Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
221. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 1. OKTOBER 1987
PrentsmiðjaMorgnnblaðsins
AP
Gullfótur tek-
inn upp á ný?
Washington, Reuter.
Bandaríkjastjórn er reiðbúin til að miða gengi Bandaríkjadollars
og annarra helstu gjaldmiðla við verð á ýmsum nauðsynjavörum og
góðmálmum, þar á meðal gulli. James Baker, fjármálaráðherra
Bandarikjanna, skýrði frá þessu í gær á árlegum fundi Alþjóða gjald-
eyrissjóðsins og Alþjóðabankans, sem nú stendur yfir í Washington.
Bandaríkjamenn hættu að miða
gengi dollars við gullverð í forseta-
tíð Richards M. Nixon árið 1971.
Baker telur að á þennan hátt verði
unnt að treysta stöðu Bandaríkja-
dollars og halda verðbólgu í
lágmarki í helstu iðnríkjum heims.
Sagði hann að með því að binda
gengi helstu gjaldmiðla við verð á
ýmsum nauðsynjavörum svo sem
hveiti og maís yrði unnt að sjá fyr-
ir hugsanlegar verðsveiflur í
heiminum. Taldi hann þetta fyrir-
komulag geta treyst samkomulag
George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, (fyrir miðju) ræddi i gær við vestur-þýska ráðamenn. Myndin
var tekin er Bush og eiginkona hans, Marianne, (til vinstri) sóttu Richard von Weizsácker, forseta
Vestur-Þýskalands, og eiginkonu hans heim í forsetabústaðinn í Bonn.
Afvopnunarviðræður risaveldanna:
Fullt samráð verður haft
við ríki Vestur-Evrópu
segir George Bush varaforseti Bandaríkjanna
Bonn, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, sagði i Bonn í gær að
hugsanlegt afvopnunarsamkomulag risaveidanna myndi ekki verða
til þess að Bandaríkjamenn gengju á bak skuldbindingum sínum
um að koma Vestur-Evrópu til vamar á átakatímum. Bush sækir
nú heim ráðamenn í Evrópu og ræddi hann í gær við vestur-þýska
embættismenn og Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands.
Bush er nýkominn frá Póllandi
og mun hann skýra leiðtogum Vest-
ur-Evrópuríkja frá viðræðum sínum
við ráðamenn þar og greina frá
gangi afvopnunarviðræðna risa-
veldanna.
„Að mínu viti er engin hætta á
því að Bandaríkjamenn víki sér
undan þeim skuldbindingum sem
þeir hafa tekið á sig á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins og noti
afvopnunarsamkomulag sem yfir-
varp,“ sagði Bush er hann hitti
Helmut Kohi, kanslara Vestur-
Þýskalands, að máli. Sagði Bush
einnig að Bandaríkjastjóm myndi
hafa samráð við bandamenn sína í
Evrópu um frekari viðræður risa-
veldanna. Ýmsir ráðamenn í ríkjum
Vestur-Evrópu hafa lýst yfir
áhyggjum sínum sökum þessa en
þegar liggur fyrir bráðabirgðasam-
komulag um upprætingu meðal- og
skammdrægra kjamorkuflauga á
landi.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur sagt að semji
risaveldin jafnframt um upprætingu
skammdrægra kjamorkuvopna,
sem beita má á vígvöllum, verði
ríki Vestur-Evrópu ofurseld yfir-
burðum Sovétmanna á sviði hefð-
bundins vfgbúnaðar.
Embætti f ramkvæmdastj óra NATO:
Manfred Wörner sagð-
ur eiga sigurinn vísan
. Bonn, Osló, Reuter.
ÖRUGGT má heita að Manfred Wörner, varnarmálaráðherra Vest-
ur-Þýskalands, verði næsti framkvæmdasljóri Atlantshafsbanda-
lagsins. Ónafngreindir heimildarmenn í Bonn í Vestur-Þýskalandi
sögðu í gær að Bandaríkjastjórn hefði heitið Wörner stuðningi.
Káre Willoch, fyrrum forsætisráðherra Noregs, hefur einnig boðið
sig fram til starfans og sagði talsmaður norska utanríkisráðuneytis-
ins að „óstaðfestur orðrómu11 breytti engu um framboð Willochs.
Vestur-þýska dagblaðið Die Welt
skýrði frá því í gær að Kjell Elias-
sen, sendiherra Noregs í Washing-
ton, hefði verið kallaður á fund með
embættismönnum í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu og hefði honum
verið tjáð að Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, legði áherslu á
að Wörner fengi starfið. Munu emb-
ættismennimir hafa tjáð Eliassen
að þeir teldu Willoch mjög hæfan
mann en komin væri upp „erfið
staða" sökum framboðs Wörners.
Heimildarmenn Reufers-frétta-
stofunnar sögðu að áhrifamestu
ríkin innan Atlantshafsbandalags-
ins, Bandaríkin, Bretland, Frakk-
land, Ítalía og Vestur-Þýskaland,
hefðu afráðið að veita Wömer braut-
argengi. Þar með væri tryggt að
hann yrði kjörinn og væri líklegt að
Willoch drægi framboð sitt til baka.
Carrington lávarður, núverandi
framkvæmdastjóri, hefur lýst yfir
því að hann muni ekki bjóða sig fram
að nýju og lætur hann af störfum á
næsta ári.
Talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins vísaði fréttum þessum á
bug og sagði þær vera „óstaðfestan
orðróm". „Okkur hefur ekki borist
þetta til eyma og framboð Willochs
stendur óhaggað," sagði talsmaður-
inn. Káre Willoch vildi ekki tjá sig
um málið að öðru leyti en því að
hann væri enn frambjóðandi norsku
ríkisstjórnarinnar. Vitað er að mörg
smærri ríki Atlantshafsbandalagsins
styðja Willoch og hafa íslensk stjórn-
völd lýst yfir stuðningi við framboð
hans.
Flóðí
Suður-Afríku
Tugir manna hafa látið lífíð í
gífurlegum flóðum, sem dunið
hafa yfír undanfama daga í
Natal-héraði í Suður-Afríku.
Myndin var tekin í gær er
vatnselgurinn flæddi yfír
kirkjugarð í Lamontville, sem
er úthverfí borgarinnar Dur-
ban.
helstu iðnríkja heims um leiðir til
að koma á stöðugleika í gjaldeyris-
málum.
Að sögn efnahagsmálasérfræð-
inga er hugmyndin sú að fylgst
verði gaumgæfilega með verðbreyt-
ingum á viðmiðunarvörum og
góðmálmum svo sem gulli, kopar
og tini. Hækki verðið á þessum
vörum geti iðnríkin brugðist við
með því að takmarka peningamagn
í umferð. Ef verðið á hinn bóginn
lækkar geta stjómvöld brugðist við
í tæka tíð og veitt fjármagni út í
atvinnulífíð. Sagði Baker Banda-
ríkjastjóm því leggja til að helstu
iðnríki heims íhuguðu að taka vísi-
tölu þessa upp sem tæki til að
greina verðsveiflur.
Þessi yfírlýsing Bakers kom mjög
á óvart. Þegar hann hafði lokið
ræðu sinni gekk hann af fundi líkt
og hann gerði á sams konar fundi
í Seoul fyrir tveimur árum er hann
kynnti hugmyndir sínar um lausn
skuldavanda þróunarríkja.
Noregur:
Lítil veiði
oglágtverð
fyrirsfldina
Sildveiðarnar fyrir Norður-
Noregi hafa farið illa af stað og
auk þess er síldin bæði smá og
mjög blönduð. Ekki bætir heldur
úr skák, að verðið, sem fæst fyrir
síldina á mörkuðunum i Austur-
Evrópu, er lágt og þess vegna
halda flestir framleiðendur enn
að sér höndunum. Kemur þetta
fram í Fiskaren, norsku blaði um
sjávarútvegsmál.
Verðið til útgerðarinnar er nú um
12,80 ísl. kr. fyrir kg af fyrsta flokks
síld, um 9 kr. fyrir annars flokks
síld og 6,70 kr. fyrir þriðja flokks
síld. Fer mest af saltsíldinni á mark-
að í Austur-Evrópu en þar er verðið
mjög lágt um þessar mundir.
Teije Överskottnes, sem fer með
málefni síldariðnaðarins í samtökum
norskra flskiðnaðarfyrirtækja, segir,
að „ormaskelfingin“ í Vestur-Þýska-
landi hafí haft alvarlegar afleiðingar
fyrir síldariðnaðinn. „Botninn er
dottinn úr vestur-þýska markaðnum
og nú er aðeins eftir útflutningurinn
til Austur-Evrópu.
Norski sfldariðnaðurinn hefur
bundið nokkrar vonir við Japans-
markaðinn en mikil óvissa er um
þróunina þar. Överskottnes sagði þó
ljóst, að Japanir vildu ekki borga
það sama að raunvirði og þeir gerðu
í fyrra og kvaðst hann vita, að ís-
lendingar fengju þar nú sama verð
fyrir síidina og þeir fengu í fyrra
og hitteðfyra.