Morgunblaðið - 01.09.1987, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
77
Þórunn Gestsdóttir
endurkjörinn formaður
ur Landssambandsins
ÞING Landssambands sjálfstæð-
iskvenna var haldið á Akureyri
og Hrafnagili í Eyjafirði um
helgina og sóttu um 100 konur
þingið. Þórunn Gestsdóttir var
endurkjörinn formaður Lands-
sambandsins en auk hennar voru
kosnar í stjóm þær Anna Krist-
jánsdóttir, Reykjavík, Linda Rós
Michaelsdóttir, Reykjavík, Biraa
Guðjónsdóttir, Sauðárkróki,
Steinunn Sigurðardóttir, Kópa-
vogi, Maria Bergmann, Keflavík,
Björg Þórðardóttir, Akureyri,
Hildigunnur Högnadóttir, ísa-
firði, Aradís Jónsdóttir, Selfossi,
Sigríður Þórðardóttir, Grundar-
firði, Ásta Michaelsdóttir,
Hafnarfirði, Pálína Dúadóttir,
Akranesi, Margrét Kristinsdótt-
ir, Akureyri og Sigurbjörg
Axelsdóttir, Vestmannaeyjum.
Þingið hófst með móttöku í Golf-
skálanum á Akureyri og tóku þar
á móti gestum þau Björg Þórðar-
dóttir, formaður sjálfstæðiskvenna-
félagsins Vamar á Akureyri og
Gunnar Ragnars, forseti bæjar-
stjómar Akureyrar. Afhenti Þórunn
Gestsdóttir, formaður Landssam-
bandsins, Gunnari fyrir hönd
Akureyrarbæjar að gjöf glerlista-
verk eftir Ingunni Benediktsdóttur,
glerlistakonu.
Að lokinni móttöku var þingið
formlega sett á Hótel KEA og
ávarpaði þar Þómnn Gestsdóttir,
formaður Landssambandsins, þing-
ið. Sagði hún sjálfstæðiskonur vera
óánægðar þar sem einungis tvær
konur væm í átján manna þingliði
Sjálfstæðisflokksins. í síðustu kosn-
ingum hefði komið boð frá kjósend-
um um að þeir væm í auknum
mæli tilbúnir að treysta konum fyr-
ir atkvæðum sfnum. Þau atkvæði
hefðu þó fæst farið til Sjálfstæðis-
flokksins. Sagði hún marga efast
um og ekki enn hafa skilning á því
að konum væri jafn vel treystandi
fyrir þjóðarskútunni og körlum.
Þetta væm meðal annars þeir sem
ekki styddu konur í prófkjömm og
þeir sem ekki skynjuðu kröfur nú-
tímans um jafna þátttöku kynjanna
á sem flestum sviðum mannlífsins.
Sagði Þómnn marga slíka vera í
Sjálfstæðisflokknum.
Að loknu ávarpi Þómnnar var
unnið að ýmsum almennum þing-
störfum en einnig hélt Jón Magnús-
son, lögmaður, ræðu um Sjálfstæð-
isflokkinn fyrir og eftir kosningar.
Á laugardegi var þingi fram hald-
ið á Hrafnagili í Eyjafirði. Katrín
Eymundsdóttir, forseti bæjarstjóm-
ar Húsavíkur, ræddi um framhalds-
nám í dreifbýli, Tómas Ingi Olrich,
menntaskólakennari á Akureyri,
ræddi um háskólanám á Akureyri
og Valgerður Bjamadóttir, verkefn-
isstjóri á Akureyri, flutti erindi um
samnorræn verkefni kvenna, er
nefndist Bijótum múrana. Árdís
Þórðardóttir, stórkaupmaður í
Reykjavík, og Jósefína Gísladóttir,
framkvæmdastjóri, ísafírði, töluðu
um konur í eigin atvinnurekstri.
Síðdegis töluðu þær Sólveig Pét-
ursdóttir, varaþingmaður í
Reykjavík, og Margrét Kristins-
dóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi á
Akureyri, um konur og stjómmál.
Einnig flutti Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins og
forsætisráðherra, ávarp. Sagði Þor-
steinn að sjálfstæðismenn þyrftu
að hyggja að því hvemig hægt
væri að styrkja stöðu fíokksins á
nýjan leik. Kosningabaráttan væri
þegar hafín með flokkstarfi og þátt-
töku í ríkisstjóm. Sagði hann
nauðsynlegt að horfa á það sem
úrskeiðis hefði farið og bæta það.
Umræður innan flokksins þyrftu
að vera hreinskilnar og hispurs-
iausar og endurskipuleggja þyrfti
málefnanefndir flokksins og huga
að því hvemig hægt væri að treysta
félagsstarfið sjálft. Til þess að ná
fram þeim málefnum sem sjálfstæð-
ismenn börðust fyrir þyrfti sterkan
flokk og öfluga félagslega hreyf-
ingu. Þetta sýndi sig best nú á
síðustu dögum með framvindu Út-
vegsbankamálsins. Um langt skeið
hefði ríkt friður milli einkaframtaks
og samvinnuhreyfíngarinnar. Nú
væm komnir nýjir menn í forystu
samvinnuhreyfíngarinnar og færi
það saman við að flokkur einstakl-
ings- og atvinnufrelsis hefði orðið
Konur og sljórnmál:
Við komumst ekki hjá því
að gera eitthvað sjálfar
- segir Sólveig Pétursdóttir
„ÞEIR sem vijja veg Sjálfstæðis-
flokksins sem mestan verða að
átta sig á þeim breytingum sem
orðið hafa á stöðu kvenna og
veita þeim völd til að hafa áhrif
á gang mála. Því miður hefur
það ekki verið gert sem skyldi.
Arið 1955 sat ein kona á þingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þær
eru tvær í dag,“ sagði Sólveig
Pétursdóttir varaþingmaður í
Reykjavík i samtali við Morgun-
blaðið. Sólveig flutti á þingi
sjálfstæðiskvenna erindi um kon-
ur og stjórnmál.
„Prófkjörin eiga efiaust sinn þátt
í þessari slæmu stöðu kvenna en
við komumst ekki hjá því að gera
eitthvað sjálfar. Við getum ekki
gefíst upp og beðið eftir því að fá
eitthvað tilboð á jafnréttisgmnd-
velli.
Konum verður að fínnast það
skylda sín að taka þátt í stjóm-
málum. Við verðum að taka
ákvarðanir um mál sem skipta okk-
ur sjálfar máli, sem skipta fjölskyld-
ur okkar máli og varða jafnvel
sjálfstæði landsins okkar..
Sjálfstæðisflokkurinn verður líka
að sinna kalli tímans. Konur era
Sólveig Pétursdóttir
helmingur þjóðarinnar og hugar-
farsbreyting í þessum efnum er
nauðsynleg. Ég vona að sú hugar-
farsbreyting verði fyrir næstu
kosningar.
Þetta þing hefur verið n\jög
ánægjulegt og sá mikli fjöldi
kvenna sem þar mætti mun stefna
að því að efla Sjálfstæðisflokkinn.“
Morgunblaðið/STS
Frá þingi Landssambands sjálfstæðiskvenna á Hrafnagili í Eyjafirði. í ræðustól er Margrét Kristins-
dóttir frá Akureyri.
fyrir áfalli í kosningum. Nú ætluðu
andstæðingar flokksins að láta hné
fylgja kviði. „Við fínnum fyrir því
hvemig andstæðingar okkar hugsa
og bregðast við þegar við veikjumst
og það sýnir okkur hversu mikil-
vægt það er að við sjálfstæðismenn
bregðumst við að festu og samstill-
ingu.“
byrjandi?
í góðu forrni?
Parftu að fara Pmegrun?
Wiltu fjör, púl og su/'ta ?
Viltu rólegan tíma?
Eða viltu eróbikk með teygjum?
JSB á flpkkinn fyrir þig.
Hýtt! tlýtt!
Teygju — þrek — jazz.
Eldfjörugir tímar með
léttri iass-sveiflu.
Allir geta veriO meó.
Ath! Ath!
Lokaðir flokkar.
Pantið tímaniega fyrir
vetrarnámskeiðin.
Hýjar perur í öllum lömpum,
J5B
ávallt / fararbroddi
Mörgun^ dag-ogiwöldiímar
Suðurverí, sími 83750 Hraunbergi, sími 79988