Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
+
Hver á að greiða „sér
stakan söluskatt?“
Opið bréf til Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráðherra
eftirÞröst
Haraldsson
Kæri Jón.
Á föstudaginn fékk ég bréf frá
einum undirmanna þinna, skatt-
stjóranum í Reykjavík, þar sem
ihann rukkar mig um einhveija „til-
k)mningu um atvinnurekstur", sem
ég átti að vera búinn að skila fyrir
20. ágúst sl. Ég kannaðist ekki við
þessa borgaralegu skyldu sem emb-
ættismaðurinn hermdi upp á mig
en hann rökstuddi mál sitt með til-
vitnun (11. grein bráðabirgðalaga
sem þú og félagar þínar settuð í
sumar eftir að þið komust til valda.
í þessari tilvitnuðu lagagrein er
talin upp ýmis starfsemi sem hér
eftir skal „greiða sérstakan sölu-
skatt". Síðan bætir embættismað-
urinn því við að þessi skattskylda
hafi tekið gildi á afmælisdaginn
minn síðasta, 1. september. Svo
kemur þessi klausa sem ég hef ver-
' io að velta vöngum yfir síðan mér
barst bréfið:
„Samkvæmt skattframtali
1987 voruð þér með tekjur af
atvinnurekstri, sem er skatt-
skyldur samkvæmt framan-
greindum lögum.“
Þarna kom hið opinbera mér
gersamlega í opna skjöldu. Ég hafði
vissulega heyrt af setningu téðra
laga og velt þeim talsvert fyrir mér
og rætt þau við kunningja og sam-
starfsmenn. En ég hafði ekki komið
aúga á það að ég félli undir þessa
lagagrein eða með hvaða hætti það
gæti gerst. Það er hvergi minnst á
útgáfuþjónustu í henni. Og þótt
skömm sé frá því að segja er ég
engu nær, þrátt fyrir bréfið frá
undirmanni þínum.
Milliliðunum fækkað
En af hveiju er maðurinn að
skrifa mér? spyrðu nú eflaust. Jú,
það er oft sagt að eftir höfðinu
dansi limimir og af því mér finnst
skemmtilegra að horfast í augu við
viðmælendur mína en að starblína
á lúkur þeiira eða tær þá sný ég
mér til þín. í þeirri von að þú getir
leyst úr einhvetjum þeirra spum-
inga sem vöknuðu með mér við
lestur bréfsins. Því eins og ég sagði
'aðan er ég engu nær um það hvort
og þá hvaða hluti starfsemi minnar
heyrir undir ákvæði 11. greinarinn-
ar margumræddu.
Til að setja þig inn í málið er
best að byija á að skýra stuttlega
frá því hvað ég hef að lifibrauði
þessi misserin.
í fyrra gafst ég upp á innan-
hússeijunum á Þjóðviljanum og
ákvað að reyna fyrir mér upp á
eigin spýtur í atvinnulífinu að
fækka milliliðunum milli mín og
kapítalsins. Við slógum okkur sam-
an þrír félagamir og störtuðum því
sem stundum er nefnt sjálfstæður
atvinnurekstur. Fengum okkur af-
drep og tölvur og buðum þjónustu
okkar hvetjum þeim sem þarf að-
stoð við einhvers konar útgáfu og
skyldan rekstur. Fyrirtækið okkar
heitir Ráðgjafar- og útgáfuþjónust-
an og fram til þessa er óhætt að
segja að síðari liðurinn hefur verið
ráðandi í starfseminni, þótt vita-
skuld hafi ég gaukað hollráðum að
fólki þegar eftir hefur verið leitað
og ég aflögufær. Oftar en ekki án
endurgjalds. Enda bölvaður klaufi
að verðleggja mig.
Verkefnin sem ég hef tekið að
mér sem verktaki eru margvísleg.
Ég hef fengist við öll stig útgáfu
blaða og tímarita, allt frá skriftum,
samvinnu við aðra höfunda og ljós-
myndara, útlitsteikningu og próf-
arkalestri yfir í samskipti og
samningagerð við prentsmiðju og
dreifingaraðila. Stundum allt þetta
en oftar einhvem hluta ferlisins.
Ég hef samið texta í auglýsingar,
SIEMENS
IslBt
ma ðtésen
Uúð^'°neW'°^8e'c'
SMUH & NORLAND
Nóatúni 4
S. 28300
teiknað eina og eina, skrifað kynn-
ingarefni fyrir fyrirtæki, gert eina
litla markaðskönnun, annast tölvu-
skráningu fyrir fyrirtækjaskrá og
m.a.s., skrifað bréf fyrir mann til
forvera þíns í embætti. Já, og ekki
má gleyma þýðingunum.
Er blaðamennskan
skattskyld?
Þetta er nú í grófum dráttum
það sem ég hef verið að dunda mér
við undanfama fjórtán mánuði og
kannski hefur eitthvað gleymst en
það er þá ekki merkilegt. Og þá
er komið að þeirri spumingu sem
hefur hringsnúist í kollinum á mér
síðan á föstudaginn: Hvað af öllu
þessu skyldi nú falla undir marg-
umrædda lagagrein?
Þegar ég renndi yfir upptalning-
una (11. greininni var það einkum
þrennt sem mér fannst hugsanlegt
að skattstjórinn vildi heimfæra upp
á mig og mína starfsemi: „tölvu-
vinnsla", „hvers kyns ráðgjöf" og
„gerð, miðlun og ráðgjöf varðandi
auglýsingar". En þessi niðurstaða
vakti fleiri spumingar en hún svar-
aði.
Tökum fyrst tölvuvinnsluna. Ber
að skilja að svo að ég þurfi að
greiða skatt af þeim texta sem ég
skrifa á tölvu en ekki þeim sem
verður til við ritvélina? Tölvuvinnsla
er víðtækt hugtak og felur í sér,
að frátalinni forritun o.þ.h., hvers
kyns meðhöndlun upplýsinga í
tölvu. Blaðamenn hafa þann starfa
að afla upplýsinga og setja þær
fram í rituðu máli eða töluðu. Fell-
ur sá starfi undir bráðabirgðalögin
þín ef hann er unninn á tölvu? Eg
á bágt með að trúa að ætlun þín
sé að bregða fæti fyrir eðlilega
tækniþróun blaðamannastéttarinn-
ar með þessum hætti.
Þá er það ráðgjöfín. Hvað vilt
þú setja undir þann barðastóra hatt?
Er það ráðgjöf að semja texta í
kynningarskyni eða annast um útlit
blaða? Vissulega má líta svo á að
útlitsteikning sé í raun ekki annað
en ráðgjöf til umbrotsmanna um
það hvemig skipa beri efni á síður.
En erþað ekki frekar langsótt skýr-
ing? Ég lít fyrst og fremst á mig
sem fagmann, verktaka sem tekur
að sér tiltekin stöif, í mínu tilviki
útgáfuþjónustu.
Loks em það auglýsingamar. Ég
hef ekki tekið að mér miðlun aug-
lýsinga eða ráðgjöf um þær. Hins
vegar hef ég dálítið komið nálægt
gerð þeirra, þ.e. samið texta í
nokkrar og teiknað örfáar í þau
blöð sem ég hef séð um útlitið á
að öðru leyti. Ef við gefum okkur
að útlitsteikning sé ekki skattskyld,
Þröstur Haraldsson
„Þú sérð af þessu
spurningaflóði að
margt er óljóst um
framkvæmd bráða-
birgðalaganna sem þið
settuð í hasti í vor. Það
hvarflar að manni að
þessi lagasetning haf i
ekki verið nægilega vel
ígrunduð og undirbú-
in.“
— hún er hvergi nefnd (11. grein-
inni — á ég þá að reikna skatt af
þeim tíma sem það tekur mig að
teikna auglýsinguna en ekki meðan
ég er að koma fyrir viðtalinu á
síðunni á móti?
Hvenær á að
innheimta?
Söluskattur hefur þann eigin-
leika að hann er ávallt lagður á
síðasta stig í ferli vöra eða þjón-
ustu. Ef ég sem texta í auglýsingu
fyrir auglýsingastofu sem síðan
selur hana — og þar með mína vinnu
— þeim sem pantaði hana, á þá
ekki að leggja skattinn á þegar
auglýsingin er seld? Á ég líka að
leggja skatt á hana?
Gangur auglýsingar sem gerð er
á stofu er oftast á þá leið að fyrir-
tæki sem hyggst auglýsa semur við
stofuna. Stofan annast gerð auglýs-
ingarinnar, ýmist með eigin starfs-
krafti eða með aðstoð verktaka utan
úr bæ. Þegar auglýsingin er tilbúin
selur stofan fyrirtækinu hana. Þá
á eftir að ákveða birtingu auglýs-
ingarinnar. Blöð og tímarit hafa
oftast einhveija á sínum snæram,
fasta starfsmenn eða verktaka,
,sem safna auglýsingum gegn
þóknun. Yfírleitt er sá háttur hafð-
ur á að safnarinn fær ákveðna
prósentu af auglýsingaverðinu (þ.e.
greiðslu fyrir birtingu), afganginn
fær viðkomandi blað. Hvar í þessu
ferli á að greiða söluskatt? Mér
sýnist eðlilegast að það sé gert
þegar stofan selur fyrirtækinu til-
búna auglýsingu. Einnig mætti
hugsa sér að blöðin leggi skatt ofan
á reikninginn fyrir birtinguna til
auglýsandans.
Af sumum blöðum og tímaritum
er ekki greiddur söluskattur. For-
verar þínar hafa veitt þeim undan-
þágur á þeirri forsendu að þau hafí
menningarlegu eða félagslegu hlut-
verki að gegna. Þannig greiðir
Samúel söluskatt en ekki Þjóðlíf.
Ég veit að þú ert mikið á móti þessu
undanþágufargani, en þær era enn
við lýði, hvort sem þér líkar betur
eða verr. Þýða nýju lögin þfn að
mér beri að reikna söluskatt ofan
á þá vinnu sem ég tek að mér fyr-
ir undanþágublöð en ekki hin? Eiga
undanþágublöð að innheimta sölu-
skatt af auglýsingatekjum en ekki
öðram tekjum sínum?
Er þetta einf öldun
Þú sérð af þessu spumingaflóði
að margt er óljóst um framkvæmd
bráðabirgðalaganna sem þið settuð
í hasti í vor. Það hvarflar að manni
að þessi lagasetning hafi ekki verið
nægilega vel ígranduð og undirbú-
in. Og það er ekki nógu gott því
til þess að lög nái tilgangi sínum
þurfa þau að vera skýr og ótvíræð.
Að öðram kosti bjóða þau heim
margvíslegum túlkunum og jafnvel
því að fólk fari að nefna starfsemi
sína einhveijum nöfnum sem ekki
falla undir lögin. Það kallar svo á
stóreflt eftirlit, kostnað og skrif-
fínnsku sem sómir sér betur á
austlægari breiddargráðum en hér
í vestrinu miðju.
Og ef ég á að segja eins og er
þá sýnast mér nýju lögin þín heldur
lélegt framlag til þeirrar einföldun-
ar á skattakerfínu sem þú boðaðir
af hvað mestum ákafa í kosninga-
baráttunni i vor.
Nú ætla ég að kveðja þig í þeirri
von að þú svarir mér sem fyrst svo
skattstjórinn í Reykjavík þurfi ekki
að bíða mjög lengi eftir skýrslunni
frá mér. Éins og er treysti ég mér
alls ekki til að semja hana.
Htifundur er blaðamaður.
Húsdýrin okkar aftur fáanleg
BÓKAÚTGÁFAN Bjallan hefur
gefið út í þríðja sinn bókina
Húsdýrin okkar eftir Stefán Að-
alsteinsson og Kristján Inga
Einarsson. Bók þessi hefur verið
ófáanleg um tíma.
Húsdýrin okkar hlaut viðurkenn-
ingu Námsgagnastofnunar árið
1985. Einnig er hún á úrvalslista
IBBY, alþjóðlegra samtaka sem
vinna að eflingu góðra bóka fyrir
börn og unglinga.
í bókinni era 70 litmyndir og
fróðleikur um húsdýrin.
• •
GOMLU DANSARNIR
sem þig hefur alltaf langað til að læra.
Nú er tækifærið. Vinsælu opnu tímarnir verða næstu 5 mánudaga kl. 21-23.
5. október: Rælar, polki, stjörnupolki.
12. október: Skottís, Óli skans, kátir dagar.
19. október: Vínarkruss, skoski dansinn, Tennesseepolki.
26. október: Mars, vals, marzurka.
2. nóvember: Tirolavals og hopsa, svensk maskerade, hambo.
BARNADANSAR ÞJÓÐDANSAR
Á mánudögum frá kl. 17-18.30.
ÖIl börn velkomin.
im 'q'
Hafíð þið áhuga á að læra íslenska
og erlenda þjóðdansa?
Verið þá með á fimmtudagskvöldum
kl. 20.30.
Gömlu dansarnir fyrir byrjendur.
10 tíma námskeið á mánudögum
kl. 20-21.
Hægari yfírferð en í opnu tímunum.
Nánari upplýsingar f símum 687464 og 681616.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Sundiaugavegi 34 (Farfuglaheimillð)
4~;