Morgunblaðið - 01.10.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
53
Orwell sem stríðs-
fréttaritari
Erlendar bækur
Siglaugur Brynjólfsson
George Orwell: The War Com-
mentaries. Edited by W.J. West:
Penguin Books 1987.
George Orwell vann við breska
útvarpið frá því í ágúst 1941 til
nóvember 1943. Hann flutti sjálfur
þætti um styijöldina og skrifaði
einnig vikulega þætti um gang
styijaldarinnar, sem voru að mestu
leyti fluttir af öðrum. Útgefandinn
W.J. West var svo heppinn að finna
þessa þætti og pistla í rauninni fyr-
ir hreina tilviljun 1984, á ári
Orwells. Útgefandinn segir í inn-
gangi að þessu riti frá þeim
pólitíska ramma, sem krafist var
af ritskoðuninni á þessum árum og
sem Orwell varð að hlíta. Áróður
breyttist mjög við tilkomu útvarps-
ins snemma á þessari öld og á
stríðstímum var áróður um útvarp
hið þarfasta þing. Það var auðvelt
að breiða út falskar fréttir og end-
urtaka þær nógu oft og með til-
heyrandi fjölbreytileika, svo að
hlustendur urðu að trúa þeim sem
sannleika. Þessi iðja var stunduð
af báðum stríðsaðilum í spænsku
borgarastyijöldinni og af áróðurs-
meisturum Þriðja ríkisins. Orwell
hafði eigin reynslu fyrir valdi áróð-
ursins í. spænsku borgarastyijöld-
inni og ekki sem besta. Þegar fyrri
heimsstyijöldin braust út höfðu for-
ustumenn Þriðja ríkisins mun meiri
reynslu í fjölda-áróðri heldur en
Bretar. Þjóðveijar voru ósparir á
að útvarpa kenningum sínum og
áróðri til Qarlægra þjóða og unnu
með því m.a. að grafa undan bresk-
um áhrifum m.a. á Indlandi.
Andbreskur áróður Þjóðveija til
Indlands um stöðvar sem voru
starfræktar í þeim tilgangi einum,
höfðu mikil áhrif þar í landi. Fjöldi
Indveija barðist með breskum heij-
um og sjálfstæðisbaráttu Indveija
kom sér um þetta leyti enganveginn
vel fyrir Breta.
Eina svarið var að koma upp
andáróðri gegn þýsku áróðurs-
maskínunni. Til þess þurfti menn
sem voru öllum hnútum kunnugir
á Indlandi og sem gátu andmælt
lygaáróðri Þjóðveija eins fljótt og
gjörlegt var. Meðal þeirra sem val-
inn var til þessa starfs var George
Orwell, sem þó var þekktur að því
George Orwell
að styðja sjálfstæðiskröfur Indveija
frá fornu fari. Að Orwell skyldi
gefa sig til þessa starfs kom til af
því, að hann sá meiri hættu ógna
Indlandi, sem var alræðisvald Hitl-
ers-Þýskalands. Orwell taldi það
lakarí kost en vald Breta yfir Ind-
landi um nokkur ár. Það sama gilti
um stuðning Orwells við stríðs-
rekstur Breta, þótt hann væri
andsnúinn ríkjandi þjóðfélagsbygg-
ingu, taldi hann að allir þyrftu að
sameinast um að beija niður alræð-
ishyggju nasismans.
Orwell kynntist áróðurstækninni
og þeirri fijálslegu meðferð sann-
leikans, sem allur áróður byggist á
með þessum störfum sínum. Þessir
þættir eru nú minjar um áróð-
ursstríð fýrir löngu, en þeir höfðu
mögnuð áhrif á sínum tíma og
tæknin jók skilning Orwells sjálfs
á áróðurs-hættunni. Með því að
falsa atburðarásina og falsa alla
sögu nútíðar og fortíðar var gjör-
legt að móta meðvitundina að ósk
falsaranna og ná þannig áhrifum
og völdum. Þræðir liggja frá þessu
starfi Orwells til sögufalsaranna í
„1984".
Hugmyndafræðingar nú á dög-
um iðka þetta fölsunarstarf á
ólíklegasta vettvangi og þar sem
menn varir síst, ekki grófar sögu-
falsanir heldur einnig stendur nú
áróðurshríðin á undirstöðu
mennskra samskipta og skilnings,
málið sjálft.
Þessir þættir Orwells bera með
sér snilld höfundarins eins og annað
það sem hann hefur fest á blað.
Úr mynd Francis Coppola, „Steingarðar", sem Stjömubíó hefur
hafið sýningar á.
Stjörnubíó:
Sýnir mynd Francis
Coppola, „Steingarðar“
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á nýjasta verki Francis
Coppola, „Steingörðum“, með
leikurunum James Caan, Ary'-
elicu Huston, James Earl Jones,
D.B. Sweeney og Dean Stock-
well I aðalhlutverkum. Myndin
er byggð á skáldsögu Nicholas
Proffitt.
wSteingarðar“ er mynd um áhrif
Vfetnamstríðsini á ættingja óg ást-
vini heima fyrir. Það er Jackie
Willow sem er ungur hugsjónamað-
ur sem álítur að hermaður eigi
aðeins að vera á einum stað á
stríðstfmum, þ.e.a.s. á vígvellinum.
Hann heldur til Vfetnam, ungur,
hraustur og nýkvæntur. Heima bfða
eiginkonan, ástvinir og ættingjar
sem hittast reglulega og lesa bréfin
frá Jackie, segir m.a. í frétt. frá
: kvfkmyndahú9inu. ■
IFRABÆRU URVALI
Módelsmíði erheillandi tómstundagaman, sem stunduð er af fólki á
öllum aldri. Vönduðu plastmódelin frá REVELL fást nú í geysilegu
úrvali: Flugvélar, bilar, mótorhjól, bátar, geimför, lestirog hús í öllum
mögulegum gerðum og stærðum. Póstsendum um land allt
"-Z^fJJ/PPfíHÚ
avegi 164
simi
HDWi
21901,