Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
17
Jóhann Hjartarson teflir
fjöltefli á Reykj avíkurdegi
TOMMA hamborgfarar og út-
varpsstöðin Stjarnan halda
sérstakan Reykjavíkurdag á
Lækjartorgi næstkomandi föstu-
dag, þann 4. september, kl.
13.30-19.00.
Boðið verður upp á hin fjölbreytt-
ustu skemmtiatriði en það sem ber
hvað hæst er fjöltefli yngsta stór-
meistarans okkar, Jóhanns Hjartar-
sonar, sem skipulagt er í samvinnu
við Skáksamband Islands. Jóhann
ætlar að tefla klukku-fjöltefli við
heimsmeistara bama, Héðin
Steingrímsson, heimsmeistara
sveina, Hannes Hlífar Stefánsson,
Þröst Þórhallsson og Davíð ólafs-
son, sem báðir hafa náð sínum
fyrsta áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur ■
íslandsmeistara kvenna í skák og
nýbakaða Norðurlandameistara í
skólaskák, hina öflugu skáksveit
Seljaskóla.
Með þessu fjöltefli hefst jafn-
framt söfnun í sérstakan afrekssjóð
Skáksambands íslands til að styðja
við bakið á ungum og efnilegum
skákmönnum sem vilja afla sér
þekkingar og reynslu í þeim harða
skóla sem skák á alþjóðavettvangi
er. Fyrsta verkefni þessa sjóðs yrði
að styðja Jóhann Hjartarson í undir-
búningi þeirrar baráttu sem
framundan er.
Klukku-fjölteflið hefst við útitaf-
lið í Lækjargötu kl. 13.30 næsta
föstudag og mun borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson, leika
fyrsta leikinn.
(Fréttatilkynning)
if Rartek Höganas
F L [ S A R
og flísaefni
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
VGRÖLDSN S7
\
VGRCLD! M '87
innan veggja
LAUGARDALSHÖLL
Á sýningunni VERÖLDIN ‘87
hefur Hólmfríður Karlsdóttir
innréttað 200 fermetra draumaíbúð
að eigin smekk. Valið innréttingar,
húsmuni, liti og efni.
Þetta erforvitnileg og falleg íbúð
smekklegrarnútímakonu. Hér er
allt sem tilheyrir einu heimili.
-Jafnvelbíllinnásínumstað í
bílskýlinu.
SJÁIÐ DRAUMAÍBÚÐ
HÓFÍAR
Hún verður sjálf á staðnum á
virkum dögum milli klukkan 18
og 20. Um helgar milli 15 og 17
og aftur milli 20 og 21.
j STÓRSÝNING
S FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA
Opið: Virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.