Morgunblaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Skugga-
hverfið
Þá er fimmtudagsleikritið á dag-
skrá, en fyrst flyt ég ykkur smá
formála: I gær ræddi ég hér í pistli
um nýju útvarpsstöðvamar er sópast
á ljósvakasæinn og fagnaði að sjálf-
sögðu því einsog sagði í greininni —
lengi geta hlustendur á sig blómum
bætt. En einnig ræddi ég um hlutverk
þáttastjóranna er ráða svo miklu um
vort daglega „menningarumhverfi".
Ég reyndi og að færa rök fyrir þeirri
skoðun minni að auka bæri
. . . frjálsræði þáttastjóranna svo
þeim gefist færi á að setja sitt kenni-
mark á hvem þátt. Ég gat að sjálf-
sögðu ekki stillt mig um að víkja að
dálkahöfundunum, einkum þeim er lifa
á því að fjalla um blessað ljósvakafólk-
ið, og varpaði í hálfkæringi fram þeirri
skoðun að ef til vill mætti líta á dálka-
skrif sem listgrein, í það minnsta
væri dálkahöfundunum fijálst að líta
svo á sinn eigin fugl hvað sem lesend-
ur tauta og raula. En að öllu gamni
slepptu hvað kemur þessi orðræða við
fimmtudagsleikritinu Minningar úr
Skuggahverfí eftir Erlend Jónsson?
Jú, ástæðan fyrir því að ég minnist
hér á þáttagerðarmennina allsráðandi
í sömu andrá og fimmtudagsleikritið
er sú að ég vil alls ekki að lesendur
telji að ég leggi að jöfnu ( listrænu
tilliti þaulhugsað leikverk og léttfleyg-
an músíkspjallþátt— fremur en að ég
telji blaðagrein jafnast á við skáldverk
á bók. Að sjálfsögðu má finna blaða-
greinar er jafnast á við smásögur og
stöku spjallþættir til dæmis úr smiðju
Jónasar Jónassonar eru jafnokar ein-
þáttunga þótt þar leggi viðmælandi
útvarpsmannsins drjúgt í sjóðinn. En
í guðs lifandi bænum, gerum skýran
greinarmun í listrænu tilliti á þaul-
hugsuðu leikverki og léttfleygum
músíkspjallþætti. Þannig má líta á
fimmtudagsleikrit rásar 1 sem vinjar
í syðimörk léttleikans því skrifað
stendun maðurinn lifir ekki á brauði
einu saman , og samt er nú blessað
brauðið megineldsnejdi líkamsvélar-
innar ( hinu daglega stríði.
VerkiÖ
Fimmtudagsleikverk Erlendar Jóns-
sonar, Minningar úr Skuggahverfi, er
greinilega þaulhugsað en þar segir frá
tveimur miðaldra einstaklingum er
hittast nánast af tilviljun og hafa þá
ekki sést í fjörutíu ár. Hún fór til
Danmerkur og giftist þar en hann
hímdi heima á fslandi ( piparstandi.
Hann man hvert augnablik er þau léku
sér sem böm, hún minnist þess ekki
að hafa séð hann fyrT. En loks fallast
þau í faðma í piparsveinsíbúðinni.
Að baki fýrrgreindrar leikfléttu
dyljast mikil örlög, skipbrot manns er
hefir á unga aldri bundist órjúfandi
tilfinningaböndum stúlkukind er
hverfur svo á braut til draumaprinsins
handan hafsins. Og slík er tryggð
þessa manns að hann man hvert
augnablik brottfarardagsins . . .Þú
varst í rauðri kápu. Ha, hvað segirðu?
Já, hvert smáatriði er greipt í hjarta
þessa manns og hann er raunar stadd-
ur í sömu sporum og brottfarardaginn.
En Erlendur hyggur að fleiru en hinni
klassísku ástarsorg, hann flettir býsna
fagmannlega ofan af þeim samfélags-
veruleika er á þátt í skipbroti
mannsins: Móðir m(n var ein, þið vor-
uð familía, lögleg og skikkanleg heild.
Karlinn elskaði sum sé ekki bara stúlk-
una, hann var reyrður, böndum
öfundsýkinnar, þessarar ástríðu er
skyggir jafnveí á ástina og með fléttun
þessara ástríðna heppnast Erlendi
Jónssyni að hnýta slaufuna á hið
óvænta mót karís og kerlu og hefla
verkið af ástarvellustiginu.
Benedikt Ámason stýrði verkinu og
rak ég eyrun í hina nákvæmu beitingu
leikhljóða en samur er klíkuskapurinn
á leiklistardeildinni þar sem Erlingur
Gtslason virðist nánast sjálfkjörinn í
öll helstu hlutverkin, en mótleikari
Erlings var að þessu sinni Margrét
Guðmundsdóttir. Flínkir leikarar en
samt vom nú stundum samtölin ögn
stirðleg og ég hélt að í leikhúsi allrar
þjóðarinnar væri við hæfí að gefa sem
flestum færi á sviðsljósinu án þess þó
að þaulreyndum leikurum sé kastað
fyrir róða.
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissj ónvarpið:
Hrafninn flýgur
■MBI Hrafninn fiýg-
oi 50 ur, kvikmynd
& A frá árinu 1984
eftir Hrafn Gunnlaugsson,
er á dagskrá sjónvarps í
kvöld en spjallað verður við
leikstjórann áður en sýning
myndarinnar hefst. Mjmdin
gerist á víkingaöld og lýsir
því hvemig ungur íri kem-
ur fram hefndum fyrir
grimmdarverk er íslend-
ingar hafa framið í heim-
kynnum hans.
Kvikmyndin Syndajátn-
ingar er á dagskrá
sjónvarps í kvöld.
Stöð 2:
Syndajátningar
HMHI Syndajátningar,
OQ45 bandarísk kvik-
mynd frá árinu
1981, er á dagskrá Stöðvar
2 í kvöld. Tveir bræður
velja sér ólík ævistörf, ann-
ar verður prestur en hinn
lögregluforingi. Þegar vel-
gjörðarmaður prestsins er
bendlaður við morð liggja
leiðir þeirra bræðra saman
á ný. Leikstjóri er Ulu
Grosbard.
UTVARP
©
LAUGARDAGUR
6. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur." Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesið úr forustu-
greinum dagblaðanna en
síðan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.15 I garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni. (Endur-
tekinn þáttur frá miðviku-
degi.)
9.30 I morgunmund. Þáttur
fyrir börn í tali og tónum.
Umsjón: Heiðdís Norðfjörð.
(Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir. Tilkynningar.
11.00 Tíðindi af Torginu. Brot
úr þjóömálaumræöu vik-
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
6. júní
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.05 Garðrækt
6. Tómatar og gúrkur.
Norskur myndaflokkur i tíu
þáttum. Þýöandi Jón O.
Edwald. (Nordvision —
Norska sjónvarpið.)
18.30 Leyndardómar gull-
borganna
(Mysterious Cities of Gold).
Fjórði þáttur. Teiknimynda-
flokkur um þrjú börn og
félaga þeirra í leit að gull-
borg í Suður-Ameriku á
tímum landvinninga Spán-
verja þar í álfu. Þýðandi
Sigurgeir Steingrimsson.
19.00 Litli prinsinn
Nýr, bandariskur teikni-
myndaflokkur gerður eftir
þekktri barnasögu eftir
franska rithöfundinn og flug-
manninn Antoine de Saint-
Exupéry.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Smellir — The The II
Umsjónarmenn: Skúli
Helgason og Snorri Már
Skúlason.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Lottó
20.40 Fyrirmyndarfaðir
(The Cosby Show). Loka-
þáttur. Bandariskur gaman-
myndaflokkur með Bill
Cosby í titilhlutverki. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.10 Kristinn Sigmundsson
Sjónvarpsþáttur um Kristin
Sigmundsson óperusöngv-
ara. Fylgst er með Kristni
við söng og undirbúning og
talaö er við nokkra sam-
feröamenn á lifsleið hans
og listabraut. Þátturinn er
gerður í tilefni af því að Krist-
inn verður fujltrúi Sjónvarps-
ins í árlegri söngkeppni
ungra einsöngvara í Cardiff
í Wales síöar í þessum
mánuði. Umsjón Elísabet
Þórisdóttir. Stjórn Tage
Ammendrup.
21.50 Hrafninn flýgur
Kvikmynd frá 1984 eftir
Hrafn Gunnlaugsson,
ásamt forspjalli við leikstjór-
ann. Aðalhlutverk: Jakob
Þór Einarsson, Edda Björg-
vinsdóttir, Egill Ólafsson,
Helgi Skúlason og Flosi Ól-
afsson. Kvikmyndataka
Tony Forsberg.
Myndin gerist á víkingaöld
og lýsir því hvernig ungur
Iri kemur fram hefndum fyrir
grimmdarverk sem (slend-
ingar hafa unnið í heimkynn-
um hans.
23.50 Jama/kakráin — Fyrri
hluti
(Jamaica Inn). Ný, bresk
sjónvarpsmynd gerð eftir
samnefndri skáldsögu eftir
Daphne du Maurier sem
komið hefur út á íslensku.
Leikstjóri Lawrence Gordon
Clark. Aðalhlutverk: Jane
Seymour, Patrick McGoo-
han, Trevor Eve, John
McEnery, Billie Whitelaw og
Peter Vaughan.
Sagan gerist á öldinni sem
leið. Ung stúlka fær athvarf
hjá skyldmennum sem búa
á eyðilegum stað úti við
hafið. Þar eru framin
myrkraverk sem söguhetjan
fær veður af og eftir þaö
er líf hennar i hættu. Þýö-
andi Guðni Kolbeinsson.
Síðari hluti er á dagskrá á
annan í hvítasunnu.
1.40 Dagskrárlok.
f?
u
STOÐ2
LAUGARDAGUR
6. júní
9.00 Kúm, Kúm. Teikni-
mynd.
9.25 Villi spæta. Teikni-
mynd.
9.30 Jógi björn í fjársjóðs-
leit.
Teiknimynd.
9.50 Ógnvaldurinn Lúsí
(Lucie).
Leikin barnamynd.
10.20 Alli og ikornarnir.
10.45 Herra T.
Teiknimynd.
11.10 Þrumufuglarnir.
Teiknimynd.
11.35 Fimmtán ára
(Fifteen).
I þessum þáttum fara ungl-
ingar með öll hlutverk.
12.00 Hlé.
15.30 Ættarveldið
(Dynasty).
Bifreið Blake Carrington er
sprengd í loft upp og hann
blindast. Á sama tíma grát-
bænir biöill Krystle hana um
að skilja við Blake og giftast
sér.
16.15 Kristján.
Þessi Sviðsljósþáttur er
heimildarþáttur um Kristján
Jóhannsson óperusöngv-
ara, líf hans og list. I þættin-
um syngur Kristján nokkur
lög af hljómplötu sinni, Með
kveöju heim.
Umsjónarmaður er Jón Ótt-
ar Ragnarsson.
17.00 Bíladella
(Automania).
Það er oft sagt um bílasölu-
menn að þeir séu einna
óheiðarlegustu sölumenn
fyrr og síðar. I þessum
þætti kynnast áhorfendur
bílasölumönnum víða um
heim, m.a. heimsmethafa í
bílasölu, Joe Girad, sem
selt hefur 1425 bíla á einu
ári.
17.30 NBA-körfuboltinn.
Umsjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.00 Lúsí Ball (Lucy Ball).
I sumar mun Stöð 2 sýna
þætti Lucille Ball vikulega.
Hún fer á kostum og mun
skemmta íslenskum áhorf-
endum á þann hátt sem
henni er einni lagiö.
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami
(Miami Vice).
Bandarískur spennuþáttur
með Don Johnson og Philip
Michael Thomas i aðalhlut-
verkum. Félagarnir tveir
leita að morðingja lögfræð-
ings nokkurs, sem var að
rannsaka eiturlyfjasmygl.
20.45 Spéspegill
(Spitting Image).
21.15 Bráðum kemur betri
tíð
(We'll meet again).
Breskur framhaldsþáttur
um lífið í smábæ á Englandi
í seinni heimsstyrjöldinni.
8. þáttur. Aðalhlutverk: Su-
sannah York og Michael J.
Shannon.
22.15 Horfinn sporlaust
(Into Thin Air).
Ný bandarísk kvikmynd frá
1985 með Ellen Burstyn,
Robert Prosky, Sam Ro-
barts og Tate Donovan í
aðalhlutverkum. Leikstjóri
er Roger Young.
Ungur námsmaöur á leið frá
Ottawa i Kanada til Ohio-
fylkis í Bandaríkjunum,
hverfur á dularfullan hátt.
Myndin lýsir örvæntingu
fjölskyldu drengsins, sér-
staklega móðurinnar, sem
ræður einkaspæjara til að
finna soninn. Símtal frá Ne-
braska er eina vísbendingin
sem hann hefur að styðjast
við.
23.45 Syndajátningar
(True Confessions).
Bandarísk kvikmynd frá
1981 með Robert De Niro,
Robert Duvall, Charles
Durning og Ed Flanders í
aðalhlutverkum. Leikstjóri
er Ulu Grosbard.
Tveir bræður velja sér ólík
ævistörf, annar gerist prest-
ur en hinn lögregluforingi.
Leiðir þeirra skerast þegar
velgjörðarmaður sóknar-
prestsins er bendlaöur við
morð.
01.30 Fóstbræðurnir
(Brotherhood of Justice).
Nýleg bandarísk sjónvarps-
mynd með Keanu Reeves,
Lori Loughlin, Kiefer Suther-
land og Joe Spano í aðal-
hlutverkum.
Glæpamenn ráða ríkjum í
smábæ nokkrum þar til
nokkur ungmenni þola ekki
við lengur og veita þeim
viðnám.
03.00 Dagskrárlok.
unnar í útvarpsþættinum
Torginu og einnig úr þættin-
um Frá útlöndum. Einar
Kristjánsson tekur saman.
11.40 Næst á dagskrá. Stiklað
á stóru í dagskrá útvarps
um helgina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Þór Sverris-
son.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um listir
og menningarmál. Umsjón:
Gyöa Jónsdóttir.
16.00 Tónspegill. Umsjón:
Magnús Einarsson og Olaf-
ur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Stundarkorn í dúr og
moll með Knúti R. Magnús-
syni. (Þátturinn verður
endurtekinn aðfaranótt
þriðjudags kl. 00.10.)
17.50 Sagan: „Dýrbitur" eftir
Jim Kjeldgaard. Ragnar Þor-
steinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir byrjar lestur-
inn.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Czardasfurstafrúin. Sari
Barabas, Rudolf Schock
o.fl. fyngja með Kór Berlínar-
útvarpsins og Sinfóníu-
hljómsveit Berlínar; Frank
Fox stjórnar.
20.00 Harmonikuþáttur. Um-
sjón: Sigurður Alfonsson.
20.30 Úr heimi þjóðsagnanna.
Fjórði þáttur: „Kom ég þar
að kveldi", ævintýrasögur.
Umsjón: Anna Einarsdóttir
og Sólveieg Halldórsdóttir.
21.00 íslenskir einsöngvarar.
Guðmundur Jónsson syng-
ur lög eftir Sigfús Halldórs-
son. Höfundurinn leikur
með á píanó.
21.20 Tónbrot. F.yrsti þáttur:
„Gleymdu þessari grimmu
veröld." Um breska alþýöu-
tónskáldið Nick Drake. Fyrri
hluti. Umsjón: Kristján R.
Kristjánsson. (Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Stund með Edgar Allan
Poe. Viðar Eggertsson les
söguna „Fall húss Ushers"
I þýðingu Þorbjargar Bjarnar
Friöriksdóttur.
23.00 Sólarlag. Tónlistarþátt-
ur í umsjá Ingu Eydal. (Frá
Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
LAUGARDAGUR
6. júní
6.00 I bítið. Rósa G. Þórs-
dóttir kynnir notalega tónlist
í morgunsárið.
9.03 Með morgunkaffinu.
Umsjón: Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
11.00 Fram að fréttum. Þáttur
I umsjá fréttamannanna
Kristínar Þorsteinsdóttur og
Óðins Jónssonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Við rásmarkið. Umsjón:
Kristín Björg Þorsteinsdóttir,
Sigurður Sverrisson og Stef-
án Sturla Sigurjónsson. I
þættinum verður útvarpað
úrslitum í Poppgátunni kl.
14.00.
18.00 Við grilliö. Kokkur að
þessu sinni er Dvaíð Sche-
ving Thorsteinsson.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldrokk. Umsjón:
Ævar örn Jósepsson.
22.05 Út á lífiö. Þorbjörg Þóris-
dóttir kynnir dans- og
dægurlög frá , ýmsum
tímum.
00.05 Næturútvarp. Þorsteinn
G. Gunnarsson stendur
vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 12.00, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera. Þáttur fyrir
unglinga og skólafólk.
989
BY LGJAN,
LAUGARDAGUR
6. júní
08.00—12.00 Jón Gústafsson
á laugardagsmorgni. Jón
leikur tónlist úr ýmsum átt-
um, lítur á það sem fram
undan er um helgina og
tekur á móti gestum. Fréttir
kl. 08.00 og 10.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—15.00 Ásgeir Tómas-
son á léttum laugardegi.
Öll gömlu uppáhaldslögin á
sínum stað. Fréttir kl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Hörður Arnar-
son kynnir 40 vinsælustu
lög vikunnar. Fréttir kl.
16.00.
17.00—19.00 Laugardags-
popp á Bylgjunni. ’
18.00-18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir lítur á atburði
síðustu daga, leikur tónlist
og spjallar viö gesti.
Fréttir k. 19.00.
21.00—23.00 Anna Þorláks
dóttir í laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir helg-
ina.
23.00—04.00 Þorsteinn Ás-
geirsson nátthrafn Bylgj-
unnar heldur uppi helgar-
stuðinu.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
ALFA
FH 102,9
LAUGARDAGUR
6. júní
13.00 Skref í rétta átt. Stjórn
endur: Magnús Jónsson,
Þorvaldur Daníelsson
Ragnar Schram.
14.30 Tónlistarþáttur. I um
sjón Hákonar Muller.
16.00 Á beinni braut. Ungl
ingaþáttur. Stjórnendur:
Gunnar Ragnarsson
Sæmundur Bjarklind.
17.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til lífsins: Tón-
listarþáttur með lestri úr
Ritningunni.
24.00 Dagskrárlok.
og
og