Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
7
Kvótaskerðing vegna ferskfiskútflutnings:
Fiskmarkaðsmenn vissu
um þetta þegar 1 vor
- segir Ami Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri
„SAMKVÆMT gildandi lögum
um stjórnun fiskveiða hefur sjáv-
arútvegsráðherra heimild til að
skerða aflakvóta skipa, ef fiskur
veiddur af þeim er fluttur utan.
Skerðingin nemur 10% af út-
fluttum fiski. í þessu tilfelli
skiptir ekki máli hver flytur fisk-
inn út, heldur hver veiðir hann.
Stjórnendum fiskmarkaðanna
var í vor gerð fyllilega grein
fyrir þessari heimild og að hún
yrði notuð,“ sagði Árni Kolbeins-
son, ráðuneytisstjóri í sjávarút-
vegsráðuneytinu, í samtali við
Morgunblaðið.
í Morgunblaðinu á miðvikudag
var skýrt frá því að útgerð og áhöfn
togarans Víðis HF hefði sett það
skilyrði fyrir sölu 23 lesta af þorski
á Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði, að
fískurinn yrði ekki fluttur utan. Var
það gert vegna skerðingar á kvóta
vegna útflutnings á ferskum físki.
Jón Friðjónsson, útgerðarmaður
Víðis og Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðsins,
sögðu í samtali við Morgunblaðið,
að þessar reglur heftu starfsemi
fískmarkaðanna og þeim þyrfti að
breyta.
Arni Kolbeinsson sagði að núver-
andi lög giltu til áramóta. Það væri
engan veginn sjálfgefíð, að þessari
heimild yrði breytt við endurskoðun
laganna. „Við upphaf fískmarkað-
anna var stjórnendum þeirra gerð
skilmerkileg grein fyrir þessari
heimild og því að hún kynni að
hafa áhrif á starfsemi markaðanna.
Þeim var jafnframt bent á, að hugs-
anlega þyrfti að laga starfsemina
að þessu. Þeim ætti því engan veg-
inn að koma þetta á óvart," sagði
Ami.
V estmannaeyjar:
VMSÍ ekki með samnings-
umboð fyrir Snótarkonur
Vestmannaeyjum.
VILBORG Þorsteinsdóttir, for-
maður verkakvennafélagsins
Snótar í Vestmannaeyjum, sagði
i viðtali við Morgunblaðið að eins
og staðan væri nú færi Verka-
mannasambandið ekki með
þeirra samningamál i komandi
kjarsamningum.
Vilborg sagði að í vetur hefði
verið samþykkt á fundi hjá Snót
að gangast fyrir stofnun sambands
fiskverkafólks um land allt. Félög-
um innan VS hefði verið ritað bréf
þess efnis og nokkur sýnt áhuga.
Á sambandsstjómarfundi kom
fram tillaga að öðruvísi skyldi farið
að, þ.e. kannaður yrði áhugi á stofn-
un nýs sambands, sem yrði deilda-
skipt, þ.e. deild fiskvinnslufólks,
deild fólks í byggingariðnaðinum
o.s.frv.
Skipulagsnefnd VS hefði verið
falið að gera tillögur en ekkert hefði
komið fram enn frá nefndinni.
Vilborg sagði að á fundi hjá Snót
um daginn hefðu félagskonur lýst
yfír mikilli ánægju með það að full-
trúi Snótar hefði gengið út af
formannafundinum fræga sem
haldinn var í Reykjavík um daginn.
„Austfirðingar hafa ákveðið að
semja sjálfír við sína viðsemjendur.
Við ætlum að bíða og fýlgjast með
hvemig þeim gengur og styðja þá
eftir megni. Og það var samþykkt
hjá okkur á fundi um daginn að
samningsumboðinu yrði haldið hjá
okkur hér í Eyjum þar til málin
skýrast frekar," sagði Vilborg.
— bs.
Laugarásbíó
rekið af verktaka
SÚ BREYTING hefur verið gerð
á rekstri Laugarásbíós að Grétar
Hjartarson, sem verið hefur for-
stjóri bíósins i 13 ár, rekur bíóið
sem verktaki Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna frá og með
1. september síðastliðnum. Að
sögn Grétars hefur rekstur bíós-
ins gengið frekar erfiðlega á
síðustu árum.
Breytingar voru gerðar á hús-
næði Laugarásbíós fyrir tveim
ámm, þegar bíóið hóf að sýna í
þremur sölum, og kostuðu þær um
20 milljónir króna. í samtali við
Morgunblaðið sagði Grétar Hjartar-
son að gengið hefði erfiðlega að
greiða kostnaðinn af breytingunum
og engir peningar hefðu verið af-
gangs til að kaupa dýrar myndir.
Grétar sagði að hann byrji rekst-
urinn á núlli og engar aðrar breyt-
ingar verði á rekstrinum aðrar en
þær að nú sé hann verktaki DAS
og taki sjálfur á sig fjárhagslegar
skuldbindingar vegna myndakaupa
og annars reksturs. Vonast Grétar
til að þetta nýja fyrirkomulag skapi
Dvalarheimilinu umtalsverðar tekj-
ur í framtíðinni. Myndbandadreif-
ing bíósins verður áfram undir
stjóm Grétars og eftir sem áður
algjörlega á vegum DAS.
Bætur almanna-
trygginga hækka
BÆTUR almannatrygginga hækka um 7,23% nú um mánaða-
mótin. Það er í samræmi við almennar launahækkanir, sem
verða frá og með sama tíma.
Samkvæmt breytingu þessari trygging einstaklinga 14.118 og
verða hæstu bætur einstaklings hjóna 28.236. Lífeyrir vegna eins
sem nýtur heimilisuppbóta 30.347 bams verður 4.978, mæðralaun
krónur á mánuði. Fæðingarorlof vegna . eins bams 3.120, vegna
verður1 36.348 ,krónur á mánuðí, tveggja barna 8.174 og þriggja
ellilífeyrir eingtaklinga 8.129, bama 14.499 krónur. Ekkjubætur
hjónalífeyrir T'4.633, full tekju- verða frÚ 7.638 upp f lÖ'486 kr.
Juncfeers
JUTSA prodofeter
Jtmeken
BAT
Spurðu fagmanninn,
hann þekkir Blitsa lökk
Þú færð Blitsa lökk hjá:
Byko, Kópavogi,
Byko, Hafnarfiröi,
Byggt og búiö, Kringlunni,
Húsasmiðjunni,
Litnum,
Litveri,
Málaranum,
Dúkalandi,
Pétri Hjaltested,
Dropanum, Keflavík,
Skafta, Akureyri,
Penslinum, ísafirði,
S.G. búðin, Selfossi,
Málningarvörum hf.,
Málningarþjónustunni
og öllum betri byggingavöruverslun
um um allt land.
EGILLARNASONHF
PARKETVAL
SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111
Gödandaginn!
■■■■5•*i m
cn