Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
„OHIAÍA/
Hársnyrting
fyrir dömur og herra
Hvað
eftir Valdimar
Gunnarsson
Á undanfomum vikum hefur
mörgum orðið tíðrætt um einnota-
umbúðir. Einkum hefur verið rætt
um umbúðir undir kolsýrudrykki
og aðra drykki. Rætt hefur verið
um að setja reglur um notkun vissra
efna í einnotaumbúðir og jafnvel
banna sum þeirra. Umbúðir eru
áberandi og verða meira og meira
áberandi í daglegu lífí okkar. Nú
eru allar vörur sem við kaupum
innpakkaðar nema bensín.
Þegar neytandinn hefur ákveðið
vömkaup sín og afhending hefur
farið fram, hefur handsal farið fram
frá framleiðanda til neytanda með
veslun sem millilið.
Með eignarrétti sínum tekur
neytandinn á sig þær kvaðir sem
hin innpakkaða vara krefst. Neyt-
andinn getur ekki litið á umbúðimar
sem einangrað fyrirbæri (verð-
Látið ELSPED annast
vöruflutninga ykkar
um Hamborg!
ELSPED annast ftutningsmiðlun fyrir vörur frá Vest-
ur-Þýskalandi, Austur-Þýskalandi, Austurríki, Sviss,
Ítalíu, Ungverjalandi og Tékkósióvakíu.
• Viö höfum margra ára reynslu í þjónustu við íslensk fyrirtæki.
• Viö erum sjáifstæöir og störfum ávallt meö hagsmuni viöskiptavina okkar
efst í huga.
• Viö erum fullkomlega tölvuvæddir og tengdir viö hafnarskrifstofur og skipa-
félög og tryggjum þannig hraða og örugga þjónustu bæöi hvaö varðar frá-
gang skjala og flutninginn sjálfan.
• Við erum með útibú í Bremen og umboösmenn í Belgíu, Hollandi, á Stóra-
Bretlandi og italíu.
Höfum lengi unnið fyrir mörg rótgröin íslensk fyrirtæki.
Reynið þjónustu okkar!
ELSPED Speditions-Gesellschaft m.b.H.
Adenauerallee 3-6 D-2000 Hamburg 1
Sími: (040) 2878-6 Telex: 2162108 Telefax: (040) 2878-222/266
er í ruslapokanum?
mæti), þær em ávallt hluti af einni
heild, vömnni.
Á síðustu 10—20 ámm hefur
þróunin orðið sú að notkun á ein-
notaumbúðum hefur aukist. Kemur
þar til breyting á umbúðaefnum
eins og plasti og samsetningu nokk-
urra plasttegunda, samsetning
plasts/pappírs/áls og léttari málma
en áður. Eins hefur endurskipulagn-
ing innan matvömverslunarinnar,
sem gat af sér sjálfsafgreiðslukerf-
ið, hjálpað til við að lækka neyt-
endakostnað og einnig aukið
notkun á einnotaumbúðum.
Nota-kasta-hugarfarið er viðhorf
sem fólk meðtekur ekki og neytand-
inn setur í samhengi msl vítt og
breitt í náttúmnni og mikla sóun á
náttúruverðmætum. Þó að umbúða-
msl sé þó nokkur hluti þess sorps
sem kastað er út í náttúmna, er
það að magni til aðeins hluti þess
sorps sem hafnar í náttúmnni.
Mestur hluti umbúðamsls er tekinn
saman á skipulegan hátt af sam-
félaginu, hreinsunardeildum sveit-
arfélaga, og urðað eða brennt.
í framhaldi af þeirri þróun sem
orðið hefur á verslun frá minni og
fleiri verslunum í stærri og færri
verslanir hefur staða neytandans
breyst. Neytandinn kaupir mun
meira í einu en áður, hann gerir
einnig kröfur til meira vömúrvals,
og fjarlægð frá framleiðanda til
neytanda hefur aukist. Þetta gerir
auknar kröfur til umbúða, bæði
hvað varðar hreinlæti og geymslu-
þol vömnnar. Neytandinn á ekki
svo auðvelt með að skilja þátt um-
búðanna í vömdreifíngunni, þátt
þeirra í betri gæðum vömnnar og
lægra vömverði. Það verður að sjá
umbúðimar í samhengi við aðra liði
er áhrif hafa á umbúðavalið —
framleiðandi — flutningsaðili —
vömumsetning — neytandi — en
ekki aðeins tengja þær mslatunn-
unni. Umbúðimar eiga að vera
verðmætaskapandi en ekki verð-
mætaeyðandi.
Helsta hlutverk umbúða er að:
— vetja vömna í flutningi og á lag-
er
— ákvarða hæfílegt magn í inn-
kaupum fyrir heildsala, smásala,
neytanda, ásamt því að létta
undir í meðferð vömnnar frá
framleiðanda til neytanda
— draga athygli að vömnni, selja
hana, gera grein fyrir notagildi
hennar, gera hana aðgengilega
fyrir neytanda
Jafnframt því að meta kostnað
verður vömframleiðandi einnig að
taka tillit til:
— áhrifa neytanda á umhverfíð,
framleiðslu- og dreifíngaráhrifa
— verðmætanotkun, hættu á
óþrifnaði og hvemig má eyða
umbúðum.
Ef litið er í mslapokann áður en
honum er fleygt í mslatunnuna fær
maður á tilfínninguna að um helm-
ingur sorpsins sé umbúðir. Mér er
ekki kunnugt um að neinar tölur
„Með eignarrétti sínum
tekur neytandinn á sig
þær kvaðir sem hin inn-
pakkaða vara krefst.
Neytandinn getur ekki
litið á umbúðirnar sem
einangrað fyrirbæri
(verðmæti), þær eru
ávallt hluti af einni
heild, vörunni.“
séu til hér á landi um hversu mikið
umbúðamsl sé í hlutfalli við allt
rusl sem til fellur.
í Noregi lítur mslapoki heimilis-
ins þannig út: Þungi% Rúmmál%
Pappír, pappi 34,1 56,0
Plastefni 5,7 18,5
Gler 5,5 1,4
Málmar 3,6 2,6
Tré- og tauefni 3,3 3,0
Matarafgangar 47,8 18,5
100,0 100,0
Uppbygging umbúðaiðnaðarins
er mjög mismunandi og notar hann
margar mismunandi gerðir hráefna.
Meðal þeirra nauðsynlegustu em
gler, plast, tré, pappír og málmar.
Þessum efnum er svo hægt að
skipta í „ekki endumýjast"- og
„endumýjast“-hráefni.
Meðal þeirra einnotaumbúða sem
hafa verið til umræðu að undanf-
ömu em pappafemur undir ýmsa
fljótandi vöm. Aðalhráefnið í þessar
femur er tré sem pappinn er unninn
úr. Tré er efni sem vex og er sjálf-
endumýjuð hrávara. Nálægt 40%
af heildarpappírsframleiðslu heims-
ins fer í einhverskonar umbúðir,
sem þýðir um 60 milljónir tonna á
ári. Ymsar aðferðir em notaðar til
að framleiða betri, þægilegri, með-
færilegri og ódýrari umbúðir.
Pappafemur sem getið var um að
framan em lagðar plastefni að utan
og innan. Stundum er álþynna inn-
an í þeim. Öll þessi efni eiga þátt
í því að varan komist heil og ógöl-
luð í hendur neytandans.
Plastefni er unnið úr gasi og jarð-
olíu, verðmætum sem ekki end-
umýjast. Um 2% af allri framleiðslu
heimsins á gasi og jarðolíu fer til
ýmiskonar plastiðnaðar, þar af fara
um 25% til umbúðaframleiðslu.
Sum plastefni í umbúðir er hægt
að endurvinna í annað en umbúðir,
önnur er hægt að brenna og fá
þannig orku.
Helstu málmar til umbúðafram-
leiðslu em blikk og ál. Framleiðslan
á blikki í umbúðir er um 6% af stál-
framleiðslu heimsins. Önnur gerð
þeirra einnotaumbúða sem tíðrætt
hefur verið um að undanfömu em
áldósir. Hráefni í álumbúðir fínnst
víða í jarðskorpunni. Málmar em
meðal þeirra efna sem ekki end-
umýjast, stöðugt er unnið að því
að gera málmumbúðir efnisminni
og ódýrari í framleiðslu.
Hráefni í glemmbúðir saman-
stendur af sandi, kalksteini, soda
og brotnu gleri. Þetta hráefni þrýt-
ur ekki næstu þúsund árin. Glerum-
búðir em þungar og því dýrar í
flutningi bæði til neytanda og frá
neytanda til vömframleiðanda á ný.
Glerverksmiðjur vinna nú að því að
útbúa léttari og þynnri einnotaum-
búðir sem eftir notkun væri fleygt
eða brotnar niður og endumnnar.
Endurvinnsla er hugtak sem talin
er vera lausn á félagslegum vanda
er tengist msli og verðmætum. Hún
felur í sér að msl sé fært út í fram-
leiðslulífíð á nýjan leik sem hrávara.
Endumotkun er annað hugtak
sem þekkt er hér nú í dag, t.d. á
glerflöskum.
Tilraunir hafa verið gerðar í
ýmsum löndum með mismunandi
stjómkerfí til að hafa eftirlit með
umbúðamsli, t.d. með banni á notk-
un ákveðinna umbúða, umhverfís-
gjaldi, frjálsri endurvinnslu, án
greiðslu og með greiðslu til neyt-
anda. Einnig samkomulagi milli
stjómvalda og viðkomandi iðnaðar
um takmörkun á framleiðslu og
markaðsfærslu fyrir vissar gerðir
umbúða.
Öll þessi kerfi þurfa sterka
stjómun og em dýr í framkvæmd
þar sem þau eiga að ná góðum
árangri. Svíar hafa verið með sitt
„Returpack“-kerfi í gangi í nokkur
ár, það kostaði 170 milljónir skr. f
uppsetningu og gert fyrir endur-
vinnslu á áldósum.
Hvað er annað til ráða til að
auka verðmæti umbúða og umbúð-
arusls en endumotkun og endur-
vinnsla?
— Orkunýting úr iðnaðar- og heim-
ilismsli til fjarhita fer vaxandi
erlendis. Talið er að um 5 kg
af heimilisrusli samsvari 1 kg
af olíu í orku.
— Hægt er að forðast að varan sé
„ofpökkuð", þ.e.a.s. nota ódýrari
efni þar sem hægt er að koma
því við án þess að það komi nið-
ur á gæðum vöronnar.
— Staðla umbúðir betur á palla og
í hillur vérslana, nota léttari og
ódýrari burðarþola undir vöm-
einingar. Um 10% af olíunotkun
landsins fer í vöradreifíngu.
Spumingin er einnig: „Hvað get-
ur einstaklingurinn gert til að halda
umhverfí sínu hreinu? í Finnlandi
og Noregi er unnið fyrirbyggjandi
starf í grunnskólum landanna með
kennslu um „umbúðir í samfélag-
inu“, nokkuð sem eykur skilning
ungra og verðandi neytenda á þætti
umbúða í umhverfinu. Það em verð-
mæti í rosli!
Höfundur er lærður umbúðafræð-
ingur ogrekur eigið ráðgjafarfyr-
irtækiá Akureyri.
STOR RYMINGARSALA
Ath.: 10% staðgreiðsluafsláttur af öllum nýjum vörum meðan á rýmingarsölunni stendur,
\c7\
Gunnar Ásgeírsson hf.
aut 16®
s