Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1 OKTÓBER 1987 ALlT ÁHREINU MEÐ ®TDK Þessir fjórir afoxarar, selen, E og C vítamín og /3-karótín (for- veri A vítamíns) eyða óæskileg- um sindurefnum í fæðu og sígarettureyk og eru álitin góð krabbameinsvörn. Margir nær- ingarfræðingar telja þetta heppilegustu bætiefnasam- setningu á markaðinum í dag. Gerið verðsamanburð. Jt/k TÓRÓ HF Síöumúla 32. 108 Reykjavík. o 686964 AFMÆLISHÁTÍÐ í HÁSKÓLABÍÓI laugard. 3. okt. kl. 14:00 a) Pjetur Þ. Maack, formaður SÁÁ, flytur stutt yfirlit um sögu SÁÁ. b) Jón Baidvin Hannibalsson, ljármálaráðherra, flytur ræðu. c) Ávarp landlæknis, Ólafs Ólafssonar. d) Egill Ólafsson og félagar flytja tónlist. e) Flosi Ólafsson flytur SÁÁ kveðju sína. f) Bjami Arason þenur látúnsbarkann g) Magnús Pétursson flytur ræðu. h) Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur við undirleik Jóns Stefnánss. i) Sigurður Guðmundsson, settur biskup, slítur samkomunni. Stjórnandi og kynnir verður Jónas Jónasson. Öllum er heimill ókeypis aðgangur. SÁÁ þætti vænt um að sem flestir kæmu og fógnuðu með samtökunum merkum áfanga. Einnig verður kafifisamsæti milli kl. 14.00 og 16.00 í húsakynnum SÁÁ f Síðumúla 3-5, 2. hæð, sunnudaginn 4. október. Þangað eru velkomnir allir vinir og velunnar- ar SÁÁ fyrr og nú. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JOHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Suður-Kórea: Barátta Kim Dae og Kim Young harðnar og hvorug- ur virðist fús að víkja FER hann fram eða fer hann ekki fram? Það er spumingin. Og Kim Dae Jung er ekkert að flýta sér að svara. Þó veit hann, að svarsins er beðið innan Suður Kóreu sem utan. Það er engu líkara en hann vilji láta landa sina velkjast í vafa sem lengst, varðandi kosningar sem gætu þó markað upphaf nýs tímabils í Suður Kóreu. Kim Dae Jung er nú 63 ára gamall og fréttamenn segja, að hann líti bragglegar og betur út en nokkru sinni fyrr. Hann hefur verið undra snöggur að laga sig að breyttum aðstæðum; fyrir fáeinum mánuðum sat hann í stofufangelsi og átti ekki hægt um vik að tjá sig við fréttamenn. Nú hefur hann fengið sér skrif- stofu á níundu hæð í miðborg Seul og fréttamenn segja, að hún hafí allt jrfirbragð kosningamið- stöðvar. Fréttamenn eiga greiðan aðgang að Kim Dae. En hann svarar samt ekki þeirri spumingu, sem allir eru að spyija hann. Fer hann fram eða fer hann ekki fram. Tregða hans til að upplýsa þetta, hefur orðið til þess að sam- skipti hans og Kim Young Sam hafa kólnað mjög og þarf ekki að koma á óvart. Kim Young Sam studdi nafna sinn mjög eindregið, þegar reynt var að hefta frelsi hans enn á ný sl. sumar. Viðræð- ur Kim Young við Chun forseta og Roh forsetaefni stjómarflokks- ins, réðu úrslitum um að þróun hófst í átt til lýðræðis. Þetta segja stuðningsmenn Kim Young og raunar var á Kim Dae að heyra fyrir nokkrum mánuðum, að hann væri öldungis sammála því og stæði hann og lýðræðið sem slíkt í hinni mestu skuld við Kim Yo- ung. Það er vitað, að Kim Young hafði áhuga á að bjóða sig fram til forseta. Han n er ekki jafn þekktur og Kim Dae og stjóm- málasérfræðingar töldu Kim Dae langtum líklegri til að bera ótví- ræðan sigur af Roh, sem er frambjóðandi stjómarflokksins. Þeir Kimmamir lýstu því yfír um leið og fijálsar kosningar um for- seta höfðu verið afráðnar, að öllu máli skipti, að stjómarandstaðan stæði óskipt að baki forsetafram- bjóðanda. Báðir sögðu, að þeir myndu með friði koma sér saman um, hvor færi í framboðið. Þeir virtust einnig sammála um að ólíklegt væri að Roh yrði sigrað- ur, ef stjómarandstaðan væri ekki einhuga. Því hljóta athafnir Kim Dae að vekja furðu. Hann hefur farið í ferðalög um Suður Kóreu þvera og endilanga sfðustu vikumar og haldið ræður út og suður. Honum er fagnað eins og forsetafram- bjóðanda á kosningaferðalagi og hann lætur sér það vel líka. En staðfastlega neitar hann að stað- festa að hann vilji verða forseti og vísar þá jafnan til fyrri orða um, að það muni þeir Kimmar ákveða sín á milli. Hins vegar er erfítt að botna í tilgangi ferðalag- anna ef þau eru ekki farin, honum til framdráttar og kynningar. Báðir mennimir hafa fengið sinn skammt af vonbrigðum í stjómmálum. Þegar forsetakosn- — ingar voru árið 1971 hafði Nýi lýðræðisflokkurinn - einkum og sér í lagi Yu Jin San, sem var miðjumaður- gefíð Kim Young svo undir fótinn með að hann yrði frambjóðandi flokksins, að Kim Young hafði í vasa sínum ræðuna sem hann ætlaði að flytja, þegar hann hefði verið útneftidur En á síðustu stundu tókst Kim Dae að snúa öllu sér í vil og varð frambjóðandi. í kosningunum fékk Kim Dae 46 prósent atkvæða og var furðu mjótt á munum og Park forseta, sem þá settist í embættið og gegndi því næstu átta ár. Kim Dae hefur alltaf stað- ið í þeirri meiningu, að útkoma kosninganna hafí verið fölsuð. Samkeppni þeirra nafnanna kom næst verulega upp á yfir- borðið 1980 eftir að Park forseti var myrtur. Áður en Chun náði að taka völdin og batt þar með enda á vonir stjómarandstöðunn- ar, var Kim Young að gera nákvæmlega það sem hann gagn- rýnir Kim Dae fyrir að gera nú; hann flengdist um landið og reyndi að styrkja stöðu stna og auka vinsældir sínar sem væntan- legur forsetaframbjóðandi. Kim Dae hafði þá verið sviptur borg- araréttindum og gat því ekkert hafzt að. Kim Dae segir, að hann hafí ákveðið að fara til Kwangju, til að minnast hryllilegs uppreisnart- ilraunar og hryllilegs blóðbaðs sem varð þar 1980. Honum hafí verið tekið svo vel, að hann telji það skyldu sína að vitja þjóðarinn- ar sinnar, eftir löng ár í stofufang- elsi. í tímaritinu Far Eastern Ec- onomic Review segir, að nánustu samstarfsmenn Kim Dae virðist ekki hafa grænan grun um, hvort hann ætli að bjóða sig fram til forseta. Það viti enginn nema hann og hann hafí margsagt, að hann muni taka mið af vilja þjóð- arinnar. Það þykir enn ein vísbending um stirfni í samskipt- um þeirra Kim Dae og Kim Young, að sá fyrmefndi hefur aflýst áformuðu ferðalagi til Pus- an, kjördæmi Kim Young, en sem stendur er ekki einsætt að mót- tökur þar yrðu jafn hlýlegar og annars staðar sem hann hefur farið um. Kim Young hefur ekki haft hátt um sig og var engu líkara en hann legði blessun yfír ferðalög nafna síns. En nú virðist honum nóg boðið og skoraði hann á Kim Dae að aflýsa öllum frek- ari kynningarferðum um landið, fyrr en frambjóðandi stjómarand- stöðunnar hefði verið ákveðinn. En Kim Dae hefur svarað að menn geti þvf aðeins metið hvor sé heppilegri frambjóðandi, ef þeir kynni þjóðinni sig og sín stefnumál. Það verður síðla októbermán- aðar sem ákvörðun verður tekið á þingi stjómarandstöðunnar. Sem stendur er talið að Kim Yo- ung njóti meira fylgis hjá forystu- mönnunum. Kim Dae er aftur á móti þekktari meðal almennings. Öllum virðist bera saman um, að hugsanlegt væri að sigra Roh frambjóðanda stjómarflokks landsins. En því aðeins að annar Kimanna dragi sig til baka. Um þessar mundir virðist hvomgur þeirra fús til þess. Áhangendum raunverulegs lýræðis í Suður Kóreu til sárrar raunar. heimild: Far Eastem Economic Review, Þeir faðmast ekki um þessar mundir, Kim Dae og Kim Young.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.