útflutning
urástein
steyþtum
byggingar
einingum
til Færeyja
BYGGINGARIÐJAN h.f. hefir
hafið útflutning á byggingarein-
ingum úr steinsteypu tii Færeyja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Byggingarþjónustunni, er lokið af-
skipun á fyrstu pöntuninni, sem er
218 tonn og er hluti hennar þegar
settur upp í Færeyjum, en næsta
pöntun, sem er 524 tonn, verður
framleidd á næstu tveimur mánuð-
um. Utflutningsverðmæti þessara
pantana er um 4 milljónir króna.
Einingar þær, sem hér um ræðir,
eru holplötur úr strengjasteypu, en
þær eru notaðar í loft og þök húsa
af öllum gerðum.
Byggingariðjan hóf framleiðslu á
þessum holplötum fyrir rösku ári
og hefur eftirspumin verið mikil
að sögn forráðamanna fyrirtækis-
ins.
Vegagerð á Vest-
fjörðum:
Lægstu til-
boð 63-70% -
af áætliin
VEGAGERÐ ríkisins fékk hag-
stæð tilboð í lagningu tveggja
vegarkafla á Vestfjörðum sem
boðnir voru út fyrír skömmu.
Lægstu tilboð voru á bilinu
63-70% af kostnaðaráætlun
V egagerðarínnar.
Sjö verktakar buðu f lagningu
2,9 km kafla á Tálknafjarðarvegi
sem ljúka á fyrir 15. júní næsta
sumar. Lægsta tilboðið var frá Am-
arfelli hf. í Skagafírði, 3.093
þúsund krónur, sem er 63,6% af
kostnaðaráætlun, en hún hljóðaði
upþ á 4.863 þúsund kr. Þijú önnur
tilboð vom undir áætluninni, en
þijú yfír henni, það hæsta 8,4 millj-
ónir kr.
Sandfell sf á Blönduósi átti
lægsta tilboðið í stjrrkingu 7,6 km
kafla á Hólmavfkurvegi, 1.942 þús-
und krónur, eða 69,4% af kostnað-
aráætlun. Áætlunin var 2.797
þúsund krónur og vora þijú tilboð
af þeim sjö sem bárast yfir áæltun,
það hæsta 3.991 þúsund krónur.
Aðalluktir, aukaluktir, vinnuljós, aftur-
Ijós, samlokur og kastarar
Allar bflaperur —
þokuljós i úrvali
Allt í bílinn -
I®! (TifQMSt
Síðumúla 7-9, ® 82722