Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 4
4*
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
M-hátíð á f sa-
firði lýkur í dag
M-HÁTÍÐINNI á ísafirði, sem menntamálaráðherra efndi tíl, lýk-
ur í dag. í gærkvöldi hófst dagskráin klukkan 18.00 í Félags-
heimilinu í Hnífsdal með sýningu fyrir unglinga á „Hvar er
hamarinn". Klukkan 21.00 hófst siðan samfelld dagskrá í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði í umsjón félaga úr Litla leikklúbbnum undir
stjórn Odds Björnssonar. Flutt var efni úr skáldverkum eftir
Vestfirðinga og vestfirsk tónlist.
Tómasson.
Meðal þess sem félagar úr Litla
leikklúbbnum fluttu má nefna
upplestur úr „Söguköflum af sjálf-
um mér“ eftir Jochumson, sam-
lestur úr „Kristrúnu í Hamravík"
eftir Hagalín og leikþátt úr
„Manni og konu“ eftir Jón Thor-
oddsen. Síðar um kvöldið var
hátíðardansleikur í Sjálfstæðis-
húsinu og dansleikur fyrir ungl-
inga í Félagsmiðstöðinni
„Sponsið".
Dagskráin í dag hefst klukkan
14.00 í Félagsheimilinu í Hnífsdal.
Stjómandi dagskrár verður Þor-
valdur Garðar Kristjánsson al-
þingismaður. Kristinn Jón
Stjóm tónlistar annaðist Jónas
Jónsson, forseti bæjarstjómar á
ísafirði, flytur ávarp en síðan mun
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra flyija erindi um Jón
Sigurðsson forseta. Þá leikur
Anna Áslaug Ragnarsdóttir ein-
leik á píanó og, Bjöm Teitsson
rektor flytur erindi sem nefnist
„Framtíð íslenskrar tungu". Eftir
kaffihlé flytur Sigfús Daðason
skáld erindi um Stein Steinarr.
Helgi Þorláksson cand. mag. flyt-
ur erindi um Jón Indíafara en að
því búnu les Guðmundur Ingi
Kristjánsson skáld á Kirkjubóli
eigin ljóð. Hátíðinni lýkur síðan
með því að Sunnukórinn á ísafírði
syngur undir stjóm Beata Joo.
Morgunblaðið/Einar Falur
Á Umferdamidstöðinni síddegis í gær.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Stuðmenn tóku forskot á sæluna í gær og léku á Lækjartorgi.
Utisamkoma
í Borgarfirði
EINA skipulagða útisamkoman
um hvitasunnuna verður haldin
á Geirsárbökkum í Borgarfirði.
Ferðaþjónusta Borgarfjarðar
skipuleggur samkomuna á Geirsár-
bökkum og sagði Þorvaldur
Pálmason forsvarsmaður hennar í
samtali við Morgunblaðið, að ákveð-
ið hefði verið að bjóða fólki upp á
að tjalda á Geirsárbökkum m.a.
vegna þess að Stuðmenn ætluðu
að halda tvo dansleiki í samkomu-
húsinu Logalandi sem er þar
skammt frá.
Stuðmenn héldu fyrri dansleikinn
í gærkvöld og hinn seinni verður
aðfaramótt mánudagsins. Diskó-
tekið Dísa og Stuðmenn sjá um að
skemmta samkomugestum á Geirs-
árbökkum.
„Okkur þótti líða nokkuð langur
tími á milli dansleikjanna og því
tiivalið að fólk gæti tjaldað á Geirs-
árbökkum og dvalið þar yfír helg-
ina. Við teljum betra að ungt fólk
safnist saman á einn stað þar sem
boðið er upp á veitingasölu og eftir-
lit í stað þess að vera dreift á marga
staði,“ sagði Þorvaldur.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
I/EÐURHORFUR í DAG, 06.06.87:
YFIRLIT á hádegl f gœr: Á Grænlandshafi er hæöarhryggur sem
þokast austur. Við írland er hægfara 988 millibara djúp lægð.
SPÁ: Hæg breytileg átt á landinu. Víða verður léttskýjað og hiti
allt að 15 stig. Við ströndina má búast við skýjabökkum og smá
skúrum á stöku stað.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HVÍTASUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Hæg breytileg átt. Skýjað
að mestu við norður- og austurströndina en annars víða léttskýj-
að. Hiti á bilinu 8 til 14 stig að deginum en 5 til 8 stig að næturlagi.
TÁKN:
a Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
•á
•éi
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
/ r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
f * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Y Skúrir
*
V El
— Þoka
== Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyrí hltl 9 veður hálfskýjað
Reykjavfk 11 léttskýjað
Bergen 16 léttskýjað
Helsinki 17 léttskýjað
Jan Mayen 2 skýjsð
Kaupmannah. 17 þokumóða
Nansaraauaq 6 rignlng
Nuuk 4 alskýjað
Osló 17 léttskýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórthöfn 8 alskýjað
Algarve 27 helðsklrt
Amsterdam 12 altkýjað
Aþena 23 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Beríln 19 skýjað
Chlcago 16 helðaklrt
Feneyjar 21 helðsklrt
Frankfurt 18 skýjað
Hamborg 16 skýjað
LaaPolmaa 26 helðsklrt
London 13 rignlng
LoaAngales 16 léttskýjað
Luxemborg 14 skýjað
Madrld 26 léttskýjað
Malaga 24 helðsklrt
Mallorca 27 léttskýjað
Mlaml 27 léttskýjað
Montreal 16 léttskýjað
NewYork 18 þokumóða
Parfs 16 skýjað
Róm 22 helðsklrt
Vín 16 skúr
Washington 19 léttskýjað
Winnlpeg 11 skúr
Fyrsti áfangi Nesjavallaæðar:
Árvélar sf. með
lægsta tilboðið
NÝVERIÐ voru opnuð tilboð í
fyrsta áfanga Nesjavallaæðar.
Ellefu tilboð bárust og voru Ár-
vélar sf. á Selfossi með lægsta
tilboð, kr. 26.280.290, en ístak
hf. með það hæsta, kr. 54.670.
290. Kostnaðaráætlun Hitaveitu
Reykjavíkur gerði ráð fyrir að
verkið kostaði kr. 36.963.100.
Aðrir aðilar sem buðu í verkið
voru eftirtaldir: Hagvirki 31.803.
400. kr., Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða 33.076.900 kr., Völur
hf. 34.878.200 kr., Jóhann Bjama-
son 36.618.838 kr., Suðurverk hf.
40.789.500 kr., Gunnar og Guð-
mundur sf. 43.544.000 kr., Miðfell
hf. 44.875.500 kr., Amardalur 46.
110.600 kr., Ellert Skúlason hf.
47.447.300 kr.
Hér var um opið útboð að ræða
og verksali því ekki bundinn við
lægsta tilboð. Tilboðin fara til um-
sagnar hjá Hitaveitu Reykjavíkur,
sem sendir síðan erindi til stjómar
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, sem tekur ákvörðun um
hvaða tiiboði verður tekið. Búist er
við því að ákvörðun verði tekin á
stjómarfundi lö.júní. Næstu daga
verður útboð á 2. og 3.áfanga.
Heildarkostnaður við virkjun
Nesjavalla og aðrennslisæðar er um
3 milljarðar. Þegar hefur verið lok-
ið borunarframkvæmdum upp á
800 milljónir, á þessu ári verður
vegagerð og öðmm undirbúning-
framkvæmdum lokið og á næsta
ári hefst sjálf lagning aðfærslu-
æðarinnar, sem áætlað er að ljúki
haustið 1989.
Stjóm SÍS
óbreytt
AÐALFUNDI Sambands
íslenskra samvinnufélaga lauk í
gærdag með stjóraarlqöri. Valur
Araþórsson var endurkjörinn
stjórnarformaður með miklum
meirihluta atkvæða, og urðu
breytingar engar á stjórninni.
Valur hlaut við formannskjör 101
atkvæði, Valgerður Sverrisdóttir, al-
þingismaður, fékk eitt atkvæði og
þrír seðlar voru auðir. Aðrir stjómar-
menn eru þeir ólafur Sverrisson og
Jónas R. Jónsson, frá Melum. í vara-
stjóm eiga sæti þau Dagbjört
Höskuldsdóttir, Helga V. Pétursdóttir
og Ólafur Jónsson.
Sérmál aðalfundarins fjallaði að
þessu sinni um málefni samvinnu-
starfsmanna og fluttu framsöguer-
indi þeir Magnús Guðjónsson og Jón
Sigurðsson, og að því loknu urðu
umræður.
EgiIlSand-
holtlátinn
Egill Sandholt, skrifstofu-
stjóri, Gullteig 18 I Reykjavík,
andaðist í gær, föstudag, í Borg-
arspitalanum, 75 ára að aldri,
eftir skamma sjúkdómslegu.
Hann var mörgum kunnur hér í
bænum enda borinn og bara-
fæddur Reykvíkingur og starfaði
um áratugaskeið á málflutnings-
skrifstofu Guðmundar Péturs-
sonar, Axels Einarssonar og
Péturs Guðmundarsonar í Aðal-
stræti. Frá unga aldri til hinstu
stundar var hann virkur félagi í
KFUM, við sumarstarf Skógar-
manna í Vatnaskógi. Þá var hann
einn af stofnendum Gideonfé-
lagsskaparins hér á íslandi.
Sem fyrr segir fæddist Egill í
Reykjavík. Vom foreldrar hans
hjónin Stefán Sandholt bakara-
meistari og kona hans, Jenný. Egill
lætur eftir sig eiginkonu, frú Sigríði
Magnúsdóttur Sandholt, og tvo
syni, Stefán og Gunnar Sandholt.