Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
Nýr raf magnssamningnr Landsvirkjunar og
Aburðarverksmiðjunnar:
Raf magnsverðið
fylgir verði á inn-
f luttu ammoníaki
NÝR rafmagrissamningtir
Landsvirkjunar og Áburðarvcrk-
smiðju ríkisins hefur verið
undirritaður og samkvæmt hon-
um fylgir rafmagnsverðið verði
á innfluttu ammoníaki en ekki
verðinu til ISAL, eins og gamli
samningurinn gerði ráð fyrir.
Þá lækkar lágmarksverð úr jafn-
gildi 12,5 í 8,7 Bandaríkjamill á
kOówattstund, en hámarksverð
hækkar úr 18,5 í 22,3 Banda-
ríkjamill.
Samkvæmt hinum nýja samningi
verður Landsvirkjun áfram skuld-
bundin til að sjá Áburðarverksmiðju
ríkisins fyrir allt að 185 Gigawatt-
stundum á ári með óbreyttri heimild
til skerðingar á orkuafliendingu. í
frétt frá Landsvirkjun segir að hin
nýju verðbreytingarákvæði tryggi
að aukið samræmi verði á milli
Sjúkrahúsið í Keflavík:
Fæðingar-
deildinni verð-
ur ekki lok-
að í sumar
Keflavfk
FÆÐINGARDEILD sjúkra-
hússins í Keflavík verður ekki
lokað I sumar eins og óttast
var, vegna skorts á fólki til sum-
arafleysinga. Samkomulag
náðist við starfandi ljósmæður
um að þær bættu á sig vinnu
og hliðruðu til með sumarleyfi
sín, þ.a. hægt yrði að halda
starfsemi fæðingardeildarinnar
áfram.
Skurðstofa sjúkrahússins verð-
ur hins vegar lokuð í sex vikur í
sumar af sömu ástæðum og svo
hefur verið á undanfornum árum.
Ólafur Bjömsson formaður stjóm-
ar sjúkrahússins í Keflavík sagði
að svo virtist sem útilokað væri
að fá faglært fólk og skapaði það
mikinn vanda hjá spítalanum á
þessum árstíma.
Nú hefur verið gerður samning-
ur til eins árs við Þvottahöllina í
Keflavík um að þvo ailan þvott
fyrir sjúkrahúsið.
B.B.
framleiðslukostnaðar ammoníaks í
Áburðarverksmiðju ríkisins og
verðs á innfluttu ammoníaki, en
fylgni er á því og heimsmarkaðs-
verði á olíu á hveijum tíma. Verð
á innfluttu ammoníaki var óvenju
lágt á síðastliðnu ári og fram á
þetta ár. Hin nýju verðbreytingará-
kvæði hafa því þau áhrif á fyrstu
tveimur ársfjórðunum þessa árs að
á þeim fyrri verður raftnagnsverðið
til Áburðarverksmiðjunnar 8,7
Bandaríkjamill, eða 34 aurar á
kílówattstund og á þeim seinni 10,5
Bandaríkjamill, eða 41 eyrir.
Hinn nýi rafmagnssamningur
gildir frá og með 1. janúar 1987
að telja til og með 31. desember
1989, er hann fellur úr gildi verði
ekki um annað samið milli aðila
fyrir þann tíma.
o
INNLENT
• ý - ' : - . : ■
V4'" ' <**, ''
.
' " %
■ ■ %
Morgunblaðið/SigJóns.
Leikhópurinn Perlan
Leikhópurinn Perlan sem starfar í Þroskaþjálf-
unarskólanum í Stjörnugróf i Reykjavík fór í
leikför að Sólheimum í Grímsnesi í maí-mánuði
síðastliðnum og var þessi mynd tekin þá.
Talið frá vinstri, efsta röðin: Helga Thomsen,
Ragnar Ragnarsson, Sigfús Svanbergsson, Pétur
Johnson, Ingveldur Ragnarsdóttir, Kristrún Guð-
mundsdóttir, Gunnar A. Gunnarsson, Ingibjörg
Árnadóttir, Guðrún Hallgrimsdóttir tómstunda-
fulltrúi Styrktarfélags vangefinna í Reykjavík,
Dagný Harðardóttir, Kristján Sigmundsson tóm-
stundafulltrúi Sólheimum.
Miðröðin: HUdur Óskarsdóttir, Helga Jóhanns-
dóttir, Sigríður J. Gunnarsdóttir, Þorbjörg
Guðlaugsdóttir, Birgitta Guðlaugsdóttir, vist-
maður SóUieimum, Ingibjörg Edda HaUdórsdótt-
ir meðferðafuUtrúi Bjarkarási, Hildur
Davíðsdóttir, Hafdís Alfreðsdóttir.
Krjúpandi eru: Jóhanna Guðmundsdóttir,
Sigríður Eyþórsdóttir leikari, kennari við Þjálf-
unarskólann Stjörnugróf og leiðbeinandi hóps-
ins, Ásdís Gísiadóttir, Sigriður Sigtryggsdóttir,
Elinborg Sigurðardóttir og Gunnar Gunnbjörns-
Ragnar Sigbjörnsson Verkfræðistofnun Háskóla íslands um burðarþolsskýrsluna:
Spurning um fúsk í þol-
hönnun eða skýrslugerð
Misskilnings gætir í túlkun á niðurstöðum, sagði Gunnar Torfason
„ÉG tel það vera spumingu um borgarverkfræðingur, Gunnar
hvort fúskið er í þolhönnun hús- Torfason formaður Félags ráð-
anna eða i skýrslugerðinni,“ sagði
Ragnar Sigbjömsson forstöðu-
maður Verkfræðistofnun Háskóla
íslands á fundi sem kynningar-
nefndar Verkfræðingafélags
Islands gegst fyrir um skýrslu
félagsmálaráðuneytisins um þol-
hönnun húsa. Á fundinum sem var
fjölsóttur fluttu framsögu auk
Ragnars þeir Hafsteinn Pálsson
deUdarverkfræðingur á Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins, Þórður Þ. Þorbjamarson
afaverkfræðinga og Viðar
'lafsson formaður Verkfræð-
íslands.
upphafi fundarins rakti Haf-
steinn Pálsson aðdraganda skýrsl-
unnar og sagði að hún væri til komin
vegna fjölda ábendinga um hús þar
sem talið var að hönnun væri áfátt.
Hlutverk nefndarinnar var að skila
faglegu áliti um ástand húsanna tíu
sem voru í úrtakinu og sagði hann
að full samstað væri meðal nefndar-
manna um að miða við jarðskjálfta-
Uppsagnir á Pijónastofu Borgarness komu á óvart:
Litla vinnu að hafa fyrir konur
UPPSAGNIR rúmlega tuttugu
kvenna á Pijónastofu Borgamess
koma heldur illa við flestar þeirra,
ef marka má viðbrögð þeirra sem
Morgunblaðið hafði tal af fyrir
helgina.
Guðríður Helgadóttir hefur starfað
hjá fyrirtækinu í 15 ár og sagði hún
að þessar uppsagnir hefðu komið
starfsfólkinu algjörlega að óvörum.
„Þetta kemur sér náttúrlega illa fyrir
okkur. Við fengum ekkert um þessar
uppsagnir að vita áður en til þeirra
kom. Við töldum okkur búa við nokk-
uð atvinnuöryggi því hér var nóg að
starfa og mér fínnst að það hefði
mátt segja okkur fyrr að þetta stæði
hugsanlega fyrir dyrum,“ sagði
Guðríður.
Sigpún Guðbjamardóttir hefur
starfað í 11 ár hjá prjónastofunni,
og aðspurð um hvort því fólki sem
sagt var upp byðist hugsanlega ein-
hver vinna í Borgamesi á næstunni,
sagði hún að lítið væri þar um vinnu
að hafa fyrir konur. „Það er aðallega
hægt að fá vinnu í sláturhúsinu á
haustin því það hefur yfirleitt tekið
margt fólk í vinnu. En sláturhúsið
starfar ekki nema í 6-8 vikur, þannig
að það leysir engan vanda. Það er
ekki að svo mörgu öðru að hverfa
hér í Borgamesi, og sumar standa
svo illa að hafa enga aðra fyrir-
vinnu," sagði Sigrún.
Sigríður Ingólfsdóttir hóf störf hjá
pijónastofunni í nóvember á síðasta
ári, en hún hafði verið sjúklingur um
skeið. „Ég varð svo glöð þegar ég
fékk vinnu héma hálfan daginn, því
fyrir konur á mínum aldri er ekki svo
margt sem býðst á hinum almenn
vinnumarkaði," sagði Sigríður.
Fannst henni þetta vera mikið áfall
og sagði að ekki væri svo auðvelt að
komast aftur út á vinnumarkaðinn.
Það er svo þýðingarmikið og gott
að geta farið út á vinnumarkaðinn
og verið meðal fólks þó ekki sé nema
Qóra tíma á dag, og ég mun koma
til með að sakna vinnustaðarins,"
sagði Sigríður Ingólfsdóttir að lokum.
Morgunblaöið/Sverrir
Horft yfir salinn þar sem sauma-
stofa Pijónastofu Borgarness er
tíl húsa, en það var starfsfólki
hennar sem aðallega var sagt
upp. Fremst á myndinni er
Guðríður Helgadóttir og bjóst
hún við að erfitt yrði fyrir kon-
umar að finna sér vinnu f
Borgamesi í bráð.
stuðul 0,75 í stað 0,5, en sú ákvörðun
hefur verið gagnrýnd.
Þórður Þ. Þorbjamarson borgar-
verkfræðingur skýrði sjónarmið
Reykjavíkurborgar og gerði að um-
talsefni gildandi jarðskjálftastuðul.
Hann greindi frá samþykktum í
borgarráði og í borgarstjóm um fyr-
irhugað eftirlit með byggingum í
framtíðinni. Þórður óskaði eftir sjó-
namiði Verkfræðingafélags íslands
um hvemig velja á umsagnaraðila
um stærri mannvirki en í samþykkt
borgaryfírvalda er gert ráð fyrir að
farið sé yfír útreikninga og upp-
drætti þolhönnuða mannvirkja og
umsögn þar um skilað til bygginga-
fulltrúa Reykjavíkurborgar. „Við
höfum verið meðvitaðir síðan suma-
rið 1985 um að til einhverra aðgerða
þyrfti að grípa varðandi þolhönnun
húsa," sagði Þórður. „Við vorum
ánægðir með þær tillögur til úrbóta
sem komu fram í fyrri skýrlsu fé-
lagsmálaráðherra og náði yfír
Reykjavík og nágrenni en þessi
skýrsla er til vansa fyrir borgina,
embættismenn hennar og þá sem
að gerð hennar stóðu."
Ragnar Sigbjömsson rakti í upp-
hafi vanda hönnuða við þolhönnun
húsa með tilliti til íslenskra að-
stæðna og benti á nokkrar ástæður
sem gætu legið að baki mistaka við
hönnun. íslenskir staðlar væru ófull-
komnir og tímabært að leiðrétta þá
en síðan vék hann að vinnuhefð
hönnuða og eftirliti. í lokin gerði
Ragnar skýrlsu félagsmálaráðherra
að umtalsefni og komst að þeirri
niðurstöðu að „í skýrslunni em þver-
brotnar þær reglur og hefðir sem
almennt eru viðurkenndar sem hom-
steinn vísindalegra rannsókna og
viðbragða. Ennfremur tel ég að í
skýrslunni séu bomar fyrir borð þær
siðferðilegu skyldur sem hvíla á
verkfræðingum og vísindamönnum.
Ég harma þetta sérstaklega
vegna þess að hér á í hlut samstarfs-
aðili úr verkfræðingastétt sem hefur
notið álits og virðingar, maður sem
ég tel að hafí allar forsendur til að
framkvæma vandaða könnun. Ég tel
þá „aðferðafræði" sem beitt er við
könnunina álitshnekki fyrir verk-
fræðingastéttina og þá sérstaklega
fyrir þá okkar sem stunda rannsókn-
ir. Ég tel skýrsluna móðgun við
hæstvirtan félagsmálaráðherra.
Hann á kröfu á vandaðri vinnu-
brögðum.
Einasta leiðin til að bæta núver-
andi ástand í málum verkfræðinga
er að vanda vinnubrögðin. Einasta
leiðin til að auka álit og virðingu
verkfræðistéttarinnar er að vanda
til allra verka. Því áliti ávinna menn
sér með verkum sínum, en geta ekki
krafíst þess í krafti stéttar sinnar
eða stöðu."
Næstur talaði Gunnar Torfason
og sagði að miskilnings gætti í túlk-
un á niðurstöðum skýrslunnar og
væm leiðréttingar væntanlegar frá
nefndarmönnum. Hann sagði það
ljóst að bæta þyrfít eftirlit með þol-
hönnun og lýsti ánægju með aðgerð-
ir borgaryfirvalda en eftir sem áður
yrði hann að svara spumingunni um
hvort fúskað væri við þolhönnun
húsa, játandi.
Að lokum talaði Viðar Ólafsson
og sagði hann það mest um vert að
umfjöllun fjölmiðla um þolhönnun
yrði ekki snúið gegn verkfræðinga-
stéttinni. Með einhveijum ráðum
yrði að beina henni inn á þann far-
veg að hún yrði stéttinni til góðs í
framtíðinni. Félagið ætti að beita sér
fyrir að aðstoða ríkisvaldið og borg-
ina í að bæta eftirlit með bygginga-
framkvæmdum ekki eingöngu I
Reykjavík heldur á öllu landinu.
Hann tók undir nauðsjm þess að
jarðskjálftastaðallinn yrði bættur en
síðast en ekki síst ættu menn að
halda friðinn og forðast málaferli.