Morgunblaðið - 06.06.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
27
Ársreikningar Rey kj avíkurb or gar og borgarfyrirtækja 1986
kynntir í borgarstjórn:
Eigið fé borgarinnar
jókst um 8,8 milljarða
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri, lagði á fundi borgarstjórnar á fimmtu-
dag fram ársreikning Reykj avíkurborgar og fyrirtækja hennar til fyrri
umræðu. Skýrsla stjórnar endurskoðunardeildar verður lttgð fram í
borgarráði áður en reikningurinn kemur til sfðari umræðu i borgar-
stjórn. Veltufjármunir hækkuðu um 734,7 milijónir en skammtimalán
um 143,1 milfjón. Eigið veltufé hefur þannig aukist um 591,6 milljónir
króna. Veltufjárhlutfallið er nú 3,45 á móti 3,12 árið 1985. Eigið fé
borgarsjóðs hefur hækkað um 8,8 milljarða en stór hluti þeirrar aukn-
ingar er vegna endurmats eigna. Lán tíl langs tima lækkuðu á árinu
um 43 miiy. kr. og eru nú 833,8 miljjónir króna.
Davíð sagði að upphaflegri flár- Bókfærðar telq'ur reyndust sam-
hagsáætlun fyrir árið 1986 hefði kvæmt reikningi 396,8 milljónir
verið breytt verulega vegna breyttra umfram áætlun, eða 9,9%. Þar ber
forsenda í kaupgjalds- og verðlags-
málum í kjölfar febrúarsamning-
anna, m.a. hefði tekjuáætlun
borgarinnar verið lækkuð um 193
milljónir króna, þar af voru 125 millj-
ónir vegna lækkunar útsvarspró-
sentu úr 10,8 í 10,2%.
Endanleg niðurstaða flárhags-
áætlunar varð að tekjur á árinu voru
áætlaðar 4,026,5 milljónir króna,
rekstrargjöld 3,053,9 milljónir króna
og til eignabreytinga 972,6 milljónir
króna
hæst að bókfærðar tekjur útsvara,
aðstöðugjalda og dráttarvaxta opin-
berra gjalda urðu um 290 milljónir
króna umfram áætlun. Framlag úr
Jöfnunarsjóði reyndist 28,6 milllj. kr.
yfir áætlun, arður af eignum 18,7
milljónir króna og tekjur af gatna-
gerðagjöldum fóru um 52 milljónir
króna fram úr áætlun, en þess má
geta að sá liður var verulega undir
áætlun árið áður.
Rekstrargjöld fóru 308,9 milljónir
króna umfram áætlun. Umsamdar
launahækkanir umfram flárveitingar
munu hafa verið allt að 9%, eða um
120 milljónir króna Önnur frávik
má aðallega rekja til skólamála, ann-
arra útgjalda, þá einkum vegna hærri
vaxtagjalda en áætlað hafði verið,
um 43 milljónir króna, svo og gatna-
og umferðamála, sem fóru 77,5 millj-
ónir króna fram úr áætlun.
Til eignabreytinga var varið 1060
milljónum króna sem er 87,9 milljón-
um umfram áætlun.
Af fyrirtækjum borgarinnar má
nefna að hlutfall fargjaldatekna af
rekstrargjöldum SVR, án vaxta og
afskrifta, reyndist 74,8% en sam-
svarandi hlutfall var 79,9% árið
1985. Framlag borgarsjóðs til rekst-
urs nam 93,9 milljónum króna og til
eignabreytinga 17,0 milljónum
króna. Farþegaflöldi á árinu var 9,3
milljónir og hafði fækkað um 500
þúsund frá árinu áður.
Hagnaður af Reykjavíkurhöfn, að
viðbættri jákvæðri útkomu fjár-
magnstekna og gjalda nam 64,6
milljónum króna. Heildartekjur Hita-
veitu Reykjavíkur urðu 1.054,5
milljónir króna og skilaði reksturinn
221,1 milljónum króna til fram-
kvæmda.
Rekstrarhalli Húsatiygginga
Reykjavíkurborgar varð 31,5 milljón-
ir króna sökum gjaldfærsla vegna
verðlagsbreytinga sem námu 35,5
milljónum króna. Rekstrarhalli Pípu-
gerðarinnar var 8,6 milljónir króna
eftir afskriftir, Gijótnámsins rúmar
4,0 milljónir króna, Malbikunarstöðv-
arinnar 1,5 milljónir króna Reikn-
ingslegur halli Vélamiðstöðvar var
24,4 milljónir króna, vegna hærri
afskrifta en áætlað var, svo og gjald-
færslu um 13 milijónir króna.
Tekjur af raforkusölu Rafmagns-
veitu Reykjavíkur fóru 3,8 milljónir
umfram áætlun en raforkukostnaður
meðalfjölskyldu lækkaði um 22% á
árinu. Rekstraijöfnuður Rafmagn-
sveitunnarvar 22,1 milljónir króna
Morgunblaðið/Emilía
Faxaflóaskip með Engeyjarlaginu. „Sjómaðurinn" hægra megin á
myndinni er i skinnklæðum sem notuð voru af sjómttnnum á Aust-
fjörðum til ársins 1870 en í Þorlákshttfn og Grindavik voru skinnklæði
notuð fram til 1920.
Sýning byggð á „ís-
lenskum sjávarháttum“
SÝNINGIN „Árabátaöldin", sem nokkur slík á sýningunni. Hluti sýn-
byggir á riti Lúðviks Kristjánsson-
ar Jlslenskir sjávarhættir" opnar
i dag í Sjóminjasafni íslands við
Vesturgtttu 8 i Hafnarfirði. Sýndar
verða teikningar, ljósmyndri og
textar úr riti Lúðviks auk muna
úr sjómirqadeild Þjóðmipjasafns-
ins og frá ððrum velunnurum
aafnsina.
Á sýningunni er rakin saga
íslenska árabátsins eftir því sem
heimildir leyfa fram til um 1910 þeg-
ar vélbátar komu til sögunnar. Sýnd
eru Kkön af bátum með mismunandi
lagi allt eftir byggðarlögum og meðal
annars er sýnt líkan af hákarlaskip-
inu „Ófeigi" af Ströndum. Þá eru
sýnd gömul verkfæri bátasmiða og
gerð grein fyrir nafni á hverri fjöl i
árabátum en nöfn þeirra réðust nokk-
uð eftir byggðarlögum.
Dregin er upp mynd af verstöð og
því sem þar fór fram og kort úr riti
Lúðvíks sýnir leiðir sjómanna að
heiman í verið en þá þurfti vegabréf
til að komast milli landshluta og eru
ingarinnar er helgaður hákarlaveið-
um sem aðallega var veiddur vegna
lýsisins. Veiðarfærin sýnd og veiðun-
um sjálfum lýst í máli og mynd.
Morgunblaðið/Emilía
Þetta veiðarfæri var notað tíl
hákarlaveiða og gátu fjórir verið
á samtímis.
Morgunblaðið/Sverrir
Hermann Sveinbjttrnsson, nýráð-
inn kynningarstjóri Sambands-
ins.
Sambandið
ræður kynn-
ingarfulltrúa
SAMBAND íslenskra samvinnufé-
laga hefur ráðið Hermann Svein-
bjömsson sem nýjan kynningar-
fulltrúa sinn. Hermann var áður
ritstjóri Dags á Akureyri og mun
hann hefja störf í Júlí.
Hinn nýji kynningarstjóri mun
hafa á sinni könnu útgáfu á nýju
mánaðarriti fyrir félagsmenn og
starfsmenn samvinnufélaga, sem
flytja mun fréttir af samvinnustarfi
víðs vegar um land og miðla upplýs-
ingum um viðskipti. Einnig mun hann
hafa með að gera kynningarstörf af
ýmsu tagi, bæði innan Sambandsins
og til annarra.
Hermann er lögfræðingur að
mennt.
Það þarf að gefa lífsanda loft
Rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson
JÓN Steinar Gunnlaugsson hrl.,
lttgfræðingur dr. Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar sendi nýverið
bréf til Þórólfs Þórlindssonar,
deildarforseta félagsvísindadeild-
ar, þar sem mótmælt er skipan
dómnefndar þeirrar, sem ætlað
er að fjalla um umsækjendur um
stttðu lektors i stjóramálafræði í
Háskóla íslands. Dr. Hannes er
einn umsækjenda um stöðuna. í
Morgunblaðinu i gær sögðu Há-
skólarektor og forseti félagsvi-
sindadeildar álit sitt á þessu máli
og sneri blaðið sér af þessu tilefni
til dr. Hannesar og átti við hann
stutt spjall.
„Ég held að þeir þremenningamir,
sem settust i dómnefndina, hafi ekki
gætt sín sem skyldi á því, að menn
geta ekki notið trausts, þegar þeir
eru of nálægt mönnum, sem þeir
eiga að leggja mat á. Annars vegar
eru þeir þremenningamir allir vinir
og samstarfsmenn eins umsækjand-
ans, Ólafs Þ. Harðarsonar, og hins
vegar hafa tveir þeirra, Svanur
Kristjánsson og Ólafur Ragnar
Grímsson, átt í illvígum deilum við
mig og meðal annars opinberlega
kallað mig níðblaðamann, rógbera
og falsara. Ef ég hefði verið í spomm
þeirra, þá hefði ég satt að segja
ekki tekið sæti í dómnefndinni.
Hæstiréttur íslands var einmitt
að úrskurða í gær um vanhæfi sak-
sóknara í málefnum bankastjóra
Útvegsbankans, vegna tengsla sak-
sóknara við einstaka bankaráðs-
rnenn." Þetta telur Hannes undir-
strika þá meginreglu í stjómsýslunni,
að menn séu vanhæfir, ef þeir em
of tengdir þeim, sem þeir eiga að
flalla um. „Valið ádómnefndarmönn-
unum kemur því meira á óvart, sem
fyrir liggur, að hægt hefði verið að
fá í nefndina marga aðra ágætlega
hæfa menn.“ Kvaðst hann hafa orðið
var við mikla furðu á því, að Ólafur
Ragnar Grímsson skuli teíja sig geta
sest í dómarasæti yfir sér fræðilega.
„Það er ákaflega mikilvægt fyrir
Háskólann , að hann sé óhultur fyrir
umróti og öldugangi, svo að menn
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son.
geti sinnt þar { næði fijálsri sann-
leiksleit, rannsókn og rökræðu. Ég
kynntist þvl einmitt , þar sem ég
lauk doktorsprófí í stjómmálafræði,
í Oxford, hversu mikils virði það er.
En þá verður Háskólinn að standa
undir nafni og vera ftjáls og óháð
menntastofnun, en ekki einkafyrir-
tæki einlitrar eða þröngrar klfku.
Hann þarf að vera opinn og óhrædd-
ur, jafnframt því sem hann gerir
ýtmstu kröfur um menntun og hæfi-
leika kennara og nemenda. Það þarf
að gefa Kfsanda loft.“
Aðspurður um væntanleg úrslit
þessa máls, sagði Hannes að hann
vonaðist eftir því að það færi þann-
ig, að Háskólinn hefði sóma af.
Sjálfur gæti hann ekki haft frekari
afskipti af þessu máh, þar eð hann
væri á förum til Bandaríkjanna, þar
sem hann mun meðal annars flytja
erindi á ársfundi „American Political
Science Association" í Chicago um
venjurétt og stjómskipan íslenska
þjóðveldisins, sem svipar um margt
til kenninga nútímafræðimanna.
„Það er aldrei gaman að taka þátt
í deilum, þar sem svo nærri manni
er höggvið. Það er aldrei neitt
ánægjuefni, þegar manni finnst, að
verið sé að útiloka mann vegna per-
sónulegs metings eða pólitískra
skoðana. En ég vona svo sannarlega,
að afgreiðsla þessa máls verði með
þeim hætti að Háskólinn vaxi fremur
en minnki í augum almennings."
VOLVOSALURINN SKEIFUNNI 15
Nýja símakerfið er þáttur í stöðugt aukinni þjónustu við okkar ágætu viðskiptavini.
Opið í Volvosal, Skeifunni 15, alla daga frá 9-18 og á laugardögum frá 10-16.