Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 41
r
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1, SEPTEMBER 1987
41
Geysimikið fjölmenni var i göngugötunni og var það mál manna að líklega hefðu aldrei verið jafn margir þar saman komnir.
Hádegisverður á Hótel KEA.
torg og göngugötu þar sem útidag-
skrá var flutt fram eftir degi.
Leikklúbburinn Saga gekk um
göngugötuna og skemmti gestum,
hesta- og reiðsýning var austan við
Samkomuhúsið og skátar voru með
leiktæki í gangi fyrir yngri kynslóð-
ina víða um hátíðarsvæðið.
Um kvöldið var dagskránni síðan
haldið áfram á fleiri vígstöðvum; í
Skemmunni var leikritið „Afmælis-
veisla handa Eyrarrós“ frumflutt,
og var troðfullt á frumsýningunni,
í göngugötunni var unglingadag-
skrá þar sem „Látúnsbarkinn" kom
fram ásamt Sniglabandinu, Stuð-
kompaníinu og fleirum, og í Lysti-
garðinum sem búið var að lýsa upp
á skemmtilegan máta var gestum
boðið upp á kaffi og meðlæti, og
lúðrasveitir, kórar og strengjasveit
sáu um tónlistarflutning á ijórum
stöðum í garðinum.
Samkomunni lauk síðan skömmu
eftir miðnætti með því að skátar
stóðu fyrir flugeldasýningu.
Akureyrarbæ bárust gjafir og
heillaóskir frá ýsmum aðilum í til-
efni afmælisins, og næstu daga
verða gjafimar og heillaóskimar til
sýnis fyrir bæjarbúa og gesti á
Amtsbókasafninu.
Afmælisdagskrá Akureyrarbæjar:
Aðsókii að hátíðarhöldim-
um meiri en búist var við
Hátíðardagskrá Akureyrar-
bæjar á laugardaginn í tilefni
þess að 125 ár eru síðan bærinn
fékk kaupstaðarréttindi gekk
mjög vel fyrir sig. Veður var hið
ákjósanlegasta og aðsókn að dag-
skránni i göngugötunni var mun
meiri en aðstandendur bjuggust
við, og í Lystigarðinum um
kvöldið voru gestir í kringum
fjögur og fimm þúsund talsins.
„Hvaðan allt þetta fólk kom er
ómögulegt að segja, þvi ekki
voru þetta allt Akureyringar, en
við sem að undirbúningnum stóð-
um áttum ekki von á svona miklu
fjölmenni," sagði Hermann Sig-
tryggsson, íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi Akureyrar, en i
göngugötunni var giskað á að i
kringum 6 og 7 þúsund manns
hefðu mætt til að fylgjast með
skemmtidagskránni sem hófst
eftir hádegið.
Hátíðardagskráin hófst klukkan
8.20 á laugardagsmorgun með því
að tekið var á móti heiðursgesti
afmælisins, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta íslands, og á flug-
vellinum tóku allmargir Akur-
eyringar á móti henni og hylltu.
í Akureyrarkirkju var dag-
skránni síðan haldið áfram, en þar
ávarpaði frú Vigdís samkomugesti,
og forseti bæjarstjómar, Gunnar
Ragnars flutti ávarp.
Hátíðarræðan var flutt af Gísla
Jónssyni, kennara, og síðan tóku
við ávörp bæjarstjóra, forsætisráð-
herra og Jóns Sigurðssonar, við-
skiptaráðherra, sem í fjarvem
Jóhönnu Sigurðardóttur, félags-
málaráðherra, var viðstaddur
hátíðarhöldin. Að því búnu var há-
degisverður á Hótel KEA fyrir gesti
bæjarstjómar.
Eftir hádegið fóm skrúðgöngur
um stræti og torg og að sögn Her-
manns Sigtryggssonar, vom um
2500 manns í skrúðgöngunni eftir
að þær sameinuðust á mótum Þór-
unnarstrætis og Glerárgötu.og
héldu sem leið lá niður á Ráðhús-
Sýning Leikfélags Akureyrar.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigfús Jónsson, spjallar við tröll og forynjur.