Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
Gísli Sighvats-
son — Minning
' Vegna mistaka við birtingu
þessarar greinar i blaðinu í gær
er hún birt hér aftur um leið og
beðist er afsökunar.
Miðvikudaginn 27. maí barst
okkur sú harmafregn að félagi okk-
ar og skólabróðir, Gísli Sighvatsson,
væri allur, aðeins 36 ára gamall.
Okkur setur hljóða og hugurinn
reikar til baka. Minningar um góðan
dreng sækja fram, dreng sem alla
tíð skar sig úr í okkar hópi, ekki
vegna þess að þar færi hávaðamað-
ur sem kallaði á athygli. Þvert á
móti var sérstaða hans fólgin í eðlis-
lægu og einstöku rólyndi sem laðaði
til sín fólk og hafði góð áhrif á alla
sem í kringum hann voru. Gísli var
því mjög vinmargur og eftirsóttur
félagi. Hans vinahópur í mennta-
skólanum spannaði a.m.k. þijá
árganga sem var mjög óvenjulegt
en segir meira en mörg orð um
mannkosti hans. Hann var okkar
Njáll á Bergþórshvoli, hlýddi á
vandamál manna, kunni þá list að
hlusta, íhugaði og gaf góð ráð á
sinn yfírlætislausa hátt. Hann var
hins vegar dulur á eigin tilfínningar
og flíkaði þeim ógjaman.
Eftir stúdentspróf stundaði Gísli
nám við Kennaraháskóla Islands
og fór síðan til Þýskalands til náms.
Eftir heimkomuna kenndi hann í
nokkur ár í heimabæ sínum, Vest-
mannaeyjum, en hóf síðan fram-
haldsnám við Manitobaháskóla. Er
heim kom hóf hann kennslu við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ og
hafði því rétt lokið sínu fyrsta
kennsluári.
Samfundir við Gísla urðu stopulli
meðan á námi hans í Þýskalandi og
í Kanada stóð en með heimkomu
hans treystust vinaböndin aftur.
Það var alltaf þægilegt og notalegt
að hitta Gísla og eiga með honum
stund. Hann var glaðvær og gam-
ansamur á sinn hægláta hátt og
gaman hans var ætíð græskulaust.
Við getum velt fyrir okkur hinum
áleitnu spumingum: hvers vegna
hann, til hvers? en engin kann svar-
ið. Við hljótum að beygja okkur
fyrir hinu óumflýjanlega en tregi
og kærar minningar sitja í hugskot-
inu. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að njóta samvista við hann
þessi ár.
Ólöfu Helgu, Gunnari Sveini, for-
eldmm og öðrum aðstandendum
sendum við innilegustu samúðar-
kveðjur.
Laugarvatnsstúdentar
vorið 1970
Sigríður Jóns-
dóttir — Minning
Fædd 4. mars 1895
Dáin 25. mai 1987
Fortíðin er óðum að hverfa sem
lifandi áþreifanleiki yfír á umsam-
inn raunveruleika sögunnar.
Samfélag torfbæjarfólks hefur í
tímans rás breyst svo gífurlega að
undrun má sæta hvemig þetta fólk
hefur komist klakklaust gegnum
slíka lífsreynslu. Sigríður Jónsdóctir
frá Norður-Götum í Mýrdal, fædd
4. mars 1895, mótaðist af þessum
síbreytilegu umskiptum og bar
lífsreynslu sína með sóma. Lífsbar-
átta hennar og Lárusar manns
hennar var bæði hörð og óvægin á
köflum. En æðruleysi var einn af
hennar stóru kostum, ekkert víl þó
á móti blési. Umburðarlyndi hennar
í garð ístöðulauss unglings sem kom
úr tiltölulega vemduðu umhverfí
og gat illa skilið muninn á kaldri
lífsbaráttu raunvemleikans og hin-
um þægilega heimi nútíma borgar-
menningar, var slíkt að enn er búið
að. Það var engin furða þó Sigríður
væri allt til síðasta dags sameining-
artákn og um leið kjölfesta sinnar
stóm fjölskyldu. Það er heldur ekki
að furða þó böm og bamaböm sýni
virðingu henni sem hélt allt að 14
manna íjölskyldu heimili við lítil
efni og þröngan húsakost. Því síður
er það undarlegt að afkomendur
hennar hugsi til hennar með hlýju
og stolti vegna þeirra uppeldisáhrifa
sem hún hafði á sitt fólk með lífsvið-
horfí sínu. Aðalsmerki þeirra sem
hún ól upp er því endurspeglun á
þessu viðhorfí sem er dugnaður og
lífsgleði. Það að setja niður þessar
kveðjulínur er tilraun til að þakka
vinkonu fyrir að hafa gefíð mér
tíma og tækifæri til að kynnast við-
horfum og aðstæðum sem vom mér
framandi. Með fordómalausri tillits-
semi víkkaði hún sjóndeildarhring
Fermingar á morgun
Ferming í Grundarfjarðar-
kirkju hvítasunnudag, 6. júní, kl.
10.30. Prestur sr. J6n Þorsteins-
son.
Fermd verða:
Albert Magni Ríkarðsson,
Fossahlíð 5.
Anna Dröfn Friðriksdóttir,
Gmndargötu 62.
Atli Már Ingólfsson,
Fagurhóli 5.
Halldóra Sverrisdóttir,
Gröf, Eyrarsveit.
Jóhanna Þórann Gunnarsdóttir,
Fagurhólstúni 16.
Katrín Elísdóttir,
Grandargötu 13a.
Margrét Huld Guðmundsdóttir,
Gmndargötu 45.
Marvin ívarsson,
Fagurhólstúni 15.
Steinar Áslaugsson,
Hlíðarvegi 9.
Torfi Freyr Alexandersson,
Hrannarstíg 10.
Þómnn Alma Ólafsdóttir,
Hlíðarvegi 10.
Ferming í Setbergskirkju hvíta-
sunnudag kl. 14. Prestur sr. Jón
Þorsteinsson.
Fermdur verður:
Marteinn Njálsson,
Suður-Bár, Eyrarsveit.
minn og þeirra sem halda að innan
skólanna sé að finna upphaf og
endi veraldar.
Fjölskylda mín kveður nú ekki
bara vin heldur einnig ömmu og
langömmu, sem gaf sér ætíð tíma
til að hlúa að ættmennum sínum
hvenær sem tækifæri gafst. Við
sem syrgjum vitum hvað hún gaf
en skildum aldrei hvað hún þáði.
Jóhann Óli Guðmundsson
Ferming í
Staðarkirkju
FERMING verður í Staðarkirkju
í Hrútafirði hvítasunnudag kl.
10.30. Prestur er séra Baldur
Rafn Sigurðsson.
Bömin sem fermd verða eru:
Þorgeir Jónsson Eyjanesi og Öm
Kristinsson Reykjaskóla.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reylgavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Vestmannaeyjum
Aðalfundur
Aðalfundur ísfélags Vestmannaeyja hf. fyrir
árið 1986 verður haldinn föstudaginn 12. júní
nk. kl. 18.00 í húsi félagsins við Strandveg.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
# JliJteð
Bæjarfógetaskrifstofa
í Kef lavík
Tilboð óskast í framkvæmdir við skrifstofu-
byggingu bæjarfógetaembættisins í Keflavík.
Innifalið í verkinu er að setja nýtt þak á bygg-
inguna, um 320 mz , ganga frá nýjum
gluggum og útveggjum, regnvatns- og jarð-
vatnslögnum o.fl.
Verkinu skal skila fullgerðu eigi síðar en 18.
sept. 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 5.000.- kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjud.
23. júní 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, simi 26844.
Keflavík
Almennur fundur í Sjálfstæöisfélagi Keflavíkur verður miövikudaginn
10. júní kl. 20.30 í Sjálfstaeöishúsinu.
Gestir fundarins verða: Ólafur G. Einarsson, Ellert Eiríksson og In-
gólfur Falsson.
Staöa mála i dag skýrö.
Allt sjálfstæðisfólk velkomiö.
Stjórnin.
Að loknum
kosningum
Miövikudaginn 10. júní kl. 20.30 veröur haldinn fundur í Valhöll um
starfsemi og stöðu Sjálfstæöisflokksins.
Ræður flytja:
Ellert B. Schram, ritstjóri og fyrrv. alþingismaöur,
Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri,
Unda Rós Michaelsdóttir, kennari og
Sigurlaug Bjarnadóttir, kennari og fyrrv. alþingismaöur.
Fundarstjóri veröur Maria E. Ingvadóttir og fundaritari Sólveig Hin-
riksdóttir. Á eftir veröa umræöur og fyrirspurnir.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á störfum og starf-
semi Sjálfstæöisflokksins.
Fjölmennið.
Tilboð
Tilboð óskast í utanhúsmálningu á Hábergi 3.
Upplýsingar í síma 76264 á kvöldin.
Útboð á málun
í utanhússmálningu á fjölbýlishúsinu Ból-
staðarhlíð 58-62.
Tilboðum skal skila til húsfélags Bólstað-
arhlíð 60 fyrir 12. júní.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Uppl. í símum 39982, 38717 eða 39461.
Sjálfstæðisfélag
Kjalnesinga
boðar til almenns fólagsfundar i Fólkvangi 9. júní kl. 20.30.
Kaffiveitingar. Veriö öll velkomin.
Stjórnin.
Hvöt, fólag sjáifstæóiskvenna i Reykjavik.