Morgunblaðið - 01.10.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
51
Morgunblaðið/Sigrún
Á réttardaginn var veður hið fegursta og undraði marga að gestir voru óvenjufáir við réttimar.
Ölfusréttir:
Féð fallegt og
vel á sig komið
Hvpratrprili
Hveragerði,
RÉTTAÐ var í Ölfusréttum
þriðjudaginn 22. september. Þar
var réttað það fé sem undanfarna
daga hefur verið smalað í Ölfus-
afrétti og því fé sem komið hefur
úr réttum á Hjalla, í Selvogi,
Grafningi og víðar. Var féð fal-
legt og vel á sig komið eftir þetta
óvenjugóða og gjöfula sumar hér
sunnanlands.
Sigurður Auðunsson Qallkóngur í
Miðleit Ölfusinga sagði smala-
mennskuna hafa gengið vel að þessu
sinni þrátt fyrir snjóinn sem féll rétt
áður en göngur hófust og heimtur
væru góðar. Sigurður hefur verið
fjallkóngur hér í 30 ár og er að verða
75 ára gamall. Stjómar hann leitinni
af mikilli prýði.
Á réttardaginn var veður hið feg-
ursta og undraði inarga að gestir
voru óvenjufáir við réttimar því oft
hefur verið hreinasta örtröð og lang-
ar bílalestir. — Sigrún.
Frá Áfengis-
vamarráði:
••
Olvunar-
akstur er
heilbrigð-
ismál
Sú staðreynd að lífslíkur fólks á
aldrinum 15—24 ára eru lægri en
fyrir 20 árum í mörgum iðnríkjum
ætti að vekja eftirtekt þeirra sem
vinna að bættu heilbrigði. Ástæða
þessa er einkum umferðarslys en
aðgerðir í umferðarmálum eru
sjaldnast taldar í verkahring heil-
brigðisyfirvalda. í mörgum löndum,
m.a. Englandi og Wales, eiga um-
ferðarslys sök á dauða helmings
karla sem látast á aldrinum 15—19
ára og áhrifavaldurinn er áfengi.
Ungum ökumönnum hefur fjölg-
að mikið; áfengisneysla ungs fólks
hefur aukist, svo og dómum vegna
drykkjuláta og ölvunaraksturs.
Helsta ástæðan fyrir því að ekki
hefur tekist að spoma við umferðar-
slysum er sú að aðgerðir gegn þeim
hafa verið einangraðar.
Stundum tekst þó vel til, t.d.
þegar aldursmörk til áfengiskaupa
hafa verið hækkuð. Fjöldi umferð-
arslysa, sem unglingar eiga aðild
að, virðist tengdur aldursmörkum
til áfengiskaupa þannig að slysum
fjölgar við lækkun þessara marka
en fækkar séu þau hækkuð. Aug-
ljósast var þetta í Bandaríkjunum
en nokkur fylki lækkuðu aldurs-
mörkin árið 1970. Nær öll fylkin
hafa nú hækkað mörkin í 21 ár á
ný. Tilraunir í þá veru í Bretlandi,
en aldursmörkin eru þar 18 ár,
vektu vafalaust upp ramakvein um
skerðingu persónufrelsis. Samskon-
ar grátur og braust út þegar rætt
var um að lögbinda notkun öryggis-
belta í bifreiðum. Nú nota 96%
ökumanna og farþega í framsætum
bílbelti og una því glaðir.
Ekki þarf að vera jafnmikið
áfengi í blóði ungra ökumanna og
þeirra sem eldri eru til að líkur
aukist á að þeir lendi í slysum. Því
hafa nokkur lönd lögfest lægri
mörk fyrir nýliðana í umferðinni
og, eins og vænta mátti, dregið
með því úr umferðarslysum. Þessar
aðgerðir skila góðum árangri sé
þeim fylgt eftir með skyndikönnun-
um á götum úti og upplýsingastarfi.
(Úr forystugrein: British Medical
Jounutl, Bretlandi, 27. sept 1986.)
ELDHÚSINNRÉTTINGAR — BAÐINNRÉTTINGAR — FATASKÁPAR —
ÚTIHURÐIR — BÍLSKÚRSHURÐIR — SVALAHURÐIR — INNIHURÐIR
— ARNAR — LOFTAKLÆÐNINGAR OG MARGT FLEIRA.
SÝNUM AEG HEIMILISTÆKI.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Jtt0rpml»l<tfcife
BÚÐIN ÁRMÚLA 17 i
BYGGINGAWÓNUSTA SÍMI84585 *