Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
Lloyds skákmótið:
Þröstur náði
öðrum áfanga
ÞRÖSTUR Þórhallsson náði sér
í annan áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli í skák á Lloyds
skákmótinu í London sem lauk í
gær. Þresti tókst þó ekki að
vinna til verðlauna en endaði i
kringum 15. sætið með 6,5 vinn-
inga af 9 mögulegum. Hannes
Hlífar Stefánsson fékk einnig 6,5
vinninga á mótinu en tefldi ekki
við eins sterka andstæðinga og
Þröstur og fékk þvi ekki titilá-
fanga.
Þröstur var búinn að tryggja sér
áfangann fyrir síðustu umferð
mótsins en hann tapaði verðlauna-
sætinu þegar hann tapaði fyrir
bandaríska stórmeistaranum Fed-
orovicz. Hannes Hlífar vann hins-
vegar sinn andstæðing í síðustu
umferðinni, alþjóðlegan meistara
frá Pakistan. Jón G. Viðarsson en-
daði með 5,5 vinninga en hann
gerði jafntefli í síðustu umferð.
Stórmeistaramir Chandler frá
Bretlandi og.Wilder frá Banda-
ríkjunum voru efstir og jafnir með
8 vinninga. Sex skákmenn voru
síðan jafnir í 3.-8. sæti með 7,5
vinninga, þeir Fedorovicz, Benja-
min, Kudrin og Dlugy, allir frá
Bandaríkjunum, Rodgers frá Nýja
Sjálandi og Plasket frá Bretlandi.
Alls tóku um 180 manns þátt í
mótinu, þar af 9 stórmeistarar og
20 alþjóðlegir meistarar.
Þröstur Þórhallsson sagði í gær-
kvöldi að þetta mót hefði verið
hugsað sem upphitun fyrir íslands-
mótið sem hefst 15. september,
sennilega á Akureyri. Þröstur sagð-
ist eiga möguleika á að ná þriðja
og síðasta áfanganum að alþjóðlega
meistaratitlinum þar því útlit væri
fyrir að 2-3 stórmeistarar og al-
þjóðlegir meistarar tækju þar þátt.
Sjá ennfremur skákþátt á bls.
69.
Verðlagsnefnd landbúnaðarins:
Hækkun á mjólk,
nauta- og hrossakjöti
Agreiningur um verðlagningn sauð-
fjárafurða
NÝR verðlagsgrundvöllur fyrir
kúabú var ákveðinn á fundi verð-
lagsnefndar landbúnaðarins á
miðvikudagskvöld. Nýtt verð
tekur gUdi 1. september.
Hækkun á verði mjólkur og naut-
gripagjöts til bænda nemur um
1,5% frá júníverði. Eftir hækkunina
fá bændur 29,80 kr. fyrir hvem
mjólkurlítra, 241,70 kr. fyrir kílóið
af nautakjöti f 1. verðflokki og
214,60 kr. fyrir 2. verðflokk.
Einnig var ákveðið nýtt verð til
bænda á hrossakjöti og nemur sú
hækkun 13—33%, en bestu flokkar
folaldakjöts hækka mest.
Ekki náðist samkomulag í nefnd-
inni um verð á sauðíjárafurðum og
var málinu vfsað til yfimefndar.
í desember sl. kom upp ágrein-
ingur í nefndinni um það hvort
eðlilegt væri að greiða bændum
verðbætur fyrir birgðir ársflórð-
ungslega eftir að farið var að
staðgreiða bændum sauðflárafurð-
ir, en samkvæmt nýju lögunum fer
lokauppgjör við bændur fram í
síðasta lagi 15. desember ár hvert.
Málinu var þá vísað til yfimefndar
sem dæmdi þetta löglegt.
Að sögn Baldurs Óskarssonar
fulltrúa neytenda í nefiidinni telja
þeir nú að líta beri á þessar verð-
bætur sem fyrirframgreiðslu fyrir
næsta verðlagsár sem hefst 1. sept-
ember. Ástæðan sé sú að með
þessum verðbótum hafi bændur
raunvemlegar tekjur af vöm sem
þeir em búnir að selja og hafa feng-
ið að fullu greidda. Fulltrúar
neytenda telja að nú eigi að draga
124.200 krónur á meðalbú frá
tekjulið verðlagsgmndvallarins þar
sem bændum hafi verið greiddar
tæplega 200 milljónir króna í bætur
vegna birgða.
Hákon Sigurgrímsson fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda sagði að fulltrúar bænda í
nefndinni telji að ef farið yrði eftir
þessum hugmyndum neytenda væri
verið að svipta sauðfjárbændur allri
hækkun sem orðið hefur á launum
og kostnaði að undanskildu tfmabil-
inu frá 1. júní til 1. september.
Fyrirlestur um
samskipti for-
eldra og bama
FYRIRLESTUR fyrir almenn-
ing um samskipti foreldra og
barna verður fluttur i Bústaða-
kirbju þriðjudaginn 1. septem-
ber klukkan 20.30. Fyrirlesari
er Dr. Thomas Gordon, kunnur
bandariskur sálfræðingur.
Dr. Gordon dvelst hér á landi
dagana 31. ágúst til 5. september
og samhliða þessari heimsókn gef-
ur Almenna bókafélagið út bók
hans, Samskipti foreldra og bama
- að ala upp ábyrga æsku. Þýð-
andi er Ingi Karl Jóhannesson og
bókin verður til sölu á fyrirlestrar-
staðnum.
í fréttatilkynningu frá Almenna
bókafélaginu segir meðal annars
að Dr. Thomas Gordon sé heims-
frægur sálfræðingur fyrir nám-
skeið sín, nýjar aðferðir í
uppeldismálum og bækur um sama
efiii. Bækur hans eru námsefni í
kennara- og uppeldisskólum víða
um heim, m.a. hér á landi í kenn-
araháskólanum, fósturekólanum
og háskólanum.
Með dr. Gordon hér á landi er
Morgunblaðið/Þorkell
Tómas Guðnason eigandi Ingólfsbrunns er fremst á myndinni og fjær má sjá Guðbjörgu Þorsteins-
dóttur afgreiða viðskiptavini.
Nýr eigandi að Ingólfsbrunni
EIGENDASKIPTI urðu nýlega
á hinum þekkta kaffi- og mat-
sölustað Ingólfsbrunni í kjall-
ara Miðbæjarmarkaðarins,
Aðalstræti 9. Hinn nýi eigandi
er Tómas Guðnason mat-
reiðslumeistari, sem rak
Kokkhúsið við Lækjargötu til
fjölda ára.
Tómas hyggst reka staðinn
áfram með svipuðu sniði. Boðið
er upp á smurt brauð, kaffi og
kökur allan daginn og heitan mat
í hádeginu. Þá verður ennfremur
heimsendingarþjónusta á smurðu
brauði til fyrirtækja og einstakl-
inga. Áform eru uppi um breyt-
ingar og endurbætur á staðnum
og að þeim framkvæmdum lokn-
um er áformað að auka íjölbreytni
í veitingum.
Tómas Guðnason lærði mat-
reiðslu í Naustinu og hefur síðan
unnið á nokkrum stöðum, t.d.
Aski og í Kokkhúsinu, sem hann
rak í 13 ár.
Nýtt tölvuforrit fyrir innflytiendur:
Auðveldar tollútreikninga með
hliðsjón af nýju tollalögunum
NÝTT tölvuforrit, sem miðar að
þvi að auðvelda og bæta gerð
aðflutningsskýrslu, hefur nú ver-
ið hannað og sett á markað.
Forritið, sem ber heitið „Toll-
meistarinn“ , er hannað með
hliðsjón af nýju tollalögunum,
sem taka gildi frá og með degin-
um í dag, 1. september, og er
einkum hugsað fyrir innflytjend-
ur og þá sem vinna við tollút-
reikninga.
„Tollmeistarinn" er hannaður af
Níels Einaresyni, en undanfarin 2
ár hefur hann unnið við endurskoð-
kona hans Linda Adams. Hún mun
halda fyrirlestur í Átthagasal Hót-
el Sögu fimmtudaginn 3. septem-
un tollskjala hjá Tollstjóranum í
Reykjavík. Að sögn Rúnare Georgs-
sonar, sölustjóra forritsins, er hér
um að ræða mikla hagræðingu og
tímaspamað fyrir þá sem vinna við
tollútreikninga, ekki síst þar sem
nýju tollalögin muni gera auknar
kröfur um frágang og gerð aðflutn-
ingsskýrelu auk þess sem búast
megi við að margvíslegar breyting-
ar verði gerðar á reglum um tollaf-
greiðslu fram að áramótum.
„Samkeppnin fer harðnandi og enn
meiri kröfur verða gerðar til inn-
flytjenda með þessu nýja kerfí
ber klukkan 20.30. Fyrirlestur
hennar heitir Sjálfstyrking -
ákveðni - mannleg samskipti.
þannig að ljóst er að illa unnin
skýrsla mun tefja fyrir afgreiðslu
hjá tollembættinu og fyrirejáanlegt
að margir „fúskarar" falla úr leik,“
Hann sagði að nýja forritið væri
sérstaklega gert til að auðvelda
mönnum tollskýrelugerð, þannig að
forritið spyr spuminga lið fyrir lið,
og kemur með athugasemdir sé
ekki rétt svarað. Forritið minnir
einnig á þau fylgiskjöl sem krafíst
er fyrir hinar ýmsu vörutegundir.
Rúnar sagði að forritið væri afar
einfalt í notkun, jafnvel fyrir þá sem
væm að stíga sín fyrstu spor inn í
tölvuöld með tölvuvæðingu fyrir-
tækisins. „Það er sniðið eftir
þörfum innflytjenda og uppfyllir
kröfur tollembættisins um frágang.
Það má vþí segja að í því felist tíma-
spamaður upp á hálfan til einn
starfskraft, eftir því hvað fyrirtæk-
ið er stórt," sagði Rúnar. Hann
sagði ennfremur að I forritinu væru
allar breytingar sem hafa verið
gerðar á reglum um tollútreikning
og eftireöluþjónusta yrði veitt vegna
hugsanlegra breytinga á kerfinu á
næstu mánuðum. „Þeir sem em
leiðir á athugasemdum frá tollinum
ættu að kynna sér þá auðveldu og
ódým lausn sem Tollmeistarinn
býður upp á, en það verður selt á
séretöku kynningarverði út septem-
ber fyrir aðeins 6.000 krónur, en
kostar annare 18.000 krónur,"
sagði Rúnar ennfremur.
„Tollmeistarinn" er fyrsta forri-
tið sem Niels Einarsson hannar fyrir
almennan markað en áður hefur
hann hannað kerfi og forrit fyrir
Bílanaust, sem hafa verið I notkun
í 13 ár og er þar meðtalið tollafor-
rit, sem var hið fyreta sinnar
tegundar hérlendis.
Morgunblaðifl/Einar Falur
Dr. Thomas Gordon, sem flytja mun fyrírlestur hér á landi um sam-
skiptí foreldra og barna, ásamt konu sinni, Linda Adams.