Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
65
Fiskmarkaður Suðurnesja;
Fiskurinn seld-
ur um borð í
veiðiskipunum
Ytri-Njarðvík.
FYRSTA uppboðið á fiski tyá
Fiskmarkaði Suðurnesja verður
fljótlega eftir mánaðarmótin að
sögn Olafs Þórs Jóhannssonar
framkvæmdastjóra. Hjá Fisk-
markaði Suðurnesja kemur
aldrei fiskur inn á gólf likt og í
Hafnarfirði og Reykjavík. Mark-
aðurinn mun starfa með fjar-
skiptum, þar sem nýjustu tækni
verður beitt og fiskurinn seldur
um borð í veiðiskipunum.
Þessa dagana er unnið af kappi
við að fullgera húsnæði og koma
tækjabúnaði fyrir að Fitjabraut 24
í Ytri-Njarðvík þaðan sem starfsem-
inni verður stjómað. Útibú verður
í Grindavík og verður beint sam-
band á milli. Húsnæðið í Njarðvík
er 220 fermetrar, þar var áður
trésmíðaverkstæði og er áætlaður
stofnkostnaður 4-5 milljónir.
r' J&k S,
j.
A
m
:
\r\ Bókabúð
rjrvBraga
TÖLVUDEILD
Laugavegi 116 V/Hlemm, sími 621122
Auk Ólafs Þórs hefur Birgir Þór
Runólfsson verið ráðinn skrifstofu-
stjóri að Fiskmarkaðinum og
reiknað er með að starfsmenn verði
4-6 þegar starfsemin er komin í
gang. Fiskmarkaður Suðumesja er
hlutafélag nokkurra útvegsmanna,
fiskverkanda og einstaklinga á Suð-
umesjum. gg
■ *;* -/*' -I
„ rvV rr** r.
* * - , .V ■ ■ M,
.
-•■■■■' ■ ' .
Húsnæði Fiskmarkaðs Suðurnesja að Fitjabraut 24 i Ytri-Njarðvík. Þar kemur aldrei fiskur inn á gólf.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ólafur Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri i uppboðssal
Fiskmarkaðs Suðumesja í Ytri-
Njarðvík.
Ólafur Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri sagði að menn væra
spenntir að byija. „Miklu magni af
fiski er ekið af Suðumesjum á
markaðinn í Hafnarfirði. Algengt
er að 90% af fiskinum sé héðan og
50% af honum síðan ekið aftur til
Suðumesja til vinnslu." Ólafur
sagði ennfremur að ekki hefði verið
ákveðið á hvaða tíma dags yrði
boðið upp. Enn væra margir óvissu-
þættir og markaðurinn yrði að laga
sig eftir aðstæðum hveiju sinni.
Hann taldi að þegar vetrarvertíð
stæði sem hæst yrðu þijú uppboð
á dag.
4fr
ym HlMM
Merktu við þennan lista svo þú gleymir engu
□ Skólatöskur
□ Skjalatöskur
□ Leikskólatöskur
□ Pennaveski
□ Skrifundirlegg
□ Stílabcekur
□ Reikningsbœkur
□ Glósubœkur
□ Hringbœkur
□ laus blöö
□ Fönablöö
□ Skýrslublokkir
□ Millimetrablokkir
□ Vélritunarpappír
□ Skrifblokkir
□ Minnisblokkir
□ Klemmuspjöld
□ Plastmöppur
□ Plastumslög
□ Blekpennar
□ Kúlupennar
□ Kúlutússpennar
□ Filttússpennar
□ Glœrupennar
□ Áherslupennar
□ Reglustikur
□ Horn
□ Skœri
□ Bókaplast
□ Trélitir
□ Tússlitir
□ Vatnslitir
□ Vaxlitir
□ Blýantar
□ Teikniblýantar
□ Fallblýantar
□ Yddarar
□ Strokleöur
Síðumúla 35 - Sími 36811
Fyrir menntafólk frá fimm ára aldri
Gerðu góð kaup hjá Grlffli