Morgunblaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
Dregið í 26 happ-
drættum í
Dómsmálaráðuneytið hefur
gefið leyfi fyrir 26 happdrættum
sem í verður dregið í desember.
í flestum þessara happdrætta
verður dregið 23. og 24. desemb-
er, þar á meðal öllum þeim
happdrættum sem notast við
þjóðskrá til að senda út happ-
drættismiða.
Þau félög og samtök sem fengið
hafa leyfi fyrir happdrættum í des-
ember eru þessi í tímaröð eftir
drætti: 1.-24. desember, Félag
ungra framsóknarmanna; 7. des-
ember, Lionessuklúbburinn Kaldá,
8. desember, Kjördæmasamband
Framsóknarflokksins á Suðurlandi;
10. desember, Alþýðuflokkurinn;
13. desember, Vegurinn; 15. des-
ember, Golfklúbbur Reykjavíkur,
Ungmennasamband Austurlands,
Skíðadeild KR; 19. desember, Félag
heymarlausra, íþróttafélagið Þrótt-
ur á Neskaupstað; 21. desember,
stúdentsefni í Fjölbrautaskóla
Sauðárkróks, íþróttafélagið Stjam-
an; 22. desember, Blindravinafélag-
ið; 23. desember, Lionsklúbburinn
Þór, Lionsklúbburinn Fáskrúðsfirði,
Flugbjörgunarsveitin, Ungmenna-
samband Kjalamess, Lionsklúbbur-
inn Óðinn, Lögreglufélag
Reykjavíkur, Framsóknarflokkur-
inn; 24. desember, SÁÁ, Sjálfs-
björg, Krabbameinsfélagið,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Styrktarfélag vangefínna.
Hluti af þessum félögum og sam-
tökum hafa fengið leyfí hjá Hag-
stofu íslands til að senda út
happdrættismiða eftirþjóðskránni.
desember
Hallgrímur Snorrason hagstofu-
stjóri benti á að öllum væri fíjálst
að láta strika sig af þeim listum
sem Hagstofan afhendir til þeirra
aðila sem óska eftir að nota þjóð-
skrá til að senda út happdrættis-
miða eftir. Aðeins þyrfti að hringja
til Hagstofunnar og gefa upp nafn
og nafnnúmer.
Alþýðubandalag-
ið á Vestfjörðum:
Kristinn í
efsta sæti
ATKVÆÐI voru talin á ísafirði
í gærkvöldi í forvali Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum.
Kristinn Gunnarsson, Bolung-
arvík, hlaut flest atkvæði í 1. sæti
eða 198. Sveinbjöm Jónsson, Súg-
andafírði, hlaut flest atkvæði í 1.
og 2. sæti eða 158 og Þóra Þórðar-
dóttir, Suðureyri, hlaut flest
atkvæði í þijú fyrstu sætin saman-
lagt eða 232. Sveinbjöm lýsti því
yfir í gærkvöldi að hann hyggðist
ekki taka annað sætið.
Talning atkvæða dróst í nokkra
daga vegna þess að kjörkassinn frá
Patreksfirði fannst ekki þegar til
átti að taka. Kom í ljós að hann
hafði gleymst í húsi þar á staðnum
og hafði ekki verið settur í póst
eins og átti að gera.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
Kista Emils Jónssonar borin úr kirkju. Líkmenn voru Kjartan Jóhannsson alþingismaður, Jón Bald-
vin Hannibalsson formaður Alýðuflokksins, Karl Steinar Guðnason alþingismaður, Eiður Guðnason
alþingismaður, Ingvar Viktorsson bæjarfulltrúi, Vigfús_ Sigurðsson fulltrúi hafnfirzkra iðnaðar-
manna, Hörður Zophoníasson skólastjóri og Guðmundur Arni Stefánsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Barnabörn Emils Jónssonar héldu á blómvöndum og krönsum.
Útför Emils Jónssonar
ÚTFÖR Emils Jónssonar, fyrr-
um forsætisráðherra, var gerð
frá Hafnarfjarðarkirkju
síðdegis í gær að viðstöddu
miklu fjölmenni. Útförin var
gerð á kostnað ríkisins.
Sr. Sigurður H. Guðmundsson
jarðsöng og sr. Sighvatur Emils-
son, sonur hins látna, þjónaði við
athöfnina. Magnús Jónsson og
Katrín Sigurðardóttir sungu ein-
söng, Ljóðakórinn söng og Rut
Ingólfsdóttir lék einleik á fíðlu.
Organisti var Jón Stefánsson.
Mjólkurbúín vantar
130—140 milljónir
SAMTÖK afurðastöðva í mjólkur
kringum 130—140 milljónir upp
bindingar sinar.
Samkvæmt lögum eiga mjólkur-
framleiðendur að fá greitt fyrir
innlegg hvers mánaðar 10. dag
þess mánaðar sem á eftir fer. I
dag, 10. desember, reikna bændur
því með að fá greitt frá mjólkurbú-
unum inn á reikninga sína, en svo
verður ekki.
naði telja að nú vanti að líkindum
að mjólkurbúin standi við skuld-
Vöntun mjólkurstöðvanna af þess-
um sökum er líklega á bilinu 30—40
milljónir króna, ef til vill meiri.
2. Engar útflutningsuppbætur
hafa enn verið greiddar það sem
af er þessu verðlagsári (þ.e. frá 1.
september sl.). Þetta er óvenju mik-
il seinkun á greiðslum frá ríkinu.
Nemur upphæðin nú samtals kring-
um 50 milljónum króna, að mati
Samtaka afurðastöðva.
3. Uppgjör ríkisins samkvæmt
samningum við Stéttarsamband
bænda um greiðslur vegna mjólkur-
framleiðslunnar hefur enn ekki
farið fram. Ríkið hefur ekki verið
í stakk búið til að greiða um 50
milljónir króna sem á vantar.
Morgunblaðið/Jón GunnlauKSSon
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hinn slasaða mann upp á Akranes.
Þyrla sótti slasaðan mann
Akranesi.
20 tonn af fuglamat
til landsins í dag
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti í gær slasaðan mann upp á
Akranes og flutti hann til frek-
ari læknisaðgerðar í Reykjavík.
Maðurinn slasaðist við vinnu sina
þegar hann féll af palli sem hann
stóð á. Hlaut hann meðal annars
höfuðáverka og var hann fluttur í
sjúkrahúsið á Akranesi en síðan til
Reykjavíkur eins og áður sagði.
Ekki fengust nánari upplýsingar
um hversu alvarleg meiðsli manns-
ins voru er leitað var fregna þar
að lútandi í gærkvöldi. j.g.
Ástæður þeirra greiðsluerfíðleika
sem mjólkurstöðvarnar eru nú
komnar í eru aðallega þessar að
mati Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði:
1. Afurðalán viðskiptabankanna
hafa farið lækkandi undanfarið, úr
72% í 68—69%. Orsökin er sú að
þau hafa ekki fylgt verðlaginu.
Bankamir telja sig hafa sínar
ástæður fyrir því að draga í land,
m.a. umframframleiðslu mjólkur á
liðnu sumri.
VON er á 20 tonnum af kurluðum
maís frá Þýskalandi { dag handa
smáfuglunum á vegum Fóður-
blöndunnar. Sólskrikjusjóðurinn
fær tvö til þijú tonn af farminum
og sér formaður sjóðsins, Erling-
ur Þorsteinsson um að senda
fuglamatinn til flestra bamaskóla
í landinu, eins og hann hefur gert
sl. 25 ár.
Erlingur sagðist venjulega senda
fuglamatinn um miðjan nóvember í
skólana en nú hefði Fóðurblandan,
sem undanfarin ár hefði framleitt
fuglamatinn fyrir hann, ekki getað
kurlað maísinn vegna tæknilegra
vandamála og því hefði verið gripið
til þess ráðs að panta hann erlendis
frá.
„Fóðurblandan endurnýjaði véla-
kost sinn og tölvuvæddi á árinu og
í ljós kom þegar kurla átti
maísinn að nýju vélamar fóru ekki
með heila maísinn á þann hátt sem
gömlu vélamar gerðu," sagði Hjör-
leifur Jónsson, forstjóri Fóðurblönd-
unnar. „Við eigum nóg til af heilum
maís, sem við nú notum í hænsnafóð-
ur. Maísinn er fyrst malaður, ýmsum
efnum blandað saman við og köggl-
amir kurlaðir. Hinsvegar þýðir
ekkert að bjóða smáfuglunum þetta
þar sem kurlið molast niður þegar
það kemur í bleytu. Það verður að
búa til heilt korn handa smáfuglun-
um.“
Hjörleifur sagði að Fóðurblandan
sæi Kötlu hf. og Lýsi hf. fyrir fugla-
fóðri sem síðan pökkuðu fóðrinu í
eins kg. pakkningar, en Fóðurbland-
an selur aðeins í 40 kg. sekkjum.
„Þá selur Fóðurblandan heilan maís
til Kötlu hf. sem síðan sendir hann
norður til KEA á Akureyri til möl-
unnar og þaðan fer hann aftur suður
til dreifingar (verslanir," sagði Hjör-
leifur.
Jón Baldvin í viðtali við Heimsmynd:
f fyllingu tímans verður Al-
þýðuflokkurinn í góðum höndum
- þar sem Jón Sigurðsson er
JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, lýsir þvi
yfir í viðtali við tímaritið Heimsmynd, sem kom út í gær, að „ein-
leikstímabili sínu innan flokksins sé nú lokið og nú taki við
vinnubrögð fjöldahreyfingarinnar". í umræddu viðtali segir for-
maðurinn ennfremur: „Við hugsum ekki til einna kosninga eða
bara til næstu ríkisstjómar. í fyllingu tímans verður Alþýðuflokk-
urinn í góðum höndum þar sem Jón Sigurðsson er.“
í grein um Jón Sigurðsson
tímaritið Mannlífí, sem einnig
kom út í gær, er haft eftir Jóni
Baldvin Hannibalssyni m.a: „Það
er sjálfgefið að maður eins og Jón
(Sigurðsson) verði í forystuhlut-
verki. Ég vona að hann verði nógu
lengi í stjómmálum. Og þegar ég
horfí tíu ár fram í tímann til þess
jafnaðarmannaflokks framtíðar-
innar sem þá hefur tekið við
forystuhlutverki í íslenskum
stjómmálum af Sjáifstæðisflokki,
sé ég hann fyrir mér sem leiðtoga
þess stjómmálaafls - nema ef
vera kynni að Ásmundur Stefáns-
son etji kappi við hann."
í viðtalinu segir Jón Baldvin
að hann vilji að stofnað verði nýtt
ráðuneyti, efnahags- og atvinnu-
málaráðuneyti og kveðst ekki fara
í grafgötur um hver sé hæfastur
til að stjóma því ráðuneyti: „Hvort
heldur um væri að ræða samstarf
til hægri eða vinstri, verður það
Jón Sigurðsson."
Formaður Alþýðuflokksins rek-
ur þróunina innan flokksins
undanfarin tvö ár og segir meðal
annars: „Ég hef fengið til liðs við
mig hæfíleikafólk, sem nýtur .
trausts langt út fyrir raðir Al-
þýðuflokksins. Nú er þetta ekki
lengur „one man show“. Síðar í
viðtalinu segin „Jón Sigurðsson
er greinilega trompið hans. „Ég
segi eins og Hjaltalín skólastjóri
Möðruvallaskóla sagði um Jónas
frá Hriflu ungan: Ég hef ekki
veitt vænni lax á mitt færi. Við
Jón Sigurðsson erum bemskuvin-
ir. Hvað sem í milli ber þá vitum
við, að í okkar skiptum verða aldr-
ei svik í tafli. En við bætum hvor
annan upp. Ég er ástríðupólitíkus
en hann er tæknimaður. Við get-
um orðið Alþýðuflokknum tvíeyki
á borð við Olaf og Bjama, eða
eins og Hannibal og Gylfí áttu
að vera.““
Um hlutverk sitt segir Jón
Baldvin meðal annars: „Ég skil
alla hluti í sögulegu samhengi.
Mitt sögulega hlutverk er að taka
upp þráðinn frá Jóni Baldvins-
syni, þar sem hann slitnaði 1938.
Að gera hreyfíngu íslenskra jafn-
aðarmanna að rótgróinni fjölda-
hreyfingu og stórveldi í íslenskri
pólitík. Þess vegna vitjaði gamli
maðurínn nafns. Þetta er allt
skráð í stjömumar."