Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
49
Minnig:
Jóhann Sigmunds-
son Norðfirði
Fæddur 1. ágúst 1917
Dáinn 26. maí 1987
Jóhann Sigmundsson, eða Jonni
Sigmundar eins og við Norðfírðing-
ar kölluðum hann jafnan, er látinn,
tæplega sjötugur að aldri.
Barátta hans undanfama mánuði
við grimman sjúkdóm var ströng,
er hann háði, að sögn þeirra, sem
umgengust hann, af einstöku æðru-
leysi og hetjuskap. Við Norðfírðing-
ar munum sakna mikið þessa góða
samborgara okkar. Hann var einn
þeirra fullorðnu manna hér, sem
manni fannst eins og sérstakur hluti
af bæjarlífínu. Fastur punktur í til-
verunni.
Færi maður ofan í miðbæinn um
sjöleytið á morgnana hlaut maður
að hitta Jonna. Á sumrin á leið í
sundlaugina eða í sundlauginni. Á
vetuma á smá hressingargöngu eða
á leið í vinnuna. Aldrei var Jonni
að flýta sér það mikið, að hann
hefði ekki tíma til að rabba smá-
stund.
Áhugamál hans vom mörg. Hann
hafði mikinn áhuga á þjóðmálum
almennt, þótt hann væri aldrei virk-
ur í pólitík, það ég best veit.
Hann var unnandi fagurra lista
og var í raun virkur þátttakandi í
slíku starfí. Þar á ég við steinasöfn-
un hans og úrvinnslu úr steinum.
Þar hefur hann í raun unnið hið
mesta þrekvirki. Steinasafn hans
að Miðstræti 1 er ótrúlega mikið
að vöxtum og fjölbreytni og þótt
hann nyti til þeirrar söfnunar að-
stoðar bróður síns Valgeirs, þá er
safnið þó fyrst og fremst hans verk.
Úrvinnsla hans úr steinum er líka
einstök. Þar hefur hann gert marg-
an sérlega fallegan grip.
Trúa mín er sú, að nafn hans
muni lifa á ókomnum tímum tengt
þessum verkum hans. En Jóhann
átti um ævina fleiri áhugamál, sem
hann lagði alúð við og fórnaði mikl-
um tíma. Þótt hann væri aldrei
afreksmaður í íþróttum öðrum en
fjallgöngum, þá hafði hann þó mik-
inn áhuga á þeim og skildi vel
uppeldislegt gildi þeirra og mikil-
vægi. Þess vegna studdi hann vöxt
þeirra og viðgang eftir mætti. Hann
var t.d. gjaldkeri íþróttafélagsins
Þróttar í mörg ár og vann það starf
af einstakri alúð og samviskusemi.
Sem dæmi um skilning hans og
áhuga á íþróttum og gildi þeirra,
þá gaf hann árið 1942 trúlega feg-
ursta og verðmætasta verðlauna-
grip, sem keppt hefur verið um í
íþróttum hér á Austurlandi. Þetta
var bikar gerður af listamanninum
Ríkharði Jónssyni, sem þá var
þekktasti tréskurðarmeistari Is-
lendinga. Þessi bikar er nú í eigu
Þróttar, því meistaraflokksstúlkur
félagsins unnu hann til eignar.
Þessi bikar lofar ekki eingöngu
þann, sem gerði hann heldur og
þann, sem gaf hann. Á þessum
árum, sem Jóhann var gjaldkeri
Þróttar, störfuðum við mikið saman
og er mér því vel kunnugt um allt
það mikla og fómfúsa starf, sem
hann þá lagði af mörkum í þágu
íþróttanna.
Ævistarf Jóhanns Sigmundsson-
ar verður ekki að marki rakið í
stuttri minningargrein. Við Jóhann
höfðum þekkst og verið vel til vina
frá bamæsku. Bæði var, að all mik-
ill samgangur var á milli heimila
foreldra okkar, en í Sigmundarhús
vomm við systkinin alltaf velkomin
og svo lágu leiðir okkar saman á
Laugarvatnsskólanum 1938—39. Á
þeim ágæta skóla gat Jóhann sér
mjög gott orð og var vinsæll og vel
liðinn jafnt af kennurum sem skóla-
systkinum sínum og er mér kunnugt
um að tengslin við sum þeirra rofn-
uðu aldrei. Eftir vem sína á
Laugarvatnsskólanum fór Jóhann á
vélstjóraskóla og aflaði sér vél-
stjóraréttinda.
Hann réðist síðan sem vélstjóri
að frystihúsinu á Eyrarbakka og
vann þar í nokkur ár og hefí ég
hitt Eyrbekkinga, sem minnast
hans af mikilli hlýju og þakklæti,
því Jóhann reyndist þar, sem ann-
arsstaðar, áhugasamur um allt, sem
að framfömm laut og tók m.a. virk-
an þátt í starfsemi leikfélags, er
þar starfaði af miklum þrótti.
Fljótlega eftir að Samvinnufélag
útgerðarmanna hér á Norðfírði
byggði sitt stóra fískiðjuver, réðist
Jóhann þangað sem vélstjóri. Þar
starfaði hann í mörg ár, en þar
varð hann fyrir slysi og held ég að
það hafí orðið til þess, að hann
hætti vélgæslustörfum.
Jóhann stofnar síðan sitt eigið
fyrirtæki Efnalaug Neskaupstaðar
°g byggir það fyrirtæki upp af
miklum myndarskap og rekur í
mörg ár. Fyrir 3 ámm seldi Jóhann
það fyrirtæki og síðustu árin ráku
þau Sigrún systir hans saman
skósmíðaverkstæði það, sem faðir
þeirra stofnsetti.
Eitt af því, sem manni fannst
fastur punktur í tilveru þessa bæjar
og bæjarlífs var Skósmíðaverkstæði
Sigmundar Stefánssonar. Það var
til frá því að maður man fyrst eftir
sér og manni fannst svo sjálfsagt
að það yrði alltaf til.
Þar man maður fyrst eftir Sig-
mundi, með góða hlýja viðmótið og
öllum drengjunum hans, sem vom
að hjálpa honum og læra af honum.
Enda urðu þrír þeirra skósmíða-
meistarar, þeir Valgeir, Jóhann og
Ingi, þótt það yrði bara ævistarf
eins þeirra, Valgeirs.
í Sigmundarhúsið var alltaf svo
gott að koma. Svo hlýtt og vinalegt
viðmótið. Svo hljótt og rólegt
mannlífið, en þó svo glaðlegt.
Þau Stefanía Ámadóttir og Sig-
mundur Stefánsson eignuðust 13
böm, 7 stúlkur og 6 drengi. Þijú
létust í bemsku. Það er svo með
þennan systkinahóp, sem og marga
slíka frá þessum ámm, að leiðir
hafa legið til ýmissa átta. Þijú
þeirra urðu þó eftir og héldu saman
heimili í Sigmundarhúsi, þau Sig-
rún, Valgeir og Jóhann. Það er
fallegt og snyrtilegt heimili innan
dyra sem utan og tengist fegursta
blettinum í okkar bæ.
Steinasafnið fjölbreytta og fagra
situr á það sérstakan svip og hefi
ég um það nokkra vissu, að það
muni um alla framtíð verða varð-
veitt á þessum stað, sem ein og
sérstök heild. Jóhann unni mjög
sínu byggðarlagi og var annt um
alla framtíð þess. Um það munu
verk hans og þær ráðstafanir, sem
hann lagði fyrir, að honum látnum,
votta best.
Það hefur fækkað í stóra systk-
inahópnum í Sigmundarhúsi, en
áður vom þau Valborg, Valgeir o'
Ingi látin.
Við hjónin viljum að lokum votta
systkinum Jóhanns og öðmm
vandamönnum samúð okkar og þá
sérstaklega Sigrúnu.
Blessuð sé minning Jóhanns Sig-
mundssonar.
Stefán Þorleifsson
Eggert Ó. Sigurðs-
son bóndi
Fæddur 4. ágúst 1916
Dáinn 31. maí 1987
Fyrstu kynni mín af Eggert hóf-
ust fyrir 12 ámm þegar hann réð
mig í gegnum ráðningarskrifstofu
bænda til sín í sumarvinnu. Eggert
hringdi í mig og strax í símann
virkaði hann það vel á mig að ég
ákvað að hjá þessum manni vildi
ég vera og eftir 2 klst. lagði ég af
stað með Eggert að Smáratúni f
Fljótshlíð.
Við áttum gott og fróðlegt spjall
saman á leiðinni og fannst mér
hann skemmtilegur og traustvekj-
andi maður, en þá gmnaði mig
ekki að ég ætti eftir að verða
tengdadóttir hans.
I þessari ferð sagði Eggert mér
söguna um hans fyrstu ferð í
Hlíðina. Aðeins 5 ára að aldri varð
hann að skilja við móður sína á
bryggjunni í Vestmannaeyjum og
fara um borð í mótorbát, sem flytja
átti hann upp í Landeyjasand, það-
an sem leiðin lá í Múlakot í
— Minning
Fljótshlíð, þar sem hann ólst sfðan
upp.
Eg gat vel séð hann fyrir mér,
lítinn 5 ára dreng að þurfa að vinka
mömmu sinni bless og fara til
ókunnra. Ekkert þýddi að gráta eða
æðrast, þessu tók Eggert af þeirri
stöku rósemi sem ávallt einkenndi
hans lundarfar. Þegar f Smáratún
var komið kynnti hann mig fyrir
heimilisfólkinu, sem vom: sambýlis-
kona Björg, dætumar Anna Sóley
og Krístin, synimir Guðjón og
Smári, móðir hans Dísa og bama-
bam Björg Hmnd. Að auki á hann
tvö böm, Sigurð og Ingibjörgu, sem
vom flutt að heiman.
Dvölin á þessu gestrisna og góða
heimili er mér góð endurminning.
Ekki ætla ég hér að rekja ævisögu
Eggerts, en víst er um það að hann
fékk að reyna ýmislegt en hann var
ekki sá maður að íþyngja vinum
og vandamönnum með því, heldur
var hann altaf hinn káti og jákvæði
sem hressti fólk með nærvem sinni.
Ég vil að lokum votta ástvinum
hans öllum mína dýpstu samúð og
fyrir hönd fjölskyldunnar þakka
Guðrúnu Sveinsdóttur fyrir þá
tryggð og ástúð sem hún sýndi
Eggert, ekki síst nú síðustu mánuði
í veikindum hans.
Þú nú ert grátinn nær og fjær.
Æ nú er minning þín oss kær.
Er föður vom og hirði hér.
Með hjartað trygga kveðjum vér.
Katharina S. Snorradóttir
J ENGINI
UNDRI _
ávalt
lægsta
lcjötvef^ landsins
Lamba-
hryggir.
Eigum ennþá þessa
ódýru hrygfgi.
Hang-ikjöts-
læri.
Athugið frí
úrbeining
Lambagrill-
sneiðar
úr læri
Hangikjöts-
frampartar.
Frí úrbeining.
Grillpinnar
nauta og
svína
Lamba
skrokkar.
Rúllupylsur
fyrir slög.
Lambagrill-
kótilettur
marineraðar
KJOTMIÐSTOPIH Slmi 686511