Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
3
Skorið á
dekkog
sprautað
lakki
TVÆR bifreiðar voru
skemmdar á bUastæði við
Kríuhóla í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudagsins.
Skorið var á alla hjólbarða bif-
reiðanna tveggja, sem eru af
gerðunum Lada og Skoda. Þá
höfðu skemmdarvargamir einnig
sprautað lakki úr úðabrúsum yfir
bifreiðamar. Báðar era þær í eigu
sama mannsins, en aðrar bifreiðar
á stæðinu vora látnar eiga sig.
Lögreglan í Reykjavík hefur
hug á að ræða við þá sem kynnu
að geta gefíð upplýsingar um
málið.
1NNLENT
Kærði
árás
KONA í Reykjavík kærði á
laugardag fyrrverandi sam-
býlismann sinn fyrir iíkams-
árás.
Konan hafði farið á vinnustað
mannsins til að ræða við hann.
Til einhverra átaka kom og skall
konan í jörðina og hlaut af heila-
hristing.
Reykjavík:
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Framkvæmdir hitaveitunnar á Nesjavöllum
Hafin er smiði stöðvarhúss við orkuveitu Hitaveitu millljónir króna. Verkinu á að ljúka fyrri hluta vetrar. Hluti
Reykjavíkur á Nesjavöllum og er það Byggðaverk sem sér hússins verður stálgrindarhús sem sett verður upp í vetur
um uppsteypu þess. Áætlaður kostnaður við hana er um 35 ef veður leyfir.
DalvHdngur stungixm
í brj óstið með hnífi
TIL átaka kom milli 27 ára ís-
lendings og 24 ára Portúgala á
Dalvík aðfaranótt laugardagsins.
Dró sá síðarnefndi upp hníf og
stakk íslendinginn í bijóstið
vinstra megin. Meiðsli mannsins
reyndust minni en talið var í
fyrstu og er hann úr allri hættu.
Atburðurinn átti sér stað fyrir
utan félagsheimilið Víkurröst eftir
dansleik á föstudag. Portúgalinn,
sem hefur að undanfömu starfað á
Dalvík, lenti í einhveijum ýfíngum
við menn fyrir utan. Hann réðst
sfðan að íslendingnum og skallaði
hann með enni í andlitið. Síðan dró
hann upp svokallaðan fjaðurhníf,
sem er þeim eiginleikum búinn að
hnífsblaðið skýst fram úr skaftinu
þegar þrýst er á fjöður. Hann lagði
til íslendingsins, sem fékk sár á
bijóstið vinstra megin. í fyrstu virt-
ist sem íslendingurinn væri alvar-
lega særður, en síðar kom í ljós að
meiðsli hans voru minni en á horfð-
ist og hefur hann nú fengið að fara
heim af Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri.
Portúgalinn hefur verið úrskurð-
aður í 14 daga gæsluvarðhald, en
málið er í rannsókn hjá rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri.
Landsamband sjálfstæðiskvenna:
Kona verði forseti
sameinaðs þings
Á þriðja tug stúta und-
ir stýri um helgina
UM helgina tók lögreglan í
Reykjavík 23 ökumenn sem voru
grunaðir um ölvun við akstur.
Að sögn Arnþórs Ingólfssonar,
yfirlögregluþjóns, er þessi tala
óvenju há, sérstaklega þar sem
lögreglan var ekki með sérstakar
aðgerðir til að hafa hendur í
hári ölvaðra ökumanna.
„Frá klukkan tvö aðfaranótt
laugardags til sama tíma aðfara-
nótt mánudags voru þessir 23
ökumenn stöðvaðir, en þó vorum
við ekki með sérstaka herferð í
gangi," sagði Amþór. „Þar með
höfum við stöðvað 746 ökumenn
vegna gruns um ölvun í Reykjavík
á þessu ári, sem er svipað og undan-
farin ár. Við þetta bætist síðan að
vegaeftirlitið þarf alltaf að hafa
afskipti af slíkum ökumönnum og
þá er talan komin upp í 795 hjá
lögreglunni í Reykjavík."
Amþór sagði að alls konar fólk
settist undir stýri eftir að hafa
bragðað áfengi. „Fólkið er á öllum
aldri og það er oft að koma af
skemmtistöðum, úr samkvæmum í
heimahúsum, eða bara af vinnu-
stað,“ sagði Amþór. „Ég held að
ástæða þess hversu margir sýna
af sér þetta fordæmanlega atferli
sé sú, að fólk hugsar ekki um afleið-
ingamar. Það heldur kannski að
það versta sem getur komið fyrir
sé að lögreglan stöðvi það og það
missi ökuskírteinið. Það virðist sem
færri geri sér grein fyrir að akstur
þeirra undir áhrifum getur valdið
alvarlegum slysum og þeir verða
jafnvel valdir að dauða annarrar
manneskju. Akstur undir áhrifum
er ekkert einkamál þeirra sem hann
stunda," sagði Amþór Ingólfsson,
yfírlögregluþjónn.
ÞING Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, sem haldið var á
Akureyri um helgina, sam-
þykkti einróma að skora á
þingflokk sjálfstæðismanna að
skipa konu forseta sameinaðs
þings þegar Alþingi kemur
saman í haust. Embætti forseta
sameinaðs þings kom í hlut
sjálfstæðismanna í stjórnar-
myndunarviðræðum.
Að sögn Þórannar Gestsdóttur,
formanns Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, fór hún 27. ágúst
síðastliðinn ásamt Maríu E.
Ingvadóttur, formanni Hvatar,
félagi sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík á fund Þorsteins Páls-
sonar, forsætisráðherra, og
afhentu þær honum bréf þar sem
farið var fram á að önnur kvenn-
anna í þingflokknum yrði skipuð
forseti sameinaðs þings.
Þessi tillaga var síðan tekin upp
og borin fram á þingi Landssam-
bandins nú um helgina af sex
stjómarkonum í Vöm, félags
sjálfstæðiskvenna á Akureyri. Til-
lagan var samþykkt samhljóða en
sjálfstæðiskonur á ísafírði sátu
hjá við afgreiðslu hennar. „Ég tel
mikla möguleika á að þetta náist
í gegn,“ sagði Þórann Gestsdóttir.
„Það era mjög frambærilegir
kvenmenn sem þama era í boði.
Ragnhildur Helgadóttir hefur ver-
ið ráðherra og forseti neðri deildar
og Salome Þorkelsdóttir er nú
forseti efri deildar."
Sjá fréttir af þinginu á blað-
síðu 76 og 77.
Tvær konur
slösuðust
í hörðum
árekstri
TVÆR konur slösuðust í mjög
hörðum árekstri á veginum milli
Keflavíkur og Garðs á sunnudag.
Bifreiðar þeirra eru mjög illa
farnar, ef ekki ónýtar.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að önnur konan, sem var að koma
frá Keflavík, missti bifreið sína út
af bundnu slitlagi vegarins hægra
megin. Þegar hún reyndi að sveigja
aftur inn á veginn tókst ekki betur
til en svo að bifreiðin fór yfir á
öfugan vegarhelming og lenti beint
framan á annarri. Við áreksturinn
valt önnur bifreiðin og kastaðist út
af veginum. Önnur konan slasaðist
mikið, er meðal annars brotin á
báðum fótum og skorin í andliti,
en hin konan meiddist minna.
Árviss ólæti unglinga í miðbænum:
Lögreglan í viðbragðsstöðu
„ÁSTANDIÐ var vissulega slæmt í miðbænum um síðustu helgi,
en lögreglan átti von á að til tíðinda drægi og var því eins vel
viðbúin og hægt var,“ sagði Böðvar Bragason, lögreglusljóri i
Reykjavík, en annasamt var hjá lögreglu í miðbænum á föstu-
dags- og laugardagskvöldið.
Böðvar sagði að sér virtist sem
unglingar söfnuðust alltaf saman
í miðbænum rétt áður en skólar
byijuðu að nýju eftir sumarfrí.
„Lögreglan hafði meiri viðbúnað
en áður, en það dugði bara ekki
til. Ég vona bara að það sé rétt
hjá okkur að þessi ólæti megi
relqa til þess að unglingamir vilji
létta á sér áður en þeir setjast
að nýju á skólabekkinn, því ég
vil svo sannarlega ekki að ástand-
ið verði svona allar helgar.
Lögreglan á hins vegar erfitt með
að efla eftirlit í miðbænum, til
þess höfum við hvorki mannafla
né toekjabúnað."
Á föstudagskvöld var ungur
maður særður á hálsi með hníf
eða rakvélablaði. Árásarmaðurinn
er ófundinn og kann sá sem varð
fyrir barðinu á honum enga skýr-
ingu á verknaðinum. Böðvar sagði
að undanfarin ár hefði orðið veru-
leg aukning á fólskulegum
árásum. „Ég kann enga skýringu
á þessu og bið fólk um að velta
þessu fyrir sér. Þá getum við ef
til vill fundið skýringu i samein-
ingu. Ég er hins vegar hlynntur
þeirri stefnu yfírvalda hér að lög-
reglan skuli ekki bera vopn við
skyldustörf, eins og er víða erlend-
is,“ sagði Böðvar Bragason,
lögreglustjóri, að lokum.