Morgunblaðið - 27.06.1987, Qupperneq 64
—
Viðlaga
þjónusta
ttrgtmJiIfifeUg
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa
♦ SUZUKI
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987
VEM) í LAUSASÖLU 50 KR.
Háskóli íslands:
Tvítugur
dux í stærð-
fræði
Hlaut hæstu ein-
kunn sem gefin
hefur verið við
deildina
HÁSKÓLI íslands útskrifar í dag
ungan stærðfrœðing, Finn Lár-
usson. Finnur útskrifast með
einkunnina 9,4 og er það hæsta
einkunn, sem gefin hefur verið
i verkfræði- og raunvísindadeild.
Finnur er tvítugur að aldri og
útskrifaðist frá Menntaskólanum
í Hamrahlíð 1985.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins sótti Finnur um náms-
vist og styrk í fímm bandarískum
háskólum og fékk jákvætt svar frá
þeim öllum. Meðal þeirra er Har-
vard-háskólinn. Finnur mun hins
vegar hafa tekið boði háskólans í
Chicago, þar eð hann bauð best og
honum leist betur á námsmöguleika
þar. Harvard sótti hins vegar stíft
að fá Finn til sín og bauð jafnhátt
og Chicago. Finnur mun hins vegar
vera ákveðinn í þvi að að fara til
Chicago, þar sem námið þar henti
betur. Hann hyggst leggja stund á
hreina stærðfræði.
Heyskapur íKjósinni
Morgunblaðið/RAX
Þar sem vel viðrar er heyskapur kominn
vel á veg. Með aukinni tækni og afkasta-
meiri vélum, dugar bændum mun skemmri
tími en áður til að koma heyjum í hús. Á
þessari mynd, sem tekin var á föstudag,
er verið að flytja svokallaða rúllubagga
af túnum á Neðri-Hálsi f Kjós, en rúllu-
baggarnir eru meðal annars tákn nýrra
aðferða við heyskap.
Slj órnarmyndun:
Forseti Islands krefst
niðurstöðu um helgina
Formennirnir gefa sér daginn í dag til ákvörðunar
Finnur Lárusson
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, lét í gær í ljós
óþolinmæði við formenn Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks
yfir því hversu stjórnarmyndun-
arviðræður hafa dregist á lang-
inn án þess að niðurstaða fáist.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að hún hafi krafist þess
að það verði ráðið nú um helgina
hvort ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks verður mynduð eða
ekki.
Formenn flokkanna þriggja hitt-
ust ekki allir saman í gær, en Jón
Baldvin átti fund með formönnum
hinna fíokkanna hvorum í sínu lagi
Alþjóða hvalveiðiráðið:
íslendingar hætti hval-
veiðum í vísindaskyni
Erum ekki bundir af áiyktunum ráðsins, segir Halldór Ásgrímsson
ALÞJÓÐA hvalveiðiráðið sam-
þykkti í gær tillögu um að fallast
ekki á áætlun íslendinga um
hvalveiðar i visindaskyni vegna
þess að íslendingar uppfylltu
ekki fullkomlega skilyrði um
leyfi til vísindaveiða og hefðu
ekki gefið fullnægjandi upplýs-
ingar um gildi veiðanna. Einnig
var lagt til að ríkisstjórn íslands
afturkalli leyfi til sérstakra
vísindaveiða þar til vfsindanefnd
ráðsins hefur fengið nægilega
skýr svör við spurningum og efa-
semdum sem þar hafa vaknað.
Ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins lauk í Boumemouth í gær. Að
fundinum loknum efndi íslenska
sendinefndin til óformlegs fundar
nokkurra þjóða þar sem lögð var
áhersla á að íslendingar vildu vera
í samstarfí við ákveðnar þjóðir um
framhald málsins.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra kvaðst í gær vera
mjög óánægður með þessa sam-
þykkt. Hann sagði hana vera til
komna vegna þess að Bandaríkja-
menn hefðu unnið ákveðið að því
að slík ákvörðun yrði tekin á fundin-
um. Hann benti þó á að hér væri
um ályktunartillögu að ræða, sem
væri ekki bindandi fyrir íslendinga
á nokkum hátt vegna þess að hún
ætti sér ekki stoð í samþykktum
eða stofnsamningi ráðsins. Alvar-
legast væri að hætta væri á að
Bandaríkjamenn notuðu ályktunina
til að beita íslendinga þrýstingi.
Matthías Á. Mathiesen utanríkis-
ráðherra lýsti yfír vonbrigðum
sínum með niðurstöðu fundarins og
sagði að hana yrði að meta vand-
lega. Hann vildi ekki leiða getum
að því hvort samþykktin hefði áhrif
á samband íslands og Banda-
ríkjanna.
Siá nánari fréttir á bls. 26.
og þeir Steingrímur og Þorsteinn
hittust einnig. Helsta ágreinings-
málið nú er skipting ráðuneyta, og
sú krafa Þorsteins að Sjálfstaeðis-
flokkur fái í sinn hlut bæði fjár-
mála- og viðskiptaráðuneyti. Hann
gerði þá kröfu þegar hann lét af
kröfunni um forsætisráðuneytið,
sem þeir Steingrímur og Jón Bald-
vin bítast nú um. Steingrímur og
Jón Baldvin vilja að Sjálfstæðis-
flokkurinn falli frá kröfunni um
viðskiptaráðuneytið, þannig að
stjómun fjár- og efnahagsmála geti
í jpriggja flokka stjóm verið á hendi
allra flokkanna. Þessu hafnaði Þor-
steinn í gær, en Jón Baldvin mun
reyna til þrautar í dag að ná sam-
komulagi við formenn hinna flokk-
anna um skiptingu ráðuneytanna.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að forseti íslands hafí átt
fímd með Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra síðdegis í gær og
greint frá því að hún vildi að endan-
leg niðurstaða fengist nú um
helgina. Sömuleiðis mun forsetinn
hafa greint Jóni Baldvin, sem leiðir
viðræðumar, frá þessu sjónarmiði
sínu símleiðis í gærkveldi.
Að fengnum þessum upplýsing-
um, munu formennimir sammála
um að þeir geti ekki dregið það
lengur en til kvölds að fá úr því
skorið hvort af myndun þessarar
ríkisstjómar verður eða ekki.
Sjá Af innlendum vettvangi:
Orrustan um ráðherrastólana
i algleymingi bls. 35.