Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29
sími 26100.
London
Helgarferðir
Verð frá
kr. 16.555,-
á mann.
Vikuferðir
Verð frá
kr. 25.522,-
á mann.
Glasgow
Heigarferðir
Verð frá
kr. 13.670,-
á mann.
Vikuferðir
Verð frá
kr. 20.565,-
á mann.
Amsterdam
Heigarferðir
Verð frá
kr. 19.055,-
á mann.
Hambarg
Heigarferðir
Verð frá
kr. 19.380,-
á mann.
Luxemborg
Heigarferðir
Verð frá
kr. 14.110,-
á mann.
sími 26100.
Hvers vegria er Út-
vegsbankinn til sölu?
eftirÁsgerði
Jónsdóttur
Á hádegi laugardaginn 22. ágúst
virtist lokið hinum strákslegu orð-
ræðum stjómmálamanna um
hnífakaupaviðskipti með Búnaðar-
bankann, sem er ekki til sölu.
Nú vona ég að Jón Sigurðsson
viðskiptamálaráðherra noti þann
heiðarleik, sem honum er í blóð
borinn og geri það skásta og rétt-
asta sem gert verður eins og málum
er komið. En það er að afhenda
SÍS margumrædd hlutabréf, sem
þegar hafa verið greidd að nokkru.
Eg er innst í huga mótfallin því
að SÍS gerist flármálastofnun. En
ég er enn mótfallnari því að svo
ósiðlegir viðskiptahættir, er svokall-
aðir „útgerðarmenn" við hafa í
þessu máli, nái fram að ganga.
Afhending hlutabréfanna til þeirra
væri kórónan á það viðskiptasið-
leysi, er blómstrað hefur á Islandi
síðustu 5-10 ár, þar sem hæst ber
Hafskipsmál og Hjálparstofnun
kirkjunnar. Vert er að vekja at-
hygli á því, að andúðin á atferli
starfsmanna Hjálparstofnunar
þjóðkirkjunnar sýndi mikinn árang-
ur eða viðbrögð enda voru stjóm-
málamenn og flokkar og lögfræð-
ingar ekkert við malið riðnir. Þessu
er öfugt farið með Hafskips-, Út-
vegsbankamál, enda er nú búið að
snúa þeim upp t langdregna laga-
krókarefskák, sem ætlað er að skila
sakargiftarmönnum og hreinþvegn-
um nema kannski með eitthvert
gróm á skósólunum eins og ég orð-
aði það í grein um þessi mál fyrir
rúmu ári.
Ég vík aftur að hlutabréfum
Útvegsbankans. í allri umræðu um
sölu þeirra hefur aðalatriðið með
öllu gleymst. Hvers vegna er verið
að selja Útvegsbankann??? Því er
raunar fljótsvarað: Óhlutvandir ein-
staklingar hafa misnotað hann og
bmgðist skyldum sínum við hann.
M.ö.o., einstaklingsframtakið
hefur komið honum á kaldan
klaka. Afleiðingamar féllu á ríkis-
sjóð að venju, er síðan reynir eftir
megni að firra almenning áföllum,
t.d. með hlutabréfasölunni. Síðan
Alþingi samþykkti, tímanlega þessa
árs, að gera Útvegsbankann að
hlutaijárstofnun hafa allir vitað
hvað til stóð og hlutabréfín verið
til sölu lengi en enginn gert tilboð
í þau fyrr en SÍS greiddi þá þegar
inn á þau og lagði fram tryggingu
samkvæmt öllum settum skilyrðum.
Hvemig getur nokkur ríkisstjóm
verið þekkt fyrir að vanvirða svo
hreinskiptið tilboð, er jafnframt
leysir mikinn fjárhagsvanda, sem
þessi ríkisstjóm hefur meira en nóg
af.
Að fram komnu tilboði SÍS risu
upp útgerðarmenn fjármagnsins og
þóttust eiga forgangsrétt að hluta-
bréfum bankans enda þótt þeir
hefðu ekki látið á sér kræla fyrr
en um seinan. Og ríkisstjómin sóar
dýrmætum tíma sínum í það að
velta vöngum og reyna að gera
þessi tvö tilboð jafngild þótt annað
þeirra hafí verið á götu gert í tíma
Ásgerður Jónsdóttir
„Menn hljóta að spyrja
sjálfa sig og aðra hvers
vegna „útgerðarmenn “
einkaframtaksins hafi
(lregið svona lengi að
gera tilboð sitt úr þvi
að Útvegsbankinn er
jafn eftirsóknarverður
biti og af er látið.“
en hitt ekki fyrr en að framkomnu
tilboði SÍS og það frá sama aðilan-
um, er knésetti bankann, þ.e.
einkaframtakinu. Ég undirstrika
þetta atriði vegna þess að í fjölmiðl-
ÞESSAR stúlkur gáfu nýlega
2.000 krónur dl kirkjubyggingar
Seljasóknar. Þær heita Hildur
Ólafsdóttir, Anna Dögg Her-
mannsdóttir, Linda Hrönn
Björgvinsdóttir, Þórdís Bjöms-
dóttir, Harpa Ólafsdóttir og
Anna Þóra Kristinsdóttir.
um er mjög hamast með ágæti
einkaframtaksins og forgangsrétt
þess á þeim forsendum. Menn hljóta
að spyija sjálfa sig og aðra hvers
vegna „útgerðarmenn" einkafram-
taksins hafí dregið svona lengi að
gera tilboð sitt úr því að Útvegs-
bankinn er jafn eftirsóknarverður
biti og af er látið.
Ég hygg að flestum landsmönn-
um, sem eitthvað hugsa, komi sama
svarið í hug: Að beðið hafí verið
eftir því að fá Útvegsbankann á
niðursettu verði eins og tíðkaðist
um arðbærar ríkiseignir í tíð síðustu
rfkisstjómar eða fjármálaráðherra
hennar.
Ég vil minna á, að umrædd
bankastofnun hefur orðið gjald-
þrota a.m.k. einu sinni áður ef ekki
oftar og þá einnig af völdum sama
aðila og nú, þ.e.a.s. einkaframtaks-
ins. Það er því óhjákvæmilegt að
spyija ríkisstjómina nokkurra sam-
viskuspuminga: Er það viturlegt
og réttlætanlegt að selja eignir
ríkisins, þ.e. eignir þjóðarinnar, í
hendur þessa aðila? Getur ríkis-
stjóm eða jafnvel einn ráðherra
höndlað með þær að eigin geðþótta
eins og gert hefur verið? Getur ráð-
herra kannski selt Þingvelli upp á
einsdæmi eins og aðrar ríkiseignir?
Hefur ríkisstjómin ekkert að at-
huga við þau auðgunarbrot og
okurmál, sem upp hafa sprottið á
síðustu ámm einkum á vegum
einkaframtaks en einnig sem er enn
þá verra hjá félögum og samtökum?
Það er vissulega sárt að þurfa að
nefna þetta vegna hinna mörgu
ágætu framtaksmanna á öllum
sviðum, sem ekki mega vamm sitt
vita og vinna heill bæði einstakling-
um og þjóðfélaginu öllu.
í fjölmiðlum er rætt og ritað um
skjálftahræringar í ríkissijómar-
gmndvellinum vegna umræddrar
hlutabréfasölu. Það er nú ekki
líklegt að jafn ábúðarfullir menn
og þeir er sitja í ríkisstjóm hlaupi
frá hlutverkum sínum eftir allt
bröltið við að komast í þau. Og síst
af öllum sjálfstæðismenn sem aldrei
opna svo munn á opinbemm vett-
vangi að þeir láti þess ekki getið
hversu ábyrgir þeir séu í allri stjóm-
sýslu.
Að lokum: Ég tek óstinnt upp
hin ósmekklegu ummæli Halldórs
Blöndal um Jón Sigurðsson við-
skiptamálaráðherra og frændur
hans í tengslum við SÍS. Ef HB
hefur kynnst eða kynnt sér frændur
JS, t.d. föðurbræður, ætti hann að
vita, að væm þeir áhrifamenn í
íslenskum stjómmálum líðandi
stundar stæði gengi þeirra hærra
en nú er.
Höfundur er kennari í Moafellsbœ.
Tveir nýir kennslustaðir: Dansstúdíó Sóleyjar, Engjateigi 1 og „Hallarsel“
Þarabakka 3 í Mjóddinni. Ennfremur sem fyrr í Auðbrekku 17, Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina - laugardagskennsla á öllum stöðum.
Nemendur skólans unnu 12 af 18 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum
1987.
Innritun og upplýsingar dagana 1. - 14. september kl. 10 - 19 í símum:
641111,40020 og 46776.
Kennsluönnin er 15 vikur, hefst mánudaginn 14. september og lýkur með jólaballi.
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar