Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 2

Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 Eyjabátar mok- veiða ufsa á Vfldnni Vestmannaeyjum. TOGBÁTAR frá Vestmannaeyj- um hafa undanfama daga mokveitt ufsa og hver báturinn af öðrum komið drekkhlaðinn að landi. Þennan góða afla hafa bátamir fengið austur á Vík og í bland við ufsann, sem er stór og góður, hefur fengist dágott af þorski og ýsu. Bátarnir hafa fyllt sig á tveimur til fjórum dögum. Nú síðari hluta vikunnar landaði t.d. Smáey 75 tonnum, Andvari 60 tonnum, Helga Jóh. 60 tonnum og Frár 50 tonnum. Á föstudagsmorg- un voru skipveijar á Stefni að landa 85-90 tonnum sem þeir innbyrtu á tæpum fjórum sólarhringum austur á Vík. Um 15 tonn af aflanum voru þorskur og ýsa, restin góður ufsi. Allur aflinn fór til vinnslu hjá Hrað- frystistöðinni. „Svona eiga túrar að vera, það er gaman að þessu þegar svona vel gengur. Þetta var strembinn túr hjá okkur, við fengum 25 tonna hal í restina og vorum þá búnir að fylla lestina. Við urðum því að forfæra á millidekkinu," sagði Jón Bondó Pálsson, skipveiji á Stefni, í bryggjuspjalli við fréttaritara Morg- unblaðsins. Jón sagðist vonast til að eitthvað áframhald yrði á þessari góðu veiði. „En hann er brellinn þessi ufsi og ekki alltaf á vísan að róa þegar hann er annarsvegar. Þegar við fengum 25 tonna halið voru bátam- ir við hliðina á okkur að taka 4-5 tonn. Við erum að vona að vertíðin sem brást í vetur sé nú að koma,“ sagði hann og sló um leið frá lönd- unarmálinu og gljáandi ufsinn fyllti vömbflspallinn. Vegna lélegs verðs á ufsanum erlendis hafa menn dregið úr gáma- sendingum og mestur hluti aflans farið til vinnslu í frystihúsunum. Mikil vinna er því hjá þeim þessa dagana. Mikill fiskur berst að landi og humarvertíðin er nú í fullum gangi. - hlq. Morgunblaðið/Júlíus Víti til vamaðar í hönd fer nú ein mesta ferðahelgi ársins og er umferð um vegi landsins jafnan mikil um hvítasunn- una. Samtökin Fararheill '87 hafa komið fyrir bOum, sem illa eru farnir eftir árekstra, við stórmarkaðina Hagkaup, Miklagarð og Fjarðarkaup. Vegfarendum tál varnaðar, er minnt á að 42 bifreiðir eyðUeggist eða skemmist á dag. Veigamiklar athugasemdir við flestar sumarbúðanna ö Ástandiðenn verra en égbjóstvið, segir Guðjón Bjarnason fram- kvæmdastjóri Barnaverndarráðs INNLENT BRUNAMÁLASTOFNUN hefur lokið úttekt sinni á húsnæði um það bU helmings umsækjenda um leyfi tíl reksturs sumarbúða í ár. Guðjón Bjarnason framkvæmda- stjóri Barnavemdarráðs íslands sagði i samtaU við blaðamann í gær að ástand brunavama í þeim húsum sem skoðuð hafa verið væri enn verra en hann hefði búist við. „Nánast hver einasti staður sem skoðaður hefur verið Mál bankastjóra Útvegsbankans: Vann að málínu af sann- færingu og heilindum - segir Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari „ÉG vann að þessu máli sam- kvæmt bestu sannfæringu minni og af heilindum, en það koma aUtaf upp réttarfarsleg álitaefni, sem dómstólar einir era færir um að skera úr,“ sagði Hallvarð- ur Einvarðsson, rikissaksóknari. Á fímmtudag komst meirihluti Hæstaréttar að þeirri niðurstöðu að Hallvarður hafí ekki verið hæfur til að gefa út ákæru í máli ákæru- valdsins gegn sjö bankastjórum Útvegsbanka íslands, vegna setu bróður hans í bankaráðinu frá árs- byijun 1985. Hann hafí því verið svo tengdur málinu, eða aðilum þess, að hann hafí ekki getað gegnt störfum saksóknara í því og hefði því átt að víkja sæti og óska eftir því við dómsmálaráðherra, að annar saksóknari yrði skipaður til að fara með málið. „Meðan ég vann að málinu naut ég aðstoðar hinna reyndustu og færustu lögfræðinga hér við emb- ættið," sagði Hallvarður. „Því tel ég að eins vel hafí verið unnið að þessu máli og frekast var unnt. Það er líka ástæða til að benda á að Hæstiréttur var ekki einhuga í úr- skurði sínurn." Hallvarður kvaðst hafa sent dómsmálaráðherra, Jóni Helgasyni, bréf í gær vegna niðurstöðu Hæsta- réttar og með því endurrit af úrskurði dómstólsins í máli banka- stjóranna sjö. „Það er dómsmála- ráðherra að taka nú ákvörðun um það hvort sérstakur saksóknari verður skipaður til að vinna að þessu máli að nýju,“ sagði Hallvarð- ur Einvarðsson, ríkissaksóknari. Dómsmálaráðherra mun að öllum líkindum taka ákvörðun í málinu eftir helgina. Sjá dóma Hæstaréttar í heUd á blaðsíðum 16 og 17 þarfnast einhverra lagfæringa, í flestum tilvikum veigamikilla," sagði Guðjón. Telur hann líklegt að á næstunni taki Barnavemd- arráð afstöðu til þess hvort farið verði á Ieit við menntamálaráð- herra að starfsleyfi þeirra sumarbúða sem ekki standast kröfur um brunavamir verði aft- urköUuð. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í síðustu viku tók'i hertar reglur um sumardvalarheimili bama og sumarbúðir gildi á síðasta ári. Þess er nú krafíst að vottorð slökkviliðsstjóra i viðkomandi sveit- arfélagi um fullgildar brunavamir fylgi umsókn. Bamavemdarráð er umsagnaraðili til ráðherra og getur brqt á reglum valdið leyfíssviptingu. í ljós kom að stór hluti umsækj- enda í ár uppfyllti ekki skilyrði. Einnig voru brögð að því að slökkvi- liðsstjórar vottuðu að brunavamir væm ákjósanlegar án þess að hafa heimsótt viðkomandi stað. Guðjón nefndi sem dæmi að læknir og slökkviliðsstjóri hafí fallist á notkun húss undir sumardvalarbúðir á gmndvelli teikninga. Við eftir- grennslan kom í ljós að meint viðbygging hússins hefði aldrei ris- ið. Að tilmælum ráðsins" tók Bmna- málastofnun að sér úttekt á húsnæði umsækjenda. Hún hófst hinsvegar ekki að marki fyrr en í aprfl og fyrstu skýrslur um niður- stöður úttektarinnar litu ekki dagsins ljós fyrr en í gær. Guðjón sagði að þetta hefði sett jafnt umsækjendur og umsagnarað- ila í erfíða aðstöðu. Rekstur væri þegar hafinn á nokkmm staðanna. „Við þurfum hugsanlega að setja einhveijum þeirra skilyrði um úr- bætur sem þeir þurfa að uppfylla innan tímamarka og afturkalla leyfi þeirra ella. En á meðan endanlegar niðurstöður liggja ekki fyrir getum við ekki tekið þessar ákvarðanir og þeir sem reka sumarbúðimar ekki hafíst handa um nauðsynlegar úr- bætur,“ sagði hann. Bamavemdarráð hefur þegar hafnað átta umsóknum af þeim tuttugu sem því bámst í vetur. Ell- efu leyfi vom veitt með fyrirvara er. einar sumarbúðir fengu leyfí athugasemdalaust. Þá er nokkur hópur sumarbúða rekinn með leyfí frá því í fyrra, sem gildir til tveggja ára. Hluti þeirra hefur einnig verið skoðaður og hefur Bmnamálastofn- un gert veigamiklar athugasemdir við þá staði. Átti von á þessari nið- urstöðu Hæstaréttar - segir Halldór Guðbjamarson, fyrrum bankastjóri Utvegsbankans „ÉG er auðvitað mjög ánægður með þessa niðurstöðu Hæstarétt- ar, en hún kemur mér ekkert á óvart,“ sagði Halldór Guðbjara- arson, fyrrum bankastjóri Útvegsbanka íslands, en á fimmtudag visaði Hæstiréttur frá ákæm á hendur honum og sex öðrum fyrrum bankastjórum bankans. „Ég átti alltaf von á að Hæsti- réttur kæmist að þeirri niðurstöðu að Hallvarður hafi verið vanhæfur til að ákæra í málinu, þó það sé víst einsdæmi að ríkissaksóknari sé úrskurðaður vanhæfur," sagði Hall- dór. „Ef skipaður verður sérstakur saksóknari til að fara aftur yfír þetta mál, þá á ég ekki von á ákæm. Ef fínna á einhvem söku- dólg í þessu máli þá er það einna helst gamla bankakerfið í heild, uppbygging þess og verkefni. Ríkis- bankamir hafa ávallt verið einu bankamir sem tekið hafa þátt í ýmsum áhættusömum verkefnum. Sjálfur leit ég aldrei á mig sem ríkisstarfsmann á meðan ég gegndi starfi bankastjóra og það kom mér því á óvart að vera ákærður fyrir brot í opinberu starfí. Ef um einka- banka hefði verið að ræða þá hefði bankaráð hans sjálfsagt tekið af- stöðu til málsins. Hefði ráðið komist að þeirri niðurstöðu að bankastjór- amir bæm ábyrgð á því hvemig komið væri, þá hefði þeim einfald- lega verið sagt upp störfum. Það er því greinilegt að réttvisin lítur ekki alltaf sömu augum á mál, sem em í eðli sínu eins,“ sagði Halldór Guðbjamarson að lokum. Er tilbúinn að hætta þegar í stað — segir Ólafur Guðmundsson „ÉG ER tilbúinn að hætta þegar í stað ef það leysir einhvera vanda. Á þessu stigi get ég ekki hugsað mér að sinna þessu starfi til Iengdar,“ sagði Ólafur Guðmundsson settur fræðslu- stjóri Norðurlandsumdæmis eystra í samtali við Morgun- blaðið i gær. Hann var þá nýkominn af fundi með Reyni Kristinssyni aðstoðarmanni menntamálaráðherra og Þráni Þórissyni formanni fræðslu- ráðs Norðurlandsumdæmis eystra. Ólafur Guðmundsson sagði að sér væri meinað að starfa með eðlilegum hætti þar sem heima- menn vildu ekki starfa með honum. Starf fræðslustjóra væri með þeim hætti að ekki væri hægt að sinna því nema í fullri sátt og í samráði við heimamenn. Hann sagði að við þessar aðstæð- ur væri honum ómögulegt að sinna starfínu til lengdar eins og hann vildi og ætti því ekki ann- arra úrkosta völ en að losna úr embættinu. „Ráðuneytið verður að segja til um hvenær ég get farið, en þang- að til verð ég að sinna starfínu. Ég er settur fræðslustjóri og hef því skyldum að gegna sem opin- ber starfsmaður. En ég vil losna úr starfínu sem allra fyrst," sagði hann. Ólafur hefur verið boðaður á annan fund í menntamálaráðu- neytinu á þriðjudag. Hann var spurður hvort hann teldi að slíkur fundur liefði áhrif. „Ég sé ekki fram á að heima- menn gefí sig. Það, verður þá eitthvað alveg nýtt að koma upp á teningnum."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.