Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 40

Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 Fjórðungssjúkrahús Akureyrar: Röntgentæknar ganga ekki út eins og til stóð SAMKOMULAG hefur náðst í deilu röntgentækna og stjórn Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar og munu röntgentæknarnir sex því ekki ganga út í dag eins og tíl stóð. Röntgentæknamir sögðu störfum sinum Iausum fyrir sex mánuðum síðan. Samkomulagið gerir ráð fyrir að stofnaðar verði við sjúkrahúsið tvær stöður deildarröntgentækna þannig að þeir röntgentæknar sem eru á bakvakt fái greidd laun deildarrönt- gentæknis sem er ein aðalkrafa þeirra. Hansína Sigurgeirsdóttir, trúnaðarmaður röngtentækna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að með þetta samkomulag í höndunum væri hægt að senda kjaranefnd samninginn til endur- skoðunar, en heimild er fyrir því ef nýjung kemur fram í gildandi samningi. Röntgentæknar höfðu lagt fram tilboð á fundi fyrr í vik- unni með viðsemjendum sínum sem höfnuðu tilboðinu á þeim forsendum að ekki væri hægt að opna samn- inga. Morgunblaðið/GSV Röntgentæknar að störfum á Fjórðungssjúkrahúsinu í gær. Morgunblaðið/GSV Hafþór Einarsson, 8 ára skákmaður frá Akureyri. „Hélt ég myndi stein- liggja fyrir Jóhanni“ „ÉG LÆRÐI mannganginn 4 ára og byijaði að tefla þegar ég var 5 ára,“ sagði Hafþór Einarsson, 8 ára Akureyringur, sem afrekaði það um síðustu helgi að gera jafntefli við stór- meistarann Jóhann Hjartarson i fjöltefli. Hafþór sagði að öll fjölskyldan tefldi stundum í frístundunum. Hann sagði að pabbi sinn, Einar Ólafur Jónsson, hefði kennt hon- um mannganginn og tefldi líka oft við hann þegar hann hefði tíma. Einnig væri Gestur, bróðir hans, sem er tveimur árum eldri, duglegur að tefla og mamma hans, Guðrún Gestsdóttir, gripi stundum í tafl. „Við skiptumst bróðurlega á að vinna og stundum lýkur skákunum auðvitað með jafntefli. Ég hélt að ég myndi steinliggja fyrir Jóhanni og átti enga von um jafntefli. Reyndar ætlaði ég ekkert að taka þátt í fjölteflinu. Þannig var að ég var staddur hjá vini mínum sem ætl- aði að tefla og hann dró mig með sér.“ Hafþór sagðist alltaf taka þátt í skákmótunum sem haldin væru í skólanum, Lundaskóla, og hefði hann alltaf fengið verðlaun. Hann sagði að skólaskákmót væru hald- in tvisvar á ári, en lítill áhugi fyrir skákinni ríkti í bekknum. „Jú, ég held örugglega áfram í skákinni. Maður verður að reyna það sem maður getur. Mér finnst gaman að þessu og því ekki að halda þá áfram," sagði Hafþór. Hann sagðist bara tefla — væri ekkert farinn að spá í skák- bókmenntir ennþá, en stundaði þó nokkuð fótbolta í staðinn. Akureyri óskar eftir fólki á öllum aldri til að bera út Morgunblaðið strax og það ‘ kemuríbæinn. „Hressandi morgunganga" Hafiðsamband! Hafnarstræti 85, Akureyri, / sími 23905. .*ií6§3 ;ji9 'tieq -pxT; w&ihnA ,'QnoTtetTnA &i i Útgerðarfélag Dalvíkinga hf.: „Skipverjar á Björgúlfi voru ekki í verkfalli“ — segir Valdimar Bragason framkvæmdastj óri VALDIMAR Bragason, fram- kvæmdastjóri Utgerðarfélags DaJvfkinga hf., sagði í viðtali við blaðamann að ranghermt hafi ver- ið i fjölmiðlum að skipveijar á togaranum Björgúlfi EA 312, sem Útgerðarfélag Dalvfkinga á, hafi verið í verkfalli undanfarna daga vegna fiskverðs. „Við seljum frystihúsinu hér á Dalvík mest allan þann físk sem tog- aramir okkar, Björgúlfur og Björg- vin, veiða. Frystihúsið sagði upp samningum við okkur um verð fyrir fiskinn en Björgúlfur fór út klukkan tíu í miðvikudagsmorgun því samn- ingar höfðu tekist með okkur og frystihúsinu um nýtt fískverð. Vetrarstarf KFUM að hefjast VETRARSTARF KFUM og KFUK er að hefjast um þessar mundir á Akureyri. Starfið fer að mestu fram í tveimur deild- um, yngri deild fyrir 7-12 ára börn og unglingadeild fyrir 12 ára og eldri. Auk þess eru fundir í aðaldeild þegar henta þykir. Fundir í yngri deild verða á þremur stöðum í bænum, í Lundarskóla, Kristni- boðshúsinu Zíon og félagsheimili KFUM og K, Sunnuhlíð. Þessir fundir hófust laugardaginn 26. september, en þeir eru fyrir drengi nema í Lundarskóla. Þar verða fundir á_ sama sama tíma fyrir stúlkur. í Kristniboðshúsinu Zíon verða yngri deildar fundir fyrir stúlkur á miðvikudögum kl. 17.30. Sameiginlegir fundir pilta og stúlkna, 12 ára og eldri, verða á þriðjudagskvöldum kl. 20.00 í Sunnuhlíð. Eins og jafnan áður er reynt að hafa efni fundanna sem áhuga- verðast og blandað er saman gamni og alvöru. Fagnaðarerindið um Jesúm Krist verður hinsvegar grundvöllur félagsstarfs KFUM og K eins og áður, segir í frétt frá félögunum. Auk þess munu KFUM og K ásamt kristniboðsfélögum karla og kvenna standa að sam- komum í Sunnuhlíð á siyinudags- kvöldum kl. 20.30. Valdimar sagði ennfremur að frystihúsið hefði greitt sama verð fyrir fískinn og fékkst fyrir hann á Fiskmarkaðinum í Hafnarfírði. Sam- kvæmt nýja samningnum greiddi frystihúsið útgerðarfélaginu hins vegar það verð fyrir þorsk sem hefði fengist að meðaltali fyrir hann á Fiskmarkaðinum í Hafnarfírði frá 15. júní, þegar byijað var að selja físk á Fiskmarkaðinum, til 4. septem- ber, þegar fískverðssamningur frystihússins og útgerðarfélagsins rann út. Samkvæmt nýja samningnum greiðir frystihúsið útgerðarfélaginu 32,56 krónur fyrir kflóið af 1,9 kílóa þorski en það verð breytist um 85 aura fyrir hver 100 grömm í þyngd- armismun. Fyrir aðrar físktegundir greiðir frystihúsið hins vegar fast verð sem miðað er við það verð sem fæst fyr- ir þær tegundir á útgerðarstöðunum næst Dalvík. Frystihúsið greiðir 37 krónur fyrir kflóið af tveggja kflóa ýsu, 14,10 krónur fyrir 500 til 1000 gramma karfa en 17,80 krónur fyrir kflóið af karfa sem er yfir eitt kfló að þyngd, 14,80 krónur fyrir kílóið NÍU póstmenn á Akureyri hafa sagt upp störfum vegna óánægju með launakjör og munu uppsagn- irnar taka giidi í byijun desem- ber ef samkomulag næst ekki á milli aðila. Þetta eru allir þeir starfsmenn Pósts og sima á Ak- ureyri, sem farið hafa í Póstskól- ann, og eru þeir með frá 5 til 16 ára starfsaldur að undanskild- um stöðvarstjóranum og fulltrúa hans. Þetta er þriðjungur þeirra sem starfa við póstþjónustu á Akureyri. Jón Ingi Cesarsson, trúnaðar- maður póstmanna á Akureyri, sagði í samtali við Morgunblaðið að upp- sagnimar hefðu ekki verið skipu- lagðar sem hópuppsagnir á þar til gerðum eyðublöðum þó svo að allir níu hefðu sagt upp sama daginn, þann 3. september sl, ^Við.æjtlum okkur að fara út á hmrt álménna af ufsa sem er undir 70 sentimetmm að lengd en 20 krónur fyrir kflóið af ufsa sem er yfír 70 sentimetrar að lengd. Fyrir kflóið af slægðri grá- lúðu með haus greiðir fiystihúsið tuttugu og fimm krónur og tíu aura, þijátíu krónur fyrir kílóið af hálfs til þriggja kflóa lúðu, 64 krónur fyr- ir kflóið af þriggja til tíu kflóa lúðu og 84 krónur fyrir kflóið af lúðu sem er yfír tíu kfló að þyngd. Kaupfélag Eyfírðinga á frysti- húsið á Dalvík en tæpan helming í Útgerðarfélagi Dalvíkinga. Kristján Ólafsson á Dalvík, sem er fulltrúi kaupfélagsstjóra á sjávarútvegssviði, sagði í viðtali við blaðamann að fís- kverðssamningar útgerðarfélagsins og frystihússins hefðu ekki borið neinn keim af þeim deilum um físk- verð sem uppi hafí verið á Austfjörð- um að undanfömu. Framboð á þorski á Fiskmarkaðinum í Hafnarfírði hafí einfaldlega verið það lítið að undan- fömu að verð það sem fengist fyrir þorskinn þar nú væri ekki raunhæft viðmiðunarverð í nýjum fískverðs- samningi frystihússins og útgerðar- félagsins, enda gilti sá samningur einungis til 1. október næstkomandi. vinnumarkað ef ekkert verður að gert og emm við reyndar að fara að leita fyrir okkur. Það er ekki hægt að starfa hjá Pósti og síma af hugsjón einni saman enda höfum við fyrir fjölskyldum að sjá. Ríkið verður að taka þátt í launaskriðinu ef það ætlar að halda starfsfólkinu og til þess er óhjákvæmilegt að hækka laun um 10-20.000 krónur. Byijunarlaun ófaglærðra póst- manna eru rúmlega 31.000 krónur og eftir þriggja ára nám í Póstskól- anum getur starfsmaður komist hæst í 41.000 krónur eftir 18 ár í starfi og er þá ekki talin með 7,23% leiðrétting sem bætist nú við.“ Jón Ingi sagði að allt of lítill munur væri orðinn á ófaglærðum og faglærðum. Munurinn hefði ver- ið fjórir launaflokkar fyrir um tveimur árum, en væri nú orðinn einn launaflokkur. Níu póstmenn segja upp: Ríkið verður að taka þátt í launaskriðinu - segir trúnaðarmaður póstmanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.