Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 íslenskar mannlífsmyndir frá árunum 1882 til 1885: Óþekkt persóna öðlast líf um leið og hún fær nafn - segir Frank Ponzi listfræðingur tíma er eina myndin sem til er en myndin sýnir hana eins og Halldór Laxness lýsir henni í Innansveitar- króniku." ÁÐUR óþekktar ljósmyndir sem teknar voru á íslandi á árunum 1882 til 1885 eru komnar í leitirn- ar. Þetta eru 116 mannlifsmyndir sem Frank Ponzi, listfræðingur rakst á í dánarbúi bresks aðals- manns í London. Meðal mynda í safninu er eina myndin sem til er af Mosfellskirkju sem Halldór Laxness skrifar um i Innansveit- arkróniku. í þættinum 19:19 á Stöð 2 i kvöld fjallar Frank um myndina og ber saman Mosfells- kirkju fyrr og nú. „Það var undarleg tilfinning að rekast á mynd af heimaslóðum í Mosfellssveit í 19. aldar mynda- safni," sagði Frank. „Þama blasti við mér sveitin mín og ég gat séð hvemig þar var umhorfs árið 1882. Myndin af Mosfellskirkju frá þessum VEÐUR Myndimar eru flestar teknar í Reykjavík og nágrenni auk mynda úr ferð norður í land til Akureyrar. „Þetta er mjög skemmtilegt verkefni að fást við,“ sagði Frank, en hann er að kanna hvaðan myndrinar eru og af hveijum og hyggst hann gefa þær út í bókarformi þegar rannsókn- inni er lokið. „Það er ólýsanleg tilfinning að vera með mynd af óþekktri persónu í höndunum sem síðan öðlast líf um leið og hún fær nafn." Meðal mynda í safninu er mynd af Einar Zoéga hótelhaldara ásamt síðari konu sinni, Margréti Zoéga, bömum þeirra og þar á meðal dóttir- in Valgerði, eins árs, sem síðar varð kona Einars Benedikssonar skálds. Fjölskyldan stendur ásamt starfs- fólki fyrir frama Hótel Reykjavík sem þá var við Vesturgötu 17. Á annarri mynd eru stássbúnir kirkju- gestir á leið úr messu í krikjunni á Reynivöllum í Kjós og má þar greina Sr. Þorkel Bjamason og fjölskyldu hans. Þá er mynd af heimilisfólkinu á Vatnsenda, Ólafi Ólafssyni bónda og fjölskyldu hans sem síðar fluttist til Kanada og sagðist Frank vera kominn í samband við afkomendur hans þar. í safninu er einnig að finna elstu mynd sem til er af Vestmanna- eyjum og mynd frá brennisteinsnámi sem Skotar stunduðu í Krísuvík á þessum árum. „Myndin er af vinnu- mönnum við bámjámshús sem þar stóðu og sennilega má enn finna ummerki þessarar byggðar," sagði Frank. Morgunblaðið/Ól.K.M. Frank Ponzi listfræðingur með myndaalbúmið góða en myndirn- ar eru teknar á glerplötur og eru mjög vel farnar og skýrar. Vigfús Geirdal um Friðarráðstefnu Heimsfriðarráðsins í Reykjavík: Ávarp utanríkisráðheira einsdæmi VIGFÚS hugaða Geirdal segir fyrir- friðarráðstefnu, sem „Álþjóðleg samtök friðarhreyf- inga“ halda hér á landi um næstu I DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurslofa fslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR I DAG, 1.10.87 YFIRLIT á hádegi f gær: Ýfir S-Skandinavíu er 1.034 millibara hæð en minnkandi 990 millibara lægð á vestanverðu Grænlandshafi. Veður fer heldur kólnandi, fyrst vestanlands. SPÁ: í dag verður hæg suðvestanátt og smáskúrir á stöku stað um vestanvert landið. Norðvestankaldi og dálítil rigning um norð- austanvert landið framan af degi, en síðan hægari vestan eða suðvestanátt og léttir til. Hiti 7—12 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FÖSTUDAGUR: Fremur hæg suðvestlæg átt. Smáskúrir um sunn- an og vestanvert landið, en bjart veður norðaustaniands. Hiti 3—8 stig. Þykknar upp vestanlands með kvöldinu. LAUGARDAGUR: Fer að rigna um vestanvert landið með vaxandi sunnanátt, og hlýnar talsvert. Heiðskírt TÁKN: O á Léttskýjað m Hálfskýjað A m Skýjað Alskýjað s. Norðan, 4 vindstig: v Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma 1 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur Skafrenningur [~^ Þrumuveður m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhl vaftur Akurðyrl 8 rígning Revkiavlk 10 I*ttskýja8 Bergen 12 léttskýjaö Helsinki 11 léttskýjað Jan Mayen 5 þoka Kaupmannah. 12 skýjað Narssarssuaq 3 skýjað Nuuk 2 alskýjað Osló 12 léttskýjað Stokkhólmur 11 hélfskýjað Þórshöfn 11 láttskýjað Algarve 26 léttskýjað Amsterdam 14 léttskýjað Aþena 27 skýjað Barcelona 24 léttskýjað Berlin 12 skýjað Chicago 10 léttskýjað Feneyjar 1S skýjað Frankfurt 13 léttskýjað Glasgow 13 mistur Hamborg 12 hálfskýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 16 skýjað LosAngeles 18 þokumóða Lúxemborg 13 iéttkýjað Madríd 25 léttskýjað Malaga 31 léttskýjað Mallorca 26 skýjað Montreal 17 rigning NewYork vantar París 14 heiðskfrt Róm 23 skýjað Vín 12 skýjað Washington vantar Winnipog 0 léttskýjað helgi í tilefni þess að ár er senn liðið frá Reykjavíkurfundi þeirra Reagans og Gorbachev í raun vera að undirlagi Sovétmanna. Vigfús gagnrýnir sjö íslenskar friðarhreyfingar fyrir að taka þátt í ráðstefnu, sem hann segir vera á vegum Heimsfriðarráðs- ins, sem sé „ekkert annað en hluti af utanríkisþjónustu Sovétrikj- anna“. Þá gagnrýnir Vigfús sérstaklega þá ákvörðun Steingríms Hermannssonar, ut- anríkisráðherra, að ávarpa ráðstefnuna. í samtali við Morg- unblaðið taldi hann það einsdæmi að utanríkisráðherra aðildarrík- is Átlantshafsbandalagsins ávarpaði fund sem þennan og væri nokkurs konar heiðurs- gestur hans. Forsaga málsins er að sögn Vig- fúsar sú að Samstarfshópi frið- hreyfinga hér á landi var boðið að halda ráðstefnuna þeim að kostnað- arlausu. í ljós kom þó að hópnum var einungis ætlað að taka á móti skoðanabræðrum sínum, en eigin- legur gestgjafi yrðu fyrmefnd samtök. Vigfús telur að með þessu móti sé ætlunin að notfæra sér íslensku friðarhreyfingamar í vafa- sömum tilgangi, en samtök þau sem hann hefur starfað innan, Samtök herstöðvaandstæðinga, höfnuðu boði um að taka þátt í henni, sem og Samtök eðlisfræðinga gegn kjamorkuvá. í samfloti við Heims- friðarráðið em hins vegar enn íslenska friðamefndin, Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna, ^Friðarsamtök íslenskra kvenna, Samtök lækna gegn kjamorkuvá, Samtök kjarnorkuvopnalauss ís- lands, Friðarsamtök listamanna og Friðarhópur fóstra. Vigfús segir að herstöðvaand- stæðingar hefðu ekki haft nein tengsl við Heimsfriðarráðið og benti á að hinar stærri hreyfingar á Vest- urlöndum hefðu ekki gert það heldur. Vigfús sagðist ekki telja að mál þetta bæri vott um að ágreiningur væri á meðal íslenskra friðarsinna, heldur væri fáfræði og misskilningi fyrst og fremst um að kenna. „Hvað aðrar hreyfingar en íslensku friðar- nefndina og MFÍK varðar held ég að hér sé aðallega um að ræða fá- fræði fólks á því hvað þetta Heimsfriðarráð er.“ Benti Vigfús á að friðarhreyfingar á Vesturlönd- um, sem em óháðar Heimsfriðar- ráðinu hefðu frekar myndað tengsl við óháð friðarsamtök í Austur- Evrópu, en meðlimir þeirra hefðu hins vegar sætt ofsóknum vegna skoðana sinna. „Merkilegast í þessu máli finnst mér þó sú ákvörðun utanríkisráð- herra að ávarpa ráðstefnuna," sagði Vigfús. „Ég held að slíkt sé nánast einsdæmi í Atlantshafsbanda- lagsríki að utanríkisráðherra ávarpi ráðstefnu, sem haldin er að tilhlutan Heimsfriðarráðsins. Einu skýring- una á þessu tel ég vera þá að ráðherra hafi verið boðið að ávarpa ráðstefnu „Alþjóðlegra samtaka fríðarhreyfinga" og hann eða starfsmenn ráðuneytisins ekki vitað betur hvað á ferðinni var.“ Morgunblaðið hafði samband við Steingrím Hermannsson, utanríkis- ráðherra og spurði hann um tilefni ræðuhalds hans á ráðstefnunni. Steingrímur sagði að sér væri að vísu ókunnnugt um álit Vigfúsar Geirdal á málinu, en sagði að af orðanna hljóðan væri hér um allt aðra hluti að ræða, en þá sem hon- um hefði verið sagt. „Út af fyrir sig hef ég ekkert á móti því að ávarpa þetta fólk. Ég hef lofað því því og það mun ég gera.“ Steingrímur sagði að hann hefði beðið starfsmenn ráðuneytisins um að kanna þetta mál, en þar hefði ekkert komið fram sem gerði fyrir- hugað ávarp hans óeðlilegt. Úr umferðinni í Reykjavík 29. september 1987 Arekstrar bifreiða voru 25 og 2 ökumenn færðir á slysadeild eftir árekstur á Vesturlandsvegi/Höfðabakka kl. 10.52 og á Reykjanes- braut kl. 10.56. Samtals 99 kærur fyrir brot á umferðarlögum á þriðjudag. Ökumaður var sviptur réttindum strax fyrir að aka með 107 km/klst. hraða um Elliðavog á bifhjóli. Annar var sviptur fyrir að aka með 105 km/klst. hraða um Skógarhlíð á bifhjóli. Þriðji var sviptur fyrir að aka með 104 km/klst. hraða um Elliðavog. Auk þessa voru ökumenn kærðir fyrir 105 km/klst. hraða um Kringlu- mýrarbraut. 80-104 km/klst. hraða um Sætún. 94 km/klst. hraða um Vesturlandsveg. 101 km/klst. hraða um Miklubraut. 84-95 km/klst. hraða um Kleppsveg. Númer voru klippt af 43 bifreiðum fyrir vanrækslu á aðalskoðun. Nokkuð var um að ökumenn virtu ekki stöðvunarskyldu við gatnamót og óku mót rauðu ljósi á götuvita. í þriðjudagsumferðinni voru 2 ökumenn grunaðir um ölvun við stýrið. Frétt frá lögreglunni í Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.