Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
33
Núverandi stjóra FFSÍ. F.v.: Höskuldur Skarphéðinsson, Guðlaugur Gíslason, Matthías Nóason, Reyuir Björasson, Freysteinn Bjaraason,
Þorbjöra Sigurðsson, Guðjón A. Kristjánsson forseti, Helgi Laxdal, Ragnar G.D. Hermannsson, Kristján Ingibergsson, Ari Leifsson, Guð-
bjartur Gunnarsson, Skafti Skúlason og Birgir Stefánsson. Myndirnar eru fengnar úr sérstakri hátiðarútgáfu Sjómannablaðsins Víkings,
sem FFSÍ gefur út.
Hálfrar aldar afmæli
Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands
Farmanna- og fískimannasam-
band íslands á 50 ára afmæli í
vikunni. Sérstakur hátíðarfundur
var haldinn í tilefni afmælisins sl.
þriðjudag í húsakynnum sam-
bandsins, en stofnun þess miðast
við vikuna 2. til 8. júní fyrir hálfri
öld, en þá daga stóð yfír fundur
stofnaðila sem leiddi til þess að
sambandið var stofnað.
Hvatamir að stofnun Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins voru auðvitað ýmsir, en fáeinir
höfðu þó meira vægi en aðrir. í
samtali Morgunblaðsins við Har-
ald Holsvik, framkvæmdastjóra
sambandsins, kom fram, að eftir-
taldir þættir hafi vegið þungt: 1)
Launamál þeirra sem skipa stétt-
imar innan sambandsins. „Það var
erfítt að fá nokkuð skriflegt í þá
daga, helst að munnlegt sam-
komulag væri gert og svo var
undir hælinn lagt hvemig það var
túlkað. Kerfíð bauð upp á mistúlk-
un og ágreining og þegar sam-
bandið var stofnað var mælirinn
orðinn fullur," segir Harald.
2) Hlutaðeigandi aðilum þótti
byrði óbeinna skatta á útgerðinni
vera orðin hrikaleg og þess eðlis
að hún stæði útgerð í landinu fyr-
ir þrifum. Gerði sambandið það
að einu af baráttumálum sínum
að aflétta skattafargi af útgerð-
inni til þess að hægt væri að verja
meira fé til kaupa á fiskiskipum.
Varð sambandinu vel ágengt á
þessu sviði. 3) Sambandið gerði
það að baráttumáli að reist yrði
skólabygging til handa þeim á
sjónum sem þyrftu sémám.
Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands er að sjálfsögðu
hagsmunahópur sem lætur öll mál
til sín taka sem varða aðila innan
þess og á mörgum sviðum hefur
mikil vinna verið innt af hendi og
gagnlegar hugmyndir sprottið úr
jarðveginum. Má í því sambandi
Harald Holsvik framkvæmda-
stjóri FFSÍ.
geta þess, að 25 ámm fyrir tíma
skuttogara var Farmanna- og
fískimannasambandið að leggja
fram hugmyndir um hönnun á
nýrri tegund fískiskipa, skipa, sem
væru yfirbyggð og tækju vörpuna
inn að aftan! Annað dæmi mætti
nefna. FFSÍ hvatti til þess að land-
helgi íslands yrði færð út í 12
mílur allmörgum árum áður en
slagkraftur komst í þá baráttu og
hvert mannsbarn veit nú hvaða
árangur hefur náðst, hversu stórt
skref var stigið á sínum tíma. Og
enn má lengur telja, sambandið
hvatti til og vann mikið að því,
að koma skipaviðgerðum hérlendis
á góðan grunn. Var markmiðið
að slík þjónusta yrði sambærileg
hér á landi og hún er erlendis.
Takmarkinu var náð, en afstætt
að nefna ártöl og dagsetningar í
þeim efnum. Nú er stefnan að
halda í horfínu og heldur bæta
ástandið ef það er þá hægt á ann-
að borð.
Hverfum aðeins aftur til ársins
1937. Það er 2. júní og mættir
eru 20 fulltrúar 8 stéttarfélaga.
Fáeinir, sem höfðu ætlað sér að
vera með, drógu sig í hlé, en það
breytti engu um þörfina, hún knúði
á um að fundurinn skyldi haldinn
og séð til hver útkoman yrði. Kos-
in hafði verið bráðabirgðastjóm til
að annast undirbúningsvinnu og
til að halda fyrsta fundinn. Lög
voru samin á þessum degi og þeim
næstu og Farmanna- og físki-
mannasamband íslands stofnað.
Það er fátt sem Farmanna- og
fiskimannasambandinu er óvið-
komandi í málefnum þessara
þjóðfélagshópa. Sambandið hefur
látið til sín taka varðandi sam-
göngumál, öryggismál, landhelgis-
mál, fisveiðilögsögu og vemdun
fískistofna, hafnarmál, vitamál,
fræðslumál hvers kyns og tilkynn-
ingaskylduna svo eitthvað sé nefnt
og Harald Holsvik framkvæmda-
stjóri efast ekki þegar hann er
spurður um árangur sambandsins:
„Það hefur mikið og gott starf
verið unnið. Það sannaðist fljótt
að sambandið átti fyllilega rétt á
sér og þótt aldrei hafí verið tiltak-
anlega fjölmennt á skrifstofunni
hjá sambandinu hefur ótrúlega
miklu verið áorkað, ýmist með
beinum aðgerðum, með stuðningi
við starf annarra, svo og með ráð-
gjöf og þrýstingi á þá aðila, sem
hafa farið með framkvæmdavaldið
í hinum ýmsu málefnum sem sam-
bandið varðar. Starf þess hefur
verið þjóðarbætandi og giftusam-
iegt, það er engin spuming um
það,“ segir Harald.
Sem fyrr segir, var haldinn sér-
stakur hátíðaraðalfundur í húsa-
kynnum sambandsins í Borgartúni
á þriðjudaginn og var þar saman-
komið margt góðra gesta. í tilefrii
af áfanganum færði FFSÍ Slysa-
vamafélagi íslands 10 gúmbáta
að gjöf með því skilyrði að þeir
yrðu eingöngu notaðir til þess að
æfa björgun skipshafna vítt og
breitt um.landið, en FFSÍ og SVFI
hafa löngum átt gott samstarf.
Tveir menn voru heiðraðir við
þetta tækifæri, Konráð Gíslason
kompássmiður og Ingólfur Stef-
ánsson fyrmm framkvæmdastjóri.
Margra ára gifturíkt starf þeirra
í þágu FFSÍ varð til þess að þeir
vom valdir til að þiggja viðurkenn-
ingarskjal frá sambandinu.
- GG.
FFSÍ færði Slysavaraafélagi íslands höfðinglega gjöf i tilefni eigin
afmælis og hér tekur fulltrúi SVFÍ, Ester Kláusdóttir við, gjafa-
bréfi þar að lútandi úr hendi Guðjóns A. Kristjánssonar forseta FFSÍ.
Guðjón A. Kristjánsson forseti FFSÍ afhendir Ingólfi Stefánssyni
viðurkenningarslgal og blómvönd.
Konráð Gíslason t.v. var heiðraður á hátíðaraðalfundinum. T.h. er
Harald Holsvik framkvæmdastjóri FFSÍ.