Morgunblaðið - 01.09.1987, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
1
LJtgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö.
Alnæmi og
frelsisskerðing
Ifrétt á forsíðu Morgunblaðsins
síðastliðinn sunnudag er talað
um að bandarísk stjómvöld hafi til-
kynnt að frá 1. desember næstkom-
andi verði hægt að meina fólki sem
haldið er alnæmi eða eyðni landvist
í Bandaríkjunum. Þegar sótt sé um
innflytjendaleyfí til Bandaríkjanna
þurfí umsækjendur að gangast und-
ir læknisrannsókn þar sem meðal
annars er kannað hvort viðkomandi
er haldinn smitandi holdsveiki,
berklum, sárasótt eða lekanda. Sé
svo er hægt að neita umsækjanda
um innflytjendaáritun.
Um þessi mál hefur mikið verið
rætt bæði hér á landi og erlendis
og nú hefur verið í lög sett að al-
næmi heyri undir kynsjúkdóma hér
á landi og sé meðferð þess í sam-
ræmi við það.
Hér er að sjálfsögðu um afar við-
kvæmt mál að ræða og sitt sýnist
hveijum, einkum með tilliti til þess
ef refsa á fólki fyrir að sýkjast af
illvígum sjúkdómi, nægar séu hörm-
ungamar samt og sú þjáning sem
sjúklingurinn þarf að þola. En þá
ber þjóðfélaginu jafnframt skylda
að vemda aðra þjóðfélagsþegna eins
og kostur er og getur það leitt til
skerðingar á einstaklingsfrelsi
sjúklinga svo að þeir sýki ekki aðra,
jafnvel er gengið svo langt að í
nýrri tilskipun í Sovétríkjunum er
talað um að kalla megi sjúklinga til
ábyrgðar og dæma þá í allt að 5
ára fangelsi fyrir að smita fólk af
alnæmi. Segja má að þetta sé harð-
ur kostur og mörgum fínnst vafa-
laust of harkalega að farið.
Hitt fer ekki á milli mála að frum-
regla frelsisins getur í örfáum
tilfellum leitt til heftingar á frelsi
einstaklingsins samkvæmt skoðun-
um þess manns sem hvað skynsam-
legast hefur skrifað um einstakling-
inn og frelsi hans, John Stuart
Mills. Hann segir í 4. kafla síns
merka ritverks, Frelsið, að sjálfræði
einstaklingsins séu takmörk sett,
fjallar síðan um það hvenær svo
geti verið „um leið og einstaklingur
gengur á hagsmuni annarra, tekur
valdsvið samfélagsins til breytni
hans“, segir Mills. „Þá kemur til
álita, hvort það muni almennings-
heill til eflingar eða ekki, að
samfélagið skerist í leikinn. Ekkert
slíkt kemur til álita, þegar breytni
manns varðar einungis hag hans
sjálfs og þeirra fulltíða manna ann-
arra sem láta sig þessa breytni
varða af fúsum vilja og fullu viti. í
öllum slíkum tilvikum ættu menn
að njóta fyllsta frelsis, jafnt að lög-
um sem almenningsáliti til að gera
það sem þeim sýnist og taka afleið-
ingunum."
Mills bendir á að ef einstaklingur
hefur brotið þær reglur sem nauð-
synlegar eru meðbræðrum hans til
vemdar, hvort heldur einstaklingum
eða samfélaginu; „þá er hann ekki
lengur einn um að gjalda athafna
sinna, heldur gjalda aðrir þeirra, og
þá hlýtur samfélagið sem vemdari
þegna sinna að kalla hann til
ábyrgðar. Það má gera honum hæfí-
legt mein í refsingarskyni. í þessu
tilviki er hann brotlegur við lög og
þá er okkur skylt að dæma hann
og fullnægja dóminum að auki á
einn eða annan hátt.“
Mills bendir enn á að enginn lifí
einn utan samfélagsins og hann
segir: „Hvenær sem öðrum einstakl-
ingi eða almenningi er bakað tjón
eða búin hætta á tjóni ber að beita
reglum siðferðis og laga. Að öllu
öðru leyti er hver einstaklingur
fíjáls."
Þessi orð hljóta að eiga við eyðni
og aðra lífshættulega smitsjúk-
dóma. Samkvæmt frumreglunni má
skerða frelsi einstaklings sem veit
að sjúkdómur hans gæti orðið öðrum
manni að aldurtila vegna samneytis
við hann. Þetta hafa menn orðið að
sætta sig við.
Einatt hafa menn verið settir í
sóttkví og einangrun vegna sjúk-
dóma til að draga úr þeirri hættu
sem af þeim gæti stafað fyrir annað
fólk. Þetta hlýtur einnig að eiga við
um alnæmissjúkling en það á þá
einnig við um hann eins og aðra
þegna þjóðfélagsins að einstakling-
ur ber enga ábyrgð gagnvart
samfélaginu áþeim athöfnum sínum
sem varða einungis hann sjálfan.
Þannig ættu eyðnisjúklingar einnig
að geta haldið frelsi sínu að mestu
leyti óskertu eins og aðrir þjóðfé-
lagsþegnar ef þeir hafa ekki
kynferðisleg mök við annað fólk sem
veit ekki um sjúkdóm þeirra, gefa
ekki blóð eða nota ekki fíkniefna-
sprautur með öðrum svo að minnzt
sé þeirra þátta sem læknavísindin
telja að geti verið helztu smitleiðir
fyrir sýkilinn. En samkvæmt frum-
reglu frelsisins segir Mills jafnframt
að einstaklingur „ber ábyrgð gagn-
vart samfélaginu á þeim athöfnum
sínum sem skaða hagsmuni ann-
arra. Ifyrir slíkar athafnir má hegna
honum að almenningsáliti eða lög-
um, ef samfélagið telur slíkar
hegningar nauðsynlegar sér til
vemdar."
Mills bætir því við síðar að þegar
á hinn bóginn sé einungis um slysa-
hættu að ræða en ekki vissu fyrir
slysi „þá getur enginn nema sá sem
hlut á, dæmt um, hvort ástæða er
til, að hann leggi sig í hættuna.
Þegar svona stendur á tel ég að
einungis beri að vara menn við
hættunni, en ekki að vama þeim
með valdi að leggja sig í hana."
Frelsi John Stuart Mills er merki-
legt undirstöðurit um athafnir
manna og samfélag, jafnsígilt nú
og þegar það var skrifað. Það er
hollt að taka mið af því þegar leita
þarf úrlausna við vandasöm verk:
efni í mannlegum samskiptum. í
raun má fínna ábendingar í ritum
hans til að hefta frelsi þeirra sem
orðið geta öðmm að fjörtjóni án
þess að niðurlægja eða bijóta niður
sjálfsvirðingu þeirra sem að ósekju
verða illvígum, smitandi sjúkdómum
að bráð.
Sóttvamir era sjálfsagðar í
nútímaþjóðfélagi en refsingar vegna
sjúkdóma, svo að ekki sé nú talað
um fangelsisvist, era tímaskekkja í
tæknibúnu upplýsingaþjóðfélagi
eins og því sem við lifum í.
Unglingaskemmtunin á Ráðhústorgi var vel sótt.
Forseti íslands heilsar upp á Akureyringa á skemmtun í Lystigarðinum að kvðldi afmælisdagsins.
Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík, var meðal gesta f afmælisveizlu Akureyrar. MorgunblaOia/KGA