Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 51

Morgunblaðið - 06.06.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987 51 Minning: Þórður Halldórs- son frá Laugalandi Fæddur 22. nóvember 1891 Dáinn 26. maí 1987 Löngum starfsdegi tengdaföður míns, Þórðar Halldórssonar frá Laugalandi, er lokið. Útför hans verður gerð í dag frá Melgraseyri í Nauteyrarhreppi. Faðir hans, Halldór Jónsson, Rauðamýri, Nauteyrarhreppi, var einn þeirra bænda af aldamótakyn- slóð sem var í flestu nokkuð á undan sinni samtíð. Afi hans, Jón Halld- órsson, Laugabóli, var einnig mikilsvirtur bændahöfðingi. Það voru því styrkar stoðir og sterkar kenndir til búskapar í sveit sem réðu því að Þórður ákvað að gerast bóndi. Þegar Laugaland í Skjald- fannadal losnaði úr ábúð ákvað hann að fala jörðina til kaups og árið 1919 hóf hann þar búskap með konu sinni Helgu Maríu Jónsdóttur. Laugaland var fremur lítil jörð og illa hýst, tún léleg en engjar og {járbeit sæmileg. Honum leist því ekki meira en svo á að bjóða hinni ungu og glæsilegu konu sinni vetr- ardvöl í bæjarhúsunum. Hjá þeim hjónum dvöldust um vorið og sum- arið bræður Helgu til hjálpar við vorverk og heyskap. Svo var það kvöld eitt að hann tilkynnti þeim að þeir skyldu rífa gömlu baðstof- una til grunna daginn eftir. Hann væri að fara til ísafjarðar til þess að sækja timbur í nýja baðstofu. Við annan mann reri hann svo um nóttina til ísafjarðar, hitti kaup- mann og sagði að sig vantaði timbur til að byggja baðstofu. Kaupmaður- inn sem Þórður þekkti ekki neitt varð hálf hvumsa við og vildi vita hvemig hann ætlaði að borga og sagðist Þórður myndi borga það um haustið. Kaupmaðurinn þagði góða stund en sagði síðan: „Farið og leggið ykkur, ég skal sjá um að láta spýtumar í bátinn". Undir morgun næsta dag tóku þeir land við Armúla, en þá stendur þar í Qörunni nágranni hans, Jóhann frá Skjaldfönn með hesta til þess að flytja timbrið fram að Laugalandi. Þetta atvik var eiginlega dæmigert fyrir allt hans líf. Áræði, bjartsýni, tiltrú annarra og vinátta nágrann- anna. Búskapurinn á Laugalandi gaf ekki mikið af sér fyrstu árin, en smátt og smátt stækkaði túnið og nýjar byggingar sáu dagsins ljós, m.a. stórt og vandað íbúðarhús, laust eftir sfðustu heimsstyijöld. Bömjn urðu sjö. Halldór, Ingi- björg, Ólafur, Jóhann, Kristín, Jón og Guðrún. Það þurfti því nokkuð til að sjá heimilinu farborða. Til þess að drýgja tekjur stundaði Þórð- ur í mörg ár ijúpnaveiðar á vetrum og grenjavinnslu á vorin. Smám saman hlóðust á hann margvísleg störf fýrir sveitina. Hann var odd- viti í yfír 30 ár, sýslunefndarmaður, fulltrúi á þingi Stéttarfélags bænda og formaður búnaðarfélagsins í fjölda ára eða allt til þess að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Öll þessi störf rækti hann af mik- illi prýði og samviskusemi og ávann sér hylli sveitunga sinna. Á þingum og fundum var hann ekki myrkur í máli og fylgdi skoðunum sínum fram af mikilli festu og harðfylgi. En undir niðri sló stórt og heitt hjarta. Hann var oft fljótur að skipta skapi, ákafamaður sem hann var, sérstaklega ef honum þótti hallað á störf bóndans. Hann trúði á gróð- urmátt jarðar og allt sem honum fylgdi. En jafnfljótur var hann að skipta yfír í þá einlægu hlýju sem honum var svo eðlileg. Það má segja að skap hans hafí mótast af hinu vestfírska veðurfari. Hann fór held- ur ekki varhluta af því. Eitt haustið þegar bylur skall á, eins og hendi væri veifað, missti hann obbann af fénu í síkin fyrir neðan túnið. Það voru dapurlegir dagar að draga á sleðum dautt og hálfdautt féð heim að bænum. En Þórður tók þessu sem öðru með æðruleysi og barm- aði sér ekki og yfír þetta áfall komst hann með því hugarfari að náttúru- hamfarir væru ofar mannlegum mætti. Þegar Þórður, hátt á áttræðis- aldri, lét af búskap mætti halda að hann hefði sest fyrir og hvflst að löngum starfsdegi loknum, búinn tvisvar að byggja íbúðarhús á jörð- inni, stækka túnið margfalt svo að frá því að byrja með fáeinar kindur og kú var nú hægt að hafa á fóðr- um 15—16 nautgripi og milli 4—500 fjár. En nú byggði hann í þriðja sinn snoturt hús á nýbýli sem hann nefndi Laugarholt í túnjaðrinum og þangað fluttu þau hjónin í skjól dóttur sinnar, Guðrúnar, sem af mikilli fómfysi og umhyggju hefur annast þau öll þessi ár. Verður verk hennar í þessu sambandi líklega aldrei metið sem vert er. Þórður lést 26. maí sl. eftir rúm- lega ársdvöl í Sjúkrahúsi ísafjarðar. Ég vil hér með koma á framfæri bestu þökkum til starfsfólks sjúkra- hússins, sem að því er ég best veit, annaðist hann af stakri prýði. Þetta eru fátækleg orð um ein- stakan heiðursmann. Á þessum rúmlega fjörutíu ára ferli, sem ég átti samleið með Þórði, tengdaföður mínum, minnist ég hans fyrst og fremst fyrir það með hve mikilli hlýju og einlægni hann umgekkst sitt samferðafólk. En einnig fyrir áræði hans, bjartsýni, heiðarleika og einlæga trú á störf bóndans og sveitina. Með þessum orðum kveð ég tengdaföður minn með fullvissu um að hann hefur fengið góða heim- komu. Tengdamóður minni, Helgu, bið ég blessunar svo og öllum þeirra nánustu. Ólafur S. Ólafsson í hinum fagra Skjaldfannadal í Nauteyrarhreppi við ísafjarðardjúp er gott undir bú. Þrátt fyrir nábýli við Drangajökul er jörð þar gras- gefín og umhverfið allt blómlegt. Þar rennur Selá, eitt mesta vatns- fall á Vestíjörðum, til sjávar út í Djúpið. í þessum fagra ijalladal bjuggu hjónin Þórður Halldórsson og Helga Jónsdóttir búi sínu. Þar undu þau glöð við sitt í blíðu og stríðu, komu upp stórum og mannvænlegum bamahóp og voru sveit sinni og héraðinu öllu til sóma. En nú er bændahöfðinginn Þórð- ur á Laugalandi fallinn, en við það býli var hann lengstum kenndur. Hann lést í sjúkrahúsinu á ísafírði 26. maí, 95 ára að aldri. Skjald- fannadalurinn drúpir höfði, frændur og vinir sakna mikilhæfs athafna- manns sem í dag er kvaddur hinstu kveðju í Melgraseyrarkirkju. Þórður Halldórsson fæddist á Rauðamýri 22. nóvember 1891. Foreldrar hans voru Ingibjörg Jóns- dóttir frá Barmi á Skarðsströnd og Halldór Jónsson á Laugabóli í ísafírði. Vom þeir Laugabólsmenn skömngsbændur og frægir útvegs- menn. Áttu þeir Laugabólsbúð í Bolungarvík og sóttu þaðan sjó eins og fleiri Djúpbændur fyrr á áram. Ingibjörg móðir Þórðar var af Burstafellsætt. Röktu þeir ætt sína m.a. til dr. Guðbrands Vigfússonar í Oxford, Guðbrands Hólabiskups, Áma Gíslasonar á Hlíðarenda og fleiri merkismanna. Halldór á Rauðamýri var mikill framfaramað- ur. Hann stundaði búnaðamám í Noregi og naut þar atbeina Jóns Sigurðssonar forseta. Er mér Rauðamýrarbóndinn í bamsminni. Ber þar margt til, m.a. höfðinglegt yfírbragð hans, ákaflyndi og dugn- aður. Á Rauðamýri býr nú einn sona Þórðar góðu búi. Þórður Halldórsson starfaði fyrst á búi foreldra sinna. Hann stundaði nám í Heydalsárskóla í Stranda- sýslu árin 1909 til 1910. Þótti það ágætur skóli. Var Þórður snemma mikill áhugamaður um landbúnað eins og frændur hans og forfeður. Árið 1915 kaupir hann jörðina Laugaland í Skjaldfannadal, sem þá var nær húsalaus. Nytjaði hann hana fyrstu tvö árin frá Rauða- mýri. En 1919, þ. 12. ágúst, stígur hann sitt mesta gæfuspor, er hann kvænist heitmey sinni, Helgu Maríu Jónsdóttur frá Skarði á Snæfjalla- strönd, síðar í Hraundal í Nauteyr- arhreppi. Má segja að hún hafí verið heilladís hans í lífinu, enda hin mesta mannkostakona. Var jafnan ánægjulegt að heimsækja þau og gista heimili þeirra. Hlýhugur og gestrisni mótaði framkomu þeirra hjóna og bama þeirra. Árið 1917 byggði Þórður íbúðar- hús og hóf að reisa peningshús á Laugalandi að þeirrar tíðar hætti. Síðar byggðu þau hjón nýtt og reisulegt íbúðarhús. Var mér mikil gleði að því að gista þar hjá þeim skömmu eftir að það var risið. Skömmu eftir að þau hófu bú- skap hóf Þórður miklar ræktunar- framkvæmdir á jörð sinni. Rak hann þar lengi stórbú með 500 fjár og 12 kúm. Má segja að hann hafí breytt þar kotbýli í stórbýli. Þórður í Laugalandi naut mikils trausts meðal sveitunga sinna. Hann gegndi þar flestum trúnaðar- störfum. Hann var oddviti Nauteyr- arhrepps og sýslunefndarmaður um árabil, átti sæti í Sambandi ísl. sveitarfélaga, í skólanefnd Reykja- nesskólans, var formaður Búnaðar- félags Nauteyrarhrepps, fulltrúi á fundum Búnaðarsambands Vest- fjarða og á fundum Stéttarsam- bands bænda, svo nokkuð sé talið. Oll mótuðust trúnaðarstörf hans af áhuga og dugnaði. Þau Helga og Þórður áttu sjö böm. Elstur þeirra er Halldór, nú- verandi bóndi á Laugalandi. Kona hans er Ása Ketilsdóttir; Ingibjörg kennari, gift Ólafí S. Ólafssyni kennara í Reykjavík; Ólafur bóndi á Rauðamýri, kvæntur Jónu Ing- ólfsdóttur frá Hnífsdal; Jóhann lögmaður { Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Halldórsdóttur; Kristín húsfreyja á Melgraseyri, gift Guð- mundi Magnússyni bónda þar; Jón Fanndal garðyrkjubóndi sem byggði nýbýlið Laugarás, kvæntur Margréti Maríusdóttur og Guðrún húsfreyja og bóndi í Laugarási, sem búið hefur þar með foreldram sínum eftir að þau hættu búskap á Lauga- landi og verið þeim stoð og stytta. Öll era böm þeirra Helgu og Þórðar mikið atorkufólk, vel gefín og ræktarsöm við heimahaga. Fimm þeirra hafa búið á ættarjörð- unum í Nauteyrarhreppi. Er það hreppnum og Djúpinu til sóma. Það er líka þessu fagra héraði sannar- lega til trausts og halds á erfíðum tímum í íslenskum landbúnaði, sem oft er ómaklega gagnrýndur á síðustu áram. Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi. Þess má gjaman minnast þegar óveðursský grúfír yfír íslenskum sveitum. Margar jarðir hafa þó verið byggðar upp af frábærri atorku og trú á framtíð lands og þjóðar. íslenska þjóðin á bændum sínum miklar þakkir að gjalda. Þórður á Laugalandi var ekki aðeins mikill bóndi. Hann var drengskaparmaður og höfðingi. Hann gat verið skapharður á stund- um. En orð hans skildu ekki eftir sár f sál samferðamanna hans. Þvert á móti. Hann var jafnan mik- ils metinn. Þeir sem þekktu hann best vissu að hann var góðviljaður og hjartahlýr maður. Hann var mikill gæfumaður. Böm hans og Helgu Jónsdóttur reyndust þeim og héraði sínu vel. Guðrún dóttir þeirra í Laugarholti, sem lengst bjó með þeim naut mikillar ástúðar þeirra, eins og raunar öll þeirra myndar- legu böm. Kynni mín af Þórði á Laugalandi vora löng og farsæl. Við voram ekki alltaf sammála. En það spillti ekki vináttu okkar. Ég sakna hans og mér fínnst skugga hafa dregið yfír dalinn hans fagra þegar hann er allur. Helgu Jónsdóttur og böm- um þeirra votta ég innilega samúð við fráfall hans. En hann hafði heil- um vagni heim ekið. Hollar vættir vaki yfír Skjaldfannadal og fólkinu sem áfram lifír þar og starfar. Sigurður Bjarnason frá Vigur. t Þökkum innilega samúð og vinóttu við fráfall og útför KRISTBJARGAR SVEIN BJ ARN ARDÓTTU R fyrrum húsfreyju á Högnastöðum. Ásta Guömundsdóttlr, Sigurflnnur Slgurösson, Sigrún Guðmundsdóttlr, Guðbrandur Krlstmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Asgrfmur Guðmundsson, Halldóra Þ. Guðmundsdóttir, Böðvar I. Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu vegna frá- falls móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞURÍÐAR TRYGGVADÓTTUR MÖLLER, Austurbergl 38. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á deild 6A á Borgarspítal- anum fyrir fróbæra umönnun. Gunnlaugur Birgir Daníelsson, Blrna Slgrfður Ólafsdóttir, Stelnunn Þorsteinsdóttlr, Gelr Ragnar Gfslason, Kristjana Halldóra Möller, Björn Möller, Guðfrfður Guðmundsdóttir, Kristján Ásgeir Möller, Stelnunn Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MÖRTU GUDMUNDSDÓTTUR frá Laufásl. Sérstakar þakkir til læknis og hjúkrunarfólks sjúkradeildar Drop- laugastaða fyrir umhyggju og hlýhug henni til handa. Þórhallur Guðmundsson, Margrét Þórhallsdóttir, Guðrún Þórhallsdóttlr, Hólmfrfður Þórhallsdóttir, Sigurður Þórhallsson, Ragnar Þórhallsson, Kristbjörg Þórhallsdóttir, Guðmunda Þórhallsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Frfmann Jóhannsson, Margrót Steingrfmsdóttir, Óskar Marfusson, Snær Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR VILHJÁLMÍNU ÓLAFSDÓTTU R, Jökulgrunni 1, við Hrafnistu, Sigurjón Kristjánsson, Steinar Sigurjónsson, Oddný Ólaffa Sigurjónsdóttir, Benedikt Hermannsson, Hreiðar Hafberg Sigurjónsson, Kristján Stefán Sigurjónsson, Helga Kristjánsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Ólöf Hafdfs Guðmundsdóttlr, Sígrfður Steinarsdóttir, Elnar Þórhallsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúö og hiýhug við andlát og útför bróður okkar og fósturföður, GUÐNA ÓLAFSSONAR bónda, Flekkudal, Kjós, er lést 8. maí síöastliðinn. Guðný Ólafsdóttir, Einar Ólafsson, Guðmundur Ólafsson. Ragna Lindberg, Guðný fvarsdóttlr, Sigurlfna Jóhannesdóttir, Guðni Ólafsson, Guðrún Þorstelnsdóttlr, Ólöf Þorstelnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.