Morgunblaðið - 22.09.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
57
Jackie Onassis verður amma
Caröline Kennedy, dóttir
Jackiear Onassis og Johns
F. Kennedys, á von á fyrsta bami
sínu núna í nóvember, en það verð-
ur jafnframt fyrsta bamabam
Jackiear. Caroline verður þrítug
þann 27. nóvember, en hún giftist
hinum 43 ára gamla Ed Schloss-
berg snemma í fyrra.
Jackie hefur lengi verið í nöp
við Ed, einkum vegna þess að
henni fannst illt að geta ekki
ráðskast eins mikið með dóttur
sína og áður. Hún átti það til að
heimsækja þau hjónin á heimili
þeirra á Manhattan í New York
án þess að gera boð á undan sér,
og gefa „góð ráð“ varðandi inn-
réttingar og húsgögn. Caroline
átti erfitt með að skella skollaeyr-
um við tillögum móður sinnar,
enda hefur Jackie alltaf vanist því
að henni sé hlýtt, og að enginn
dirfist að malda í móinn. Ed brást
hins vegar hinn versti við þessum
sífelldu innrásum tengdamóður
sinnar, og var farinn að strunsa
út úr íbúðinni um leið og Jackie
steig inn fyrir þröskuldinn.
Hið væntanlega ömmubam
Jackiear hefur þó orðið til þess
að hún hefur reynt að bæta sam-
komulagið við tengdasoninn. Þá
virðist hún vera farin að skilja að
þau hjónin Caroline og Ed séu
ekkert allt of hrifín af ráðríki
hennar, og er dálítil saga sögð af
því hvemig augu hennar opnuðust
skjmdilega fyrir þessu. Þannig
var, að einhvem daginn þegar Ed
var ofboðið, strunsaði hann yfír í
hina 16 herbergja lúxusíbúð
Jackiear - sem er rétt hjá heimili
Carolinu og Eds - og hóf að gagn-
rýna litaval hennar og húsgagna-
kaup. Jackie - sem telur sig hafa
betri smekk en flesta aðra, og
eyddi ofijár í að innrétta íbúðina
- varð þetta litla vond, en síðan
Caroline Kennedy og eiginmaður hennar, Ed Schlossberg. Þau eiga
von á bami í nóvember.
rann upp fyrir henni að það var ur hún haldið sér á mottunni hvað
verið að hæðast að henni, og hef- „góðum ráðum" viðvíkur eftir það.
Leikur
Goldie
Hawn
Mónakó-
prin-
sessu?
Gamanleikkonan Goldie Hawn
verður aðalstjaman í nýrri
kvikmynd, þar setn hún leikur of-
dekraða prinsessu í myndinni
„Overboard", eða „Útbyrðis", sem
frumsýna á í Bandaríkjunum
seinna á árinu. Að þvf að menn
vita best, þá er söguþráður mynd-
arinnar eitthvað á þá leið að
prinsessa fellur útbyrðis af lysti-
snekkju, og hittir draumaprinsinn
sinn á svamli í miðju Miðjarðar-
hafínu, og upp frá því tekur líf
hennar nýja stefnu, og ótrúlegustu
hlutir fara að gerast. Mótleikari
Goldiear er eiginmaður hennar,
Kurt Russel.
Sá orðrómur hefur komist á
kreik að fyrirmyndimar að þessu
hlutverki Goldiear séu þær Móna-
kóprinsessur, Karólína og Stef-
anía, enda hafa þær lifað litríku
lífí, eins og allir dyggir lesendur
slúðursagna vita. Goldie hefur hins
vegar borið þennan orðróm til
baka, og segir að í myndinni sé
ekki vegið að neinum, og telji
menn sig þekkja persónur úr raun-
veruleikanum á tjaldinu, geri
menn það á eigin ábyrgð. „Þar
að auki“ segir Goldie, „sýnir
myndin að jafnvel uppskrúfuð
merkikerti geta sýnt á sér elsku-
legar hliðar, ef duttlungar örlag-
anna grípa í taumana, svo sem
við það að falla útbyrðis af
snekkju."
GRÍPTU
100.000 krpnur
Sól gos - meiriháttar gos
rGEGN SlAÐGRElÐSLUn
FLUCLEIDIR
Kaupum og seljum hlutabréf Flugleiða gegn
staðgreiðslu. Kaupverð nú er kr. 1.840,- fyrir hverjar
1.000,- kr. nafnverðs.
Sími Hlulabréfamarkaóurinn hf.
21677 Skólavörðustíg 12, 3.h., 101 Reykjavík.
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SIMI 651000.
Bjart skrifborðsljós,
heima og á vinnustað:
DULUX'TABLE
Fæst i öllum helstu raftækjaverslunum og
kaupfélögum. Heildsölubirgöir:
jOhann OLAFSSON & CO. HF.
43 Sundaborg 13 - 104 Reykjavík - Sími 688 388
— Fallegur skrifborðslampi
með sparnaðarperunni
DULUX S 11W; sem jafn-
gildir birtu 75W glóperu.
— Hreyfanlegur í allar
stellingar.
— Litir: svartur, hvitur.
OSRAM
Ijóslifandi
orkusparnaður