Morgunblaðið - 01.10.1987, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
Hugflæði Harðar
Reykjavíkur-
plata frá Megasi
Frá Megasi er væntanleg plata
fyrir jólin, en hann gerði samning
um hljómplötuútgáfu við Gramm-
ið í sumar. Plötuna tók Megas
upp í Stemmu á Seltjarnarnesi,
en upptökustjóri og aðstoðar út-
setjari var breskur, Brian Pugs-
ley, sem áður hefur starfað með
Sykurmolunum. Rokksíðan brá
sér vestur í Stemmu, og innti
Megas eftir því hvor um væri að
ræða frávik frá þvf sem hann
hefði áður gert, hvort hann væri
að breyta til tónlistarlega.
Það held ég ekki. Það eina væri
þá að tónlistin er fjölbreyttari en í
fyrra, ég var þá á þrengra, af-
markaðra svæði. Nú er það meira
svona allt mögulegt.
Þetta er Reykjavíkurplata, það
voru allir farnir að gera Reykjavík-
urplötur svo ég sá mitt óvænna.
Platan kemur og út í tilefni af 201
árs afmæli borgarinnar.
Ert þú þá ánægður með útkom-
una, ertu ánægður með plötuna
elns og útlit er fyrir að hún verði?
Já ég er mjög ánægður með
hana og þaö hefur verið mjög gam-
an að vinna að henni með Brian.
í fyrra vann ég öðruvísi, þá sá
Tómas Tómasson um útsetningar
út frá mínum grunnhugmyndum
án þess ég væri beinlínis með
puttana í því. Nú hef ég verið
meira yfir þessu og við Brian út-
setjum saman. Það er að vísu
meiri vinna, en það er aftur
ánægjulegra.
Hvernig miðar?
Það er búið að vinna níu lög af
sautján. Tólf fara á plötuna og
fimm verða sett á geisladisk sem
einskonar agn.
Hvað með hljóðfæraleik?
Gulli leikur á alla gítara, utan
þess sem Þorsteinn spilaði inn,
auk þess sem hann er með um-
sjón, hann er þriðja eyrað. Sig-
tryggur leikur á trommur, Haraldur
Þorsteinsson leikur á bassa, syst-
urnar Inga og Björk Guðmunds-
dætur syngja, Þorgeir Ólafsson
leikur á saxófón, Eyþór Gunnars-
son spilar á píanó og hljómborð,
organisti, líkt og í öðrum kirjum,
er Karl Sighvatsson, Daöi leikur á
óbó, Reynir leikur á harmonikku,
Vilma leikur á fiðlu, Ásbjörn leikur
á munnhörpu, Tómas R. leikur á
kontrabassa og svo mætti lengi
telja. Það er mikil breidd í tónlist-
inni og kannski væri fljótlegra að
geta þess sem ekki er til staðar
en þess sem er.
Torfasonar
Guili, Megas og Brian.
Morgunblaðiö/Bjarni
í dag kemur út plata
Harðar Torfasonar, Hug-
flæði, sem Steinar gefur út.
Segja má að Hugflæði se
tímamótaplata fyrir Hörð, því
ekki hefur hann áður látið
öðrum eftir að útsetja lögin
sem hann semur sjálfur. Við
gerð hennar hafði hann sér
til aðstoðar upptökustjórann
P.H. Juul, sem er einn kunn-
asti upptökustjóri Dana, og
bassaleikarann Jörgen John-
beck, sem leikur á bassa í
öllum lögum og sér að auki
um útsetningar.
Á plötunni eru tólf lög eða
tólf sögur eins og Hörður lítur
á lögin. Textarnir eru per-
sónulegir og yfir þeim er
léttara en á síðustu plötu
Harðar, Tabú, enda hefur
Hörður sagt í viðtali að Hug-
flæði sé dagur, birta, gleði
og kæti, ólíkt Tabú sem var
nóttin, ruglið, brennivínið og
dópið.
Plötuflóð
í lokin má vitna í orð Bubba
Morthens á bakhlið plötuum-
slagsins:
„Þetta eru sundurlaus orð
um eina af bestu plötu
íslenskrar vísnatónlistar, en
þessi plata er sönn. Ég óska
þeim sem kaupa þess plötu
hins sama og henti mig er
ég heyrði hana, gleði og
ánægju yfir því að svona tón-
list skuli vera samin enn í
dag."
Árið í ár ætlar að verða mesta
íslenskt plötuútgáfuár frá örófl,
þegar er búið að gefa út tuttugu
og sjö plötur að mlnnsta kostl
og þrjátfu og fimm eru eftir.
Fyrsta platan af þeim þrjátíu og
fimm er Hugflæði Harðar Torfa-
sonar sem kemur út 1. október.
Steinar gefur þá plötu út og gefur
einnig út í haust plötur með Rauð-
um flötum, Grafík, Ríó Tríó, Bjart-
mari, Eyjólfi Kristjánssyni, Ladda,
Model, Gunnari Þórðarsyni, Greif-
unum og tvær til þrjá plötur til
viðbótar.
Skífan gefur út plötur með Guð-
jóni Guðmundssyni, Gaua, Ásgeiri
Sæmundssyni, Björgvin Halldórs-
syni og Jóhanni Helgasyni, en mun
auk þess dreifa plötu með Strax.
Grammið gefur út plötur með
Bubba Morthens og Megasi, en
auk þess dreifir Grammið plötu
Sykurmolanna sem gefin verður
út á Bretlandi.
Geimsteinn gefur líklegast út
tvær hljómplötur, plötu með Rún-
ari Georgssyni og Þóri Baldurssyni
og plötu með Rúnari Júlíussyni.
Hljómplötuútgáfan Tóný gaf ný-
lega út plötu með Rúnari Rimla-
rokkara en væntanlegar eru plötur
með Siggu Beinteins, Sverri
Stormsker, tvöföld, og líklega einn-
ig með Súld og Stanya (Þorsteini
Magnússyni).
Fálkinn gefur aðeins út eina
plötu, plötu með Bjarna Tryggva-
syni, en dreifir aftur á móti plötu
Rickshaw, sem gefin er út á Bret-
landi.
Smekkleysa s/m sendir frá sér
plötu Sykurmolanna, sem gefin er
út í samvinnu við enskt fyrirtæki,
og heyrst hefur að Smekkleysu-
menn séu að íhuga að gefa út plötu
með Johnny Triumph.
Nýtt útgáfufyrirtæki, Bat, gefur
út blúsrokkplötu Bobby Harisson,
sem hann tók upp með sveit sinni
sem í eru þeir Friðrik Karlsson,
Eyþór Gunnarsson ofl.
Þessari upptalningu lýkur síðan
á útgáfu Erðanúmúsík, en Erðanú-
músík gefur líklegast út sk. „flexi“-
plötu með S/H draumi og fyrir jólin
kemur út tólflagaplata með
inni.
TSOL-tónleikar
SfcTbastarnF ^ Morgur4iaó<aÆuerr<r 1 Li
í enduðum ágúst gáfu Sykur-
molarnir út á plötu í Bretlandi
lagið Ammæli undir nafninu
Birthday. Velgengni lagsins hef-
ur orðið meiri en nokkur þorði
að vona og þegar þetta er ritað
er lagið í tólfta sæti breska „in-
dependent" listans, á örri
uppleið.
Segja má að fyrsti vísirinn að
því sem síðar varð hafi verið
þegar breska tónlistartímaritið
Melody Maker valdi Birthday lag
vikunnar með þeim ummælum
að það væri ógleymanlegt. í kjöl-
far þess fóru tveir molar ytra til
viðtals við blaðið og um leið við
önnur blöð. Melody Maker,
‘""'hýiÉfct
opnu eða heilsíðu viðtöl við mol-
ana tvo, þá Björk og Einar Örn.
Þegar fyrsti „indie" listinn eftir
þennan uppslátt var birtur var
lagið þar í 24. sæti. í nýjum blöð-
um má síðan sjá að lagið er
komiö í tólfta sæti, á hraðri upp-
leið.
Sykurmolarnir eru ná á förum
út og halda þeirtónleika í London
um miðbik mánaðarins til að
kynna plötuna enn frekar. Af
þeim sökum geta þeir ekki leikið
á undan bandarísku sveitinni
TSOL í' (slensku óperunni eins
og ákveöið hafði verið, en Bleiku
bastarnir hlaupða í skarðið. Nán-
ar um það annarsstaðar á
E-X
Morgunblafiið/Bjarni
í kvöld og annnað kvöld heldur
bandaríska rokksveitin TSOL
tvenna tónleika hér á landi.
Fyrri tónleikarnir verða í Casa-
blanca, en þar leikur hljómsveitin
E-X á undan Bandaríkjamönnun-
um. E-X hefur lítið haft sig í frammi
síðan í júlí, en ætlar að hefja öflugt
vetrarastarf með tónleikunum í
kvöld. Eftir frammistöðu sveitar-
innar fyrr í sumar er víst að
liðsmenn liggja ekki á liði sínu í
Casablanca.
Síðari tónleikar TSOL verða í
Óperunni, en þar var auglýst að
Sykurmolarnir myndu hefja tón-
leikana. Það hefur þó breyst, enda
þurfa Sykurmolarnir að fara til
Bretlands, og eru líklegast farnir
utan þegar þetta kemur á prent. í
stað Sykurmolanna koma Bleiku
bastarnir, sem víða hafa leikið að
undanförnu og eru ein af efnilegri
sveitum á landinu um þessar
mundir.
Ljósmynd/BS
Sykurmolasókn