Morgunblaðið - 01.10.1987, Page 23

Morgunblaðið - 01.10.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 23 Gamla prestssetrið í Veder80, þar sem Kaj Munk átti heima og ekkja hans býr nú í. rútum á þá staði sem við áttum að búa. Kaj Munk sá sjálfur um kostnaðinn Vederso, á vesturströnd Jótlands, er enn í dag lítið sveitaþorp. Þar er stijált milli húsa og akrar og tún skilja þar á milli. Húsin hafa götu- heiti og númer, en heimafólk þekkir þau miklu betur með nöfnum; Tarp, Norreris og Fredskilde, þar sem Arne Munk og Hanne eiga heima. Kaupmaðurinn er þó á sínum stað og kirkjan, en góðan spöl þaðan er gamli prestsbústaðurinn með all- stórri landareign. Þar býr Lisa Munk ennþá og hefur leyfi til að vera þar svo lengi sem hún óskar. f Vederso eru því tveir prestsbú- staðir, því rétt hjá kirkjunni hefur verið byggt nýtískulegt hús þar sem núverandi prestur, séra Christian Overgárd, býr ásamt ráðskonu sinni. Sameiginlegt áhyggjuefni sóknarbarna hans allra er að hann skuli ekki finna sér konu. Það var því miður ekki bætt úr því meðan við vorum á staðnum. Ég og maðurinn minn, Ingþór Haraldsson, urðum þess heiðurs aðnjótandi að fá að búa hjá Lisu Munk á gamla prestssetrinu, en þorpsbúar sýndu gestrisni sína með því að bjóða fram meira gistirými en þörf var fyrir. í Fredskilde, hjá Hanne og Ame, var einskonar mið- stöð og þar var alltaf borðað. Þar bjuggu líka Guðrún, Kjartan og fleiri. Sóknamefndin greiddi matar- kostnaðinn, en svo einkennilegt var, að Kaj Munk sá í rauninni sjálf- ur um kostnaðinn. Þannig var, að 1924 strandaði þýskt skip rétt sunnan við Vederse. Lík skipstjór- ans og konu hans rak á land og jarðsetti Kaj Munk þau í Vederso- kirkjugarði. í þakklætisskyni sendi þýska útgerðarfélagið 100 danskar krónur og þær lagði Kaj Munk á sparibók i því skyni að nota þær síðar að verðugu tilefni. Nú, 63 ámm síðar, vom 100 krónumar orðnar 3.900 og vom allir safnaðar- nefndarmenn sammála um að verðugra tilefni fyndist ekki, en að veija þeim til að taka á móti íslensk- um Kaj Munk sem færði þeim á ný hugsun og anda Kaj Munks sjálfs. Spenna og eftirvænting Um kvöldið, eftir að fólk hafði komið sér fyrir hjá gistifjölskyldum sínum, hittust allir í Fredskilde. Þar var búið að búa tvö langborð, sem nánast fylltu litlar stofumar, dýr- legum veisluföngum sem gerð vom góð skil. Ame bauð okkur velkomin og Guðrún þakkaði fyrir þá hlýju vináttu og gestrisni sem okkur var sýnd. Ekki var þó öllu lengur til setunnar boðið, því nú þurfti að smíða í kirkjunni. Rafvirki og smið- ur á staðnum réttu hjálparhönd, en víst er að ekki áttu allir kost á löng- um svefni nóttina sem í hönd fór. Og daginn eftir þurfti að æfa. Hver nýr staður útheimti breyttar inn- komur og stöður og þetta þurfti að æfast vel. Spennan var mikil. Skyldi fólk koma? Hvað fyndist fólki um að sjá leikið í kirkjunni sinni — og hvað nú ef það kæmi svo margt fólk að kirkjan rúmaði ekki alla? Um kl. 19, klukkutíma áður en sýningin átti að hefjast, byijaði fólk að koma. Veðrið vár yndislegt og heimafólk og íeikárar hittúst á kirkjuhlaðinu og brátt jókst Qöldi sýningargesta. Sumir vom komnir langt að. Greiniíegt var að mikill áhugi og eftirvænting ríkti. Meðal gesta var Niels Nojgaard dr. theol, náinn vinur Kaj Munks og sá sem Lisa Munk sagði að best hefði þekkt verk hans og jafnframt verið hans besti gagnrýnandi. Það var í raun- inni mikill heiður að hann skyldi gera sér ferð frá Odense til að vera viðstaddur þennan óvænta viðburð. Og þama var kominn Viggo Thomvig, fyrrverandi meðhjálpari Kaj Munks, þrátt fyrir það að vera nýstiginn af sjúkrabeði. Ögmundur Jónasson, fréttamað- ur sjónvarpsins, var einnig kominn á staðinn og hafði fengið til liðs við sig danska tæknimenn. Þeir ætluðu að taka upp hluta sýningarinnar fyrir íslenska sjónvarpið. Þegar Lisa Munk kom rétti Ragnheiður Tryggvadóttir, Lisa leikritsins, henni blómvönd og arm í arm gengu þær inn í kirkjuna. Áður en sýningin hófst flutti séra Overgárd ávarp þar sem hann fagn- aði þessari heimsókn frá Sögueynni og þeim anda sem frá henni hefði borist fyrr og síðar. Sigurinn unninn Amar Jónsson hreif áhorfendur frá fyrstu stundu og það var eins og áður — viðbrögðin leyndu sér ekki. Fólk táraðist, hneykslaðist og hló, rétt eins og hvert orð væri mælt á þess eigin móðurmáli. Og þakklæti sitt og hrifningu lét fólk í ljós með langvarandi lófaklappi að sýningu lokinni. Sigurinn var unninn, draumurinn hafði ræst. Bæði áhorfendur, leikendur og aðr- ir aðstandendur höfðu átt sameigin- lega upplifun sem seint myndi gleymast. Þreyttir, en glaðir og ánægðir héldu nú allir í næturverðarboð hjá Lisu Munk á gamla prestssetrið. Þangað voru líka boðnir allir hinir gestgjafamir og áttum við mikla gleðistund saman yfir frábæm veisluborði. Þegar fögnuður stóð sem hæst kvaddi fararstjórinn sér hljóðs, þakkaði fyrir sig og okkur en minnti á að ekki dygði að gleyma sér, eftir væri að rýma kirkjuná og koma dótinu fyrir í flutningabílnum. Svona var þetta, óþijótandi vinna að baki hverrar sýningar. Leiðir skilja Næsta dag gafst tími til að njóta enn góðrar gestrisni vina okkar sem fóm með okkur í skoðunarferð um héraðið. Sóknarpresturinn, séra Overgárd, var fararstjóri. Við skoð- uðum m.a. minnisvarða um Kaj Munk á Linde-hæð, sem hafði verið hans uppáhaldsveiðisvæði og endað var með því að skoða veiðihús Munk-fjölskyldunnar, Lokkelykke, tveggja hæða allstórt hús í mjög fallegu umhverfi í stóm og miklu landi. Tími kveðjustundar rann upp og var ekki laust við að viðkvæmni gætti á þeirri stundu. Flugvél frá Billund flutti okkur til baka til Kaupmannahafnar. Það er erfítt að kveðjast eftir góða samvem og góð kynni og þannig var það fyrir mig að kveðja hópinn sem nú tvístraðist nokkuð. Sumir fóm heim, aðrir hugðust eiga nokkra hvíldardaga í Danmörku eða annars staðar. Við hjónin höfðum fengið Iánaðan sumarbústað við strönd Stóra-Beltis og þar áttum við nokkra sólskinsdaga, líklega þá fáu sem komú í Danmörku í súmar. Höfundur er framkvæmdastjóri leiksýningarinnar um Kaj Munk. ATLANTIK Hallveigarstíg 1 Símar 28388-28580 FERÐAMIÐSTÖÐIN POLARIS Aðalstræti 9 Kirkjutorgi 4 Sími 28133 Sími 622011 SAGA TRAVEL Suðurgötu 7 Sími 624040 TERRA , Snorrabraut 27-29 Sími 26100 REISUKLÚBBURINN REISUKLÚBBNUM TIL HINS EILÍFAVORS! Nú skaltu bregöa undir þig betri fætinum og koma með okkur þangað sem þægilegur sumarylur ríkir allt árið. Þar ægir öllu saman á þann skipulagða hátt, sem móður náttúru er einni fært að gera. LANDSLAG: Eldfjöll, stórkost- leg gljúfur, hellar, eyðimerkur- hólar, flatlendi, klettar og unaðs- legar strendur og hlýr sjór. GRÓÐURFAR: Flóra Evrópu og Afríku í sátt og samlyndi. MANNLÍF: Allar tegundir af jarðarbúum við störf, skemmtan- ir og letilíf. SAGA OG UMMERKI: Cro- Magnonmaðurinn, hið horfna Atlantis, Kólumbús - nei annars komdu bara og sjáðu allt með eig- in augum. Hvort sem þú ert nátt- úruunnandi, mannlífsunnandi, næturlífsunnandi eða ólæknandi sóldýrkandi, þá er þetta staður fyrir þig. VIÐ ERUM AÐ TALA UM KANARÍEYJAR! BROTTFARIR: 1. ferð27dagar 01-11/87 3ja vikna 27-11/87 2ja vikna 11-03/88 GISTING OG VERÐ FYRIR FULLORÐNA í ÞRJÁR VIKUR: Smáhýsi; (bungalow) San Valentin Park, Bungalow Holican, Bunga- low Princess; . frá kr. 45.144,- íbúðahótel; Corona Blanca, ............... frá kr. 42.804,- Hótel; Catarina Playa og Buena- ventura; ...... frá kr. 47.804.- með kvöldverði... kr. 53.078.- FARARSTJÓRAR í þessum ferð- um verða þær AUÐUR og KLARA og það mun áreiðanlega gleðja þá farþega sem hafa kynnst þeim úr fyrri ferðum okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.