Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
49
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Sumarbústaður rifinn niður i Hvassahrauni.
Hvassahraun:
10 hús rifin niður
Vogum.
Á VEGUM Vatnsleysustrandar-
hrepps er unnið að þvi að rífa
niður og fjarlægja samtals 10
byggingar i Hvassahrauni og
samtals 50 bílfarmar af rusli
fluttir burtu. Hafa byggingarnar
ekki staðist kröfur bygginga-
reglugerðar og heilbrigðiseftir-
lits og eftir margra ára umræður
í bygginganefnd og hreppsnefnd
Vatnsleysustrandarhrepps hefur
loks verið ráðist í að rífa bygg-
ingarnar niður og fjarlægja á
kostnað eigenda.
Byggingamar hafa flestar verið
reistar sem sumarbústaðir, en sum-
ar hafa aldrei verið notaðar sem
slíkar. Þá hefur ástand húsanna
verið mjög slæmt, og sumar aðeins
verið rústir. Eigendum hafa verið
send bréf um að laga byggingamar
að kröfum byggingareglugerðar og
gefmn frestur til að ganga frá þeim
málum, og þar sem kröfunum hefur
ekki verið sinnt hafa byggingamar
verið rifnar niður.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins em fleiri sumarbústaðir í
Hvassahrauni er ekki standast kröf-
ur byggingareglugerðar og má því
búast við að á næstunni fái fleiri
sumarbústaðaeigendur beiðni um
að færa bústaði sína í það horf að
þeir standist kröfur byggingareglu-
gerðar.
- EG
Frá Sjálfsbjörg,
landssambandi fatlaðra
Eftirtalin fyrirtæki á Siglufirði áttu styrktarlínu í ársriti Sjálfsbjargar, sem út kom í þessari viku,
Vegna mistaka féllu styrktarlínurnar út. Við biðjumst velvirðingar á þessu og þökkum fyrirtækjun-
um veittan stuðning með því að birta þær hér.
Nafn:
Ú.E.K.
Fiskbúð Siglufjarðar
Verslunin Nes
Leifs—bakarí sf.
Veiðarfversl. Sigurðar Fanndal
Þormóður Eyjóifsson
Siglufjarðarapótek
Rafbser sf.
Siglfirðingur hf.
Verslunarfélagið Ásgeir
Samvinnutryggingar G.T.
Sparisjóður Siglufjarðar
Útvegsbankinn hf.
Aðalbúðin Bókaversl. Hannesar J.
Vélaverkstæði Jóns og Erlings
Bensfnstööin
Bólsturgerðin
Knattborðstofan
Veitingastofan
Heimilisfang: Sími:
Suðurgötu 2—4 96-71201 og 96-71583
Aðalgötu 27 96-71172
Aðalgötu 6 96-71541
Aðalgötu 21 96-71436
Eyrargötu 2 96-71145
Aðalgötu 15 96-71129
Norðurgötu 4 96-71493
Aðalgötu 34 96-71866
Aðalgötu 34 96-71518
Lsekjargötu 2 96-71195
Aðalgötu 14 96-71228
Túngötu 3 96-71197
Aðalgötu 34 96-71305
Aðalgötu 26 96-71301
v/Gránugötu 96-71296
v/Tjarnargötu 96-71415
Túngötu 16 96-71360 96-71562 96-71919
r
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA . . .
Stefán Finnsson veitti súrefniskassanum viðtöku fyrir hönd fæðing-
arheimilisins. Það var Ása Þóra Núpan sem afhenti gjöfina.
Höfn:
Fæðingarheimilið fær
súrefniskassa að gjöf
Höfn, Homafirði.
Lionessuklúbburinn Kolgríma
í A-Skaftafellssýslu færði fæð-
ingarheimilinu á Höfn í Horna-
firði súrefniskassa að gjöf
laugardaginn 19. september sl.
Það var formaður klúbbsins, Ása
Þóra Núpan, sem afhenti fráfarandi
héraðslækni, Stefáni Finnssyni,
súrefniskassann. Stefán kvað það
ánægjulegan endi á starfsferli
sínum hér í sýslu að veita gjöfinni
viðtöku fyrir hönd fæðingarheimil-
isins.
Lionessumar stóðu að söfnun
ijár til að standa undir kaupum á
súrefniskassanum og var þeim vel
tekið meðal útgerðaraðila og fyrir-
tækja.
Undanfarinn áratug hafa fæð-
ingar hér verið frá 10 til 35 á ári.
- JGG
Athugasemd
í Morgunblaðinu þriðjudaginn
29. september sl. er spjall við Johan
Bargum, annan höfund leikritsins
„Eru tígrisdýr í Kongó?“, sem Al-
þýðuleikhúsið sýnir um þessar
mundir. Þar kemur réttilega fram
að yfirvöld í Finnlandi hafi styrkt
Lilla Teatem til að sýna hundrað
sýningar á verkinu í þarlendum
skólum. Síðan bætir blaðamaður við
frá eigin brjósti að fyrryerandi
menntamálaráðherra íslands,
Sverrir Hermannsson, hafi „gefið“
Alþýðuleikhúsinu styrk til að sýna
„Tígrisdýrin" í skólum þessa lands.
Þar sem-þetta-er nú ekki alls kost-
ur rétt, er okkur ljúft og skylt að
leiðrétta það. Hið rétta er að Ragn-
hildur Helgadóttir, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, veitti leikhús-
inu fjárstyrk til að auðvelda því að
fara í leikför með sýninguna um
byggðir landsins. Leikförin var far-
in í sumar leið og stóð í um
mánaðartíma við góðar undirtektir
íbúa landsbyggðarinnar. Hins vegar
er vert að taka fram að Alþýðuleik-
húsið hefur boðið framhaldsskólum
að fá sýninguna til sín. Skólamenn
hafa sýnt því mikinn áhuga og
bæði borgarlæknisembættið og
menntamálaráðuneytið hafa lýst
yfir áhuga sínum á málinu; þó eng-
inn styrkur hafi verið „gefínn" til
■þeee>--—
SPÆNSKL!
Sjónvarpið hefur hafið endursýningar á
spænskukennsluefninu vinsæla
Hablamos Espanol sem fjölmargir ís-
lendingar nýttu sér með góðum árangri
fyrr á þessu ári.
Nú gefst þeim nýtt tækifæri sem hafa
ætlao sér að læra spænsku á einfaldan
og þægilegan hátt og mikilvægt er að
vera með frá byrjun.
Kennslubókin frá Vöku-Helgafelli fæst
bókaverslunum um allt land. Hún er
nútímaleg og hentar fólki á öllum aldri.
HABLAMOS ESPANOL hefur hvarvetna
hlotið miklar vinsældir og er eitt kunn-
asta sjónvarpskennsluefni í spænsku
sem fram hefur komið. Tengja menn
vinsældirnar því að kennslan er sniðin
við hæfi ferðamanna sem koma til Spán-
ar og annarra spænskumælandi landa.
LÆRIÐ SPÆNSKU Á EINEALDAN OG ÞÆGILEGAN HÁTT!
vaka: iijdoafdi
Síöumúla 29, 108 Reykjavík, sími: 688300
ORKIN/SlA