Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 12

Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 Við flutning- á 7. sinfóníu Bruckners voru fengnir fjórir Wagner-túbuleikarar frá Bretlandi. > * Askriftartónleikar Sinfóníuhliómsveitar Islands: Otrúlega góð hljómsveit með mikla möguleika - segir stjórnandinn, Frank Shipway Á fyrstu áskriftartónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands í kvöld heldur breski hljómsveitarstjórinn, FVank Shipway, á tónsprotanum. Hann hefur komið hingað tvisvar áður til að stjórna hljómsveitinni. í vetur mun hann stjóma femum tónleikum, tónleikum í kvöld í for- föllum Finnans Jukka-Pekka Saraste og þrennum tónleikum síðar. Hann er ákveðinn stjómandi, sem krefst mikils af hljóðfæraleik- urum og segir sjálfur, að hann vinni hraðar en hljómsveitarfólk eigi að venjast. En hann nær líka oftast fram því sem hann vill ná. Frank Shipway á að baki langan feril sem stjómandi, hefur stjómað hljómsveitum víða í Skandinavíu, á meginlandi Evrópu og í Banda- ríkjunum. Hann hefur tileinkað sér mjög ákveðinn stfl, sem minnir á Herbert von Karajan og greinilegt er, að Karajan er hátt skrifaður hjá honum sem stjómandi sem gerir kröfur til hljóðfæraleikaranna og hljómsveitarinnar í heild og hann vitnar til vinnubragða Karajans við stjóm Fílharmoníuhljómsveitar Berlínar. En hvemig rak slíkan mann á fjörur íslendinga? Heillaðist af landiogþjóð „Ég hef ferðast alla mína starfs- Elisabet Söderström syngur ein- söng á tónleikunum í kvöld. ævi sem stjómandi hljómsveita víða um heim,“ segir Frank Shipway, „og fyrir nokkrum árum stjómaði ég Sinfóníuhljómsveitinni í Málmey í Svíþjóð. Þar er Einar Sveinbjöms- son konsertmeistari og hann spurði mig, hvort ég væri tilleiðanlegur til að stjóma Sinfóníuhljómsveit ís- lands, ef boð kæmi um slíkt. Ég féllst á það án þess þó að vita hvers ég mætti vænta. Þegar ég kom svo hingað varð ég mjög undrandi á hversu stórkostleg þessi hljómsveit er. Ég var hér fyrst í aðeins tvo, þijá daga, en í fyrra kom ég aftur og dvaldi þá í hálfan mánuð. Á þessum tíma kynntist ég hljómsveit- inni og öllum þeim stórkostlegu möguleikum, sem hún býr yfir. Auk þess kynntist ég lítilsháttar al- mennu tónlistarlífí í Reykjavík. Það er frábært. Þessi litla borg býr yfir auðugra tónlistarlífi en finnst í stór- borgum; það er hreint ótrúlegt. ekki einungis er mikið tónlistarlíf, heldur er þátttakan miklu meiri en maður á að venjast. Það var sama hvar ég kom, alls staðar var fullt hús og mikið líf. Ég varð hreint heillaður og ég hlakka mikið til að vinna með hljómsveitinni í vetur, umvafínn allri þessari tónlist," sagði Frank. Harður húsbóndi Það er æfíng í Háskólabíói. Hljómsveitin er að æfa frumflutn- ing hérlendis á 7. sinfóníu Bruckn- ers og hefur fengið til liðs við sig Qóra Wagner-túbuleikara en þessi hljóðfæri eru nauðsynleg fyrir þetta verk. Þessir hljóðfæraleikarar koma frá Bretlandi, þar sem þeir starfa meðal annars í BBC-hljómsveitinni, sem er með betri sinfóníuhljóm- sveitum í Evrópu. Almennar Tryggingar hf. og Eimskipafélag íslands sáu til þess að mögulegt var að flytja þessa sinfóníu með því að kosta ferð túbuleikaranna hing- Morgunblaðið/Bj arni Frank Shipway, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar íslands á fyrstu áskriftartónleikum hljómsveitarinnar í kvöld, á æfingu með hljóm- sveitinni. að. Frank Shipway segir hljómsveit- inni til og gengur með sviðsbrúninni og hlustar á hvem og einn hljóð- færaleikara. Hann vill sterkari tón, skýrari tón. Hann vill fá meira frá hljóðfæraleikurunum. Hann minnir í aðra röndina á kennara, sem sveiflar prikinu og krefst þess að árangur heimavinnunnar komi í Ijós í kennslustundinni. Elisabet Söderström — sannur listamaður Ég spurði Frank um tónlistina á fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar í kvöld. „Það er ekki auðvelt verk að spila sinfóníu eftir Bruckner," sagði Frank Shipway, „en það er unun að hlýða á tónlistina. Bruckner skrifar verk fyrir stórar hljómsveit- ir, verk sem eru oft löng, en með ótrúlega fallegum köflum. Ég hlakka einnig til að vinna með Elisabetu Söderström. Ég hef oft hlustað á hana og hitt hana, og oft hefur munað litlu að við ynnum saman, en því miður hef ég ekki fyrr en nú fengið tækifæri til að vinna með henni. Það kom mér ánægjulega á óvart, þegar ég frétti að hún myndi syngja á þessum tón- leikum. Hún er sannur listamaður, sem gæðir tónlistina nýju lífí. Eng- inn ætti að missa af því að hlýða á hana syngja t.d. Bréfasenuna úr Eugen Onégin eftir Tschaikovsky, þar sem melódíumar eru hver ann- arri fallegri eða skandinavísku söngverkin, sem hún er sérfræðing- ur í. Tónlistin og fjölmiðlarnir Frank Shipway verður tiðrætt um tónlistarlífíð hérlendis og þátt fjölmiðla við mótun almennings- álitsins gagnvart listalífi almennt. „Hér á landi eru mörg ónotuð tækifæri í tónlist og sjálfsagt öðru listalífi. Þrátt fyrir auðugt listalíf hér nú, er ég sannfærður um að akurinn er mun stærri og hér er auðveldara að ná til almennings til að njóta listarinnar en víðast hvar annars staðar. Fólk, sem ég hef hitt hér, er mjög meðvitað um lista- lífíð og fylgist vel með. Ég hef ferðast víða og veit því um hvað ég er að tala. Hér starfar líka harð- duglegt fólk, sem leggur mikið á sig til að ná árangri og nær í raun undraverðum árangri, þegar haft er í huga, hversu aðbúnaðurinn er slæmur, vinnudagurinn langur og margskiptur hjá mörgum lista- mönnum. Mér gengur vel að vinna með svo duglegu fólki, því það svar- ar vel þeim kröfum sem ég geri um iistrænan árangur og vinnuhraða," sagði Frank Shipway að lokum. Tónleikarnir verða í Háskólabíói í kvöld eins og fyrr segir og hefjast klukan 20.30. Líf lagt í rúst Erlendar baekur Jóhanna Kristjónsdóttir Yann Queffelec: Blodbryllup Norsk þýðing: Birger Huse Upprunalegur titill:Los noces barbares Útg. Norsk Gyldendal 1987 Norsk Gyldendal hefur í haust verið að senda frá sér nýjar bæk- ur, þar á meðal eru mjög athyglis- verðar þýddar bækur. Forlagið hefur sent Morgunblaðinu nokkr- ar þeirra og verður þeirra getið í þessum dálkum á næstunni. Höfundur Blóðbrúðkaups Yann Queffelec hlaut hin eftirsóttu Goncourt verðlaun fyrir ofan- nefnda bók, árið 1985. Árið áður hafði hann sent frá sér skáldsög- una „Le charme noir" og var hún frumraun hans og vakti athygli. Blóðbrúðkaup segir frá ungl- ingsstúlkunni Nicole, sem býr í litlum frönskum bæ. Hún er ást- fangin í fyrsta skiptið af Will, bandarískum hermanni sem hefur aðsetur með liði sínu í grennd við bæinn. Will er senn á förum og Nicole er döpur i huga. En síðasta kvöldið dregur til ljótra tíðinda. Will og vinir hans eru á blindafyll- erí og þeir taka Nicole nauðuga, til skiptis alla nóttina. Þeir fara á burtu og það sem gerðist í litla bænum, sjálfsagt gleymt um leið. En það hefur lagt líf stúlkunnar í rúst. Hún er bams- hafandi og foreldrar hennar, bakarahjónin í bænum, ganga beinlínis af göflunum fyrir þá hneisu sem hún dregur yfír §öl- Yann Queffelec skylduna. Báðar reyna þær Nicole og móðir hennar að koma af stað fósturláti, en allt kemur fyrir ekki. Ludovic kemur í heiminn, fyrir- fram hataður af öllum öðrum en Nanette frænku sinni. Þó er bak- arinn hvað grimmastur, því að fyrstu æviár drengsins krefst hann þess að drengurinn sé hafð- ur í einangrun. Eftir að Nicole hefur seinna flutt í burtu má aldr- ei bjóða afa hans upp á að þurfa að sjá hann. Þama var farið yfir strikið. Seinna giftist móðir hans ekkjumanninum Micho með einn son Tatav og þau Ludo flytja til Michos. Micho vill reynast drengnum vel en móðir hans er haldin þvílíkum viðbjóði á honum, að öll viðleitni Michos til að dreng- urinn lifí sæmilega eðlilegu lífí renna út í sandinn. Ást Ludo á móðurinni verður smátt og smátt jafn heit og sjúkleg og hatrið sem hún ber í bijósti til hans og loks verður að senda hann í burtu, á éins konar fávitaheimili. Hann getur ekki aðlagast lífínu þar, dreymir um þann dag, þegar móðir hans muni koma og sækja hann - eða að hún komi alla vega í heimsókn. En móðir hans hefur brugðist honum frá fyrstu tíð og hún gerir það áfram. Þótt Ludo nái undirtökunum á síðustu síðum bókarinnar á óhugnarlegan hátt. Höfundurinn virðist með sög- unni vilja segja að sú manneskja sem lifír lífinu án þess að verða aðnjótandi kærleika, hljóti að far- ast. Bókin er myrk og óhugnaður- inn situr þar í öndvegi. Þó að persónumar séu dregnar svona kröftugum línum að nánast sker í augu og maður gæti haldið að þær væru ótrúlegar, verða þær raunverulegar. Á hinn bóginn er það galli á sögunni, að höfundur skuli ekki gera tilraun til að rökstyðja betur hatrið sem móðir- in ber til drengsins. Móðirin er svo svört persóna, að er ögrandi við lesanda og maður hefði viljað fá tækifæri til að reyna að skilja hana. En kannski vakir einmitt fyrir höfundi að kalla fram slík viðbrögð. Persóna Michos verður ólíkt betur gerð. Og Ludo held ég að verði minnisstæður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.