Morgunblaðið - 06.06.1987, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987
63
Mbrgunblaöið/Júlíus
• Heimir Karlsson (nr.11) skorar hór eitt af þremur mörkum sfnum í leiknum gegn ÍBV í gærkvöldi.
ÍR-ingar unnu þar sinn fyrsta sigur f 2. deild.
ÍR - ÍBV 3:0
Heimir með þrennu
UBK - Selfoss 1:1
UBKjafnaðiá
elleftu stundu
BREIÐABLIK og Selfoss gerðu
jafntefli f 2. deildinni í knatt-
spyrnu á Kópavogsvelli f gær-
kvöldi, hvoru liöið tókst að skora
eitt mark og jöfnuðu Blikar á ell-
eftu stundu. Selfyssingum gafst
ekki einu sinni tími til að byrja á
miðju.
Leikurinn var hvorki góður né
skemmtilegur en þó var síðari hálf-
leikurinn mun skemmtilegri en sá
fyrri. Selfyssingar voru skömminni
skárri lengst af en hvorugu liðinu
tókst að skapa sér mikið af mark-
tækifærum.
Jón Gunnar Bergs skoraði mark
Selfoss á 72. mínútu. Hann fékk
góða stungusendingu inn fyrir
vörnina og afgreiddi boltan af ör-
yggi í netið. Skömmu síðar komst
Heimir Bergsson í gott færi en
skot hans fór framhjá.
Eftir markið sóttu Blikar í sig
veðrið og sóttu mun meira. Sel-
fyssingar færðu sig aftar og rétt
þegar leiktíminn var að renna út
kom sending fyrir mark Selfoss.
Þvaga myndaðist við aðra stöng-
ina og eftir að Anton Hartmanns-
son hafði varið eitt skot náði Jón
Þórir að þruma boltanum í netið
gegnum þvöguna.
Það voru ekki margir leikmenn
sem stóðu sig vel. Anton í marki
Selfoss stóð þó fyrir sínu og greip
vel inn í leikinn auk þess að verja
nokkrum sinnum ágætlega.
Framlínumenn þeirra voru allt of
oft rangstæðir og kom það nokkuð
niður á leik liðsins.
Hjá Blikum var enginn sem skar-
aði framúr. Liðið var frekar janft
og allir börðust þokkalega vel.
Áhorfendur voru flestir frá Selfossi
og létu þeir óspart í sér heyra.
Dómari var Árni Arason og var
hann frekar slakur, flautaði of mik-
ið á stundum en sleppti þess á
milli augljósum brotum.
Maður lelksins: Anton Hartmannsson
-sus
- gegn slöku liði Eyjamanna
KS - Víkingur 3:1
Siglfirðingar
fyrstir til að
vinna Víking
„LOKSINS kom þetta hjá okkur.
Mörkin hefðu auðveldlega getað
orðið fleiri. Ég er búinn að sjá
það að það þýðir ekki að reyna
að spila fótbolta, baráttan er það
eina sem gildir og hún vartil stað-
ar hjá okkur í þessum leik,“ sagði
Heimir Karlsson, þjálfari og leik-
maður ÍR, eftir leikinn. En hann
skoraði öll mörkin f 3:0 sigri ÍR-
inga gegn slöku liðl ÍBV f 2. delld
á Valbjarnarvelli f gærkvöldi.
Þetta var fyrsti sigur ÍR í 2. deild
og voru leikmenn að vonum kátir
eftir leikinn. Þeir léku sinn besta
EINN leikur var í 3. deild í gær-
kvöldi. Fylkir brá sór til Grindavfk-
ur og vann þar 1:0.
í 4. deild var einn leikur í G-
riðli. Hrafnkell Freysgoði vann
Súluna 5:2 og gerðu þeir Jón Jón-
asson, Albert Jensson, Ingólfur
Arnarson, Sigurður Pétursson og
leik í deildinni til þessa og unnu
sannfærandi sigur. Stðan í leikhléi
var 2:0 fyrir ÍR.
Eyjamenn voru á hælunum allan
tímann og varla hægt að tala um
að þeir hafi fengið marktækifæri í
leiknum. Áhugaleysi og deyfð var
yfir leikmönnum liðsins og stóð
varla steinn yfir steini. Með slíkum
leik fá þeir ekki mörg stig í sumar.
Heimir Karlsson var hetja ÍR-
inga í gærkvöldi. Skoraði fysta
markið á 25. mínútu eftir horn-
spyrnu. Hann bætti öðru markinu
við fjórum mínútum síöar með
Ríkharður Garðarsson mörk
heimamanna.
Huginn frá Seyðisfirði vann í vik-
uni Val frá Reyðarfirði í sama riðli
með fjórum mörkum gegn einu og
skiptu þeir Valdimar Júlíusson og
Sveinbjörn Jóhannsson mörkum
Seyðfirðinga bróðurlega á milli sín.
1. deild kvenna:
glæsiskalla eftir fyrirgjöf frá hægri.
Hann gerði svo endanlega út um
leikinn með marki af stuttu færi
eftir stungusendingu frá Þorvaldi
Steinssyni um miðjan seinni hálf-
leik. Hann átti einnig skot i slá,
þannig að mörkin hefðu alveg eins
geta orðið fjögur.
Heimir var bestur, sérstaklega
glúrinn við að þefa uppi marktæki-
færi og heldur bolta vel. Kristján
Halldórsson, Hlynur Elísson og
Karl Þorgeirsson stóðu sig einna
vel hjá ÍR. Leifur Hafsteinsson og
Elías Friðriksson voru einu Ijósu
punktarnir í liði ÍBV.
Dómari var Stefán Jón Sigurðs-
son og dæmdi hann þokkalega, lét
of mikið stjórnast af köllum leik-
manna. Hann gaf Sigurfinni Sigur-
jónssyni rauða spjaldið fyrir að
spark í andlit Bergs Ágústssonar.
Brot sem ekki eiga að sjást í knatt-
spyrnunni, en eru of algeng og
spurning hvort refsingin ætti ekki
að vera þyngri.
Maður leiksins: Heimir Karlsson, ÍR.
Vajo
SIGLFIRÐINGAR urðu fyrstir til
aö leggja Víkinga aö velli f 2. deild
karla á Siglufirði f gærkvöldi. KS
sigraði með 3 mörkum gegn einu
og er nú f 2. sæti deildarinnar
eftir fjórar umferðir.
Það voru Víkingar sem skoruðu
fyrsta mark leiksins á 10. mínútu.
Einar Einarsson gerði það með
skalla af stuttu færi. Aðeins þrem-
ur mínútum síðar jafnað Jónas
Bjórnsson fyrir KS af 20 metra
færi beint úr aukaspyrnu. Ólafur
Agnarsson bætti öðru markinu við
fyrir heimamenn á 21. mínútu.
Fékk þá boltann út eftir þrumuskot
Jónasar, sem markvörður Víkings
hélt ekki, og skoraði með viðstöðu-
lausu skoti frá vítateig. Þannig var
staðan í hálfleik.
í upphafi seinni hálfleiks áttu
Víkingar nokkrar sóknir, en
framlína þeirra var bitlaus og nýtt-
ust þær því ekki. Siglfirðingar
bættu þriðja markinu við 9 mínút-
um fyrir leikslok. Ólafur Agnarsson
lék þá í gegnum vörn Víkings og
skoraði af stuttu færi.
Leikurinn var spennandi og oft
sáust góðir samleikskaflar. Víking-
ar virkuðu léttir og léku oft vel á
milli sín, en KS-ingar voru sterkir
fyrir og stöðvuðu flestar sóknarlot-
ur þeirra og unnu verðskuldað.
Ölafur Agnarsson og Hafþór
Kolbeinsson voru bestu leikmenn
KS, en Jóhann Þorvarðarson var
bestur Víkinga.
Maður leiksins: Ólafur Agnarsson, KS.
E.R.
Fj.Isikja u J T Mörk Stig
VÍKINGUR 4 3 0 1 6: 5 9
KS 4 2 1 1 7: 5 7
ÞRÓTTUR 3 2 0 1 6:4 6
EINHERJI 3 1 2 0 4:3 5
SELFOSS 4 1 2 1 5: 6 5
ÍR 4 1 1 2 7:7 4
UBK 4 1 1 2 3:5 4
ÍBV 4 1 1 2 5:8 4
ÍBÍ 3 1 0 2 5: 5 3
LEIFTUR 3 1 0 2 3: 3 3
Stjarnan hafði betur
- þegar nýliðarnir f 1. deild mættust
Mörg mörk í G-riðli
Enn tapar
Stuttgart
Fré Jóhanni Inga Gunnarssyni í Vestur-Þýskalandi.
Tveir leikir fóru fram f l.deild
kvenna í kærkvöldi. f Garðabæ
áttust viö nýliðarnir f deildinni,
Stjarnan og KA, og endaöi viður-
eignin með sigri Stjörnunnar 3:1.
A Akranesi unnu svo heimamenn
stórsigur á lið! fBK 6:0.
Stjörnustúlkur unnu þrjú dýr-
mæt stig í gærkvöldi er þær unnu
KA. Leikurinn endaði 3:1 eftir að
staðan í hálfleik var 2:1.
Leikurinn sem var ekki sérlega
vel leikinn, einkenndist mest af
baráttu og hnoði á miðjunni. Það
var Erla Rafnsdóttir sem átti fyrsta
markið í leiknum. Gefið var fyrir
mark KA. Markvörður KA virtist
hafa boltann og engin hætta vera,
en Erla gafst ekki upp og náði
boltanum á undan markmanninum
og renndi honum í netið. Það var
svo Hrund Grétarsdóttir sem skor-
aði annaö mark Stjörnunnar. Hún
fékk góða sendingu út á hægri
kanntinn, lók honum inn í teiginn
hjá KA og skoraði fram hjá mark-
manni KA sem kom út á móti. Litlu
munaði að Valgerður Jónsdóttir
næði að minnka muninn fyrir KA
er gott skot hennar beint úr auka-
spyrnu lenti í markslá Stjörnunnar.
Mark KA kom þegar langt var liðið
á fyrri hálfleikinn. Eftir misheppnað
útspark frá marki Stjörnunnar náði
Eydís Marinósdóttir boltanum og
renndi honum örugglega í netið.
2:1 í hálfleik.
Sama baráttan hélt áfram í
síðari hálfleik og skiptust liðin á
að sækja þó svo liðunum tækist
ekki að skapa sér veruleg mark-
tækifæri. Það var svo þegar um
tíu mínútur voru til leiksloka að
Guðný Guðnadóttir komst ein inn
fyrir vörn K/>. en markvörðurinn tók
til þess ráðs aö brjóta á henni og
dæmd vítaspyrna sem Erla Rafns-
dóttir skoraði af miklu öryggi úr.
Staðan orðin 3:1 og sigur Stjörn-
unnar í höfn. Litlu munaði þó að
KA næði að bæta við einu marki
í lokin er Hjördís ölfarsdóttir komst
ein inn fyrir vörn Stjörnunnar en
hún var of lengi að skjóta og Erla
náði að komast fyrir boltann.
Skagastúlkur betri
á heimavelii
A Akranesi í blíðskapar veðri
áttust við lið (A og IBK.
Það var fyrst og fremst stórgóð-
ur leikur (A í fyrri hálfleik sem færði
þeim sigurinn í leiknum. Leikmenn
liðsins nutu þess að spila í veður-
blíöunni og skoruðu mörg góð
mörk, flest eftir vel útfærð sam-
spil upp eftir köntunum, sem
enduðu svo með fyrirgjöfum fyrir
mark IBK.
Síðari halfleikur var ekki eins
fjörugur og sá fyrri og var þá þó
nokkuð um baráttu og hnoð á miðj-
unni.
Mörk IA skoruðu þær Halldóra
Gylfadóttir 2, Laufey Sigurðardótt-
ir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Jónína
Víglundsdóttir og Guðrún Gísla-
dóttir eitt mark hver.
-EL
STUTTGART mátti í gærkvöldi
þola sitt fimmta tap í röð í vest-
ur-þýsku knattspyirnunni. Liöiö
heimsótti Frankfurt og tapaði 3:1.
„Stuttgart hefur valdið miklum
vonbrigðum í vetur," sagði þulur
sjónvarpsins er leikurinn var sýnd-
ur þar í gærkvöldi og líklega veröa
þeir að sætta sig við slakt sæti í
lokatöflunni og stóll þjálfarans er
nú orðinn ansi valtur. Þeir geta þó
bjargað miklu með því að vinna
Bayern um næstu helgi.
Falkenmeier skoraði úr víta-
spyrnu snemma í fyrri hálfleik og
var hún frekar vafasöm. Allgöwer
jafnaði metin með stórglæsilegu
marki. Hann tók aukaspyrnu af um
40 metra færi og sendi boltann
efst í markhornið.
Eftir markið sóttu leikmenn
Stuttgart mun meira en það voru
þó heimamenn sem skoruðu.
Michael skoraði fyrst eftir horn-
spyrnu sem Immel markvörður
hefði átt að taka og skömmu fyrir
leikslok skoraði hann síðan annað
mark sitt.
Bochum og Schalke léku einnig
í gærkvöli og lauk leiknum með
1:1 jafntefli.