Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
59
Biblíukenningu, ekki sína eigin
Biblíu. Þannig get ég borið virðingu
fyrir Lúther, jafnvel þótt honum
hafi siqátlast. Hann útbreiddi Biblí-
una, og það var mjög svo þakkar-
vert. Og hvemig eigum við þá að
dæma um hans andstyggilegu
skammarræður? Jú þær voru mjög
fagnlegar fyrir kaþólsku kirkjuna.
þeim atriðum, sem nauðsyn var
á, framkvæmdi hún á sjálfri sér
heilnæma siðbót og setti auk þess
kenningu sína fram með skýrari
hætti á kirlq'uþinginu í Trident. Hér
var Lúther því maður hinnar guð-
legu forsjár. En hvað ber okkur þá
nú að gjöra? Að halda í allt hið
góða, sem Lúther lagði áherzlu á:
Biblíulestra, sálmasöng, og hlýða
vel á predikunina, góða sálusorgun
og fermingaruppfræðslu. En hvað
mætti betur fara beina leið í msla-
körfuna, ef það liggur þar ekki nú
þegar? Hatur hans út í páfadæmið,
lítilsvirðing hans á góðum verkum
ásamt með hliðstæðri lítilsvirðingu
hans á nunnum, einlífisprestum og
‘ ástundun eftir heilagleika. Gagn-
rýni hans á kaþólsku messuna
byggist á glappaskotum í útlegg-
ingu Biblíunnar og hafði örlagarík
áhrif fyrir lúthersku kirkjuna, sem
einmitt með því glataði hinu dýr-
mætasta í kaþólsku kirkjunni. Auk
heldur hefur Lúther skaðað hina
Biblíulegu heiðrun Maríu Guðsmóð-
ur. Með ritskýringu sinni um
lofsöng Maríu (Magnifícat) gerir
hann henni alls ekki rétt til, móður-
inni, hinni sönnu þjónustumey
Guðs, er svarar boði hans með já-
yrði sínu og stóð hugrökk, en með
blæðandi hjarta hjá sínum deyjandi
syni á krossinum. Kirkjufeðumir
nefndu hana brátt hina nýju Evu,
ekki til glötunar, heldur okkur tií
hjálpræðis.
í fylgd með páfanum og Maríu
Guðsmóður værum við brátt nær
hvert öðru en með 40 eða 400 ámm
í viðbót með Alkirkjuráðinu. Ó, hve
óskandi væri, að árið 2000 gætum
við endumýjað það, sem gerðist hér
árið 1000 fyrir eininguna í trúnni!
Það var reyndar ætlun Lúthers, sem
vildi ekki neina nýja kirkju, heldur
einungis siðbæta kirkjuna. Það
tókst honum, öðravísi en hann
hugði, þ.e.a.s. með kirkjuþinginu í
Trident. En því miður fékk hann
ekki að lifa það. Hann andaðist 18.
febrúar 1546, sautján árum of
snemma.
Höfundur er kaþólskur prestur í
Stykkishólmi.
ÖRYGGI
Höfum fyrirliggjandi
á mjög góðu verði
flestar gerðir af
öryggjum frá Sipe,
Pörtúgal.
nClTUIMIM ”
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SIMI: 685656 og 84530
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Sölustofnun lagmetis:
Tilhæfulaus árás á ís-
lenskan útflutningsiðnað
VEGNA frétta ( Stöð 2 miðviku-
dagskvöldið 26. ágúst sl., hefur
Sölustofnun lagmetis óskað að
koma eftirfarandi á framfæri:
„Á meðan ieiðtogafundurinn stóð
var starfrækt sérstök íslandsmið-
stöð fyrir erlenda fréttamenn í
Hagaskóla, þar sem lögð var
áhersla á að kynna m.a. ferðaþjón-
ustu, útflutningsvöra og íslensk
matvæli undir stjóm Útflutnings-
ráðs íslands. Sölustofnun lagmetis
sýndi þar útflutningsvörar sínar og
var erlendum blaðamönnum gefínn
kostur á að smakka ýmsa rétti og
fengu ef þeir óskuðu, sýnishom
með sér heim. Aletranir vora á
ýmsum erlendum málum, þ. á m.
rússneskar á þeirri vöra sem ætluð
er fyrir sovéskan markað, er sú
vara var sett fram sérstaklega fyr-
ir sovéska blaðamenn sem hér vora.
Dósin sem fréttamaður Stöðvar
2 sá ástæðu til að nota til að kasta
rýrð á íslenskan útflutning, innihélt
gaffalbita og áletranin var á rúss-
nesku. Þar stóð skýram stöfum að
vörana bæri að geyma við lágt hita-
stig í kæli og að líftími hennar
væri 6 mánuðir. Umrædd vara er
einvörðungu framleidd fyrir sovésk-
an markað.
Fréttamaður sá er hlut átti að
máli gerði enga tilraun til að afla
sér upplýsinga hjá SL um þessa
dós, sem verið hefur í eigu viðkom-
andi í tæpt eitt ár, eða til að fá
einhvern til að þýða rússnesku vöra-
lýsinguna fyrir sig. Heldur var
tækifærið notað til þess að sverta
íslenskan matvælaiðnað að tilefnis-
lausu.
Sölustofnun lagmetis vill upplýsa
eftirfarandi um niðurlagningu gaff-
albita:
1. Líftími niðurlagðra gaffalbita er.
6 mánuðir eftir framleiðslu að því
tilskyldu að þeir séu geymdir í
kæli.
2. 11—12 mánaða gamlir gaffalbit-
ar era orðnir ónýt vara, jafnvel
þótt geymdir séu í kæli. Við þetta
langa geymslu eyðist fískmetið í
sósuleginum, þannig að innihald
dósarinnar líkist dökkri sósu.
Þetta hefði fréttamaður Stöðvar
2 getað fengið upplýsingar um ef
hann hefði viljað vanda vinnubrögð
sín og segja satt og rétt frá, frem-
ur en að gera tilhæfulausa árás á
íslenskan útflutningsiðnað."
iARRtí? VÍSSEININS v
URD"
Vífilfell hf. valdi Barkarhúseiningar.
Árið 1982 byggði Vífilfell hf. úr Barkarhúseiningum 1800
m2 verksmiðjuhús og annað jafnstórt á síðasta árí.
Barkarhúseiningar eru sterkar, einfaldar í uppsetningu og
byggingartíminn því mun skemmri en með hefðbundnum
aðferðum. Það skiptir verulegu máli að byggingartími verk-
smiðjuhúsa sé skammur þannig að byggingin skili arði sem
fyrst.
Húseiningarnar eru einangraðar með pólýúrethan, sem hefur
minnstu hitaleiðni þeirra einangrunarefna sem eru á mar-
kaðnum. Góður frágangur gerir það að verkum að allt viðhald
er í lágmarki, innan dyra sem utan. Barkarhúseiningar halda
rekstrarkostnaði byggingarinnar í lágmarki.
Þegar byggt er úr Barkarhúseiningum er auðvelt að stækka
og breyta, eftir því sem umsvifin aukast. Barkarhúseiningar
gera þér auðveldara að byrja smátt og láta húsnæðið síðan
aðlagast umsvifunum en ekki að húsnæðið standi þeim fyrir
þrifum.
GERÐU RAUNHÆFAN SAMANBURÐ Á BARKAR HÚS-
EININGUM OG HEFÐBUNDNUM BYGGINGARAÐFERÐUM.
BORKURhf.
HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755
PÓSTHÓLF 239 • 220 HAFNARFIRÐI
ÓSÍ/Sl*