Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 Opið bréf til Þing- vallanefndar j — fráÞorleifi Einarssyni Til Þingvallanefndar. Hinn 4. september barst mér í pósti bæklingur eða greinargerð, sem nefnist Þingvellir með undir- titlinum Þjóðgarðurinn og umhverfi. Greinargerð þessi er samin í samræmi við vilja og óskir hinnar þingkjömu Þingva^anefnd- ar, en í henni sitja Þórarinn Sigur- jónsson fyrrverandi alþingismaður, formaður, Hjörleifur Guttormsson alþingismaður og Þorsteinn Pálsson alþingismaður og núverandi forsæt- isráðherra. Um miðjan maí 1985 samþykkti Þingvallanefnd í skjmd- ingu að ráða tvo landslagsarkitekta, þá Einar E. Sæmundsen og Reyni Vilhjálmsson, til að gera skipulags- tillögu um þjóðgarðinn á Þingvöll- um og umhverfí og tæki hún til nýtingar þjóðgarðsins og þeirrar starfsemi sem þar á að fara fram. Þjóðgarðsvörðurinn og sóknar- presturinn, sr. Heimir Steinsson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri Þingvallanefndar, mun hafa verið arkitektunum mjög innan handar í öllu starfi þeirra. Ástæðan fyrir því að Þingvalla- nefnd vaknaði svo skyndilega af værum blundi var sú, að hinn 18. maí 1985 hafði Landvemd boðað til ráðstefnu um Þingvelli — framtíð og friðun — í Valhöll. Mér fannst nefndarmenn óþarflega fljótir til, HOLME GAARÐ OFCOPENHAGEN glerskurðarsýning Kurt Larsen glerskurðarmaður Jrá HOLMEGAARD. Danski glerskurðarmaðurinn Kurt Larsen sýnir glerskurð í verslun okkar dagana 1. til 4. október n.k. Viðskiptavinum okkar gefst kostur á að láta grafa í gler frá HOLMEGÁARD. Þetta er jafnframt sölusýning á þeim verkum sem Kurt grefur í á staðnum. Missið ekki af þessum einstœða listviðburði. Sýningar Kurts verða á eftirtöldum tímum: Fimmtudagur 1. október kl. 9—12 og 14—16 Föstudagur 2. október kl. 9—12 og 14—16 Laugardagur 3. október kl.10—12 og 13—16 Sunnudagur 4. október kl. 13—16 KÚNÍGÚND SÉRVERSLUN MEÐ GJAFAVÖRUR Skólavörðustíg 6 Sími 13469 „ Astæðan fyrir þessum skrifum mínum er ein- faldlega sú, að Þing- vellir eru ímínum huga og líklega íslendinga allra, helgasti staður á Islandi. Þar renna sam- an í eitt saga þjóðar og menningar svo og sér- stæð náttúrufegurð.“ vart hefði skaðað, þótt þeir hefðu beðið nokkra daga og hlýtt á erind- in á ráðstefnunni og stuðst við það, sem þar kom fram, og metið hvort þar kæmi eitthvað gagnlegt fram. Ræðumenn eru allir fróðir um Þing- velli. Má nefna að forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir hélt ávarp, en erindi fluttu Sigurður Steinþórs- son jarðfræðingur, Pétur M. Jónasson líffræðingur, Guðmundur Ólafsson fomleifafræðingur, Eyþór Einarsson grasafræðingur, Finnur Torfi Hjörleifsson lögfræðingur, sr. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður og Matthías Jóhannessen ritstjóri. Á ráðstefnu þessari komu fram ýmsar gagnlegar upplýsingar og ábendingar þótt fjölmiðlar, nema Morgunblaðið, segðu lítt frá ráð- stefnunni, svo að niðurstöður ráðstefnunnar fóm að nokkru leyti fram hjá almenningi. Tillögur í greinargerð landslags- arkitektanna um Þingvelli em um margt athyglisverðar, sumar mjög jákvæðar, aðrar vafasamar og margar að mínu viti ótækar. Verst af öllu er að tími til að gera athuga- semdir er ótrúlega stuttur, en þeim skal skila til framkvæmdastjóra nefndarinnar fyrir 1. október, rúm- um þrem vikum eftir að greinar- gerðin var send út. Þessi frestur er allt of stuttur þegar um svo mikilvægt mál er að ræða sem framtíðarskipulag helgistaðar þjóð- arinnar. Við þetta bætist að erfitt var að fá nánari upplýsingar um málsatvik og tillögur þar sem þjóð- garðsvörður dvaldist meginhluta þessa stutta tíma í Bandaríkjunum ásamt arkitektunum tveim, til að kynna sér rekstur og starfsemi þjóðgarða. Það er skrítin uppákoma, að þeir skyldu fara í þessa langferð eftir að greinargerðin var send út. Venjulegra er að menn afli sér vitn- eskju um málefnin fyrir fram en ekki eftir á. En svona starfar nú Þingvallanefnd, sbr. það sem áður sagði um ákvörðun um gerð grein- argerðarinnar um Þingvelli nokkr- um dögum áður en ráðstefna Landvemdar fór fram. Af framan- sögðu tel ég nauðsynlegt að Þingvallanefnd framlengi skilafrest athugasemda við greinargerðina verulega, svo að t.d. alþingismenn, sem bera samkvæmt lögum ábyrgð á vemd Þingvalla og starfsemi þar, geti komið sínum skoðunum á fram- færi. Einnig tel ég æskilegt að Náttúmvemdarþing, sem verður haldið seint í október, fái að fjalla um þetta mál svo og fulltrúar á aðalfundum Landvemdar og Sam- bands íslenskra náttúruvemdarfé- laga, en bæði þessi samtök halda fundi seinna í haust. Ástæðan fyrir þessum skrifum mínum er einfaldlega sú, að Þing- vellir em í mínum huga og líklega Islendinga allra, helgasti staður á íslandi. Þar renna saman í eitt saga þjóðar og menningar svo og sérstæð náttúmfegurð. Þangað sækja því hundmð þúsunda manna ár hvert til að baða sig í ljósi sögunnar og njóta náttúmfegurðar. Að auki em Þingvellir Mekka allra jarðvísinda- manna heimsins, staðurinn þar sem unnt er að sjá hvemig ný jarð- skorpa verður til á plötuskilunum milli Ameríku og Evrópu. Ég treysti mér alls ekki nú eftir stuttarlegan lestur greinargerðar- innar til að gera þær athugasemdir sem fram þurfa að koma, til þess þarf ég meiri tíma. En mér sýnist, að eitt af einkennum þessarar greinargerðar sé m.a. að takmarka umgang almennings um Þingvelli sjálfa. Þeir sem koma til Þingvalla virðast eiga að hanga á berangri vestan Almanngjár og austan Hrafnagjár. Aðstaða fyrir almenn- ing er ætlað að vera minnst í 2—4 km fjarlægð frá Þingvöllum sjálf- um, hvort sem um er að ræða tjaldstæði, veitingahús eða aðra starfsemi. Til að njóta Þingvalla sjálfra þarf því að fara gangandi, fram og til baka, a.m.k. 4—8 km. Þetta er í góðu veðri svo sem ætl- andi frísku fólki en í illviðrum aðeins hörkufólki, hörðum göngu- mönnum eða skokkurum. Á hinum eiginlegu Þingvöllum yrði aðeins prestsetrið og svo monthöll fyrir Alþingi og kirkju. Mér sýnist að greinargerðin Þingvellir — þjóðgarðurinn og um- hverfi — sé um margt svo meingöll- uð að ekki komi til mála annað en hún verði endurskoðuð rækilega. Við endurskoðun skal haft í huga að Þingvellir verði aðgengilegri al- menningi en nú er. Þetta er helgi- staður allrar þjóðarinnar. Um þetta svæði þarf því að auðvelda fólki ferð og dvöl en ekki hindra. Ekki er tími eða rúm til að gera nánarí athugasemdir, en vonandi vinnst tími til þess síðar. Það er skylda Þingvallanefndar að sýna almenningi gögn og tillög- ur, svo sem ber samkvæmt skipu- lagslögum, svo að unnt sé að fá nánari skýringar á tillögum hennar og starfsfólks hennar svo og nánari útlistun á texta og kortum í greinar- gerðinni en kortin eru ærið erfið aflestrar vegna of mikillar smækk- unar. Að lokum fer ég hér með fram á það við Þingvallanefnd að skila- frestur á athugasemdum við grein- argerðina verði lengdur til sumardagsins fyrsta 1988 svo að góður tími gefist til að huga nánar að skipulagi Þingvalla og nágrenn- is. Með vinsemd og virðingu. Höfundur erjarðfræðingur. Guðný S. Þorleifsdóttir og Gerður Steinarsdóttir, hinir nýju eig- endur blómaverslunarinnar „Stör“ f Domus Medica. Eigendaskiptiá blómaverslun NÝIR eigendur hafa tekið við leifsdóttir. rekstri blómaverslunarinnar f Verslunin hefur á boðstólum Domus Medica og hefur versl- gjafavörur og allar hefðbundnar unin fengið nýtt nafn, „Stör“. blómaskreytingar. Versiunin Hinir nýju eigendur eru Gerður verður opin alla daga vikunnar frá Steinarsdóttir og Guðný S. Þor- kl. 10.00-21.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.