Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 52

Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri fróðlegi þáttur. Sem Sporðdreki stenst ég ekki þá freistingu að koma með spumingu. Gæti verið að manneslqa, ég, fædd 29.10. 1954, eigi alls ekki heima í þessu merki? (Ég get alls ekki verið köld, fráhrindandi, móðgandi, nístandi, grimm o.s.frv. Ég er opin og frekar hlýr persónuleiki.) Hvemig má þetta vera? Ég vildi stund- um óska að ég gæti verið vond og grimm. Þegar mér sámar við einhverja get ég varla komið með það fram í dagsljósið en fel það innra þó ég vildi gjaman geta verið þannig að það sæist." Svar: Því miður sendir þú einungis inn fæðingardag og ár en ekki fæðingartíma. Það gerir mér erfiðara um vik að svara bréfi þínu. Ég vil reyndar nota tækifærið og nefna það hér að oft vill brenna við að það gleymist að senda inn tíma eða fæðingarstað. Þegar slíkt gerist er yfirleitt ekki hægt að svara bréfum þó vilji sé fyrir hendi. SporÖdreki Það sem mér finnst athyglis- verðast við bréf þitt er að í fyrrihlutanum telur þú þig ekki Sporðdreka og nefnir þar nokkra eiginleika sem þú telur dæmigerða. í síðari hluta bréfsins lýsir þú hins vegar dæmigerðum Sporðdreka- þætti, en svo virðist sem þú teljir það ekki til Sporðdrek- ans. Aumingja drekinn Fyrst verð ég að segja að aumingja Sporðdrekinn virð- ist hafa á sér heldur slæmt orð. í því sambandi er kannski rétt að taka það fram að öll merki hafa sína skuggahlið, hafa neikvæð einkenni. Það þó einstakt fólk hafi ekki alla veikleika merkisins í fari sínu táknar hins vegar ekki að fólkið sé ekki í merkinu. Ég vil t.d. segja það að ég tel mig vera í Nautsmerkinu þó ég telji mig ekki þröngsýnan nautnasjúkan og fégráðugan þumbara. (Þær útgáfur eru til af Nautinu.) En hvað varð- ar Sporðdrekann þá held ég að við ættum að gefa honum tækifæri og einblína ekki um of á skuggahliðamar. TvœrhliÖar Þú gefur tvær lýsingar á per- sónuleika þínum í bréfinu. Annars vegar ert þú opin og frekar hlý en hins vegar felur þú ákveðna þætti innra með þér. Fyrri þátturinn er greini- lega tengdur Bogmanni, en þú hefur Tungl, eða tilfinning- ar, m.a. í Bogmanni. Síðari þátturinn er hins vegar greini- lega tengdur Sporðdreka. Lesa saman Hér erum við komin að kjama málsins. Hann er sá að þú ert bæði Sporðdreki og Bogmað- ur. Þegar kort þitt er túlkað þarf að lesa þessi merki sam- an. Þú sem persónuleiki ert blanda úr þessum báðum merkjum. Að lokum þetta: Svarið við spumingu þinni er nei, þ.e.a.s. þú átt ömgglega heima í Sporðdrekamerkinu. Það virðist einungis sem þú haldir að til þess að vera í ákveðnu merki þurfi altar hliðar merkisins að eiga við. Auk þess virðist sem þú viður- kennir Bogmanninn sem persónuleika þinn en horfír framhjá þvf að Sporðdrekinn sé einnig hluti af persónuleik- anum. Þetta er algengt, að þegar tvö ólík merki mætast í persónuleikanum, þá er ann- að valið og horft framhjá hinu. Hin endanlega niðurstaða er semsagt sú að þú ert svokall- aður Bógadreki. GARPUR P&SJS KE/HSr AÐ þH/l AÐ þAD en EKKJ LérriÆRKAÐ , STJÓKNA KDNUHGSKÍK/NU eiERHlU EN- ■ ■ £W... $£<5£>U ÞEI/H..4C HVAD’A É&AÐ £G ÞOtZF/ AD SBGJA &AÐ HUGSA E/NN GJÖFUNUM? I i NÆE>/ GRETTIR TOMMI OG JENNI DRATTHAGI BLYANTURINN © PIB copenhagen FERDINAND SMÁFÓLK YOU 5U0ULP 5EE HER R00M AT HOME.MA'AM.. HER CL05ET ANP PRE55ER PRAUIER5 ARE 50 NEAT... I THINK SHE KEEP5HER50CK5/Y0URE IN ALPHABETICAL UUEIRC? ORPER! \ 5|R . > Já, kennarí, þetta var víst heldur slæmur frágangur á stílnum. Ég hefi reynt það, en ég get ekki verið eins snyrti- leg og hún Magga. Þú ættir að sjá herbergið hennar heima, kennari. Þar er allt í röð og reglu í hillunum og skúffunum. Ég held að hún geymi sokkana sfna í stafrófsröð! Þú ert rugluð, herra ... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þú ert í vestur, í vöm gegn þremur gröndum suðurs: Norður ♦ D86 40 iro ♦ KDG107 ♦ G42 Vestur ♦ K103 .. ♦ DG1098 II ♦ 543 ♦ D10 Suður vakti á einu 12—14 punkta grandi og norður stökk beint í þrjú grönd. Útspil þitt er að sjálfsögðu hjartadrottning, sem sagnhafi drepur í blindum og spilar spaða á gosann heima. Þú drepur kóng og gerir hvað? Hönd suðurs gæti eins legið opin á borðinu. í fyrsta slag upplýstist að suður er með hjartaásinn. Hann hlýtur einnig að eiga spaðaásinn, úr því hann ræðst strax á þann lit. Og tígul- ásinn vafalaust líka, því annars hefði hann byrjað á að sækja hann. Þrír ásar eru 12 punktar og spaðagosinn sá þrettándi. Makker á því ÁK í laufi, og þú getur glatt hann ósegjanlega með því að spila laufdrottningu og meira laufi. Norður ♦ D86 «* iro ♦ KDG107 ♦ G42 Vestur Austur ♦ K103 ♦ 942 ♦ DG1098 li ♦ 763 ♦ 543 ♦ 92 ♦ D10 Suður ♦ ÁG75 ♦ Á54 ♦ Á86 ♦ 963 ♦ ÁK875 Umsjón Margeir Pétursson Á OHRA-mótinu í Amsterdam í ágúst kom þessi staða upp í B-flokki i skák Spánverjans Rom- ero og v-þýzka stórmeistarans Lobron, sem hafði svart og átti leik. 28. - Ba7, 29. Rxd7 - Bxf2+, 30. Khl og hvítur gafst upp áður en hann var mátaður. Þessi flétta komst ekki athugasemdalaust [ gegnum tæknideild Morgunblaðs- ins, því að eins og Ómar Óskars- son starfsmaður þar benti á er mun einfaldari mátleið í stöðunni: 28. - Dxfl+I, 29. Kxfl - Bh3+, 80. Kgl — Hel mát.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.