Morgunblaðið - 01.10.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
43
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
_____ . ___ , __________________
Viltu koma
í vinnu á skemmtilegum vinnustað? Á stað,
þar sem þú gætir jafnvel haft barnið þitt
með þér? Á dagheimilið Dyngjuborg, Dyngju-
vegi 18, vantar okkur fóstrur eða fólk, sem
hefur áhuga og/eða reynslu af uppeldisstörfum.
Nú eru lausar hjá okkur 3 heilar stöður auk
hálfrar stuðningsstöðu fyrir barn með sér-
þarfir.
Komdu í heimsókn eða aflaðu þér upplýsinga
hjá Önnu eða Ásdísi í símum 38439 eða
31135.
Hjólbarðaverkstæði
Viljum ráða sem fyrst duglegan mann til hjól-
barðaviðgerða. Vinnutími kl. 08.00-18.00
mánudaga til föstudaga, og á haustin einnig
á laugardögum kl. 08.00-16.00. Meiri yfir-
vinna getur orðið á mestu annatímum.
Stundvísi og reglusemi áskilin.
Upplýsingar gefur Páll Pálsson, hjólbarða-
verkstæði Heklu hf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á hjól-
barðaverkstæði og hjá símaverði.
Álfheimabakaríið
Afgreiðslustarf
- Álf heimar
Starfsmaður óskast til afgreiðslustarfa í Álf-
heimabakaríi, Álfheimum 6. Vinnutími frá kl.
7.00-13.00 annan hvern dag en 13.00-19.00
hina.
Nánari upplýsingar á staðnum á milli kl.
16.00-18.00.
Brauð hf.
Bústjóra
vantar á svínabú í nágrenni Reykjavíkur. íbúð
fylgir starfinu. Aðeins góður skepnuhirðir og
reglusamur maður kemur til greina.
Vinsamlega leggið inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Svínabú - 4704“.
Trésmiðir og menn
vanir verkstæðis vinnu
Traust fyrirtæki á Fljótsdalshéraði óskar eft-
ir að ráða vana uppsláttarsmiði, einnig smiði
eða menn vana verkstæðisvinnu. Fyrirliggj-
andi verkefni til tveggja ára.
Uppmæling og gott kaup.
Áhugasamir leggi nafn og símanúmer inn á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „P - 5388“.
Dagheimilið
Múlaborg
Ármúla 8A
Okkur á Bangsadeild vantar áhugasaman
samstarfsmann eftir hádegi.
Ath.: Getum útvegað dagvist fyrir barnið þitt.
Hafðu samband við deildarfóstru (Gunnar)
eða forstöðumenn (Kristín Elfa og Hörður) í
síma 685154 eða á staðnum.
Skólabryta
og aðstoðarmann
vantar nú þegar að Héraðsskólanum í
Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Þurfa að geta
byrjað vinnu 6. október. Mjög góð vinnu-
aðstaða og ódýrt húsnæði. Hentugt fyrir hjón
eða sambýlisfólk.
Upplýsingar gefur Skarphéðinn Ólafsson í
símum 94-4840 og 94-4841.
Héraðsskólinn í Reykjanesi.
Trésmiðir
og verkamenn
óskast til lagfæringa á húsnæði.
Upplýsingar í Aðalstræti 16 milli kl. 16.00
og 18.00. í dag.
Ferðaskrifstofa Reykjavikur.
Laust starf
Vita- og hafnarmálaskrifstofan óskar að ráða
skrifstofumann í vélritun og bókhald.
Hlutastarf kemur til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 9. október.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan,
Seljavegi 32,
sími 27733.
Siglufjarðarkaupstaður
Lausar stöður
1. Staða félagsmálafulltrúa.
Viðkomandi mun hafa með æskulýðs-,
íþrótta- og félagsmál að gera þ.m.t.
sjúkrasamlag. Krafist er menntunar á fé-
lagssviði. Staðan er laus frá 1. janúar n k.
2. Staðabókara erlausfrá l.desembern k.
Krafist er góðrar þekkingar á bókhalds-
sviði.
3. Staða skrifstofumanns, er laus frá 1. des-
ember n k.
Starfssvið launaútreikningar, skrifstofu-
aðstoð við Tæknideild o.fl.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af skrifstofustörfum.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf
sendist undirrituðum fyrir 15. október n k.
Bæjarstjórinn Siglufirði.
Útsala
Skinnasala
Steinunnar Guðmundsdóttur,
Laufásvegi 19, sími 15644.
Prentvélartilsölu
Adast offsetprentvél, formstærð 48,5x66 cm.
Grafopress digull, formstærð 26x38.
Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 22133 og á kvöldin í síma
39892.
Prentsmiðjan Rún sf.
Baðhúsið við Bláa Lónið
Auglýsing um breyttan opnunartíma. Frá og
með 1. okt. verður opið alla virka daga frá
kl. 13.00-20.30 og um helgar frá kl. 10.00-
20.00.
Baðhúsvörður
Óskilahross
íBorgarhreppi
Hestur í óskilum, ca 9 vetra gamall. Jarpur
á lit, taminn og járnaður. Mark: Stig framan
hægra, biti aftan vinstra.
Upplýsingar í síma 93-71667.
Hreppstjóri Borgarhrepps.
Bakarí
Til sölu bakarí á góðum stað í verslunarmið-
stöð. Ný og góð sölubúð.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
lÍlj____44 KAUPMNG HF
n Húsi verslunarinnar ® 60 69 08
Sölumenn: Sigurður Dagbjartsson, Ingvar Guðmundsson,
Hilmar Baldurason hdl.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
Lokað
Verkstæði okkar verður lokað 1. og 2. októ-
ber vegna flutninga.
Tilkynning til
sauðfjárframleiðenda
Að gefnu tilefni vekur landbúnaðarráðuneytið
athygli sauðfjárframleiðenda á eftirfarandi
ákvæðum reglugerðar nr. 433 17. september
1987.
1. Framleiðandi á lögbýli sem hefur fullvirð-
isrétt getur tekið allt að 60 kg. af ófrystu
kjöti auk sláturs út úr afurðastöð af eigin
framleiðslu fyrir hvern heimilismann, sem
hafði þar lögheimili 1. desember 1986
skv. þjóðskrá.
2. Framleiðandi utan lögbýlis sem hefurfull-
virðisrétt getur tekið allt að 60 kr. af
ófrystu kjöti auk sláturs af eigin fram-
leiðslu út úr afurðastöð.
3. Taki framleiðandi út meira magn úr af-
urðastöð en um getur í 1. og 2. tölulið
skerðist fullvirðisréttur hans um tilsvar-
andi magn.
4. Heimild til þess að taka út kjöt án þess
að það skerði fullvirðisrétt viðkomandi,
fellur niður slátri framleiðandi utan af-
urðastöðvar.
5. Brot á ákvæðum reglugerðar nr.
433/1987 varðar refsingu skv. 59. gr. laga
nr. 46 27. júní 1985.
Landbúnaðarráðuneytið,
29. september 1987.
*
i
\