Morgunblaðið - 01.10.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987
Aðalheiður Björns
dóttir — Minning
í dag er til moldar borin Aðal-
heiður Bjömsdóttir, Hringbraut 52
hér í borg. Foreldrar hennar voru
Hólmfríður Hannesdóttir frá
Haukagili í Vatnsdal, föðuramma
undirritaðs, og Bjöm Þorsteinsson
kaupmaður á Hofi í Vatnsdal og
síðar bóndi í Miðhópi, Þorkelshóls-
hreppi í Vestur-Húnavatnssýslu.
Fárra vikna gamalli var Aðalheiði
komið í fóstur hjá hjónunum Jóni
Baldvinssyni og Ingibjörgu Krist-
mundsdóttur, sem bjuggu á Kötlu-
stöðum í Vatnsdal. Aðstæður
Hólmfríðar vom ekki með þeim
hætti um það leyti, sem hún eignað-
ist Aðalheiði, að hún gæti haft hana
hjá sér. Hún og afí höfðu skilið
fyrir nokkmm ámm og amma sá
fýrir sér og Jósefínu dóttur sinni,
aðallega með fatasaumi á ýmsum
bæjum í Vatnsdal og víðar í Húna-
vatnssýslu, en Halldór var í fóstri
hjá afa sínum og ömmu á Mið-
húsum.
Eins og á stóð var það mikið lán
fyrir Aðalheiði, að hjónin á Kötlu-
stöðum tóku hana í fóstur og ólu
hana upp með sínum bömum, en
þau vom að sögn nágranna þeirra
mikið sómafólk, bamgóð og uppal-
endur eins og best gerist. Það var
því bjart yfir bemsku Aðalheiðar
og æsku. Gamlir Vatnsdælir hafa
sagt, að skemmtilegt hafi verið að
alast upp í dalnum fagra á fyrstu
áratugum aldarinnar, þegar sveitin
var mannmörg og fjöldi ungs fólks
að alast upp á bæjunum. Aðalheiður
var á Kötlustöðum fram um tvítugt
að undanteknum tíma, sem hún var
við nám í Kvennaskólanum á
Blönduósi. Liðlega tvítug flutti Að-
alheiður til Reykjavíkur og var þá
um tíma hjá foreldmm mínum, og
varð sú dvöl upphaf að vináttu
þeirra, sem entist til æfíloka, en
þó að ég hafí verið of ungur til að
muna þennan tíma sést þó vel á
gömlum ljósmyndum í fjölskyldu-
albúminu, að góður vinskapur hefur
líka verið með litlum strák og Öllu
frænku hans.
Nokkm eftir að Aðalheiður kom
tjl Reykjavíkur fór hún að vinna í
Ölgerðinni og kynntist þar Kristni
Lýðssyni frá Hjallanesi í Landsveit.
Þau gengu í hjónaband árið 1931.
Kristinn starfaði í Ölgerðinni á
meðan kraftar entust, lengst af sem
verkstjóri. Hann var hinn ágætasti
maður, af gamla skólanum eins og
sagt er, traustur og duglegur.
Hjónaband þeirra var gott og böm
þeirra urðu fjögur, en auk þeirrar
dvöldu foreldrar Kristins á heimili
þeirra síðustu æfiárin. Það var allt-
af ánægjulegt að koma við á
Hringbraut 52 hjá Kristni og Aðal-
heiði, því hjónin vom hress og
brosmild og tóku vel á móti gestum
sínum, sem vom margir. Vegna
langra fjarvista minna úr borginni
leið stundum langur tími á milli
heimsóknanna, en viðmót þeirra
breyttist aldrei og þau tóku mér
alltaf eins og þau gerðu þegar ég
kom til þeirra í fyrsta skipti þegar
þau vom nýgift og bjuggu á Týs-
götunni, en þá var ég í fóstri hjá
þeim um tíma. Kristinn lést árið
1983 og nokkmm mánuðum áður
höfðu þau misst eldri son sinn, Jón.
Þetta hlýtur að hafa verið þung-
bært fyrir Aðalheiði, þótt hún sýndi
það ekki út á við.
Kristinn og Aðalheiður bámst
ekki á, en þau vom engu að síður
merkishjón, sem allir sem til þekktu
bám virðingu fyrir. Húsið þeirra
við Hringbrautina var ekki stórt,
en innan dyra var vítt til veggja
og þar var oft margt um manninn,
því í návist húsráðenda var ætíð
gott að dvelja.
Afkomendum Aðalheiðar og
tengdabömum votta ég samúð
mína. Guð blessi minningu Aðal-
heiðar Bjömsdóttur.
PáU Halldórsson
í dag verður til moldar borin í
Fossvogskirkjugarði tengdamóðir
mín, Aðalheiður Bjömsdóttir, en
hún andaðist á Sólvangi þann 20.
september, daginn eftir 83. af-
mælisdag sinn.
Aðalheiður fæddist 19. septem-
ber 1904 að Helgavatni í Vatnsdal.
Foreldrar hennar vom Hólmfríður
Hannesdóttir og Bjöm Þorsteins-
son, sem bæði vom húnvetnskrar
ættar. Nokkurra vikna gamalli var
henni komið í fóstur til sæmdar-
hjónanna Ingibjargar Kristmunds-
dóttur og Jóns Baldvinssonar að
Kötlustöðum í Vatnsdal. Hjá þeim
hjónum átti Aðalheiður sin bemsku-
og unglingsár og reyndust þau
henni sem bestu foreldrar. Uppeld-
issystur sínar, þær Halldóm, Rósu,
Guðrúnu og Jenný, leit hún ávallt
á sem raunvemlegar systur og yar
mikill kærleikur með þeim og böm-
um þeirra.
Alla ævi bar hún mikla tryggð
til átthaganna og var í nánu sam-
bandi við tvær uppeldissystra sinna
sem þar bjuggu. Jenný bjó á Eyj-
ólfsstöðum með manni sínum,
Bjama Jónassyni, og er ein á lífi
af þeim systmm og Rósa bjó á
Marðamúpi en hennar maður var
Guðjón Hallgrímsson. Báðir þessir
menn vom landsþekktir bænda-
höfðingjar og bjuggu stórbúi í
Vatnsdalnum.
Foreldrar Aðalheiðar hófu aldrei
sambúð, en giftust síðar hvort í sínu
lagi. Tvö hálfsystkini á hún á lífí,
Margréti Bjömsdóttur húsfreyju að
Köldukinn og Bjöm Bjömsson fv.
bónda í Miðhópi. Látin em Jósefína
Pálsdóttir póstmeistarafrú á Akur-
eyri og Halldór Pálsson verkfræð-
ingur. Aðalheiður hélt sambandi við
þau og foreldra sína eins og kostur
var, einkum Halldór, en hann var
búsettur í Reykjavík og er látinn
fyrir allmörgum áram.
Á unglingsámm sínum vann
Aðalheiður hefðbundin sveitastörf í
heimasveit sinni, var í kaupavinnu
og við heimilisstörf á ýmsum bæj-
um, en 17 ára gömul fór hún í
Húsmæðraskólann á Blönduósi og
var þar í eitt ár. Liðlega tvítug flutt-
ist hún til Reykjavíkur og fljótlega
eftir komuna þangað hóf hún störf
hjá Ölgerðinni Agli Skallagríms-
syni. Þar urðu þáttaskil í lífí
Aðalheiðar þegar hún kynntist
Kristni Lýðssyni, sem síðar átti eft-
ir að verða eiginmaður hennar, en
þau gengu í hjónaband 10. október
1931.
Kristinn var sonur Sigríðar Sig-
urðardóttur og Lýðs Árnasonar-
bónda á Hjallanesi í Landsveit. Á
hjónaband þeirra Aðalheiðar og
Kristins féll aldrei skuggi, gagn-
kvæm virðing og kærleikur ríkti
ávallt á milli þeirra og þau vom
samtaka í hjálpsemi við aðra. Það
kom meðal annars fram í því að
þau tóku aldraða foreldra Kristins
inn á heimili sitt þar sem þau nutu
umhyggju og ástúðar síðustu æviár
sín. Gestkvæmt var á heimili þeirra
og oft margt um manninn enda
vina- og ættingjahópurinn stór.
Mest allan sinn búskap bjuggu
þau á Hringbraut 52 í Reykjavík,
þar sem þau eignuðust eigin íbúð
í nýbyggðum svokölluðum verka-
mannabústöðum árið 1937. Áður
höfðu þau búið í leiguhúsnæði.
Húsakynnin vom ekki stór miðað
við það sem nú gerist, en þótti gott
á þeim ámm og alltaf var til rúm
fyrir gest sem að garði bar.
Aðalheiður og Kristinn eignuðust
flögur böm. Elst er Unnur, gift
Valgeiri J. Emilssyni prentara, Jón
Ingi matsveinn, d. 28. júní 1981,
hann var kvæntur Ástu Eyþórs-
dóttur, Sigurður Lýður rafvirki,
kvæntur Soffíu Thoroddsen, og
yngst er Ásdís, en hennar maður
er Magnús Kjæmested stýrimaður.
Kristinn starfaði alla tíð í Ölgerð-
inni eða þar til hann varð að láta
af störfum sökum heilsubrests sem
hann átti vi_ð að stríða síðustu ár
ævi sinnar. í veikindum hans sýndi
Aðalheiður það sem fyrr hve sterk
og umhyggjusöm kona hún var.
Kristinn lést þann 19. desember
1981, en aðeins hálfu ári áður höfðu
þau misst eldri son sinn, Jón Inga.
Aðalheiður bar harm sinn í hljóði,
en harmur hennar var samt mikill.
Fyrstu árin eftir lát Kristins bjó
hún áfram á Hringbrautinni og
naut góðrar umhyggju bama sinna.
Þá kom að því að hún gat ekki leng-
ur hugsað um sig sjálf og þarfnaðist
það mikillar umhyggju, að hún
þarfnaðist sjúkrahúsvistar, fyrst á
Landspítalanum, en fluttist þaðan
á Sólvang í Hafnarfirði. Þar fékk
hún góða aðhlynningu og börn
hennar heimsóttu hana nær dag-
lega. Hugur Aðalheiðar var samt
alltaf heima og hún gerði sér ekki
alltaf fyllilega grein fyrir því að hún
væri annars staðar en þar.
Heimilið og fjölskyldan hafði alla
tíð verið hennar vettvangur. Allt
var í röð og reglu hvernig sem á
stóð, hreinlæti og snyrtimennska
ávallt í fyrirrúmi, bæði innanhúss
og utan. Heimilið bar vott um
smekkvísi þeirra hjóna, en þau vom
bæði laus við glysgimi, en mátu
því meira það hreina og einfalda.
Hógværð, hlýja og hlédrægni ein-
kenndi Aðalheiði í daglegu starfi.
Hún var vel gefín kona og fylgdist
vel með og lét skoðanir sínar í ljósi
á ákveðinn hátt, án þess þó að
særa aðra. Henni var mjög um-
hugað um böm sín, tengdaböm og
bamaböm, enda sýndu þau þakk-
læti sitt í verki með allri þeirri
umhyggju sem þau gátu veitt henni.
Stuttu fyrir andlátið var hún með
okkur fjölskyldu sinni á heimili sínu
á Hringbrautinni og þar áttum við
góðan dag saman eins og svo oft
áður og daginn áður en hún lést, á
83. afmælisdeginum, vom bömin
hjá henni í síðasta sinn.
Ég vil að lokum færa Aðalheiði
innilegar þakkir mínar og fjölskyldu
minnar fyrir samvemárin og alla
þá góðvild sem hún hefur sýnt
mér, allt frá því ég kom fyrst á
heimili þeirra hjóna og fram á
síðustu stund.
Blessuð sé minning hennar.
Valgeir J. Emilsson
t
Tengdafaðir minnn og afi okkar,
FRIÐRIK JÓNSSON,
fyrrv. vörubilstjóri,
Ásvallagötu 24, Reykjavfk,
lést þriðjudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 2. október kl. 15.00.
Steinn Steinsson,
Þorsteinn Steinsson,
Finna Birna Steinsson,
Friörik Steinsson,
Þorkell Steinsson.
t
MARGRÉT LOUISE THORS,
Seljavegi 19,
andaöist 29. september. Jarðarförin auglýst síðar.
Aðstandendur.
t
Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
ÞÓRA PETRÍNA JÓNSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja Reynisvatni,
Mávahlíð 3,
verður jarðsungin að Lágafelli, föstudaginn 2. október kl. 14.00.
Geirlaug Ólafsdóttir,
Jón Ólafsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Eyjólfur Kristinsson,
Guðrfður Ólafsdóttir, T ryggvi Valdimarsson,
Jóhanna Ólafsdóttir, Þorgeir Þorkelsson,
Kristinn Ólafsson, Fanný Guðmannsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
t
Hjartkaer eiginkona mín, móðir, tengdamóöir, amma og
langamma,
LÁRA ANTONSDÓTTIR,
Bræðraborgarstfg 53,
lést í Landspítalanum aöfaranótt 30. september.
Valur Guðmundsson,
Stefanfa Rósa Sigurjónsdóttir, Heimir Ingimarsson,
Sigrún Valsdóttir, Guðmundur M. Jónsson,
Björk Valsdóttir, Magnús Leópoldsson,
Erna Valsdóttir, Sveinn Skúlason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Borðeyri,
verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju laugardaginn 3. október
kl. 14.00.
Sigrfður Ingólfsdóttir,
Sigurjón Ingólfsson,
Dagmar Ingólfsdóttir,
Kristjana Ingólfsdóttir,
Inga Ingólfsdóttir,
Rögnvaldur Helgason,
Sigfríður Jónsdóttir,
Pótur Björnsson,
Grfmur Benediktsson,
Þorsteinn Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur sonur minn og bróðir okkar,
GUÐMUNDUR Ú. SIGURJÓNSSON,
sem andaðist 26. september, verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju föstudaginn 2. október kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á vist-
heimiliö Skálatún.
Fyrir hönd aettingja,
Sigurjón Úlfarsson
og systkini.
t
Eiginkona mín,
GUNNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgarheiði 13,
Hveragerði,
er lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 24. september, verður jarðsungin
laugardaginn 3. október kl. 14.00 frá Landakirkju, Vestmannaeyj-
um.
Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna,
Björgvin Pólsson.
t
Faðir okkar og tengdafaöir,
GUNNAR BJARNASON,
fyrrum skólastjóri Vólskólans,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. október
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Líknarsjóö Oddfellowa
(sími 42915) eða Minningarsjóð Borgarspítalans (sími 696600).
Anna Bjarnason,
Jón Páll Bjarnason,
Atli Steinarsson,
Roberta Ostroff-Bjarnason.