Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
Eyjabátar mok-
veiða ufsa á Vfldnni
Vestmannaeyjum.
TOGBÁTAR frá Vestmannaeyj-
um hafa undanfama daga
mokveitt ufsa og hver báturinn
af öðrum komið drekkhlaðinn að
landi. Þennan góða afla hafa
bátamir fengið austur á Vík og
í bland við ufsann, sem er stór
og góður, hefur fengist dágott
af þorski og ýsu. Bátarnir hafa
fyllt sig á tveimur til fjórum
dögum.
Nú síðari hluta vikunnar landaði
t.d. Smáey 75 tonnum, Andvari 60
tonnum, Helga Jóh. 60 tonnum og
Frár 50 tonnum. Á föstudagsmorg-
un voru skipveijar á Stefni að landa
85-90 tonnum sem þeir innbyrtu á
tæpum fjórum sólarhringum austur
á Vík. Um 15 tonn af aflanum voru
þorskur og ýsa, restin góður ufsi.
Allur aflinn fór til vinnslu hjá Hrað-
frystistöðinni.
„Svona eiga túrar að vera, það
er gaman að þessu þegar svona vel
gengur. Þetta var strembinn túr
hjá okkur, við fengum 25 tonna hal
í restina og vorum þá búnir að fylla
lestina. Við urðum því að forfæra
á millidekkinu," sagði Jón Bondó
Pálsson, skipveiji á Stefni, í
bryggjuspjalli við fréttaritara Morg-
unblaðsins.
Jón sagðist vonast til að eitthvað
áframhald yrði á þessari góðu veiði.
„En hann er brellinn þessi ufsi og
ekki alltaf á vísan að róa þegar
hann er annarsvegar. Þegar við
fengum 25 tonna halið voru bátam-
ir við hliðina á okkur að taka 4-5
tonn. Við erum að vona að vertíðin
sem brást í vetur sé nú að koma,“
sagði hann og sló um leið frá lönd-
unarmálinu og gljáandi ufsinn fyllti
vömbflspallinn.
Vegna lélegs verðs á ufsanum
erlendis hafa menn dregið úr gáma-
sendingum og mestur hluti aflans
farið til vinnslu í frystihúsunum.
Mikil vinna er því hjá þeim þessa
dagana. Mikill fiskur berst að landi
og humarvertíðin er nú í fullum
gangi.
- hlq.
Morgunblaðið/Júlíus
Víti til vamaðar
í hönd fer nú ein mesta ferðahelgi ársins og er umferð um vegi landsins jafnan mikil um hvítasunn-
una. Samtökin Fararheill '87 hafa komið fyrir bOum, sem illa eru farnir eftir árekstra, við
stórmarkaðina Hagkaup, Miklagarð og Fjarðarkaup. Vegfarendum tál varnaðar, er minnt á að 42
bifreiðir eyðUeggist eða skemmist á dag.
Veigamiklar athugasemdir
við flestar sumarbúðanna
ö
Ástandiðenn verra en égbjóstvið,
segir Guðjón Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Barnaverndarráðs
INNLENT
BRUNAMÁLASTOFNUN hefur
lokið úttekt sinni á húsnæði um
það bU helmings umsækjenda um
leyfi tíl reksturs sumarbúða í ár.
Guðjón Bjarnason framkvæmda-
stjóri Barnavemdarráðs íslands
sagði i samtaU við blaðamann í
gær að ástand brunavama í þeim
húsum sem skoðuð hafa verið
væri enn verra en hann hefði
búist við. „Nánast hver einasti
staður sem skoðaður hefur verið
Mál bankastjóra Útvegsbankans:
Vann að málínu af sann-
færingu og heilindum
- segir Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari
„ÉG vann að þessu máli sam-
kvæmt bestu sannfæringu minni
og af heilindum, en það koma
aUtaf upp réttarfarsleg álitaefni,
sem dómstólar einir era færir
um að skera úr,“ sagði Hallvarð-
ur Einvarðsson, rikissaksóknari.
Á fímmtudag komst meirihluti
Hæstaréttar að þeirri niðurstöðu
að Hallvarður hafí ekki verið hæfur
til að gefa út ákæru í máli ákæru-
valdsins gegn sjö bankastjórum
Útvegsbanka íslands, vegna setu
bróður hans í bankaráðinu frá árs-
byijun 1985. Hann hafí því verið
svo tengdur málinu, eða aðilum
þess, að hann hafí ekki getað gegnt
störfum saksóknara í því og hefði
því átt að víkja sæti og óska eftir
því við dómsmálaráðherra, að annar
saksóknari yrði skipaður til að fara
með málið.
„Meðan ég vann að málinu naut
ég aðstoðar hinna reyndustu og
færustu lögfræðinga hér við emb-
ættið," sagði Hallvarður. „Því tel
ég að eins vel hafí verið unnið að
þessu máli og frekast var unnt. Það
er líka ástæða til að benda á að
Hæstiréttur var ekki einhuga í úr-
skurði sínurn."
Hallvarður kvaðst hafa sent
dómsmálaráðherra, Jóni Helgasyni,
bréf í gær vegna niðurstöðu Hæsta-
réttar og með því endurrit af
úrskurði dómstólsins í máli banka-
stjóranna sjö. „Það er dómsmála-
ráðherra að taka nú ákvörðun um
það hvort sérstakur saksóknari
verður skipaður til að vinna að
þessu máli að nýju,“ sagði Hallvarð-
ur Einvarðsson, ríkissaksóknari.
Dómsmálaráðherra mun að öllum
líkindum taka ákvörðun í málinu
eftir helgina.
Sjá dóma Hæstaréttar í heUd
á blaðsíðum 16 og 17
þarfnast einhverra lagfæringa, í
flestum tilvikum veigamikilla,"
sagði Guðjón. Telur hann líklegt
að á næstunni taki Barnavemd-
arráð afstöðu til þess hvort farið
verði á Ieit við menntamálaráð-
herra að starfsleyfi þeirra
sumarbúða sem ekki standast
kröfur um brunavamir verði aft-
urköUuð.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í síðustu viku tók'i hertar
reglur um sumardvalarheimili
bama og sumarbúðir gildi á síðasta
ári. Þess er nú krafíst að vottorð
slökkviliðsstjóra i viðkomandi sveit-
arfélagi um fullgildar brunavamir
fylgi umsókn. Bamavemdarráð er
umsagnaraðili til ráðherra og getur
brqt á reglum valdið leyfíssviptingu.
í ljós kom að stór hluti umsækj-
enda í ár uppfyllti ekki skilyrði.
Einnig voru brögð að því að slökkvi-
liðsstjórar vottuðu að brunavamir
væm ákjósanlegar án þess að hafa
heimsótt viðkomandi stað. Guðjón
nefndi sem dæmi að læknir og
slökkviliðsstjóri hafí fallist á notkun
húss undir sumardvalarbúðir á
gmndvelli teikninga. Við eftir-
grennslan kom í ljós að meint
viðbygging hússins hefði aldrei ris-
ið.
Að tilmælum ráðsins" tók Bmna-
málastofnun að sér úttekt á
húsnæði umsækjenda. Hún hófst
hinsvegar ekki að marki fyrr en í
aprfl og fyrstu skýrslur um niður-
stöður úttektarinnar litu ekki
dagsins ljós fyrr en í gær.
Guðjón sagði að þetta hefði sett
jafnt umsækjendur og umsagnarað-
ila í erfíða aðstöðu. Rekstur væri
þegar hafinn á nokkmm staðanna.
„Við þurfum hugsanlega að setja
einhveijum þeirra skilyrði um úr-
bætur sem þeir þurfa að uppfylla
innan tímamarka og afturkalla leyfi
þeirra ella. En á meðan endanlegar
niðurstöður liggja ekki fyrir getum
við ekki tekið þessar ákvarðanir og
þeir sem reka sumarbúðimar ekki
hafíst handa um nauðsynlegar úr-
bætur,“ sagði hann.
Bamavemdarráð hefur þegar
hafnað átta umsóknum af þeim
tuttugu sem því bámst í vetur. Ell-
efu leyfi vom veitt með fyrirvara
er. einar sumarbúðir fengu leyfí
athugasemdalaust. Þá er nokkur
hópur sumarbúða rekinn með leyfí
frá því í fyrra, sem gildir til tveggja
ára. Hluti þeirra hefur einnig verið
skoðaður og hefur Bmnamálastofn-
un gert veigamiklar athugasemdir
við þá staði.
Átti von á þessari nið-
urstöðu Hæstaréttar
- segir Halldór Guðbjamarson,
fyrrum bankastjóri Utvegsbankans
„ÉG er auðvitað mjög ánægður
með þessa niðurstöðu Hæstarétt-
ar, en hún kemur mér ekkert á
óvart,“ sagði Halldór Guðbjara-
arson, fyrrum bankastjóri
Útvegsbanka íslands, en á
fimmtudag visaði Hæstiréttur
frá ákæm á hendur honum og
sex öðrum fyrrum bankastjórum
bankans.
„Ég átti alltaf von á að Hæsti-
réttur kæmist að þeirri niðurstöðu
að Hallvarður hafi verið vanhæfur
til að ákæra í málinu, þó það sé
víst einsdæmi að ríkissaksóknari sé
úrskurðaður vanhæfur," sagði Hall-
dór. „Ef skipaður verður sérstakur
saksóknari til að fara aftur yfír
þetta mál, þá á ég ekki von á
ákæm. Ef fínna á einhvem söku-
dólg í þessu máli þá er það einna
helst gamla bankakerfið í heild,
uppbygging þess og verkefni. Ríkis-
bankamir hafa ávallt verið einu
bankamir sem tekið hafa þátt í
ýmsum áhættusömum verkefnum.
Sjálfur leit ég aldrei á mig sem
ríkisstarfsmann á meðan ég gegndi
starfi bankastjóra og það kom mér
því á óvart að vera ákærður fyrir
brot í opinberu starfí. Ef um einka-
banka hefði verið að ræða þá hefði
bankaráð hans sjálfsagt tekið af-
stöðu til málsins. Hefði ráðið komist
að þeirri niðurstöðu að bankastjór-
amir bæm ábyrgð á því hvemig
komið væri, þá hefði þeim einfald-
lega verið sagt upp störfum. Það
er því greinilegt að réttvisin lítur
ekki alltaf sömu augum á mál, sem
em í eðli sínu eins,“ sagði Halldór
Guðbjamarson að lokum.
Er tilbúinn að
hætta þegar í stað
— segir Ólafur Guðmundsson
„ÉG ER tilbúinn að hætta þegar
í stað ef það leysir einhvera
vanda. Á þessu stigi get ég
ekki hugsað mér að sinna þessu
starfi til Iengdar,“ sagði Ólafur
Guðmundsson settur fræðslu-
stjóri Norðurlandsumdæmis
eystra í samtali við Morgun-
blaðið i gær. Hann var þá
nýkominn af fundi með Reyni
Kristinssyni aðstoðarmanni
menntamálaráðherra og Þráni
Þórissyni formanni fræðslu-
ráðs Norðurlandsumdæmis
eystra.
Ólafur Guðmundsson sagði að
sér væri meinað að starfa með
eðlilegum hætti þar sem heima-
menn vildu ekki starfa með
honum. Starf fræðslustjóra væri
með þeim hætti að ekki væri
hægt að sinna því nema í fullri
sátt og í samráði við heimamenn.
Hann sagði að við þessar aðstæð-
ur væri honum ómögulegt að
sinna starfínu til lengdar eins og
hann vildi og ætti því ekki ann-
arra úrkosta völ en að losna úr
embættinu.
„Ráðuneytið verður að segja til
um hvenær ég get farið, en þang-
að til verð ég að sinna starfínu.
Ég er settur fræðslustjóri og hef
því skyldum að gegna sem opin-
ber starfsmaður. En ég vil losna
úr starfínu sem allra fyrst," sagði
hann.
Ólafur hefur verið boðaður á
annan fund í menntamálaráðu-
neytinu á þriðjudag. Hann var
spurður hvort hann teldi að slíkur
fundur liefði áhrif.
„Ég sé ekki fram á að heima-
menn gefí sig. Það, verður þá
eitthvað alveg nýtt að koma upp
á teningnum."