Morgunblaðið - 22.09.1987, Page 1

Morgunblaðið - 22.09.1987, Page 1
80 SIÐUR B/C 11 STOFNAÍ) 1913 213. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Filippseyjar: Áskorun um að selja neyðarlög Morð á vinstri leiðtoga vekur reiði Manila, Filippseyjum, Reuter. HÁTTSETTUR yfirmaður í her Filippseyja skoraði í gær á Corazon Aquino forseta að íhuga hvort setja eigi neyðarlög. Vinstri menn gengu um götur Manila með borða, sem á voru letruð vígorð, og rikti mikil reiði vegna morðsins á Leandro Alej- andro, eins leiðtoga þeirra, um helgina. Bandaríkjamenn: Herþyrla skýtur á ír- anskt skip Washmgton, Bahrain, Reuter. SÝRT var frá því í bandaríska varnarmálaráðuneytinu í gær að þyrla af bandarísku freigátunni Jarrett heðfi skotið eldflaugum og skotum á íranskt skip, sem stæði í ljósum logum á Persaflóa. Sagði að iranska skipið hefði verið að koma fyrir tundurdufl- um undan ströndum Bahrain. Slökkviliðsmenn börðust í gær við elda um borð í olíuskipinu Gentle Breeze, sem rak á Persaflóa eftir að íranar gerðu árás. Haft var eftir skipamiðlurum að tveggja breskra sjómanna væri saknað eftir árásina. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í gær að árásin á olíuskipið myndi ekki hafa í för með sér að Bretar sendu fleiri skip á Persaflóa. Ali Khamenei, forseti írans, var í gær viðstaddur setningu allsherj- arþings Sameinuðu þjóðanna. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti flutti setningarávarp og skoraði hann á Khamenei að fallast á kröfu öryggisráðs SÞ um tafarlaust vopnahlé. Emiliano Templo ofursti sagði í sjónvarpi að hann teldi að til greina kæmi að setja herlög ef spenna héldi áfram að vaxa í höfuðborginni og aukið ofbeldi sigldi í kjölfar morðsins á Alejandro. Orðrómur um herlög var á hvers manns vörum og hringdi fjöldi fólks í forsetaskrifstofuna til að komast að því hvort Aquino hygðist lýsa yfír neyðarástandi. Fidel Ramos, yfírmaður herafla Filippseyja, sagði í útvarpi að hann hefði skipað nýjan yfírmann her- aflans á höfuðborgarsvæðinu. Ramos svipti þijá herforingja og að minnsta kosti átta ofursta stöðu sinni fyrir meinta aðild að valda- ránstilrauninni, sem fór út um þúfur 28. ágúst. Reuter Andstæðingar Corazon Aquino, forseta Filippseyja, fordæmdu í gær morðið á leiðtoga vinstri manna, Leandro Alejandro, í Manila. Menn- irnir á myndinni kváðust vilja mótmæla grimmdarverkum hersins. Sósíalistar á Spáni: ^ Vilja einn Evrópu- flokk Javea, Spáni, Reuter. Sósíalistar á Spáni ætla að leggja til við skoðanabræður sína i Vestur-Evrópu að stofnaður verði sameiginlegur flokkur til þess að kljást við þau vandamál, sem ekki takmarkast af landa- mærum milli rikja og spyrna gegn hægri vakningu, að því er haft var eftír talsmanni flokksins i gær. í áætlun spænskra sósíalista er gert ráð fyrir því að vestur-evrópskir sósíalistaflokkar bjóði fram undir einu merki í kosningunum til Evrópu- þingsins árið 1989 og Evrópski sósíalistaflokkurinn verði stofnaður árið 1992. Að sögn talsmannsins greindi Al- fonso Guerra, aðstoðarforsætisráð- herra, frá tillögunni á fundi Sósíal- istaflokks verkalýðsins í bænum Javea á strönd Miðjarðarhafsins um helgina. Bandaríkjaforseti ávarpar allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna: Reagan hvetur komm- wnstatil að losa á klónni í Afganistan, Berlín og Nicaragua Sameinuðu þjóðunum, Washington, Bonn, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti ávarpaði allsheijarþing Samein- uðu þjóðanna við setningu þess í gær og skoraði á kommúnista um heim allan að slaka á klónni. Hvatti hann Sovétmenn tíl að kveðja herlið sitt heim frá Afganistan og stuðla að því að Berlínarmúrinn yrði rifinn niður. Kvaðst hann vona að viðleitni sandinistastjórnarinn- ar í Nicaragua til að koma á lýðræði væri ekki sýndarmennska ein. kvaðst binda vonir við að endur- bótastefnan tæki einnig til utanrík- isstefnu, sem virti frelsi og sjálfstæði annarra þjóða. Eftir að Reagan flutti ræðu sína var hann spurður hvort ákveðið hefði verið að senda skæruliðum, sem berjast Reagan kvaðst vona að endur- bótastefna Mihails Gorbachevs fæli í sér ferðafrelsi. „Fyrir hönd íbúa Sovétríkjanna skulum við vona að breytingar séu á næsta leiti,“ sagði forsetinn. Hann gagnrýndi veru sovésks herliðs í Afganistan og gegn kommúnistastjóminni í Afg- anistan, vopn til þess að beita Sovétmenn auknum þrýstingi. Kvaðst forsetinn ekki svara slíkum spumingum. Þingmaðurinn Charles Wilson staðfesti í gær fréttir þess efnis að Bandaríkjamenn ætluðu að senda afgönskum skæmliðum sprengju- vörpur og tæki til að fínna jarð- sprengjur. Sagði hann að þessi vopnasending hefði verið lengi í burðarliðnum. < Reagan sagði í ræðu sinni að hann ætlaði að halda fast við geim- vamaáætlunina. Sovéska frétta- v . % Stjórn Nicaragua hefur ákveðið að stjómarandstöðublaðið La Preasa megi koma út að nýju og er undirbúningur þegar hafinn. Hér er verið að flytja pappír til höfuðstöðva blaðsins. La Prensa kemur út án ritskoðunar New York, Managua, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti sagði í gær að hann vonaði að ákvörðun sandinista- stjórnarinnar i Nicaragua um að leyfa dagbiaði stjórnarandstöð- unnar, La Prensa, að koma út á ný væri ekki aðeins sýndar- mennska. Ýmsir bandarískir þingmenn hafa lýst yfir ánægju með ákvörðun stjóraarinnar í Managua og segja að hún beri því vitni að hún vilji framfylgja friðaráætluninni, sem forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja sam- þykktu í siðasta mánuði. Daniel Ortega, forseti Nicaragua, aflétti banninu við útgáfu La Prensa og sagði í yfírlýsingu frá honum, Rodrigo Madrigal, utanríkisráð- herra Costa Rica, og Violate Chamorro, eins eigenda blaðsins, að þegar mætti hefja útgáfu að nýju án ritskoðunar. Stjómarerindrekar sögðu að út- gáfa La Prensa væri mikilvægt skref í átt að því að koma á prent- frelsi og frelsi einstaklingsins í Nicaragua. Þar hafa neyðarlög ver- ið í gildi undanfarin fimm ár. Chamorro sagði að blaðið yrði ekki ritskoðað eins og gert var áður en því var lokað 26. júní árið 1986. Kvað hún vonir standa til að blaðið kæmi út fyrir 1. október. stofan TASS sagði að áætlunin væri enn helsta hindmnin, sem stæði í vegtfyrir frekari takmörkun vígbúnaðar. Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, féllust í meginatrið- um á að uppræta meðaldrægar og skammdrægar flaugar á fundi í Washington fyrir helgi. Sagði TASS að samningur utanríkisráðherranna hefði vakið vonir um að semja mætti um langdrægar flaugar og geimvamaáætlunina. Reagan vildi aftur á móti ekki hverfa frá henni þótt Sovétmenn hefðu lagt til að langdrægum flaugum yrði fækkað um helming ef svo yrði gert. Reagan sagði að ánægja ríkti vegna þess að horfur væm á bætt- um samskiptum austurs og vesturs, einkum Bandaríkjamanna og Sovét- manna. Hann sagði hvom tveggja stefna að takmörkun vígbúnaðar og væri helsta markmiðið að fækka langdrægum flaugum um helming. Háttsettur embættismaður vest- ur-þýsku stjómarinnar, sem vildi láta gæta nafnleyndar, sagði í gær að vestræn ríki ættu ekki að taka neinar mikilvægar ákvarðanir um afvopnunarmál fyrr en forsetakosn- ingar í Bandaríkjunum og Frakk- landi væm afstaðnar. Hann sagði að tillagan, sem Sovétmenn hefðu lagt fram í apríl um hina svokölluðu „tvöföldu núlllausn", hefði komið Atlantshafsbandalaginu í opna skjöldu og slíkt mætti ekki gerast aftur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.