Morgunblaðið - 22.09.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
47
laugard. t9.'sepl
Gómsætir sjávarréttir alla daga!
í veitingasölu Laugardalshallar býöur
Veitingahöllin sýningargestum upp á
glæsilega sjávarréttaveislu gegn vægu
veröi.
Alþjóðlegar
iTFlndustri
TradeFairs
Intematiofi:
SAGA FLATEYJAR
Margt sér á miðjum firði
eftir Bergsvein
Skúlason
Eflaust hefur það ekki farið fram
hjá neinum, sem fylgist eitthvað
með því sem gerist í byggðum
Breiðarfjarðar, að nú er í ráðagerð
hjá þeim sem þar segja fyrir verkum
að láta skrifa sögu verslunarstað-
anna á norðanverðu Snæfellsnes-
inu, þeim hluta þess sem snýr að
Breiðafirði. Munu þegar hafa verið
ráðnir menn til að skrifa sögu Ól-
afsvíkur, Stykkishólms, og ef til
vill fleiri staða, þar sem ein-
hverntíma hefur verið krambúðar-
hola. Er ekkert nema gott um það
að segja.
Verslunarstaðirnir hafa löngum
verið Islendingum hugstæðir, sem
eðlilegt má teljast, svo mikið sem
þeir hafa átt undir því, að erlendur
vamingur flyttist til landsins.
Þegar ég las ráðgerðir Snæfell-
inganna um ritun sinna gömlu
verslunarstaða, varð mér hugsað til
nágrannabyggðanna, einkum eyj-
anna.
Hvað um sögu Flateyjar? Flatey
hefur löngum verið í nánum tengsl-
um við þá staði á Nesinu sem hér
að framan eru nefndir, þótt í öðru
lögsagnarumdæmi sé.
Hefur ráðamönnum þar í sveit
ekki dottið í hug, að sögu hennar
þyrfti að gera einhver skil, og vinda
að því bráðan bug eins og högum
hennar er nú komið?
Flatey er perla Breiðaíjarðareyja
frá skaparans hendi, og hefur verið
höfuðstaður þeirra frá fyrstu tíð.
Hvergi er betra útsýni til allra átta
innan fjarðarins. Og hún á meiri
sögu óritaða í sjóði en aðrar eyjar
á flrðinum.
Þar hefur verið rekinn marg-
þættur blómlegur landbúnaður,
róðrar á árabátum, útgerð í stórum
stíl á skútuöldinni og verslun um
aldir, af erlendum og innlendum
mönnum. Af slíkum athöfnum hafa
ekki aðrar eyjar á fírðinum að státa.
Er þá ógetið hinnar miklu andlegu
starfsemi sem þar átti sér stað á
tímabili.
Saga eyjunnar hlýtur því að vera
heijlandi viðfangsefni fræðimanna.
í þeirri sögu hafa verið djúpar
lægðir og líka lýsandi tindar, eins
og ævinlega gerist í langri sögu.
Og svo vel vill til, að óvenju góð-
ar og traustar heimildir munu vera
til um sögu Flateyjar og eyja sem
henni tengjast, (Hergilsey, Odd-
bjamarsker). Allt frá þeim tíma,
að Þrándur mjóbeinn nemur þar
land á síðari hluta landnámsaldar
til þessa dags, að Hafsteinn bóndi
Guðmundsson býr þar ásamt nokkr-
um sumargestum (farfuglum) sem
eiga þar gömul hús og geta rakið
„Flatey er perla Breiöa-
fjarðareyja frá skapar-
ans hendi, og hefur
verið höfuðstaður
þeirra frá fyrstu tíð.
Hvergi er betra útsýni
til allra átta innan
fjarðarins. Og hún á
meiri sögu óritaða í
sjóði en aðrar eyjar á
firðinum.“
ættir sínar til eyjarinnar — og gorta
af.
Af því tímabili skeður vitanlega
margt. En hæsti tindurinn í sögu
Flateyjar, eins konar lýsandi flóð-
bylgja, er þó ekki langt að baki.
Þá munu hafa átt þar heimili sín
175 manneskjur og útgerð og versl-
un staðið með miklum blóma. En
það mun hafa tekið eyjuna nær
1000 ár að ná þeim þroska. Má því
segja að vöxturinn hafi verið hæg-
ur, og því miður engan veginn
traustur.
„Allt er í heiminum hverfult."
Háflæði fylgir útfall. Þama hefur
það orðið mun örara en aðfallið —
flóðbylgjan — hvað sem veldur. En
háflara verður þar ekki fyrr en
síðasti maðurinn flytur úr eyjunni.
Skyldi þess langt að bíða.
En það er með Flatey, eins og
fleiri gamla verslunarstaði og ver-
stöðvar, að margir hafa lagt leið
sína þangað, jafnvel eftir að ekkert
var að sækja þangað, aðeins til að
virða fyrir sér einstæða náttúrufeg-
urð og hrömandi mannvirki. Sumir
ef til vill gengið í lið með löngu liðn-
um grúskumm, safnað heimildum
um menn og málefni og tekið þar
góðar rispur. Þökk sé þeim fyrir
það. En hvorki verða þeir taldir eða
tíundaðir hér. Það skal látið öðmm
eftir.
En allt þeirra grúsk og ómetan-
legur fróðleikur er í molum og
löngum dreifður hingað og þangað
í rykfollnum bókum og blöðum, sem
lítið láta yfir sér. Hefur ekki legið
á glámbekk, eins og sagt er. Loks
fóm framsýnir menn og þjóðræknir
að safna öllu slíku í söfn, einkum
á handritadeild Landsbókasafnsins.
Hvergi eiga fmmritin betur heima.
Flatey á þar sinn hlut. Nú vantar
bara mann til að vinna úr honum,
á þann hátt að úr verði aðgengileg
saga, þeim sem vilja virða Flatey
viðlits.
Það gerir enginn lúðulaki. Það
gera ekki aðrir en vel menntaðir
sagnfræðingar, einkum þeir sem
kynnt hafa sér byggðasögu — látið
svo lítið. Eflaust em þeir til innan
NÚMERIÐ sést best
þegar dósin er tóm.
Sól gos - meiriháttar gos
Vinningstölurnar 19. september 1987.
Heildarvinningsupphæð: 4.547.571
1. vinningur var kr. 2.278.006,- og skiptist hann á milli 2ja
vinningshafa, kr. 1.139.003,- á mann.
2. vinningur var kr. 682.220,- og skiptist hann á milli 308
vinningshafa, kr. 2.215,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.587.345,- og skiptist á milli 7.383,- vinn-
ingshafa, sem fá 215 krónur hver.
Upplýsinga-
simi:
685111.
þess stóra hóps sem numið hafa
sagnfræði og skyld fög, hér við
háskólann eða annars staðar.
An þess að hafa til þess minnstu
heimild, ætla ég að leyfa mér að
nefna til þess tvo menn.
Annar þeirra er dr. Lúðvík Krist-
jánsson. Honum treysti ég betur til
að skrifa sögu Flateyjar en öðmm
sem ég þekki að hef spumir af.
Hann hefur nú þegar lokið því stór-
virki, sem hann hefur unnið að
undanfarin ár, og nefnir „íslenzka
sjávarhætti". Það verk lofar meist-
arann. Af núlifandi mönnum hefur
enginn lagt meira til sögu Flateyjar
en Lúðvík og raunar allra Breiða-
fjarðarbyggða. Á ég þar einkum
við „Vestlendingana" hans, sem
komu út í þremur bindum á ámnum
1953—1960. Mun og höfundur
nefndra rita allra manna sannfróð-
astur um lífíð í öllum Breiðafirði á
síðustu öldum og áratugum.
En aldur fer nú að færast yfir
þennan mikla afkastamann og ekki
geta Breiðfirðingar ætlast til meira
af honum en orðið er. Og vel geri
ég mér það ljóst, að ekki er það
annað en frekja af mér að benda á
hann til þessa verks sem hér hefur
verið drepið á og bið ég hann afsök-
unar á því.
Annar sagnfræðingur, ættaður
úr Breiðafirði, vel ritfær og fróður
um sína heimahaga, gæti vel komið
til álita að vinna þetta verk. Lýður
heitir hann Björnsson. Hann hefur
þégar skrifað nokkrar greinar er
snerta breiðfirska sögu í Ársrit
Sögufélags ísfirðinga og ef til vill
víðar. Hann er maður á besta aldri
og mun þola talsvert álag, eins og
frændur hans ágætir sem ég þekkti
fyrir mörgum ámm. Lýður mun nú
stunda unglingakennslu hér í borg-
inni, en til þess mun varla þurfa
háskólapróf í sagnfræði. Það mundi
vera vel séð af mörgum, að hann
hætti nú kennslunni, að henni ólast-
aðri, og sneri sér að því að semja
sögu Flateyjar, ef honum byðist
það.
Að Lúðvík frágengnum, veit ég
ekki af öðmm til þess færari.
Höfundur er rithöfundur.
Sigurður Örlygsson við tvö verka
Sigurður sýnir
í Svörtu á hvítu
SÝNING á verkum Sigurðar Ör-
lygssonar opnar í Gallerii svörtu
á hvítu í dag, þriðjudaginn 22.
september. A sýningunni eru 12
verk, unnin í akrýl og olíu.
Þetta er 14. einkasýning Sigurð-
ar. Hann stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, við
Konunglegu Akademíuna í Kaup-
mannahöfn og framhaldsnám í New
York. Sigurður hlaut starfslaun
listamanna í ár og á sýningunni
getur að líta afrakstur þeirra.
Sýningin stendur til 11. október.
Hún er opin alla daga nema mánu-
daga, frá klukkan 14 til 18.
Q/mo.
Laugardalshöll
19.-23. september
Tæplega 450 útlensk fyrirtæki ásamt 125 íslenskum aöil-
um kynna vörur sínar og þjónustu fyrir sjávarútveg um
víöa veröld. Með tveimur nýreistum sýningarskálum og
stóru útisvæði er sýningarsvæðið alls yfir 10.000 m2 -
langtum stærra en við eigum að venjast hér á landi enda
um að ræða eina allra stærstu sýningu sinnar tegundar í
heiminum. Allt það nýjasta í heimi sjávarútvegsins er
kynnt og þúsundir erlendra gesta koma hingað til lands
til þess að sjá sýninguna og fylgjast með á sinu sviði.
Islenska sjávarútvegssýningin á erindi til allra lands-
manna og enginn „í faginu“ má láta þennan heimsvið-
burð fara framhjá sér.
Opið alla
Afslátturá innanlandsflugi
A meðan íslenska sjávarútvegssýningin
stendur yfir bjóða Flugleiðir sérstakan af-
slátt a innanlandsflugi fyrir syningargesti
utan af landi.
FLUGLEIDIR