Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 26

Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 VILT ÞÚ RÁÐHÚS VIÐ TJÖRNINA? eftir Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur Það vil ég ekki og mun því greiða atkvæði gegn tillögu þess efnis á fundi borgarstjómar í dag. Ástæð- umar fyrir þessari afstöðu minni em ýmsar og ætla ég að rekja þær hér í eins stuttu máli og mér er unnt. Sú ráðhúsbygging sem fyrir- SELTJNES Nesvegur 40-82 o.fl Kópavogur Bræðratunga AUSTURBÆR Ingólfsstræti Grettisgata 2-36 huguð er á homi Tjamargötu og Vonarstrætis er í samræmi við þá tillögu sem hlaut 1. verðlaun í sam- keppni um bygginguna nú í sumar. Tillagan er að mörgu leyti hrífandi og sérstæð og boðar ákveðnar nýj- ungar í íslenskri húsagerðarlist. Það verður líka að segjast eins og er að það gladdi mitt kvenmanns- hjarta að annar af tveimur höfund- um hennar er kona. Það breytir þó ekki því að þama er um verulegt VESTURBÆR Tjamargata 3-40 Tjarnargata 39- Aragata Einarsnes o.fl. Ægisíða 44-78 ÚTHVERFI Básendi Ártúnshöfði - iðnaðarhverfi Birkihlíð mannvirki að ræða sem mun breyta ásýnd Tjarnarinnar um ókomna framtíð. Ásýnd sem er flestum Reykvíkingum, og kannski lands- mönnum öllum, hjartfólgnari en flest annað í borginni. Sjálfumgfleði samtímans Það sem einkennir allt umhverfi Tjamarinnar er byggð gamalla og veglegra timburhúsa. Tjamargatan myndar órofa keðju þessara húsa sem teygir sig yfir í Tjamargötu 11, sem mun hverfa ef ráðhús verð- ur að veruleika, þaðan í gömlu húsin við Vonarstræti, Iðnó, Búnaðarfé- lagshúsið, Miðbæjarbamaskólann, Fríkirkjuna og endar í húsi Thors Jensen. Yfir svæðinu hvflir ennþá kyrrlátur virðuleikablær þrátt fyrir stöðugt vaxandi bílaáþján. Þessi byggð og Tjömin sjálf eru tákn þess sem best var gert í Reykjavík fyrri tíma. Einu skemmdimar sem unnar hafa verið á þessu umhverfi em bygging Oddfellowhússins og fjölbýlishúsanna við Tjamargötu 2—10. Þessi hús eru ekki slæm í sjálfu sér og auðvitað ekki byggð með það í huga að skerða fegurð umhverfisins. Stærð þeirra lýsir stórhug og framkvæmdavilja en um leið mjög takmörkuðum skilningi á því sem forveramir gerðu best. Líklega var þama á ferðinni hin sígilda sjálfumgleði samtímans gagnvart fortíðinni sem aldrei er sterkari en á uppgangs- og þenslu- tímum. Og einmitt núna eru slíkir tímar. Flestir Reykvíkingar, og ég þar á meðal, þekkja ekki umhverfi Tjamarinnar öðruvísi en með Odd- fellowhúsi og húsunum Tjamargata 2—10. Samt sem áður hugsa ég að fiestum þyki þau uppáþrengjandi. Á mig verka þau eins og aðskotadýr. Ég er hrædd um að það sama muni gilda um ráðhúsið. Hversu fallegt sem það kann að verða að mati okkar nútímamanna þá mun það bijóta þá stílhreinu mynd sem við nú eigum af Tjöminni. Vegna stærðar sinnar og staðsetningar verður það alltaf aðþrengt og mun bera gömlu, virðulegu húsin okkar ofurliði. Bílar á botni Tjarnar En fyrirhugað ráðhús er líka annað og meira en ráðhús — það er bílageymsla um leið. Ráðhúsið ofanjarðar verður 4.600 m2 en í kjöllurum neðanjarðar taka við 8.800 m2 sem munu hýsa „tækni- rými“ og bflageymslu fyrir 320— 330 bíla. Til þess að átta sig á þeirri stærðargráðu sem þarna er um að ræða má nefna til saman- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Þeir sem leggja allt kapp á byggingn ráð- húss gera það því væntanlega vegna þess að nú telja þeir lag til að ráðast í slíka fram- kvæmd. Nú hafi borgin efni á því. Nú sé rétti tíminn. Ef hins vegar er litið á þá miklu þenslu og þann mann- aflaskort sem ríkir á vinnumarkaðnum þá er þessi tími fráleitur og eins framkvæmdahrað- inn.“ burðar að nýgert bílastæði á hafnarbakkanum við Faxaskála rúmar um 370 bíla. Það gefur auga leið að slík bílageymsla í hjarta bæjarins kallar á talsverða umferð á aðliggjandi götur, í þessu tilviki Vonarstræti og Tjamargötu. Tjam- argatan mun sérstaklega verða fýrir barðinu á umferðinni þar sem aðkeyrslan að bflageymslunni verð- ur frá þeirri götu. Gegn þessu eru þau rök að ein- hvers staðar verði vondir að vera og best sé að geyma þá f því neðra. Þetta má til sanns vegar færa en það hlýtur að vera hægt að finna þeim ódýrari vist en á botni Tjarnar- innar þar sem hvert bílastæði kostar tæplega 760 þúsund krónur! Kostnaðurinn 750 milljónir Það kæmi mér ekki á óvart þó einhveijum yrði fótaskortur á þess- ari tölu en hún er rétt engu að síður. Áætlaður kostnaður við ráð- húsbygginguna er 750 milljónir króna, þar af 500 vegna ráðhússins og 250 vegna bílageymslunnar. Þetta dýra mannvirki vill meirihluti borgarstjómar byggja á rúmum tveimur árum á þeirri fullgildu for- sendu að byggingin verði staðsett á viðkvæmum stað sem ekki þoli að vera í upplausn ámm saman. Þegar Reykvíkingar ganga að kjör- borðinu í næstu sveitarstjómar- kosningum mun því standa nánast tilbúið ráðhús við Tjömina. En viljum við öðru fremur eyða 750 milljónum í slíkan minnisvarða? 750 milljónir em engir smáaurar og það má margt fyrir þær gera. Mér reiknast t.d. til að það mætti byggja a.m.k. 25 dagvistarheimili með 75 deildum fyrir þessa fjár- muni. Það myndi nægja til að tæma þann langa biðiista sem nú er eftir dagvistarrými í borginni. Eða það mætti byggja hátt á annað hundrað þjónustuíbúðir fyrir aldraða og leysa þannig vanda þeirra sem verst em settir. Báðar þessar fram- kvæmdir væm mjög merkilegir áfangar í sögu borgarinnar og minnisvarðar um menningarstig hennar. Kannski hefur borgin aldrei efni á því að byggja sér ráðhús því allt- af verða einhver brýn félagsleg verkefni sem þarfnast úrlausnar. Ég er sjálf þeirrar skoðunar að það sé skylda sveitarfélaga að láta slík verkefni alltaf ganga fyrir enda í samræmi við uppmna og eðli þeirra að sinna framfærslu öðm fremur. Rétti tíminn? En nú er hins vegar góðæri í landinu sem hefur skilað sér ríflega í borgarsjóð. Hafa tekjur hans auk- ist vemlega á undanförnum ámm. Þeir sem leggja allt kapp á bygg- ingu ráðhúss gera það því væntan- lega vegna þess að nú telja þeir lag til að ráðast í slíka framkvæmd. Nú hafi borgin efni á því. Nú sé rétti tíminn. Ef hins vegar er litið á þá miklu þenslu og þann mann- aflaskort sem ríkir á vinnumark- aðnum þá er þessi tími fráleitur og eins framkvæmdahraðinn. Það þarf mikinn mannskap til að rífa upp ráðhús á rúmum tveimur ámm og slík framkvæmd því líklegri en ekki til að auka enn frekar á þensluna. Má auðveldlega færa fyrir því rök að eini rétti tíminn fýrir opinberar stofnanir til að byggja sér minnis- varða sé á tímum samdráttar og atvinnuleysis. Þá þarf vinnumark- aðurinn á því að halda en ekki núna. Ég spurði í upphafí þessarar greinar hvort þú vildir ráðhús við Tjörnina. Svar hvers og eins í þessu máli er mjög mikilvægt og getur ráðið úrslitum um hvort af bygg- ingu verður eða ekki. Borgarstjóm hefur áður samþykkt ráðhúsbygg- ingu á fyllingu í norðurenda Tjamarinnar, og meira að segja einum rómi, án þess að af yrði. Nú þakka flestir skynsömum borgarbú- um og forsjóninni fyrir að af þeirri byggingu varð aldrei. Ætla borg- arbúar að láta málið til sin taka núna? Höfundur er borgarfulltrúi Kvennalistans. Kennslubók um efnahagslífið BÓKIN Efnahagslífið og við, ágrip af þjóðhagfræði og haglýs- ingu íslands eftir Björn Matt- híasson er nýlega komin út hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar. Bókin er kennslubók í þjóðhag- fræði og um íslenskt efnahagslíf fyrir efri bekk mennta- og fjöl- brautaskóla. í frétt frá útgefanda segir m.a. að bókin sé einnig aðgengileg til almennrar sjálfsmenntunar. Hún sé að því leyti frábmgðin fyrri kennslubókum á þessu sviði fyrir álíka lesendahóp að hrein hagfræði er tengd fróðleik um íslenskan þjóð- arbúskap. Höfundur bókarinnar, Bjöm Matthíasson, er hagfræðingur við Seðlabanka íslands. Hann hefur einnig unnið fyrir Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn í Washington og EFTÁ í GárifUBjöm> hefur ulú árabil einrtig verið kennari við Háskóla íslanqs. VELDU ®TDK ÞEGAR ÞU VILT HAFA ALLT Á HREINU Innilegar kveðjur og þakkir til Jjölskyldu minnar, vina og frœndliðs, sem glöddu mig með gjöfum, símskeytum, símtölum og ekki síst með að líta inn, þann 13. sept. sl. Rósa Friðríksdóttir, Sunnubraut 24. Kœra þökk fyrir kveðjur, gjafir og skeyti á afmœlisdaginn minn 24. september. HaraldurS. Norðdahl. Innilegar kveðjur og þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig með heimsóknum og gjöfum á 60 ára afmœlisdaginn 18. september sl. Liftð heil. -,033£ iJ ti9V 61-0Þ .114 HVERNIG A AD MURA Þú færð svarið ásamt ótal upplýsingum varðandi einangrun hjá ráðgjafa Steinullarverksmiðjunnar í síma 83617 frá kl. 9-11. STEINULLARVERKSMIDJAN HF Blaðburöarfólk óskast! 35408 83033

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.