Morgunblaðið - 22.09.1987, Síða 18

Morgunblaðið - 22.09.1987, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 RÁÐSTEFNA um öryggismál sjómanna var haldin s.l. föstu- dag í Borgartúni 6. Að ráðstefnunni stóð Siglingamálastofn- un ríkisins í samvinnu við 17 aðra hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Þetta er í annað skipti á þremur árum sem Siglingamálastofnun stendur fyrir ráðstefnu af þessu tagi. Ráðstefnan var mjög vel sótt og sátu hana á þriðja hundr- að manns. í setningarræðu sinni sagði Magnús Jóhannsson, siglinga- málastjóri, meðal annars að aldrei áður hefðum við tæknilega og þekkingarlega séð verið betur búin til þess að koma í veg fyrir sjó- slys. Samt sem áður blasti nú við sú dapurlega staðreynd að á síðastliðnu ári hefði 21 sjómaður látið lífið við störf á íslenskum skipum og 503 bótaskyld tjón á sjómönnum voru tilkynnt Trygg- ingastofnun ríkisins. Það vekti óneitanlega athygli að á 20 ára tímabili hefði bótaskyldum slysum á íslenskum sjómönnum fjölgað um nær helming. Þessa auknu slysatíðni sagði Magnús ekki verða til þess að bæta stöðu undirstöðuatvinnu- greinanna í samkeppni um vel menntað og þjálfað starfsfólk en það kynni aftur að leiða af sér aukna slysatíðni. Þannig gæti skapast vítahringur sem erfitt gæti reynst að komast út úr. Því væri mikilvægt að leitað væri allra leiða til þess fækka slysum til sjós og lands og snúa þessari þróun við. Eins og nú horfði taldi Magnús að lágmarksmenntun og þjálfun allra þeirra sem ætluðu að stunda sjómannastörf i lengri eða skemmri tíma yrði best tryggð með sérstökum námskeiðum um sjóvinnu þar sem væntanlegum sjómönnum yrðu kennd rétt vinnu- brögð og rækilega kynntar hinar margvíslegu hættur sem fylgdu vinnu og dvöi á skipum. Með þessu móti ynnist tvennt. Til starfa feng- ist hæfari starfskraftar, slysa- hættur yrðu mönnum hugleiknari og slysum myndi fækka. Stofnun sérstaks sjóvinnuskóla sem rekinn yrði með farandnám- skeiðum um allt land t.d. með sérstöku skólaskipi taldi Magnús tvímælalaust verða mikil lyfti- stöng fyrir fiskveiðar og siglingar. Slíkur skóli myndi auka virðingu fyrir þessum störfum, því með því yrði viðurkennt að þau þörfnuðust Ráðstefnugestir hlýða á umræður. undirbúnings eigi síður en önnur störf í þjóðfélaginu og síðast en ekki síst myndi slík ráðstöfun hafa veruleg áhrif til fækkunar slysa á sjó þegar frá liði. hundrað manns. Morgunbiaðið/KGA Morgunblaðið/KGA Á ráðstefnunni um öryggismál sjómanna var fyrst rætt um þær aðgerðir í öryggismálum sjómanna sem hefðu komið til framkvæmda frá því að ráðstefna var haldin um þessi mál í september 1984. Ólafur St. Valdimarsson, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu og Ragn- hildur Hjaltadóttir, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, fjölluðu um ný lög og reglugerðarákvæði. Siguijón Hannesson, fulltrúi hjá Siglingamálastofnun ríkisins, ræddi undanþágur og réttindamál og Haraldur Henrýson, forseti SVFI, fjallaði um slysatíðni og öryggisfræðslu. Næsti dagskrárliður var viðhorf fulltrúa sjómanna og útgerða til öryggismála. Kristján Ingibergs- son, skipstjóri Keflavík, og Óskar Þórhallsson, útgerðarmaður Keflavík, ræddu öryggismál físki- skipa og Gyifí Símonarson, háseti Reykjavík, og Guðmundur Sva- varsson, öryggisfulltrúi, ræddu öryggismál fískiskipa. Loks voru flutt erindi um áhrif fískveiðistjómunar á öryggi og aðbúnað sjómanna. Erindi fluttu þeir Sigurður Gunnarsson, sjó- maður Húsavík, Steinar Viggóson, skipatæknifræðingur, og Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvesráðuneytinu. Frá ráðstefnunni um öryggismál sjómanna en hana sóttu á þriðja Á þríðja hundrað manns á ráðstefnu um öryggismál sjómanna ÍÓKEYPIS Ókeypis upplýsingar um vöru og þjónustu. Það eina sem þú þarft að gera er að lyfta símtólinu, velja númer Gulu línunnar 62 33 88 og spyrja. Hjá starfsfólki Gulu línunnar færð þú vinalega þjónustu og greið svör við spurn- ingum þínum. Einfalt og stórsniðugt - ekki satt! „ÉG ER ÁKVEÐIN i ÞVl AD NOTA TlMANN VEL I VETUR OG SÆKJA NÁM- SKEIÐ TIL AÐ AUÐVELDA MÉR VALfÐ HRINGOI ÉG I GULU LlNUNA OG ÞAR FÉKK ÉG ÞÆR UPPLYSINGAR SEM ÉG ÞURFTI. OG NÚ ER MÍNUM TÓMSTUNOUM RÁÐSTAFAÐ - ÞEIR VITA BÓKSTAFLEGA ALLT MENNIRNIR' Að heiman og úr vinnu þekkjum við vandamál sem tímafrekt virðist að leysa, en Gula línan greiðir úr á augnabliki. Við þurfum að hafa upp á sjónvarpsviðgerðamanni, vélritara eða þýðanda. Ná í iðnaðarmenn, fá upplýsingar um hvar er selt parket, hvar er hægt að kaupa vara- eða aukahluti í bílinn eða leigja smóking. Úr slíkum vandamálum leysir starfsfólk Gulu línunnar. Athugaðu það, þú hringir og færð upplýs - ingamar strax - og það ókeypis. .ÉG HEF FAU STARFSFÓLKI A AÐ SKIPA OG HEF PVl HRINGT I GULU LlNUNA ÞEGAR YFIR FLÝTUR Á SKRIFSTOFUNNI. PEIR HAFA A SKRA LAUSAFOLK I.FREE LANCE') TIL ALLRA SKRIFSTOFUSTARFA. ÞETTA HEFUR LEYST MINN VANDA OG SPARAÐ MER STÓRFÉ. - POTTÞETT ÞJONUSTA- - 62-33‘88 Námsstefna um sálma- fræði NÁMSSTEFNA um sálmafræði verður haldin dagana 27.-29. september nk. Kynntir verða straumar og stefnur í sálmakveð- skap og sálmasöng á Norður- löndum með fyrirlestrum norskra og íslenskra fræði- manna. Námstefnan hefst með sálma- dagskrá í Hallgrímskirkju. Mótettu- kór Hallgrímskirkju og hljóðfæra- leikarar kynna nýja sálma og sálmalög og flytja þá með kirlqu- gestum. Ifyrirlestrar og umræður fara fram í Norræna húsinu 28. og 29. september og stendur dagskráin frá kl. 10.00-18.00 báða dagana. Fyrirlesarar verða Svein Elling- sen sálmaskáld, Trond Kvemo tónskáld og Knud Ödegaard skáld frá Noregi, sr. Sigurjón Guðjónsson, Bjami Sigurðsson dósent, Hörður Áskelsson lektor, Þröstur Eiríksson organisti og sr. Kristján Valur Ing- ólfsson. Námstefnan er einkum ætluð prestum, organistum og guðfræði- nemum, en er opin öllu áhugafólki. Þeir sem standa að námstefnunni eru Háskóli íslands, guðfræðideild og endurmenntunamefnd, Norræna húsið, Prestafélag íslands, sálma- bókamefnd og söngmálastjóm þjóðkirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.