Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 7f KNATTSPYRNA / 1. DEILD lan Ross þjálfar KR! „ÞAÐ var erfið ákvörðun að hætta hjá Val, en þetta er rétti tíminn til að breyta til og ég er mjög ánægður með að taka við KR-liðinu. Mér hefur líkað mjög vel hjá Val, liðið hefur staðið sig vel, en nú er það KR og ég mun gera það sem ég get til að liðinu gangi sem best. Ég kom sem vinur til Vals og ég kveð sem vinur,“ sagði lan Ross við Morgunblaðið seint í gær- kvöldi, þegar hann gekk frá tveggja ára samningi við KR. Ross hefur þjálfað 1. deildarlið Vals undanfarin fjögur ár og árangur liðsins undir hans stjórn hefur verið frábær. En hvers vegna að breyta til? „Þar sem áhugamenn eru annars vegar er oft sagt að þjálfarar eigi ekki að vera of lengi hjá sama liði — jafn- vel þó vel gangi. Ég fékk tilboð frá nokkrum félögum, en að vel athuguðu máli ákvað ég að fara nú til KR. Ég held að það sé mér fyrir bestu og ekki síður Val,“ svaraði Ross. „Ég vildi fara til KR vegna þess að KR er KR og það er kraftur í félaginu. Liðið hefur verið efni- legt lengi, miklar vonir hafa verið bundnar við það og tími er kom- inn til að fara á toppinn. Ég mun Morgunblaöiö/Þorkell lan Ross til hægri ásamt Gunnari Guðmundssyni, formanni knattspymu- deildar KR, í gærkvöldi. reyna að gera það sem ég get til þess.“ „Við gátum ekki fengið betri þjálfara. Þetta eru okkar fyrstu þijú stig og ekki þau síðustu," sagði Gunnar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar KR. Ross fer til fjöiskyldu sinnar 4 Englandi snemma í dag, en kemur aftur eftir hálfan mánuð til að ræða við leikmenn KR, sem nú eru flestir í fríi á Spáni. „Við verð- um að byija undirbúninginn saman og stilla strengina. Að- stæður gerast ekki betri en hjá KR og ég vil að ailir hafi gaman af því sem þeir koma til með að gera milli klukkan sex og átta næsta ár,“ sagði Ian Ross. KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA BEVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Eitt góðra færa MorgunblaÖið/Bjarni Valsmenn fengu mörg góð tækifæri til að skora í leiknum i gærkvöldi. Hér er eitt þeirra: Siguijón Kristjánsson fékk sendingu inn í teiginn frá Jóni Grétari en var aðeins of seinn og markvörðurinn náði að komast fyrir knöttinn á undan honum og bægja hættunni frá. Vafasamt vrti réð úrslitum Valsmenn 10 mínútum frá því að komast í 2. umferð VALSMENN voru í gærkvöldi slegnir út í Evrópukeppni fé- lagsliða í knattspyrnu á Laugardalsvelli. Mjög vafa- samur vítaspyrnudómur undir lok leiksins varð þess vald- andi. Valur náði forystu í leiknum á 10. mínútu en Wism- ut Aue jafnaði úr vítaspyrnu þegar 10 mínútur voru til leiks- loka og heldur því áfram í keppninni þar sem fyrri leik lið- anna lauk með markalausu jafntefli. Vítaspyrnudómurinn í lokin var mjög umdeildur. Aðdragand- inn var sá að Guðmundur Baldurs- son, markvörður, átti mislukkað útspark, Austur- Valur Þjóðveijar sendu Jónatansson boltann aftur inn í skrifar vítateig Vals og þar var Sævar Jónsson fyrri til að boltanum í kapphlaupi við einn leikmann Wismut Aue sem lét sig síðan falla í vítateignum. Dómarinn dæmdi umsvifalaust víta- spymu sem hefði í versta falli átt að vera óbein aukaspyrna. „Maður trúir þessu varla enn. Þetta var ekkert víti. Hann lét sig detta. Dómarinn var í engri aðstöðu til að sjá þetta og hefði því átt að ráðfæra sig við línuvörðinn, sem var í betri aðstöðu, áður en hann dæmdi vítaspyrnuna," sagði Sævar Jónsson eftir leikinn. Valsmenn geta verið ánægðir með allt nema úrslitin. Þeir léku mjög skynsamlega og yfirvegað. Fyrri hálfleikur var algjörlega eign Vals- manna og áttu Austur-Þjóðveijar þá ekkert svar við leik þeirra. í seinni hálfleik bökkuðu Valsmenn og gáfu eftir miðjuna og freistuðu þess að taka þá aftarlega og reyna að haida boltanum og ná skyndi- sóknum. Þetta leikkerfi gekk vel upp en dugði ekki til, dómarinn sá fýrir því. Valsmenn fengu óskabyijun í leikn- iim er Jón Grétar JÓhsson sköráði gott mark eftir aðeins 10 mínútna leik. Hann fékk þá sendingu frá Siguijóni Kristjánssyni inn að markteig, sneri sér við og skoraði framhjá Wessflog, markverði. Þetta mark virkaði eins og köld vatns- gusa framan í leikmenn Aue en Valsmenn léku á als oddi. Bæði Sævar og Siguijón fengu góð mark- tækifæri í fyrri hálfleik sem Weissflog, markvörður, varð að hafa sig allan við að veija í horn. Lið Vals lék mjög vel í þessum leik og á hrós skilið fyrir hetjulega bar- áttu. Sævar og Guðni voru sterkir í vöminni að vanda. Hilmar og Ingv- ar börðust vel á miðjunni og Siguijón og Jón Grétar voru mjög ógnandi frammi. Ekki reyndi mikið á Guðmund Baldursson, markvörð, en hann greip vel inn í þegar á þurfti að halda. Dómari leiksins dæmdi vel ef frá er talin vítaspyman. Gremjulegt að það hafi ráðið úrslitum í þessum annars 'fjöriig* leik. Akumes- ingar em úrleik Framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit SÆNSKA liðið Kalmar FF sigr- aði ÍA með einu marki gegn engu í seinni leik liðanna í Evr- ópukeppni bikarhafa sem fram fór í Sviþjóð í gærkvöldi. Fram- lengja þurfti leikinn því hvor- ugu liðinu tókst að skora fyrstu 90 mínúturnar. Svíar skorðu síðan sigurmarkið í fyrri hálf- leik framlengingarinnar sem tryggði þeim áframhaldandi veru í keppninni. Svíar voru meira með knöttinn í leiknum og sóttu meira. Skagamenn spiluðu vamarleik, reyndu að halda boltanum og byggðu á skyndisóknum sem vom oft hættulegar. Vömin var sterk með Sigurð Láms- son og Heimi Guðmundsson sem bestu menn. Birkir Kristinsson var öryggið uppmálað í markinu. Hann varði mjög vel allan leikinn. Svíar reyndu mikið fyrirgjafir sem Birkir átti auðvelt með að taka. Ólafur Þórðarson og Sveinbjöm börðust einnig vel á miðjunni. „Þetta var sanngjam sigur en það var þó svekkjandi að fá markið á þessum tíma því það var farið af fara um Svíana. Það er aldrei að vita hvað hefði skeð ef það hefði þurft að grípa til vítaspymu- keppni,“ sagði Hörður Jóhannesson, fararstjóri IA, í samtali við Morgun- blaðið eftir leikinn. Ahorfendur vom 1.062. Hvað sögðu þeir? lan Ross, þjálfari „Ég er ánægður með leikinn en ekki úrslitin. Strákamir börðust vel og léku skynsamlega og áttu mörg góð marktækifæri. Það var leiðin- legt að þurfa að tapa eftir að hafa haldið þetta út í 80 mínútur." Sigurjón Kristjánsson „Sárt að tapa þessu eftir að hafa verið ofaná. Leikurinn var góður og skynsamlega leikinn. Við bökk- uðum kanski full mikið í seinni hálfleik. Vítið var algjör gjöf.“ Guðni Bergsson „Það er svekkjandi að tapa þessu eftir að hafa haldið þessu svona lengi. Ég gat ekki betur séð en að þetta hafi verið leikaraskapur hjá Þjóðveijanum að láta sig falla í víta- teignum. Þeir vom að missa móðinn þegar þeir fengu vítið.“ Ingvar Guðmundsson „Sorglegt að tapa þessu svona á síðustu mínútum. Við áttum mörg hættuleg færi. Vitið var alveg út í hött. Dómarinn var ekki í aðstöðu til að sjá þetta svo vel að hann gæti dæmt víti.“ Valur-Wismut 1 : 1 Laugardalsvöllur, Evrópukeppni fé- lagsliða, miðvikudaginn 30. september 1987. Mark Vals: Jón Grétar Jónsson (10. mín.) Mark Wismut Aue: Matthias Wiss (Víti, 80. min.) Gult spjald: Matthias Weiss (39.) og Volker Schmidt (87.). Áhorfendur: 1848. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Guðni Bergsson, Sævar Jónsson, Þorgrímur Þráinsson, Valur Valsson, Hilmar Sighvatsson, Ingvar Guð- mundsson, Njáll Eiðsson (Ámundi Sigmundsson vm. á 86. mín.), Magni Blöndal Pétursson, Siguijón Kristjáns- son og Jón Grétar Jónsson. Lið Wismut Aue: Weissflog, Balck, Konik, Kruss, Mothes, Weiss, Bittner, (Schmidt vm. á 6. mín.), Jacob, Kö- hler, Becker (Einsiedel vm. á 33. mín.). Hilmar Sighvatsson „Ég er gráti næst. Vítið var algjör jólagjöf. Leikurinn var góður og við reyndum að halda boltanum og náðum að skapa okkur góð færi^ Við vorum óheppnir að skora ekki nema eitt mark.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.